Morgunblaðið - 03.06.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
SÉRBLAÐ
Grillblað
• Grillmatur
• Bestu og áhugaverðustu grillin
• Áhugaverðir aukahlutirnir
• Safaríkustu steikurnar
• Áhugaverðasta meðlætið
• Svölustu drykkirnir
• Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 14. júní
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 11. júní.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Jón Kristinn Jónsson
Sími 569 1180,
jonkr@mbl.is
I Gul spjöldRodrigo Gómez (Grindavík),
Josip Zeba (Grindavík), Gunnlaugur
Fannar Guðmundsson (Víkingi R.)
I Rauð spjöldGunnlaugur Fannar Guð-
mundsson (Víkingi R.)
GRINDAVÍK – VÍKINGUR R. 0:0
M
Gunnar Þorsteinsson (Grindavík)
Marc McAusland (Grindavík)
Marinó Axel Helgason (Grindavík)
Atli Hrafn Andrason (Víkingi R.)
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
(Víkingi R.)
Þórður Ingason (Víkingi R.)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson, 8.
Áhorfendur: 457.
7. UMFERÐ
Bjarni Helgason
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kristján Jónsson
Arnar Gauti Grettisson
Kristófer Kristjánsson
Guðmundur Steinn Hafsteinsson,
framherji Stjörnunnar, sendi Ís-
landsmeistara Vals í neðsta sæti úr-
valsdeildar karla í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildarinnar, í Garðabæ í
gær en Guðmundur skoraði á 90.
mínútu í 2:1-sigri Stjörnunnar.
Ólafur Karl Finsen kom Val yfir á
33. mínútu eftir mikinn vandræða-
gang í vörn Stjörnunnar en Þorri
Geir Rúnarsson jafnaði metin fyrir
Stjörnuna á 64. mínútu af stuttu færi
úr teignum.
Garðbæingar sýndu mikinn kar-
akter í gær en þeir voru undir í hálf-
leik, 1:0, eftir að hafa gefið Vals-
mönnum mark í fyrri hálfleik. Þeir
héldu hins vegar áfram að berjast og
þegar upp var staðið var sigur þeirra
sanngjarn. Þeir sköpuðu sér hættu-
legri færi og spiluðu til sigurs og það
skilaði þeim þremur stigum að lok-
um.
Valsmenn færðu sig aftar á völlinn
í seinni hálfleik og freistuðu þess að
halda fengnum hlut. Valsarar sköp-
uðu sér fá marktækifæri og þegar
þeir komust upp kantana vantaði
menn í vítateiginn til þess að klára
sóknirnar. Þá var varnarleikur liðs-
ins hikstandi og enn og aftur voru
einstaklingsmistök að kosta liðið.
Vonandi fyrir Garðbæinga þá
verður þetta leikurinn sem verður
ákveðinn vendipunktur á tímabilinu
en Íslandsmeistarar Vals eru úr leik í
toppbaráttunni og þurfa einfaldlega
að hysja upp um sig buxurnar ef þeir
ætla ekki að leika í 1. deildinni næsta
sumar.
Breiðablik upp í toppsætið
Breiðablik er komið upp í topp-
sætið eftir 4:1-stórsigur á FH á
heimavelli. Eftir nokkuð jafnan fyrri
hálfleik sýndu Blikar allar sínar
bestu hliðar í seinni hálfleik og áttu
FH-ingar einfaldlega engin svör.
Vörn Breiðabliks var afar sterk,
Gunnleifur Gunnleifsson góður þar
fyrir aftan og Andri Rafn Yeoman
var eins og kóngur í ríki sínu á mið-
svæðinu. Aron Bjarnason og Thomas
Mikkelsen léku svo vörn FH-liða illa.
Í hvert skipti sem Breiðablik fór
fram völlinn skapaðist hætta við
mark FH. Breiðablik var einfaldlega
sterkara á öllum sviðum og voru
margir leikmenn sem spiluðu vel.
Það ber að taka Breiðablik alvarlega
í titilbaráttunni.
