Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
✝ Einar Hannes-son fæddist í
Reykjavík 16. jan-
úar 1971. Hann lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 7. júní 2019.
Hann var sonur
Hannesar Einars-
sonar og Ragnheið-
ar Gísladóttur.
Bróðir hans er
Grétar , f. 10. júní 1972. Síðari
eiginkona Hannesar er Linda
Saennak Buanak. Synir þeirra
eru Sveinn, f. 10. júní 1993, og
Stefán, f. 3. apríl 1995.
Einar lauk embættisprófi í lög-
fræði árið 1998 og öðlaðist hér-
aðsdómslögmannsréttindi árið
2000 en hann er einnig löggiltur
fasteignasali. Þá aflaði hann sér
framhaldsmenntunar í hagfræði
og reglum Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar við Harvard-
háskóla árið 2003 og í enskum
sjó- og viðskiptarétti við Lloyd’s
Maritime Academy 2008 og við
London Metropolitan University
2011-2013. Á með-
an Einar stundaði
laganám var hann
við námsvist í
dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu
og sat í stjórn
Heimdallar árin
1998-1999.Einar
starfaði sem lög-
fræðingur í sam-
gönguráðuneytinu
árin 1998-2002 og hafði umsjón
með fjarskiptamálum og stefnu-
mótun. Árið 2002 hóf hann störf
sem erindreki Íslands gagnvart
Evrópusambandinu á sviði fjar-
skipta-, samgöngu- og ferða-
mála. Á árunum 2003-2010 var
Einar lögfræðingur hjá Eftir-
litsstofnun EFTA. Árið 2013
fluttist Einar til Íslands og staf-
aði við lögmennsku og sem fast-
eignasali. Árið 2018 var hann
ráðinn aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra.
Einar verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju í dag, 19. júní
2019, klukkan 13.
Einar bróðir minn leikur stórt
hlutverk í öllum mínum bernsku-
minningum. Við gengum í
Langholtsskóla og áttum stóran
vinahóp. Síðar fór Einar í Mennta-
skólann við Sund en ég í Versló.
Engu að síður urðu vinir mínir í
Versló líka vinir Einars þannig að
það stækkaði bara vinahópinn.
Fórum við svo báðir í lögfræði og
enduðum í Brussel þar sem Einar
bjó og starfaði í 10 ár. Með
menntaskóla og háskóla sóttum
við báðir sjóinn með pabba.
Einar var einstaklega iðjusam-
ur og féll aldrei verk úr hendi.
Hann bar út Moggann, sem hent-
aði honum vel þar sem hann gat
þá lesið blaðið áður en aðrir vökn-
uðu. Moggalesturinn er líklegast
ástæðan fyrir því að hann fékk
ungur brennandi áhuga á stjórn-
málum. Árið 2009 fór Einar að tala
um að fá sér skútu og taka upp
siglingar. Það kom mér samt
nokkuð á óvart þegar hann var bú-
inn að segja upp vinnunni og bú-
inn að kaupa sér stærðarinnar
skútu. Sumarið 2010 lagðist hann
svo í siglingar. Þekkjandi bróðir
minn átti það ekki að koma mér á
óvart að Einar myndi láta verða af
því sem hann talaði um. Fyrir
Einari var ekkert ómögulegt bara
miserfitt. Hóf hann siglingaævin-
týri sitt í Króatíu. Sigldi um
Grikkland til Tyrklands og svo til
baka til Ítalíu. Einar hélt svo sigl-
ingum áfram alla norðurströnd
Miðjarðarhafsins og um Frakk-
land og Spán. Kom hann við í
Marokkó og sigldi svo til Kanar-
íeyja. Seint um haustið 2012 sigldi
hann svo til Ameríku með við-
komu á Grænhöfðaeyjum. Ég hitti
hann á afmælinu hans í janúar
2013 á Sankti Lúsíu í Karíba-
hafinu. Ég varð þess þá var að
hann væri lasinn. Einar eyddi því
tali og við vörðum saman nokkr-
um vikum við að sigla um Kar-
íbahafið. Sumarið 2013 kom Einar
í heimsókn til Íslands. Kom þá í
ljós meinið sem síðar átti eftir að
draga hann til dauða. Þegar hann
hafði safnað nægum styrk vitjaði
hann bátsins og sigldi frá Karíba-
hafinu norður til Halifax í Kanada.
