Morgunblaðið - 03.06.2019, Page 20

Morgunblaðið - 03.06.2019, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Sjómaður óskar eftur sumarbústað Ó.E. sumarbústað í langtímaleigu, keyrslufjarlægð frá Rvk. Er sjómaður og því sjaldan í landi en mundi vilja njóta þegar það er. Reyklaus, reglu- og tillitssamur. Greiðslugeta 70k per mánuð. Hafa samband í 55@55.is Ýmislegt Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Opin handavinnustofa kl. 9 -12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt og 18. holur útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mándagur: Bingó kl. 13. Sundleikfimi kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8:50. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Línudans kl 10. Skemmti- ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhor- nið kl. 13-15. Gáfumannakaffi kl. 14:30. Hugmyndabankinn opinn kl. 9- 12. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7.30 /8.15 /15. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30. Liðstyrkur. Sjál kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg 3-5 Mánudagur Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9:-16. Leikfimi maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben 11-11:30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Seltjarnarnes Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. á morgun þriðjudag verður púttað á golfvellinum kl. 13.30. Þeir sem vilja far út á völl mæti á Skólabraut kl. 13.15. Sumar- dagsrkráin fyrir félagsstarfið tekur gildi þriðjudaginn 11. júní og verður borin í hús á næstu dögum. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Albert Sig-urjónsson fæddist 3. október 1963. Hann lést 22. maí 2019 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru hjónin Sig- urjón Hall- grímsson, f. 8. mars 1932, d. 1. júní 2002, og Þórkatla Al- bertsdóttir, f. 21. ágúst 1942, d. 12. apríl 2016. Bræður Al- berts eru: Hallgrímur P. Sig- urjónsson, f. 7. janúar 1965, eiginkona Kristín V. Helga- dóttir, og Rúnar S. Sigur- jónsson, f. 14. ágúst 1969, eig- inkona Ragnheiður Þ. Ólafsdóttir. Steinn Freyr Þorleifsson, f. 17. júlí 1992. Sonur þeirra er Þorleifur Freyr, f. 12. maí 2017. 3) Sigurpáll, f. 21. júní 1993, sambýliskona Katarzyna Kujawa, f. 18. nóvember 1990. Albert ólst upp í Kópavogi til tólf ára aldurs en þá flutti fjölskylda hans til Grindavík- ur. Um svipað leyti byrjaði hann að fara í sveit á sumrin. Síðar stundaði hann nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og vann við smíðar hjá Grindinni ehf. Árið 1987 fór hann svo að vinna hjá Vísi hf. og starfaði þar við ýmis stjórnunar- og uppbyggingarstörf allt til ævi- loka. Árið 2000 flutti fjölskyldan á Ísafjörð, þar sem þau bjuggu í fimm ár, og starfaði Albert sem rekstrarstjóri á Þingeyri. Albert lék fótbolta með gullaldarliði Grindavíkur. Á seinni árum stundaði hann laxveiði og fluguhnýtingar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 3. júní 2019, klukkan 14. Albert kvæntist Svanhvíti Daðeyju Pálsdóttur sjúkra- liða í Grindavíkur- kirkju 23. maí 1987. Hún fæddist 6. desember 1964 og er dóttir Páls H. Pálssonar og Margrétar Sig- hvatsdóttur. Börn Alberts og Svan- hvítar eru: 1) Þór- katla Sif, f. 15. nóvember 1986, eiginmaður Þorleifur Ólafsson, f. 16. nóvember 1984. Börn þeirra eru: a) Þór- ey Tea, f. 9. september 2008, b) Albert, f. 22. maí 2011, c) Jóhann Daði, f. 12. febrúar 2015, og d) Sif, f. 22. nóv- ember 2016. 