Morgunblaðið - 03.06.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Ljóst er að ekki einungis á Íslandi hafa ung-
menni gaman af því að stinga sér til sunds. Þess-
ir vösku kappar skelltu sér í laugina í útjaðri
borgarinnar Amritsar á Norður-Indlandi í gær
þegar hitabylgja reið yfir. Hitinn fór sums stað-
ar yfir 50 gráður á celsíus og var því kærkomið
að geta kælt sig aðeins í lauginni. Íslendingar
munu mögulega þurfa að leika þetta eftir í dag,
þar sem hiti gæti farið upp í ellefu gráður.
AFP
Kærkomið að kæla kroppinn í lauginni
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti lét
Brexit-málefni sig varða enn á ný í
gær þegar hann ráðlagði Bretum að
yfirgefa Evrópusambandið (ESB) án
samnings, ef það væri það sem til
þyrfti. „Ef þau fá ekki það sem þau
vilja, myndi ég ganga í burtu. Ef þú
færð ekki samninginn sem þú vilt, ef
þú færð ekki sanngjarnan samning,
þá gengurðu í burtu,“ sagði Banda-
ríkjaforsetinn sem eins og margir vita
er þekktur fyrir að vera harður í horn
að taka í samningaviðræðum.
Theresa May mun láta af embætti
sem forsætisráðherra Bretlands
næstkomandi föstudag. Í Brexit-
samningnum sem hún barðist fyrir,
en kom ekki í gegn í breska þinginu,
er gert ráð fyrir að Bretar greiði 45
milljarða evra vegna útgöngu Bret-
lands úr ESB. Um þetta sagði
Trump: „Ef ég væri í þeirra stöðu
myndi ég ekki greiða [45 milljarða].
Það er ég. Ég myndi ekki greiða,
þetta er gríðarhá tala.“
Viðskiptasambandið undir
Ummæli Trumps koma á áhuga-
verðum tímapunkti því opinber heim-
sókn hans til Lundúna hefst í dag.
Mun hann bæði eiga fund með Elísa-
betu Englandsdrottningu og Karli
Bretaprins, auk þess að funda með
May. Líklegt þykir að hann og May,
sem eins og áður segir gegnir emb-
ætti forsætisráðherra út vikuna, muni
ræða hvernig viðskiptasambandi
þjóðanna tveggja verði háttað þegar
Bretar hafa formlega yfirgefið ESB.
Þykir niðurstaða um slíkt viðskipta-
samband vera sérstaklega mikilvæg
fyrir Breta, ekki síst ef þeir yfirgefa
ESB án samnings. Hafa sumir lýst yf-
ir áhyggjum yfir því að Bretar muni
neyðast til að samþykkja samkomu-
lag sem væri þeim óhagstæðara en
Bandaríkjamönnum, þá sérstaklega
vegna þess hve Trump hefur viðhald-
ið sterkri „Bandaríkin fyrst“ afstöðu
sinni í viðræðum við önnur ríki, og
hrist upp í viðskiptasamningum við
Mexíkó, Kína, Kanada o.fl.
Líst vel á Boris
Eins og víða hefur komið fram
bendir flest til þess að Boris Johnson,
fyrrverandi utanríkisráðherra Bret-
lands, taki við af May sem leiðtogi
Íhaldsflokksins og líst Trump vel á
það, eins og hann lýsti í viðtali við The
Sun nú á dögunum. „Mér hefur alltaf
líkað vel við hann. Ég veit ekki hvort
hann verður kjörinn en ég held að
hann sé virkilega góður maður og
mjög hæfileikarík manneskja,“ sagði
Trump.
Þá sagði hann að Nigel Farage, for-
maður Brexit-flokksins, hefði mikið til
málanna að leggja og ætti að taka þátt
í samningaviðræðum Breta við ESB.
Ræður Bretum heilt
Trump hvetur Breta til að yfirgefa ESB án samnings „Ég myndi ekki greiða“
Heimsækir Elísabetu í dag Hefur lýst yfir velþóknun á Boris Johnson
Donald Trump Theresa May
Ný fimm flokka
ríkisstjórn Antti
Rinne, formanns
jafnaðarmanna í
Finnlandi, er
tilbúin og búið er
að raða í ríkis-
stjórnarstólana.
Frá þessu
greindi Rinne á
twitter í gær en
samkvæmt
finnska miðlinum Yle má búast við
að ríkisstjórnarsamstarfið verði til-
kynnt snemma í dag.
Auk jafnaðarmanna Rinne eiga
sæti í nýju ríkisstjórninni Mið-
flokkur fráfarandi forsætisráð-
herra Juha Sipilä, Græningjar,
Vinstra bandalagið og Sænski þjóð-
arflokkurinn.
Fimm flokka finnsk
ríkisstjórn tilbúin
Antti
Rinne
FINNLAND
Frans páfi baðst fyrirgefningar
þegar hann heimsótti rómafólk í
Rúmeníu í gær. „Ég biðst fyrirgefn-
ingar í nafni kirkjunnar fyrir
augnablikin í tímans rás sem við
höfum mismunað, farið illa með eða
vantreyst [rómafólki],“ sagði páfinn
í ræðu sinni til rómafólks í bænum
Blaj í Rúmeníu. Rómafólk heldur
aðallega til í Mið- og Suður-Evrópu
en um 10% rúmönsku þjóðarinnar
eru rómafólk. Stór hluti er án vinnu
og býr við fátækt.
Baðst fyrirgefningar
í ræðu til rómafólks
RÚMENÍA
Andrea Nahles,
formaður Jafn-
aðarmanna-
flokksins í
Þýskalandi,
samstarfsflokks
Kristilegra
demókrata í rík-
isstjórn Angelu
Merkel, til-
kynnti afsögn
sína sem for-
maður flokksins í gærmorgun.
Nahles var undir þrýstingi um að
segja af sér eftir að flokkur
hennar fékk afar slæma kosningu
í Evrópuþingskosningunum í síð-
ustu viku. Merkel Þýskalands-
kanslari sagði síðar í gær að rík-
isstjórnin myndi halda áfram með
sína vinnu, en ríkisstjórnarsam-
starfið milli flokkanna tveggja
hefur þótt viðkvæmt frá byrjun.
„Við munum halda áfram með
okkar vinnu af alvöru og
ábyrgð,“ sagði Merkel í gær.
ÞÝSKALAND
„Ríkisstjórnin held-
ur vinnunni áfram“
Andrea
Nahles