Vorið 2014 sigldi hann svo ásamt
pabba frá Halifax til Portúgal með
viðkomu á Azoreyjum. Hrepptu
þeir mannskaðaveður og fórst
bátur skammt frá þeim með
manni og mús. Pabba leist ekki á
blikuna en Einar stóð keikur við
stýrið og lét fárviðrið ekki slá sig
út af laginu. Má segja að þeir hafi
verið heimtir úr greipum ægis í
þessari svaðilför.
Til marks um eljusemi og dugn-
að Einars þá hannaði hann og
byggði frá grunni sumarhús.
Lauk hann nánast við byggingu
þess áður en veikindin fóru alvar-
lega að há honum.
Í upphafi árs 2018 hóf Einar
störf sem aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra. Sökkti hann sér í
þá vinnu og ég veit að hann naut
starfsins, enda hafði hann alltaf
haft brennandi áhuga á stjórn-
málum.
Einar var skemmtilegur og
varð aldrei orða vant. Var hann
vinmargur og þekkti mikinn fjölda
fólks. Hef ég ekki tölu á hversu oft
ég hef verið kynntur með þeim
orðum að ég sé bróðir Einars
Hannessonar.
Nú kveð ég minn kæra bróður.
Ég á erfitt með að ímynda mér
framtíðina án hans en minningar
um þennan ótrúlega kraftmikla og
hæfileikaríka mann munu lifa með
mér og ylja um alla tíð.
Grétar Hannesson.
Einari kynntumst við á
menntaskólaárunum í gegnum
Grétar bróður hans. Þeir bræður
voru einstaklega nánir alla tíð
enda stutt á milli þeirra í aldri.
Einar kom gjarnan með bróður
sínum á samkomur og hittinga og
gerði maður nokkurn veginn ráð
fyrir því að ef Grétar væri mættur
væri Einar skammt undan.
Einar var einstök manneskja,
hann var víðlesinn, fróður og mjög
viljugur að miðla þekkingu sinni
og skoðunum , oft óháð eftirspurn.
Það var því oft fjörugt í kringum
Einar og spunnust miklar sam-
ræður. Gaman var að ræða heims-
málin við Einar enda kom hann
iðulega með annað sjónarhorn á
hlutina en maður hafði séð fyrir.
Skoðanir hans gátu verið ansi
beinskeyttar og harðar en það var
alltaf stutt í spaugilega sjónar-
hornið.
Einar kynnti siglingar fyrir
okkur félögunum, við fengum að
upplifa ævintýralegar siglingar í
Miðjarðarhafinu í aðstæðum sem
okkur landkröbbunum þótti held-
ur óárennilegar en eftir að hafa
hlustað í smástund á kafteininn
lýsa alvöru háska og baráttu hans
á Atlantshafinu við himinháar öld-
ur með rifið segl og bilað mastur
þá var ekkert annað í stöðunni en
halla sér aftur og setja allt traust á
karlinn.
Einar hafði gríðarlega reynslu
af siglingum og var löngu búinn að
afreka meira í siglingum en flesta
gæti dreymt um.
Frásagnir Einars af sjávar-
háska og ævintýrum hans voru
með þeim hætti að maður gat ekki
annað en legið flatur fyrir. Eftir
að hafa fengið að vera hluti af
áhöfn Einars í Miðjarðarhafsferð-
um vorum við sannfærðir um að
það væru til tvö mjög ólík eintök
af Einari. Eitt virkilega prútt ein-
tak sem hélt sig í landi alla tíð og
væri í eðli sínu eins og kurteis
breskur aðalsmaður.
Hitt eintakið kom fram eftir að
látið var úr höfn, þá breyttist þessi
dagfarsprúði rólegi drengur
skyndilega í öfgafulla útgáfu af
Kolbeini kafteini, sótbölvandi kaf-
teinn sem lét mann hafa það
óþvegið ef maður var ekki með á
nótunum. Slík fúkyrði ristu þó
aldrei djúpt og voru fljótt fyrir-
gefin enda Einar þekkt ljúfmenni í
grunninn.
