Morgunblaðið - 03.06.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.06.2019, Qupperneq 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Þrjú fyrirtæki eru í dag í forystu í kapphlaupinu um að geta komið vörum til viðskiptavina með fljúgandi drónum: Google, Amazon og Aha,“ segir Helgi Már Þórðarson, annar eigenda Aha.is og hlær dátt, enda skrítið til þess að hugsa að íslensk netverslun standi hér um bil jafn- fætis tveimur stærstu tæknifyr- irtækjum heims. Var Aha í for- grunni í umfjöllun Wall Street Journal í mars þar sem farið var í saumana á tækifærum og áskorun- um í þróun vörusendinga-dróna. Bendir blaðamaður WSJ á að eitt af því sem hafi hjálpað til við þróun þessarar tækni á Íslandi sé að nokk- uð greiðlega hefur gengið að fá leyfi til að gera tilraunir með drónasend- ingar. Í stórborgum víða um heim hafa stjórnvöld sett drónaflugi þröngar skorður og prófanir með vörusendingar verið takmarkaðar við lítil þorp eða nokkur hús í til- teknu hverfi. „Það eru 6-7 ólíkar stofnanir sem við þurfum að vinna með og hægt og rólega hefur okkur verið veitt meira svigrúm eftir því sem reynslan hefur aukist. Fyrir tveimur árum voru reglurnar þannig að drónarnir okkar þurftu að lenda á einu skilgreindu lendingarsvæði. Seinna urðu flugleiðirnar fleiri og nú höfum við fengið leyfi til að láta vör- una síga niður til viðtakandans.“ Auk stuttra boðleiða og samstarfs- fúsra stjórnvalda segir Helgi að Ís- land henti líka vel til drónaprófana vegna þess að veðurskilyrði eru krefjandi. „Það sama gildir um okkur og gildir um Boeing og Airbus sem senda þotur sínar hingað til að prófa við erfiðustu skilyrði. Við þurfum að útbúa dróna okkar þannig að þeir þoli sterka vinda, frost, úrkomu og snjó,“ útskýrir Helgi. „Reynslan sem við höfum byggt upp hérlendis hefur þegar vakið athygli hjá yfirvöldum erlendis og erum við reglulega fengin til ráðgjafar varðandi innleiðingu drónasendinga í nágrannalöndunum, og þá helst í Bretlandi.“ Aha.is varð til árið 2010 sem af- sláttartilboðavefur en óx og þróaðist og hóf að bjóða upp á heimsendan mat frá völdum veitingastöðum árið 2014. Árið 2017 hófu Aha og Nettó samstarf og geta notendur núna gert matarinnkaupin í Nettó á netinu og ýmist látið senda heim til sín – með bíl – hvar sem er innan höfuðborg- arsvæðisins eða á Akureyri, ellegar sótt sjálfir þá verslun sem þeim hentar best. Fljótari og ódýrari Undanfarin ár hefur Aha þróað leiðir til að senda vörur með dróna og segir Helgi að þessi nýja tækni geti bæði stytt afhendingartíma og dregið stórlega úr sendingarkostn- aði enda sé dróninn sjálfstýrður. Starfsmaður fylgist með fluginu til að ganga úr skugga um að allt gangi vel fyrir sig, og getur vaktað marga dróna í einu. „Hár kostnaður hefur verið helsta fyrirstaðan í heimsend- ingu á vörum og tilbúnum mat hér á landi en ekki er nóg með að drón- arnir komi sendingunni á áfangastað nær alveg sjálfvirkt, heldur ætti til- tölulega öflugur dróni að kosta mun minna en bifreið til sömu nota.“ Aha fær drónana í dag frá Kína og útbýr þá sérstaklega fyrir vöru- sendingar. Fyrirtækið notar að mestu aðkeyptar tæknilausnir fyrir drónaflugið en hefur þó þróað eigin hugbúnað til samtengingar við önn- ur hugbúnaðarkerfi fyrirtækisins, sem verið er að vinna í að fá einka- leyfi fyrir. Segir Helgi að eftir því sem betur gengur að koma vöru- sendingum með drónum í almenna notkun geti Aha farið að einbeita að sér að því að gera þekkingu sína á þessu sviði að útflutningsvöru. Stendur núna yfir leit að fjárfest- um og markið sett á að afla um 100- 200 milljóna króna, og í framhaldinu mun fara fram fjármögnun erlendis til að standa undir frekari þróun og markaðssetningu utan íslenska markaðarins. Verslunarmiðstöðvum gefið nýtt hlutverk Aha hefur einkum verslunarmið- stöðvar í sigtinu og sjá stjórnendur fyrir sér að þær geti orðið n.k. vöru- hús fyrir flota af drónum, vélmenn- um og bílum sem skjótast með vörur til viðskiptavina. Helgi bendir á verslunarmiðstöðvar um allan heim glími við þann vanda að komum við- skiptavina fari fækkandi enda velji æ fleiri að versla á netinu. Vandi netverslana, aftur á móti, sé sá að það stóreykur hjá þeim kostnaðinn ef viðskiptavinur vill skila eða skipta vöru og oft þarf að senda varninginn langar leiðir – jafnvel á milli landa – til að koma honum frá viðskiptavini aftur í vöruhús. „Okkar markhópur eru verslun- armiðstöðvar með 250.000 – 1 millj- ón íbúa í 5-10 km radíus. Viðskipta- vinur færi þá inn