Morgunblaðið - 03.06.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 03.06.2019, Qupperneq 22
Á HM 2018 Klara ásamt Guðrúnu Ingu Sívertsen, þáverandi varaformanni KSÍ, á opnunarleiknum. Fimman táknar fimm úrslitakeppnir landsliðsins. Fjölskyldan Þóra og Klara ásamt Óskari Þór. lega og fín aðsókn hefur verið á marga leiki og veðrið hefur verið að hjálpa okkur.“ Klara var í stjórn Kayakklúbbsins og var formaður þar í um tvö ár og var í stjórn Siglingasambands Ís- lands í um tvö ár. Hún sat í stjórn Samtakanna 78 rúm fimm ár í kringum aldamótin. „Ég var í stjórninni þegar lögin um staðfesta samvist voru samþykkt og þarna voru fyrstu gay pride-göngurnar. Ég var í stjórninni þegar Magga Pála [Margrét Pála Ólafsdóttir] var formaður og það var lærdómsríkt tímabil.“ Aðaláhugamál Klöru eru fótbolti, kayak og útivist, en Klara varð Ís- landsmeistari á kayak árið 2015. „Ég fer mikið á skíði, bæði göngu- skíði og svigskíði og fór í fyrsta sinn erlendis núna í febrúar á skíði þegar við fórum til Bandaríkjanna og á klárlega eftir að gera það aftur.“ Klara hefur hins vegar oft verið er- lendis á kayak. „Það hefur verið vin- sælt hjá Íslendingum að fara til Wales í æfingabúðir og fórum við K lara Ósk Bjartmarz fæddist 3. júní 1969 í Reykjavík og ólst upp í Smáíbúðahverfinu. „Ég dvaldist í sveit í skemmri tíma, en aðaltími fjölskyld- unnar fór í hestaferðir um landið.“ Hún æfði fótbolta og handbolta með Víkingi og spilaði síðan fótbolta í meistaraflokki með Víkingi, KR og Stjörnunni og handbolta með með Gróttu. Klara gekk í Breiðagerðisskóla, Réttarholtsskóla og Menntaskólann við Sund. Klara lauk BA-gráðu í fé- lagsfræði frá Háskóla Íslands 1993 og hefur eftir það sótt endur- menntun og aðra tilfallandi mennt- un. „Ég hóf meistaranám en lauk ekki og það sama gerðist með nám í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum. Það er alltaf sama bjartsýn- in að ætla að taka nám með vinnu.“ Klara lauk þó diplómanámi í stjórn- un knattspyrnumála í Swiss Graduate School of Public Admin- istration (IDHEAP) í Lausanne. Klara hefur unnið hjá Knatt- spyrnusambandi Íslands, KSÍ, síðan 1994 og tók við framkvæmdastjóra- starfi 2015. „Þetta er lifandi og skemmtilegt starf og hver dagur ber með sér nýjar áskoranir og þú veist aldrei hvað bíður þín á morgnana.“ Það er enda búinn að vera mikill uppgangur í knattspyrnunni á þess- um tíma og íslensk A-landslið hafa fimm sinnum komist í lokakeppni; kvennalandsliðið hefur þrisvar sinn- um komist á EM og karlalandsliðið hefur einu sinni komist á HM og einu sinni á EM. „KSÍ er ekki sama fyrirtækið og það sem ég byrjaði hjá, öll umgjörð er orðin miklu stærri og umfangsmeiri rekstur,“ en 25 manns starfa hjá KSÍ að með- töldum þjálfurum en þar fyrir utan eru síðan allir dómararnir. „Ég held að fáir hafi verið að spá í að við myndum komast á heims- meistaramótið þegar ég byrjaði hjá KSÍ,“ segir Klara aðspurð. „Við vor- um svo langt frá því takmarki, en þegar við komumst í umspil þá fór þetta að vera raunhæft markmið. Næstu skref eru að komast á EM karla 2020 og EM kvenna 2021, en sumarið núna er hefðbundnara og við getum einbeitt okkur að íslenska boltanum. Tímabilið byrjar ágæt- Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands – 50 ára Á kayak Klara og Þóra að loknum Reykjavíkurbikar Kayakklúbbsins árið 2015. Mikill uppgangur í boltanum 22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019 