Einar seldi skútuna sína Mar-
gréti skömmu eftir haustferð okk-
ar 2016 en sá fljótlega eftir því og
fór að sakna skútulífsins. Einar
var því fljótur að staðfesta þátt-
töku sína þegar hann heyrði að við
værum að safna í hóp til skútu-
kaupa. Okkur félögum hans varð
þó ljóst í byrjun þessa árs í könn-
unarferð okkar um Króatíu að
þrátt fyrir ákveðni Einars og bar-
áttuvilja væri ekki óhugsandi að
krabbinn hefði betur.
Það verða ekki fleiri skútusigl-
ingar né árlegar veiðiferðir með
Einari. En eitt er víst að hvort
sem við verðum í Vatnsdalnum
eða á skútunni mun hann vera
með okkur.
Einar, við munum sakna þín og
minnast í framtíðinni fyrir þína
beinskeyttu glettni, ljúfu lund og
orðfæri sjóarans.
Við vottum Grétari og öðrum
aðstandendum okkar dýpstu sam-
úð.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Elías Þorvarðarson
og fjölskylda,
Höskuldur Pálsson
og fjölskylda.
Mig langar í fáum orðum að
minnast Einars Hannessonar,
sem jarðsunginn verður í dag. Ég
átti því láni að fagna að kynnast
Einari í lagadeildinni eins og mjög
margir aðrir, því Einar var öðrum
mönnum fremur opinn og glað-
vær. Það fyrsta sem ég tók eftir
var hvað hann var brosmildur og
skemmtilegur og hvað honum var
eðlilegt að demba skoðunum sín-
um og heimsmynd yfir viðmæl-
endur sína, með bros á vör, án
nokkurs tillits til þess hversu lík-
legir þeir væru til að taka undir.
Hann var svo glaðbeittur í við-
kynningu að mér verður ávallt
hugsað til hans þegar ég heyri það
lýsingarorð.
Allt átti þetta eftir að einkenna
hann allan þann tíma sem kynni
okkar héldust, í gegnum sorg og
sigra, allt þar til hann kvaddi fyrir
fullt og allt.
En ég átti síðar eftir að kynnast
öðrum eiginleikum í fari Einars.
Við bjuggum um árabil báðir í
Belgíu og tilheyrðum þar sam-
félagi Íslendinga sem tengdist all-
mikið. Þar kynntist ég hjá honum
eljusemi og vilja til að fara eigin
leiðir sem fáir eiga til. Mér er
minnisstætt að hafa fylgst með því
þegar Einar keypti sér einbýlis-
hús á fjórum hæðum í Brussel,
flutti inn í það algjörlega óíbúðar-
hæft og gerði það síðan upp í hjá-
verkum. Bjuggu þá ekki aðrir ein-
hleypir menn rýmra eða betur í
þeirri borg. Síðar átti Einar eftir
að taka upp á því að selja húsið til
að kaupa skútu og leggjast í sigl-
ingar um langa hríð, en þetta vakti
nokkra undrun þeirra samferða-
manna hans sem lögðu fyrir sig
brauðstrit og hefðbundnari leiðir í
lífinu.
Einar var enn ungur maður
þegar hann greindist með þann
sjúkdóm sem átti eftir að draga
hann til dauða. Þá kom fram í hon-
um æðruleysi sem fáum er gefið.
Hafa margir haft orð á því hve
óvenjulegt var hvað hann áorkaði
miklu eftir að hafa fengið þann úr-
skurð að hans kerti væri senn
brunnið niður.
En eljusemi hans var ekki tak-
mörkuð við húsbyggingar og út-
hafssiglingar. Við starfsmenn
dómsmálaráðuneytisins áttum því
láni að fagna að dómsmálaráð-
herra réði hann í starf aðstoðar-
manns og má segja að þannig hafi
leiðir okkar Einars legið mjög
saman í þriðja sinn. Einar reynd-
ist dómsmálaráðuneytinu vel.
Ekki aðeins var hann skemmtileg-
ur vinnufélagi, heldur bjó hann að
reynslu úr stjórnsýslu og lög-
fræðiiðkun sem gerði honum
kleift að leggjast á árarnar í flókn-
ari málum svo um munaði. Þá dró
hann ekki af sér í því að tala fyrir
umdeildum málum. Virtist mér
Einari aldrei fljúga það í hug að
veikindi hans hefðu nokkur áhrif á
starfsþrek eða afköst eða að til
greina kæmi að hann hlífði sér
með nokkrum hætti vegna þeirra.
Héðan úr dómsmálaráðuneyt-
inu sendum við aðstandendum
Einars samúðarkveðjur. Minning-
in um góðan dreng lifir.
