Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ellefu einstaklingar sem eru orðnir eða verða
hundrað ára á þessu ári komu í afmælisveislu
sem Hrafnista í Hafnarfirði bauð til í gær. Það
var glatt á hjalla í veislunni og margt um mann-
inn en öllum íbúum Hrafnistu var einnig boðið til
veislunnar. Á þessu ári eiga 25 Íslendingar 100
ára afmæli, átján konur og sjö karlar. Afmælis-
börnin stilltu sér upp fyrir hópmyndatöku með
forsetahjónunum sem tóku þátt í gleðskapnum.
Öllum sem eiga 100 ára afmæli á árinu var boðið í afmælisveislu á Hrafnistu
Morgunblaðið/Eggert
Glatt á hjalla í 100 ára afmælisfögnuði
Stefán Gunnar Sveinsson
Snorri Másson
Stefnt er að því að þingi verði lokið í
síðasta lagi á föstudaginn, en hvort
það gengur upp veltur á því hvernig
umræðu um breytingar á fjármála-
áætlun vindur fram. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins stóð til
að ræða áætlunina á fundi fjárlaga-
nefndar í gærkvöldi, en gert er ráð
fyrir að nefndin afgreiði hana í dag
þannig að þingið geti tekið hana til
umfjöllunar.
Alþingi afgreiddi þau mál sem eft-
ir voru á dagskrá gærdagsins nokk-
uð greiðlega eftir að samkomulagið
um þinglok lá fyrir. Meðal annars
voru samþykkt ný lög um kjararáð,
lög um félagslega aðstoð og al-
mannatryggingar, lög um innstæðu-
tryggingar og tryggingakerfi fyrir
fjárfesta og lög um kynrænt sjálf-
ræði.
Þá lauk þingið annarri umræðu
um ýmis mál. Efnahags- og við-
skiptanefnd fékk til afgreiðslu frum-
varp um lög um Seðlabanka Íslands,
sem og frumvarp um sameiningu
bankans við Fjármálaeftirlitið.
Þá lauk annarri umræðu um fisk-
veiðar utan lögsögu Íslands og út-
hlutun makrílkvóta. Það frumvarp
gekk til atvinnuveganefndar líkt og
frumvörp um fiskeldi og gjaldtöku
um fiskeldi, en auk þess fékk nefndin
til umfjöllunar frumvarp til laga um
dýrasjúkdóma, sem snýr að heimild
til innflutnings á ófrosnu kjöti.
Munar mikið um mánuðina tvo
Meðal þess sem felst í samkomu-
lagi stjórnarflokkanna við Miðflokk-
inn um þinglok er að gildistöku laga
sem heimila innflutning á ófrosnu
kjöti verði frestað um tvo mánuði,
eða frá 1. nóvember næstkomandi til
1. janúar 2020. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Miðflokks-
ins, sagðist í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi fagna þeirri seinkun. „Það
munar heilmikið um þessa mánuði
sem bætast við, því annars var þetta
komið svo nálægt gildistökunni að
það hefði ekki verið farið að reyna á
hvort mótvægisaðgerðir svonefndar
myndu virka,“ sagði Sigmundur
Davíð.
Þá sagði hann að það stæði til að
atvinnuveganefnd legði til í nefnd-
aráliti sínu samráð við matvæla-
framleiðendur í millitíðinni. Sig-
mundur Davíð bindur út frá því
vonir við að það finnist ný lausn á
málinu. „Það verður þá hugsanlega
hægt að nýta tímann á nýju þingi til
þess að falla frá gildistökunni, ef
menn verða sáttir við nýju lausnina,“
segir hann.
Stefnt að þinglokum í vikulok
Framvinda fjármálaáætlunar mun ráða mestu um tímasetningu þingloka Afgreiðsla frumvarpa
gekk greiðlega eftir að samkomulag lá fyrir Sigmundur vonar að hætt verði við gildistöku laganna
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Það gekk á ýmsu á Alþingi í gær eftir að samkomulag náðist um
þinglok. Enn þarf að ræða breytingar á fjármálaáætlun áður en þingi lýkur.
Pawel Bartos-
zek, borgar-
fulltrúi Við-
reisnar, var í
gær kjörinn
forseti borgar-
stjórnar á sein-
asta fundi borg-
arstjórnar fyrir
sumarfrí.
Pawel tekur
við embættinu af Dóru Björt
Guðjónsdóttur Pírata. „Ég er
bara nokkuð spenntur fyrir
þessu,“ sagði Pawel í samtali við
mbl.is í gær. „Ég ætla að halda
áfram að reyna að búa til and-
rúmsloft málefna og sátta.“
Kjörorð Pawels sem forseta
borgarstjórnar verða þrjú: „Fyr-
irsjáanlegur, formfastur og sann-
gjarn.“ Kosningin er til eins árs
en Pawel gerir ráð fyrir að vera
forseti borgarstjórnar út kjör-
tímabilið. Pawel segir að um
þetta hafi verið samið þegar
borgarstjórnin var mynduð.
Hann yrði fyrst aðalmaður í
menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráði en tæki svo við sem
forseti borgarstjórnar að ári
liðnu.
Meðal mála sem samþykkt
voru á borgarstjórnarfundinum í
gær eru nýjar siðareglur kjör-
inna fulltrúa hjá borginni, sem
eru í ellefu liðum.
Pawel Bartoszek
var kjörinn forseti
borgarstjórnar
Pawel Bartoszek
Guðrún Erlingsdóttir
Ómar Friðriksson
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir,
sem situr í 4. sæti á lista Miðflokksins
í Suðvesturkjördæmi, er systir Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar, for-
manns Miðflokksins. Hún tók sæti á
Alþingi í fyrsta sinn í gær í fjarveru
Gunnars Braga Sveinssonar. Nanna
Margrét segir að það hafi verið mjög
stuttur aðdragandi að þingsetunni en
það leggist mjög vel í sig að setjast á
þing. Það sé spennandi en á sama
tíma mikil ábyrgðarstaða.
Faðir Nönnu Margrétar og Sig-
mundar Davíðs, Gunnlaugur M. Sig-
mundsson, átti einnig sæti á Alþingi á
tíunda áratugnum en hann var þing-
maður Framsóknarflokksins 1995 til
1999.
Sigmundur Davíð og Nanna Mar-
grét eru ekki einu systkinin sem setið
hafa á þingi á sama tíma, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins. Önnur
systkini eða bræður sem setið hafa
saman á Alþingi eru: Ingibjörg og Ís-
ólfur Gylfi Pálmabörn, Halldór og
Katrín Ásgrímsbörn og Valgerður og
Björn Bjarnabörn en Bjarni faðir
þeirra Benediktsson var sem kunn-
ugt er alþingismaður og ráðherra um
langt árabil. Bjarni sat um tíma á Al-
þingi á sama tíma og Pétur Bene-
diktsson bróðir hans á sjöunda ára-
tugnum. Einnig sátu saman á Alþingi
um skeið bræðurnir Gunnar Birgis-
son og Kristinn H. Gunnarsson.
Fjórðu þingsystkinin
Morgunblaðið/Eggert
Í þingsal Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir fylgist með umræðum í gær.