2) Margrét, f. 24. apríl 1989, sambýlismaður Elsku pabbi. Mikið er ég heppin að hafa átt þig sem pabba. Þú varst traustur, jarð- bundinn, vinmargur og góður og börnin mín eiga eftir að sakna þín mikið. Þú varst góður afi og gafst þér alltaf tíma til að hlusta á hvað þau hefðu að segja. Þú varst afi sem gaf þeim kærleika og ást. Afi sem alltaf bjargaði málunum. Nafni þinn kom oft með hjólið sitt til þín og þú lagaðir það, eins og svo margt annað. Við Þórey Tea tölum um allar heim- sóknirnar þínar til okkar og um derhúfuna þína sem henni þótti svo vænt um. Jóhann Daði talar um notalegu stundirnar sem þið áttuð með spjaldtölvuna þína og nammipokann og Sif man alla hlýjuna sem þú veittir henni. Það var erfitt að horfa á þig ganga í gegnum þessi veikindi en á sama tíma reyndi ég að nýta tímann vel með þér. Þegar ég var í Ljósmyndaskólanum í vetur var ég svo lánsöm að fá að mynda þig og við grínuðumst oft með að þú værir aðalmódelið mitt. Við borðuðum saman há- degismat eða fengum okkur góðan kaffibolla, þú gafst mér góð ráð og við spjölluðum um daginn og veginn. Minningarnar um þennan tíma eru og verða mér ætíð dýrmætar. Við töluðum meðal annars um það hve þakklát við værum fyrir hana mömmu. Hún studdi þig í veikindunum og stóð með okkur börnunum og fjölskyldum okkar. Og við vitum að hún á eftir að gera það áfram Við fjölskyldan munum ylja okkur við góðar minningar um elsku pabba, tengdapabba og afa sem gaf okkur svo mikið og var okkur svo mikils virði. Þú varst og verður fyrirmynd mín í einu og öllu. Takk fyrir allt, elsku pabbi. Þórkatla Sif Albertsdóttir. Sólargeislarnir gægðust inn um gluggann þegar þú kvaddir okkur á erfiðri stundu. Þú varst ekki tilbúinn að gefast upp og barðist allan tímann til að fá lengri tíma hér hjá okkur. Sólin hefur skinið síðan og ég er viss um að þú ert á himnum að beina henni til okkar á þessum erfiða tíma. Enda gerðir þú alltaf þitt allra besta til að okkur liði vel. Pabbi var einstakur maður og mörgum góðum eiginleikum gæddur. Hann var vinmargur, traustur, húmoristi, handlaginn, talaði vel um náungann, nægju- samur, nýtinn og svo mætti lengi telja. Þeir sem þekktu pabba vita hversu harður hann var af sér og mikill töffari. Hann vildi öllum svo vel í kringum sig en hefði mátt setja sjálfan sig oftar í fyrsta sæti. Hann var ekki lengi að stökkva til þegar einhver þurfti á honum að halda, hvort sem það var að skjótast á lyftarann og redda kari eða hjálpa okkur að setja upp ljós eða hillur heima. Pabbi kenndi mér margt sem ég tek með mér út í lífið. Hann kom fram við alla af virðingu og leiðbeindi í stað þess að gagn- rýna og hvatti okkur systkinin til að láta drauma okkar rætast. Hann sagði mér ófáar hetjusög- ur af sér í fótboltanum og var hreinskilinn við mig eftir að hafa horft á leik hjá mér. Ég átti oft erfitt með að hlusta á það en að lokum tók ég það til mín og not- aði til að bæta mig. Keppnisskapið, viljann og húmorinn notaði pabbi til að komast í gegnum veikindin. Hann var stoð mín og stytta í gegnum sín eigin veikindi. Þótt ég reyndi að vera sterk og vera til staðar fyrir hann endaði það yfirleitt á því að hann hug- hreysti mig og faðmaði. Þegar við spurðum hann hvort við gæt- um gert eitthvað fyrir hann svaraði hann „bara brosa“. Ein- hvern tímann var ekki laust her- bergi á deildinni svo rúmið hans var á ganginum. En hann lét það nú ekki fara í taugarnar á sér eins og