Haukur Guðmundsson.
Kær vinur og félagi, Einar
Hannesson, er látinn langt um
aldur fram.
Það er þyngra en tárum taki að
honum hafi ekki auðnast lengra
líf.
Við unnum saman í samgöngu-
ráðuneytinu um nokkurra ára
skeið. Þar myndaðist strengur
sem aldrei slitnaði, eins ólík og við
vorum sannarlega.
Hann var góður starfsmaður,
ástríðufullur og áhugasamur um
hvert það verkefni sem honum var
falið. Sá nýjar hliðar á málum, nýj-
ar víddir og hugsaði oft langt fram
í tímann. Hann kveikti á mörgum
kyndlum og það var gaman að
vinna með honum.
Hann hafði ákveðnar skoðanir
sem hann hikaði ekki við að tjá og
berjast fyrir. Andmælum tók
hann ágætlega og varð enn sann-
færðari um réttmæti sinna skoð-
ana.
Í Einari voru miklar andstæð-
ur. Hann var í senn íhald og bó-
hem, húmoristi og alvörugefinn,
hrjúfur og hlýr. Ævintýramaður
og jarðbundinn.
En hann var fastheldinn á gild-
in sem mestu skipta - heiðarleika,
traust og kærleika. Það var eng-
inn svikinn af því að eiga traust
hans og trúnað.
Einar var mjög örlátur maður.
Því kynntist ég oft bæði hér á
landi og í Brussel á fallegum heim-
ilum hans og í glæsikerrum í hans
stíl. Hann var fagurkeri.
Einar Hannesson var einstakur
maður sem gleymist engum sem
honum kynntust. Lífið er tóm-
legra án hans.
Ég votta foreldrum, bróður og
fjölskyldu allri einlæga samúð
mína.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Einar var vinur minn, sam-
starfsmaður og skoðanabróðir.
Saman leystum við flókin verk-
efni, deildum hugmyndum og
börðumst fyrir frjálsara samfélagi
á sviði stjórnmálanna. Í öllu okkar
starfi var áberandi hversu einlæg-
ur og skilningsríkur Einar var á
umhverfi sitt, aðstæður annarra
og málefnin sem voru til umfjöll-
unar. Hann var á sama tíma
fylginn sér og staðfastur. Hann
var bandamaður einstaklingsins
og þeirra sem oft höfðu fáa ef ein-
hverja málsvara innan kerfisins.
Það samræmdist vel hugmyndum
hans um frjálst samfélag sem
hann aflaði fylgis í samtölum,
skrifum, netumræðum og víðar.
Var hann þar fremstur meðal
jafningja.
Leiðir okkar Einars lágu sam-
an í dómsmálaráðuneytinu þegar
Sigríður Á. Andersen tók við sem
ráðherra. Þar kynntist ég honum
og fékk að heyra af öllu því sem
hann hafði tekið sér fyrir hendur;
svo sem að sigla um öll heimsins
höf á skútunni sinni, byggja
sumarhús með eigin höndum og
ferðast – oft aleinn – milli landa
þar sem hann lenti í fyndnum og
furðulegum aðstæðum. Hann var
maður sögunnar og gat sagt svo
vel frá að mér leið oft eins og ég
hefði verið á staðnum. Hann var
líka maður sögunnar í tæknimál-
um og prentaði út nær allt það
sem honum barst rafrænt og að
því hlógum við oft og mikið. Minn-
ingin um Einar er því djúp og
breið og uppfull af gleði og hlátri.
En nú hefur Einar lagt upp í
sína hinstu ferð og nær því miður
ekki að segja mér þá sögu. Hún
bíður betri tíma, kæri vinur.
Sigldu varlega og góða ferð.
Laufey Rún Ketilsdóttir.
Minn kæri vinur til fjölda ára,
Einar, er frá fallinn.
Við kynntumst ungir að árum
er við gengum báðir í Langholts-
skóla í Laugarásnum. Ég hafði
nýlega flutt í hverfið og var svo
lánsamur að vera skipað í bekk
með Grétari, bróður Einars. Við
Grétar urðum strax miklir mátar.
Og vinir Grétars urðu vinir Einars
einnig.
