Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 23
þangað nokkur ár í röð, síðast 2015,
en eftir að ég tók við framkvæmda-
stjórastöðunni hjá KSÍ þá hefur
þetta minnkað.“
Fjölskylda
Eiginkona Klöru er Þóra Atla-
dóttir, f. 13. janúar 1980, nemi.
Foreldrar hennar eru hjónin
Steinþóra Vilhelmsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 21. nóvember 1943
og Atli Benediktsson smiður, f. 30.
júní 1941. Þau eru bús. á Akureyri.
Sonur Klöru og Þóru er Óskar
Þór Bjartmarz, f. 5. mars 2017.
Systur Klöru eru Guðrún Bjart-
marz, f. 26. júlí 1951, bús. á Spáni;
Ingibjörg Bjartmarz, f. 10. sept-
ember 1952, hjúkrunarfræðingur,
bús. í Kópavogi; Magnea Sólveig
Bjartmarz, f. 10. desember 1953, bú-
sett í Kópavogi; Erla Bjartmarz, f.
15. maí 1955, búsett í Kópavogi og á
Siglufirði; Þórhildur Bjartmarz, f. 5.
mars 1957, hundaþjálfari í Garðabæ.
Foreldrar Klöru: Hjónin Gunnar
Bjartmarz, f. 22. október 2019, d.
13.10. 2017, og Sólveig Fanney
Hjaltalín Bjartmarz, f. 2. október
1927. Þau voru bæði kaupmenn og
bjuggu í Reykjavík fram á efri ár, en
Sólveig býr núna í Garðabæ.
Klara Ósk
Bjartmarz
Ingibjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Neðri-Brunná
Bjartmar Kristjánsson
bóndi á Neðri-Brunná í Saurbæ, Dal.
Óskar Bjartmarsson Bjartmarz
forstjóri Löggildingarstofunnar
Gunnar Bjartmarz
kaupmaður í Reykjavík
Björn Bjartmarz
fulltrúi í
ReykjavíkBjörn Bjartmarz
knattspyrnuþjálfari
Jónína Bjartmarz
kaupsýslukona
og fv. ráðherra
Guðrún Bjarnarson Bjartmarz
húsfreyja í Reykjavík
Guðný Jónsdóttir Bjarnarson
húsfreyja á Sauðafelli í Dölum,
dóttir Jóns Borgfirðings
Björn S. Bjarnarson
sýslumaður í Dalasýslu,
alþm. og einn af stofnendum
Listasafns Íslands
Anna Agnarsdóttir
prófessor emeritus
í sagnfræði
Agnar Kl. Jónsson sendiherra Klemens Jónssonlandritari og ráðherra
Finnur Jónsson prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla
Guðrún Borgfjörð vinnukona
í Rvík og rithöfundur
Þóra Þórarinsdóttir Hjaltalín
húsfreyja á Akureyri
Bjarni Hansson Hjaltalín
fiskimatsmaður á AkureyriErna Hjaltalín
yfirflugfreyja,
fyrst ísl. kvenna
til að taka einka-
flugmanns- og
atvinnuflug-
mannspróf
Steindór Jónas Bjarnason Hjaltalín
útgerðarmaður á Siglufirði, Akureyri
og í Rvík
Klara Jóhanna Ingibjörg Níelsen
húsfreyja á Akureyri
Niels Hanke
norskur bátaformaður
á Seyðisfirði
Sólveig Stefánsdóttir
verkakona á Seyðisfirði, síðar húsfreyja á Akureyri
Úr frændgarði Klöru Bjartmarz
Sólveig Fanney Hjaltalín Bjartmarz
kaupmaður í Reykjavík
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
„YFIRMAÐURINN SAGÐI MÉR AÐ TAKA
MÉR EINS LANGT FÆÐINGARORLOF OG
MIG LYSTI. ENDA Á HANN KRÓGANN.”
„SEI, SEI. HANN ER SVEI MÉR LÍKUR
PABBA SÍNUM!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá enn sömu
manneskjuna frá fyrsta
stefnumóti.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ER ÉG LEIÐIN-
LEGUR?
BARA ÞEGAR
ÞÚ TALAR
SKIPIÐ BYRJAR AÐ LEKA
RÉTT FYRIR BROTTFÖR
OG VERKSTÆÐIÐ ER
LOKAÐ!
EN
ÖMURLEG
TÍMA-
SETNING!
SEM BETUR
FER VAR
PARTÍBÚÐIN
OPIN!
Á þriðjudaginn skrifaði BjörnIngólfsson í Leirinn: „Góðan
og blessaðan daginn.
Það var logn í morgun þegar ég
leit út en eitthvert undarlegt ryk í
loftinu sem við nánari athugun
reyndist vera svona fínkornótt snjó-
koma.
Það eru skrýtnar skreytingar
sem skarta á grænum stráum;
korn sem falla eins og ar
ofan af himni gráum.“
Gústi Mar svaraði að bragði:
Betra er núna, Bjössi minn,
að bæla hlýja fletið,
meðan raular sönginn sinn
sjómannadagshretið.
Fía á Sandi sagði: „Rétt hjá þér,
Gústi!“
Ef veröldina vantar lit
og veðrin lítið hugga
þá er gott að vita vit
vera í hverjum skugga.
Um kvöldið setti Davíð Hjálmar í
Davíðshaga þessa fyrirspurn á
Leirinn:
Himnaföður víst ég virði,
vel hann gagnast þér og mér,
en því er bjart í Borgarfirði
en bölvað skítaveður hér?
Fía á Sandi svaraði Davíð með
þeim orðum, að menn yrðu bara að
bjarga sér:
Tilveran er fjári fín
í flottu hríðarkófi
ef menn bara eiga vín
en auðvitað í hófi.
Afi hennar, Guðmundur á Sandi,
orti:
Dregur úr víði drungaský;
dröfn á fjöru yrðir;
verslun hríðar eru í
ærnar vörubirgðir.
Það var í fréttum að Elín Eddu-
dóttir fær ekki að heita Elín Kona
Eddudóttir. Hún segir baráttuna
fyrir nafninu snúast um jafnrétt-
issjónarmið og segir það sæta furðu
að karl megi heita Karl en kona
megi ekki heita Kona. Halldór Guð-
laugsson yrkir á Boðnarmiði í
hennar orðastað:
Um konu nafnið mér neita
– það nefndinni var um megn
en víst skal ég hundur heita
hafist það ekki í gegn!
Gömul vísa í lokin:
Margt er það sem beygir brjóst,
brattan geng ég raunastig.
Kristur sem á krossi dóst
kenndu nú í brjósti um mig.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Snjókoma og
sjómannadagshretið