við, heldur sagði bara sáttur að hann hefði fengið stærsta herbergið. Hann kom starfsfólkinu á spítalanum stöð- ugt á óvart, var orðinn óvenju vinsæll á dásamlegu 11G-deild- inni og fékk ósjaldan hrós frá starfsfólkinu, enda afburða sjúklingur sem kvartaði aldrei og þakkaði fyrir hvert innlit. Þorleifur Freyr átti einstakt samband við afa sinn. Frá því hann fæddist var hann mikið hjá ömmu Svanhvíti og afa Alberti. Hann varð strax mikill afastrák- ur og hljóp yfirleitt inn um dyrnar beint í faðm afa. Vinátta þeirra var mögnuð allt til enda. Þegar pabbi gat ekki haldið á honum lengur og varla leikið við hann sótti Þorleifur Freyr samt mikið í að vera nálægt honum og var alveg sjúkur í að fara til ömmu og afa eftir leikskóla eða til afa upp á spítala. Og hann var ekki sáttur ef hann vissi að mamma hans væri hjá afa og hann ekki með. Ég mun sakna þín svo mikið, elsku pabbi minn. Þú ert fyr- irmynd mín í lífinu og ég mun ávallt heiðra minningu þína, minnast þín og segja Þorleifi Frey frá frábæra afa sínum. Líf- ið er ekki alltaf sanngjarnt og ég mun aldrei geta sætt mig við það að þú sért farinn, svona ungur að aldri. En ég hugga mig við að þér líður betur núna, með afa Sigurjóni og ömmu Köllu í draumalandinu. Þín Margrét. Með þakklæti í huga kveð ég yndislegan svila og félaga sem tekinn var alltof snemma frá fjölskyldu sinni. Þegar Albert kom inn í fjölskyldu okkar var tengdapabbi ekki lengi að sjá eiginleikana sem hann bjó yfir og fékk hann til að koma í vinnu hjá sér. Þannig voru örlögin ráðin og við tengdasynirnir urð- um vinnufélagar. Samstarfið var farsælt frá fyrsta degi, Albert var duglegur og ósérhlífinn en hans helsti kostur var hvað hann var góður í samskiptum. Hann var allra og með sínu jafn- aðargeði vann hann hug og hjarta þeirra sem kynntust hon- um. Albert var skemmtilegur og þægilegur veiðifélagi en í veiði- ferðum hópsins var ég svo lán- samur að deila með honum stöng og herbergi. Það verður skrýtið að fara í næstu veiðiferð og hafa ekki minn besta vin með í för. Albert var góður nágranni og þar eins og annars staðar var hann alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Elsku Svanhvít, Þórkatla, Margrét, Sigurpáll og fjölskyld- ur, hugur minn er hjá ykkur. Megi góður Guð styðja ykkur og styrkja á þessum erfiða tíma. Ágúst Þór Ingólfsson. Okkar kæri Albert. Við trúum því að lífið hafi tilgang og fáum stundum á tilfinninguna að við séum að framfylgja handriti sem Skaparinn hefur skrifað. Í því handriti vorum við svo heppin að fá að ganga með þér hátt í fjörutíu ár. Sem mágur þinn og svilkona fengum við að fylgjast með hvernig þú umgekkst fjöl- skyldu þína af alúð, ást og ábyrgð. Sem veiðifélagar kynnt- umst við þér vel og sáum þann góða dreng sem þú hafðir að geyma, en eins og þú veist felur sig enginn fyrir sjálfum sér í veiðitúr. Sem vinur varstu okkur sterkur og traustur. Við nutum einnig þeirra forréttinda að fá að vinna með þér allan okkar starfsaldur og aldrei bar skugga þar á. Þú varst ávallt æðrulaus og jákvæður, settir sjálfan þig aldrei í forgrunn og varst óspar á að hvetja aðra til dáða. Fyrir það erum við þakklát. En jafn hamingjusöm og við höfum verið með handritið fram að þessu getum við ég ekki ann- að en verið sár og reið yfir þeim kafla sem við lifum nú. Að þú skulir falla fyrstur af okkur fé- lögum er óskiljanlegt og ekki í takt við neitt. Fjölskylda þín þarf nú að lifa án þín, vinir fá þig ekki í