Einar var afar vel upplýstur og
snemma sólginn í hvers kyns
fréttatengt efni. Er klukkan sló
tuttugu mínútur yfir tólf á hádegi
var heilög stund, þá voru lesnar
fréttir. Sagan endurtók sig klukk-
an sex. Hann hafði brennandi
áhuga á stjórnmálum. Skar sig úr
og ögraði hefðbundnum við-
horfum. Var alltaf örlítið til hægri
við þá sem almennt þóttu hægri-
sinnaðir. Hann varði Trump, en
þar með var ekki sagt að hann félli
sjálfur að staðalímynd hins fé-
gráðuga og samviskulausa
kapítalista. Stjórnmálaáhuginn
hafði nefnilega ekkert með hans
eigin hagsmuni að gera, heldur þá
staðreynd að þau hafa svo mikla
þýðingu fyrir líf fólks, eins og
hann orðaði það sjálfur. Frelsi ein-
staklingsins og takmörkuð ríkis-
afskipti voru hans hugmynda-
fræðilegu leiðarljós.
Þrátt fyrir almennt áhugaleysi
á íþróttum var Einar meðal stofn-
félaga Ungmannafélagsins Rögn-
unnar í Reykjavík, sem um nokk-
urra ára skeið tók þátt í
utandeildinni í knattspyrnu. Eitt
sumar atti Ragnan kappi við félag
frá Vestmannaeyjum. Hafði þá
einhver á orði að allir þyrftu að fá
að vera með. Einar, sem jafnan sá
um að grilla pylsur á leikjum,
hafði ekkert spilað þótt langt væri
liðið á tímabilið. Úr því varð að
bæta. Á hliðarlínunni fékk Einar
því lánaða takkaskó og stuttbuxur
og bjó sig undir að koma inn á völl-
inn eftir upphitun sem samanstóð
af stuttum sprettum og teygju-
æfingum. Hann átti að vera
frammi eins og sagt var. Þegar
leikar höfðu stöðvast eftir mark
frá Vestmannaeyingunum gaf
dómarinn grænt ljós á skiptingu.
Einar hljóp þá skælbrosandi inn á
völlinn eftir miðlínunni við mikinn
fögnuð okkar félaganna og ann-
arra áhorfenda sem til þekktu. En
öllum að óvörum stöðvaði hann
ekki við boltann á miðju vallarins
eins og til var ætlast, heldur hélt
för sinni áfram, þvert yfir völlinn
og alla leið út af hinum megin.
Þátttöku Einars í leiknum var þar
með lokið. Fagnaðarlátunum ætl-
aði aldrei að linna. Einar var
kannski ekkert sérstaklega flink-
ur í fótbolta. En svona gat hann
óvænt lífgað upp á annars tilþrifa-
lítinn knattspyrnuleik í utandeild-
inni.
Hitt er síðan, að þeir sem
þekktu vel til Einars vissu að þar
fór enginn aukvisi þegar kom að
líkamlegu atgervi. Hann var frem-
ur lágvaxinn og þéttur á velli. Með
firnasterka fætur, og þyngdar-
punktinn neðarlega, var hann
öruggur á skíðum, bæði á snjó og
vatni. Hann fór lengi allra sinna
ferða á hjóli óháð veðri og vindum;
og fór svo greitt yfir að ógerning-
ur var að halda í við hann. Hann
hafði úthald í margra daga göngu-
ferðir um hálendið; nestislaus, ef
undan eru skilin nokkur hundruð
grömm af Skittles. Og hann gat
synt lengra í kafi en nokkur annar
sem ég hef um ævina kynnst.
Skútunni sinni sigldi hann síðan
einn um heimsins höf, dögum og
jafnvel vikum saman án þess að
sjá til lands. Sannkallað þrekvirki.
Undir hið síðasta hafði veru-
lega dregið af Einari vegna lang-
varandi veikinda. Er svo var kom-
ið að hann hafði ekki lengur þrek
til að rökræða varð mér ljóst að
tími væri kominn til að kveðja
einn allra besta vin sem ég hef um
ævina eignast.
Megir þú hvíla í friði.
Meira: mbl.is/minningar
Óttar Pálsson.