Að sama skapi gerðu FH-ingar
liðsmönnum Breiðabliks oft auðvelt
fyrir. Vörn FH er mjög brothætt
með óöruggan Vigni Jóhannesson í
markinu. FH-ingar sakna Gunnars
Nielsen og hefur illa gengið að ná
stöðuleika. Sumarið virðist beint
framhald af vonbrigðasumrinu í
fyrra
Seigla í KR-ingum
KR-ingar virðast líklegir til þess
að blanda sér í baráttuna um Íslands-
meistaratitilinn af alvöru í fyrsta sinn
í nokkur ár. KR sýndi seiglu í gær
þegar liðið landaði 1:0 sigri gegn KA
þrátt fyrir að vera aðeins tíu inni á
vellinum frá því á 53. mínútu leiksins.
Dómari leiksins tók þá stóra
ákvörðun þegar hann gaf Kennie
Chopart síðara gula spjaldið fyrir að
reyna að fiska vítaspyrnu. Mér sýnd-
ist þessi ákvörðun vera röng og sé
það rétt mat þá er hún afdrifarík: KR
fær ekki víti, er manni færra út leik-
inn og Chopart fær leikbann.
KR-ingar hafa aðeins tapað einum
af fyrstu sjö leikjunum þrátt fyrir
skakkaföll í vörn liðsins en nokkrir
miðverðir glíma við meiðsli. Í því ljósi
telst til dæmis mjög gott að halda
hreinu gegn KA. Þótt leikir KR séu
ekki stanslausar flugeldasýningar
því virðist liðið vera nokkuð stöðugt.
KA hefur ekki náð sama stöð-
ugleika í sumar með nýjan þjálfara
og talsverðar breytingar á leik-
mannahópnum á milli ára. Það er svo
sem skiljanlegt. Í gær tókst liðinu
ekki að nýta sér liðsmuninn. Er það
visst veikleikamerki jafnvel þótt um
leik á útivelli gegn sigursælu félagi sé
að ræða.
Fyrsti sigur ÍBV kom gegn ÍA
ÍBV varð fyrsta liðið til þess að
sigra ÍA. Eyjamenn unnu verðskuld-
aðan 3:2 sigur í bráðfjörugum leik á
Hásteinsvelli sem hafði allt upp á að
bjóða. Skagamenn komust yfir
snemma leiks með marki frá
Tryggva Hrafni en þrjú næstu mörk
leiksins voru Eyjamanna en þau
skoruðu Jonathan Glenn, Breki Óm-
arsson og Víðir Þorvarðarson. Það
var ekki að sjá í leiknum að Eyja-
menn væru á botninum og Skaga-
menn á toppnum en Eyjamenn voru
mun betri í fyrri hálfleik og spiluðu á
köflum frábæran fótbolta.
Eyjamenn misstu hins vegar
Diogo Coelho af velli með rautt
spjald undir lok fyrri hálfleiksins
þegar hann gaf Halli Flosasyni oln-
bogaskot. Undirritaður sá atvikið
ekki nægilega vel til þess að vera
dómbær á það hvort að um rétta
ákvörðun hafi verið að ræða. En eins
og við mátti búast voru Skagamenn
betri manni fleiri í seinni hálfleik en
skipulagður og agaður varnarleikur
heimamanna sigldi fyrsta sigri sum-
arsins í deildinni í höfn.
Helgi Valur markahrókur
Fylkismenn höfðu ekki unnið
deildarleik frá því í fyrstu umferðinni
og virtist engin breyting ætla að
verða á því í Kórnum í gærkvöldi þar
sem HK hafði forystu lengst af leik,
þökk sé marki Ásgeirs Barkar Ás-
geirssonar, sem lék auðvitað í fjölda
mörg ár með Árbæingum. HK-ingar
urðu þó að lokum að horfast í augu
við sitt fyrsta tap á heimavelli á tíma-
bilinu er gamla kempan Helgi Valur
Daníelsson skoraði tvö mörk á síð-
asta stundarfjórðungnum til að hirða
stigin fyrir Fylkismenn.
Helgi sneri aftur í Árbæinn úr at-
vinnumennsku í fyrra en þótti af
Stjarnan
sendi Val á
botninn
Breiðablik efst eftir frábæran sigur
ÍBV fyrst til að vinna ÍA í sumar
Ójafn stórleikur Viktor
Örn Margeirsson og
Jónatan Ingi Jónsson í
baráttu um boltann.