á vefsíðu verslunarmiðstöðvarinnar og pant- aði sér t.d. treyju frá Calvin Klein. Starfsmaður sendir bolinn síðan jafnóðum af stað með dróna, eða öðrum sendingarmáta eftir því sem við á, og ef í ljós kemur að treyjan passar ekki þá er hægt að skila henni sömu leið, hratt og örugglega. Sérhæfing okkar felst í því að lág- marka kostnað með hjálp tækninnar og láta allt ferlið frá kaupum til tínslu og afhendingar vinna snurðu- laust saman, hvort sem verið er að flytja vöru með dróna, vélmenni eða bíl,“ segir Helgi og bendir á hvernig þetta nýti fjárfestingu í verslunar- miðstöðvum betur, stytti afhending- artíma og lágmarki kostnað vegna vöruskila. Í útrás með íslenska lausn Ljósmynd/Aha Ómissandi Drónarnir eru mikilvægur hlekkur í heimsendingarlausn Aha. Ísland hefur hentað fyrirtækinu vel fyrir metnaðarfullar drónatilraunir.  Kerfi Aha gæti lagað tilvistarvanda verslunarmiðstöðva á tímum netverslunar Helgi Már Þórðarson 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 3. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.76 124.36 124.06 Sterlingspund 155.73 156.49 156.11 Kanadadalur 91.24 91.78 91.51 Dönsk króna 18.465 18.573 18.519 Norsk króna 14.066 14.148 14.107 Sænsk króna 12.934 13.01 12.972 Svissn. franki 123.19 123.87 123.53 Japanskt jen 1.1376 1.1442 1.1409 SDR 170.49 171.51 171.0 Evra 137.91 138.69 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.9957 Hrávöruverð Gull 1276.45 ($/únsa) Ál 1761.5 ($/tonn) LME Hráolía 66.24 ($/fatið) Brent Í síðustu viku hélt stjörnufjárfest- irinn Warren Buffett árlegt góðgerðarupp- boð sitt í 20. sinn. Hæstbjóðandi fær að fara út að borða með Buff- ett á steikhúsinu Smith & Wol- lensky á Manhatt- an og má ræða um hvað sem er við fjárfestinn aldna nema hverju hann hyggst fjárfesta í næst. Hæstbjóðandinn að þessu sinni var nafnlaus, en mun greiða 4.567.888 dali fyrir málsverðinn. Er það nærri þriðjungi hærra en fyrra met frá 2016. Afrakstur uppboðsins rennur til góðgerðarsamtaka sem hjálpa fá- tækum, heimilislausum og fíklum í San Francisco. Samtals hafa uppboð Buffetts aflað samtökunum 34,3 milljóna dala frá árinu 2000. ai@mbl.is Metverð fyrir máls- verð með Buffett Warren Buffett Tim Clark, for- stjóri risaflug- félagsins Em- irates, telur að vegna erfiðleika í samstarfi flug- málayfirvalda í Bandaríkjunum og öðrum löndum verði að teljast ólíklegt að flug- vélar af gerðinni Boeing 737 MAX, sem hafa verið kyrrsettar frá því um miðjan mars, fari aftur í notkun fyrr en a.m.k. eftir jól. Lét hann þessi orð falla á aðal- fundi IATA, Alþjóðasambands flug- félaga, sem fram fór í Seúl um helgina. Stangast þetta á við vænt- ingar fluggeirans um að MAX- vélarnar geti farið aftur í loftið strax í júlí. Bloomberg greinir frá þessu og bendir á að Emirates noti ekki flugvélar frá Boeing, en það geri aft- ur á móti lágfargjaldaflugfélagið FlyDubai, systurfélag Emirates. Clark segir jafnframt að jafnvel þó MAX-vélarnar fari aftur í notkun megi vænta þess að gerð verði krafa um að flugmenn bæti við sig þjálfun í 737 MAX flughermum. Eru aðeins nokkrir slíkir í notkun á heimsvísu og myndi það valda enn frekari töf- um. ai@mbl.is Tap MAX-vélar sitja óhreyfðar. Telur Boeing- vélar ekki fljúga í bráð Nýlega var tilkynnt um útvíkkun á samstarfi Aha og Nettó. Nær sam- vinnuverkefnið núna til 14 af 21 verslun Nettó um allt land og er nú hægt að fá matinnarinnkaupin send heim að dyrum á Akureyri og í Reykjavík, en sækja þarf inn- kaupapokana þar sem þeir bíða til- búnir í verslunum á stöðum eins og Selfossi, Grindavík, Egils- stöðum, Ísafirði og Höfn í Horna- firði. Helgi segir vinsældir þessarar þjónustu vaxa hægt en örugglega og að þeir sem komist upp á lagið geti yfirleitt ekki hugsað sér að gera matarinnkaupin með öðrum hætti. Að fá matinn sendan heim spari fólki bíltúrinn, en jafnvel ef innkaupin eru sótt í verslun – s.s. á heimleið úr vinnu – þá felist í því töluverður tímasparnaður að þurfa ekki að þræða ganga verslananna, raða ofan í körfu og bíða í röð á kassa. Næsta skref er að koma fyrir læstum skápum þar sem við- skiptavinir geta nálgast innkaupin utan afgreiðslutíma. „Við erum þegar með þannig skápa í notkun á einum stað og eru þeir ýmist fyr- ir þurrvöru, kælivöru eða frysti- vöru. Viðskiptavinurinn kemur þegar honum hentar, slær inn kóða, og þá opnast þeir skápar sem geyma pöntunina hans.“ Pokarnir bíða í búðinni Æ FLEIRI KAUPA Í MATINN Á NETINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.