Vinur minn, Einar Hannesson,
hefur lokið sinni jarðvist, langt um
aldur fram. Hetjulegri og æðru-
lausri baráttu er lokið, baráttu við
krabbamein sem í upphafi veik-
indanna árið 2013 var greint og
metið illvígt og ósigrandi. Þrátt
fyrir þennan þunga dóm fyrir
hann, sem var rétt orðinn fer-
tugur, hélt Einar ótrúlegu and-
legu og líkamlegu þreki mestan
hluta veikindaferilsins. Ætíð var
hann upplitsdjarfur og léttur í
lund. Hann átti að baki óvenju
fjölbreyttan starfsferil bæði hér
heima og erlendis. Eftir heim-
komu frá Brussel sinnti hann
krefjandi lögmannsstarfi, en í frí-
stundum sigldi hann einn á skútu
sinni heimsálfa á milli og hannaði
og byggði með eigin hendi stór-
glæsilegt sumarhús við Sogið.
Nokkrum árum fyrr endurnýjaði
og endurbyggði Einar stærðar-
innar fimm hæða raðhús í Brussel,
og gerði allt sjálfur, svo sem pípu-
lagnir, rafmagn og múrverk.
Hann tileinkaði sér ætíð nýjustu
aðferðir og tækni á þessum fag-
sviðum, eins og um atvinnumann
væri að ræða.
Það sem hér hefur verið upp-
talið sýnir að Einar Hannesson
var enginn venjulegur maður. All-
ar verklegar framkvæmdir léku í
höndum hans, en Einar var einnig
var einnig mjög sterkur og
óvenjulegur persónuleiki á and-
lega sviðinu. Lífsskoðanir hans
voru hreinar og beinar og byggð-
ust fyrst og fremst á sannfæringu
hans um ábyrgð og frelsi einstak-
lingsins. Margir álitu hann vera
yst á hægri kantinum, og áttu það
til að stuðast eða jafnvel hneyksl-
ast á yfirlýsingum og skoðunum
hans varðandi ýmis pólitísk átaka-
og deilumál samtímans. Af hálfu
Einars lá þó oftast að baki góðlát-
leg og heiðarleg viðleitni til að
skerpa umræður til að komast
nær kjarna málsins. Í því sam-
bandi hafði hann stundum lúmskt
gaman af því að ögra fólki dálítið,
m.a. til að varpa nýju ljósi á vana-
bundin viðhorf.
Æðruleysi og hetjulund Einars
í veikindum hans gleymist seint.
Mikið skarð er fyrir skildi og sár
eftirsjá við brotthvarf Einars
Hannessonar af vettvangi lífsins.
En minningin um einstakan og
mikilhæfan dreng lifir og gleymist
aldrei.
Hvíl þú í friði, kæri vinur, Guð
blessi minningu þína.
Hermann Sveinbjörnsson.
Helvítis, andskotans krabba-
mein.
Þið sem þekkið Einar þekkið
hans óritskoðuðu skoðanir. Hann
sagði það sem hann hugsaði. Hins
vegar heyrði ég hann aldrei
kvarta svona yfir krabbanum,
þetta eru því mín orð í þetta
skiptið. Það þarf hugrekki að
byrja minningargrein á þessum
orðum, en það er eitt af þeim hug-
tökum sem ég minnist Einars
með. Hugrakkur.
Í huga Einars var tillitssemi og
umhyggja mikilvægari en að
kvarta yfir eigin veikindum. Hann
vildi enga vorkunn, þetta snérist
um að njóta ferðalagsins. Það má
segja að Einar hafi náð tíræðis-
aldri miðað við hans fram-
kvæmdagleði og ferðalög. Þvílíkur
var krafturinn. Enda langlífi ríkt í
fjölskyldu Einars með eftirlifandi
ömmu og afa á tíræðisaldri.
Einar var vinur minn. Hann
naut einnig samvistar sinnar. Lét
ekki gagnrýni eða skoðanir ann-
arra hafa of mikil áhrif. Hann
treysti á þann trausta vin sem
hann átti í sjálfum sér.
Lánsamur er ég að hafa átt
Einar sem náinn vin. Ég leita enn
til hans hugmyndafræði um ham-
ingjuna, réttlætiskennd og æðru-
leysi. Minning um einstakan
dreng mun lifa.
Guðjón Már Guðjónsson.
Það var útilokað að láta Einar
Hannesson fram hjá sér fara í
lagadeildinni forðum daga. Lág-
vaxinn, svipsterkur og sjarmer-
andi skar hann sig úr hópi laga-
nemanna sem dvaldi löngum í
Einar Hannesson