Pepsi Max-deild karla
Grindavík – Víkingur R ........................... 0:0
ÍBV – ÍA .................................................... 3:2
KR – KA.................................................... 1:0
Breiðablik – FH........................................ 4:1
HK – Fylkir............................................... 1:2
Stjarnan – Valur ....................................... 2:1
Staðan:
Breiðablik 7 5 1 1 13:5 16
ÍA 7 5 1 1 14:7 16
KR 7 4 2 1 11:6 14
FH 7 3 2 2 12:13 11
Stjarnan 7 3 2 2 9:10 11
Grindavík 7 2 4 1 6:6 10
Fylkir 7 2 3 2 10:8 9
KA 7 3 0 4 8:8 9
HK 7 1 2 4 7:10 5
ÍBV 7 1 2 4 6:15 5
Víkingur R. 7 0 4 3 9:13 4
Valur 7 1 1 5 8:12 4
Inkasso-deild karla
Fjölnir – Njarðvík.................................... 1:0
Hans Viktor Guðmundsson 85.
Þór – Þróttur R ........................................ 2:0
Álvaro Montejo 31., Sigurður Marinó
Kristjánsson 90.
Staðan:
Fjölnir 5 4 0 1 12:6 12
Keflavík 5 3 1 1 11:4 10
Víkingur Ó. 5 3 1 1 6:3 10
Leiknir R. 5 3 0 2 11:7 9
Þór 5 3 0 2 9:6 9
Fram 5 2 2 1 9:7 8
Grótta 5 2 1 2 9:10 7
Njarðvík 5 2 1 2 5:6 7
Þróttur R. 5 1 1 3 9:11 4
Haukar 5 0 3 2 5:8 3
Afturelding 5 1 0 4 5:15 3
Magni 5 0 2 3 5:13 2
2. deild karla
Fjarðabyggð – Vestri.............................. 2:1
Jose Luis Vidal 5., Nikola Kristinn Stoj-
anovic 90. – Zoran Plazonic 63.
KFG – Tindastóll ..................................... 4:2
Daníel Andri Baldursson 17., Magnús
Björgvinsson 25., Sverrir Hrafn Friðriks-
son 68. (sjálfsmark), Guðjón Viðarsson
Scheving 81. – Benjamín Jóhannes Gunn-
laugsson 30. (víti), Arnar Ólafsson 58.
Víðir – Völsungur.................................... 3:1
Helgi Þór Jónsson 21., Atli Freyr Ottesen
Pálsson 27., 83. – Guðmundur Óli Stein-
grímsson 23. (víti).
Leiknir F. – Þróttur V............................. 1:0
Daniel Blanco 4. (víti)
Staðan:
Selfoss 5 3 1 1 12:4 10
Víðir 5 3 1 1 11:9 10
Leiknir F. 5 2 3 0 10:5 9
Fjarðabyggð 5 3 0 2 9:6 9
KFG 5 3 0 2 9:8 9
Völsungur 5 3 0 2 7:8 9
Dalvík/Reynir 5 1 3 1 6:6 6
Vestri 5 2 0 3 7:9 6
Kári 5 1 2 2 8:9 5
ÍR 5 1 2 2 5:7 5
Þróttur V. 5 1 2 2 5:7 5
Tindastóll 5 0 0 5 3:14 0
KNATTSPYRNA
1:0 Sjálfsmark 67.
I Gul spjöldAtli Sigurjónsson, Kennie
Chopart og Tobias Thomsen (KR.)
Ýmir Már Geirsson og Steinþór Freyr
Þorsteinsson (KA.)
I Rauð spjöldKennie Chopart (KR.)
KR – KA 1:0
M
Kennie Chopart (KR)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Finnur Tómas Pálmason (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Arnþór Ingi Kristinsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Aron Dagur Birnuson (KA)
Hallgrímur Jónasson (KA)
Ýmir Már Geirsson (KA)
Hallgrímur Mar Steingríms. (KA)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 4.
Áhorfendur: 1.362.