heimsókn og vinnu- félagar þurfa að ráða fram úr sínum málum sjálfir. Einu með- ölin sem við höfum til að takast á við þessa áskorun eru minn- ingarnar um þig. Orð þín, ráð og viðhorf verða okkur til fyrir- myndar og eftirbreytni í sárum söknuði. Stærsta hjálpin mun samt sem áður verða sú að halda áfram að trúa því að lífið hafi tilgang, jafnvel þótt við skiljum hann ekki. Guð blessi og styrki Svan- hvíti, börnin, tengdabörnin, barnabörnin og bræður þína í sinni djúpu sorg. Pétur og Ágústa. Yndislegur mágur okkar og vinur er látinn eftir löng og erfið veikindi. Okkur systrum þótti afskaplega vænt um þennan magnaða mann. Hann kom inn í líf fjölskyldunnar í Mánagerði fyrir rúmum þremur áratugum og var ekki lengi að vinna hjörtu okkar með brosinu sínu bjarta. Albert var einstakur á svo margan hátt. Hann var alltaf já- kvæður og úrræðagóður og hafði sérstakt lag á að láta fólki líða vel, hvort sem var í vinnu eða í daglegu lífi. Þrátt fyrir veikindin síðustu ár var Albert alltaf hress og kátur, tapaði aldrei húmornum og fékk okkur til að hlæja fram á síðustu stundu. Minningarnar eru margar og eiga eftir að ylja okkur um ókomin ár. Samverustundir eru dýrmætar og það er gott að geta rifjað þær upp og fundið fyrir kærleikanum sem umvafði okkur í návist Alberts. Systir okkar, börn hennar, tengdabörn og barnabörn hafa staðið þétt saman í gegnum þessa erfiðu tíma. Þessi hug- rakka og fallega fjölskylda hefur sýnt okkur að ástin sigrar allt. Hvíl í friði, elsku Albert. Við lofum að passa systur okkar og fólkið þitt vel, við vitum hve heitt þú elskaðir þau. Kristín, Margrét og Sólný Pálsdætur. Við kveðjum góðan og traust- an vin. Það er með trega að við vina- hópurinn kveðjum Albert Sig- urjónsson. Við höfum haldið hópinn í áratugi en konurnar eru æskuvinkonur úr Grindavík og karlarnir komu inn í hópinn eftir því sem árin liðu. Við hittumst við ýmis tilefni en hið árlega þorrablót var orðið fastur punktur í tilverunni þar sem allir lögðu eitthvað til. Al- bert sá þá alltaf um hákarlinn, sem að sjálfsögðu kom að vest- an, en þar bjó fjölskyldan um tíma. Albert fór sér að engu óðs- lega, var hæglátur maður og vandvirkur, hugsunarsamur og hafði sérstaklega þægilega nær- veru. Það var líka ávallt stutt í húmorinn. Glettin tilsvör fram á síðasta dag og lúmskt brosið bræddi alla. Alberti fannst aldrei mikið mál að keyra vestur eða austur á firði og aftur til baka, sam- dægurs ef þess þurfti. Hann var enda mikill bílaáhugamaður og hugsaði alltaf vel um bílana sína. Þeir voru ætíð stífbónaðir og hreinir. Það sama gilti reyndar um allar hans eigur. Hann hélt öllu í röð og reglu, hvort sem það var dótið í bílskúrnum eða flugurnar í fluguboxinu. Hann var harður af sér í dagsins önn og leið vel í vinnunni. Vílaði ekki fyrir sér að mæta fyrstur og hætta síðastur. Hann var jaxl, sem best kom fram í fótbolt- anum því annar eins varnarjaxl var vandfundinn. Allt sem hann gerði gerði hann með stæl en hinu sleppti hann. Lífið er fátæklegra eftir frá- fall Alberts og við eigum eftir að sakna hans. Minningin um góð- an dreng, vin og félaga lifir hins vegar og við munum skála fyrir honum í þorrablótum framtíð- arinnar. Elsku fjölskylda, Svanhvít, Þórkatla, Margrét, Sigurpáll og aðrir aðstandendur, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðj- ur. Jóhanna, Jón, Runný, Aðalsteinn, Sólveig og Eiríkur. Albert Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.