40 ára Ingólfur er Reykvíkingur en býr í Garðabæ. Hann er við- skiptafræðingur að mennt og er sérfræð- ingur hjá Origo. Maki: Una Björg Guð- mundsdóttir, f. 1983, hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri í heimahjúkrun. Börn: Alex Máni Mikkaelsson, f. 2002, og Birgir Salvador Björnsson, f. 2009. Foreldrar: Guðmundur Ingólfsson, f. 1939, d. 1991, píanóleikari, og Birna Þórðardóttir, f. 1949, blaðamaður. Hún er búsett í Reykjavík. Ingólfur Björn Guðmundsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt það sé í góðu lagi að hafa mik- ið að gera þarftu að gæta þess að fá tíma fyrir þig. Einhver leggur stein í götu þína. 20. apríl - 20. maí  Naut Allt er að gerast í dag – vertu viðbú- in/n óvæntum uppákomum. Jafnvægi er það sem þú vilt ná. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt hlutirnir líti vel út á papp- írunum er ekki þar með sagt að þeir séu borðleggjandi gróði. Taktu ákvarðanir um hvernig eignum og peningum skuli skipt komi til þess. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú munt sennilega eiga mikilvægar samræður við konu í fjölskyldunni þinni í dag. Enginn sagði að samstarf væri auðvelt, en þú kaust þetta af vissri ástæðu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Geturðu ekki fundið þér einhverja ör- litla tilbreytingu, þó ekki væri nema ný leið til og frá vinnu? Treystu sjálfum/sjálfri þér betur því það er engin ástæða til annars. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Að hlusta og viðurkenna einhvern sýnir meiri ástúð en allar gjafir sem má kaupa í búð. Hafðu vaðið fyrir neðan þig í öllu sem snýr að bílaviðskiptum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Félagslífið ætti að ganga vel hjá þér í dag. Hikaðu ekki við að bjóða fram aðstoð þína. Þú ert með alla þræði í hendi þér í vissu máli í fjölskyldunni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu ekki koma að þér með hendur í skauti þar sem þú átt að vera við vinnu. Þú ert óþarflega langlynd/ur, verst fyrir þig. Gáðu hvort þú getir ekki breytt um takt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast eigin viðbrögð. Sýndu öðrum kurteisi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér hefur vegnað vel og mátt því svo sannarlega gleðjast yfir árangrinum með þínum nánustu vinum. Varastu að van- rækja vin sem þarf á þinni aðstoð að halda. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Í dag hefur þú meiri áhyggjur en aðra daga. Gjafmildi er einn af þínum góðu kostum, passaðu samt að fólk misnoti hann ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þetta er ekkert verri tími en hver annar til þess að brydda upp á nýjungum. Láttu kné fylgja kviði í nágrannadeilum. 40 ára Sigursteinn er Reykvíkingur og er með meistarapróf í leikjahönnun frá New York háskóla. Hann er annar eigenda leikja- fyrirtækisins Tasty Rook. Maki: Auður Ákadóttir, f. 1989, hönnuður. Börn: Brynja Sigursteinsdóttir, f. 2015, og Vaka Björg Sigursteinsdóttir, f. 2018. Foreldrar: Gunnar Hersveinn, f. 1960, heimspekingur, og Margret Guttorms- dóttir, f. 1957, leiklistarkennari. Þau eru bús. í Reykjavík. Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson Til hamingju með daginn Reykjavík Vaka Björg Sig- ursteinsdóttir fæddist 3. júlí 2018. Hún vó 4.328 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Auður Ákadóttir og Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.