Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. Hamingjan er afstætt fyr-irbæri.“ Þannig hugsareinn af mörgum semhægt er að titla sem að- alpersónu bókarinnar Ráðgátan Henri Pick með sér. Maðurinn, Jean-Michel Rouche, er ört fölnandi bókagagnrýnandi sem má muna fífil sinn fegurri á allan hátt. Hárum hef- ur fækkað á höfðinu, færri aurar á milli handanna og ástarsambandið nánast komið að endastöð. Hann hefst hins vegar handa við að leysa ráðgátu um hver sé höfundur bók- arinnar Hinstu stundir ástarsögu sem tröllríður Frakklandi við út- gáfu. Eða tröllríður eins og bækur geta nú á tímum Netflix, Hulu og alls þess einfalda sem sjónvarpið hefur upp á að bjóða. Í stuttu máli er hægt að lýsa bók- inni á þann hátt að ritstjórinn Daphne finnur fyrir tilviljun handrit verðandi metsölubókar eftir óþekkt- an höfund, mann sem lést tveimur árum áður. Sérfróðum þykir bókin listavel skrifuð en það sem vekur enn meiri athygli er saga höfund- arins; Henri Pick. Sá hafði þótt frek- ar þurr á manninn og enginn hafði nokkru sinni séð hann lesa svo mikið sem dagblað og hvað þá skrifa eitt- hvað. Af þeim sökum eru ekki allir sannfærðir um að Pick sé réttmætur höfundur metsölubókarinnar og fer áðurnefndur Rouche fremstur í flokki við að reyna að fletta ofan af því hver réttur höfundur er. Fjöldi persóna verður á einhverjum tímapunkti bókarinnar „aðalpersóna“ en persónurnar skiptast á að segja söguna, sem hefði getað gert hana ruglingslega en gerir bók- ina frekar lifandi og skemmtilega að mínu mati. Ótrúlegar vinsældir bókar Pick, sem hafði unn- ið við að baka flatbökur alla sína ævi, hafa áhrif á flesta sem standa honum eða bókinni næst. Fólk færist nær eða fjarlægist maka sinn, veltir því fyrir sér hvort tímanum sé sóað með núverandi félaga og gamlir félagar skjóta örv- um amors. Allt vegna einn- ar bókar. Bókin er frábærlega vel skrifuð með miklu háði og endirinn er bæði hugljúfur og óvæntur. Ef hægt er að halda slíku fram. Það á við um Hinstu stundir ástarsögu eins og margt í þessu blessaða lífi okkar að umbúðirnar virðast skipta meira máli en innihaldið. Það að bókin sé einhvers konar ráðgáta, skrifuð af manni sem hafði ekkert lesið eða skrifað, skipti mun meira máli en innihaldið. Ráðgátan Henri Pick er að flestu leyti mjög góð bók en þó er seinni hluti hennar alveg frábær. Þar flétt- ast saman, svei mér þá, allar mann- legar tilfinningar og lesandi heldur að áðurnefndur Rouche sé að leysa gátuna. Eða hvað? Einhvers konar ráðgáta Skáldsaga Ráðgátan Henri Pick bbbbm Eftir David Foenkinos Yrsa Þórðardóttir þýddi. Benedikt, 2019. Kilja, 257 bls. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Óvæntur endir „Bókin er frábærlega vel skrifuð með miklu háði og endirinn er bæði hugljúfur og óvæntur,“ segir meðal annars í gagnrýni um bók franska rithöfundarins David Foenkinos, Ráðgátan Henri Pick. Hinn dáði ítalski leikstjóri Franco Zeffirelli er lát- inn, 96 ára að aldri. Samkvæmt frétt The Guardi- an á Zeffirelli yf- ir 60 ára leik- stjórnarferil að baki í kvikmynd- um, leikhúsi og óperu. Hann vakti meðal annars at- hygli fyrir uppsetningu sína á Ro- meó og Júlíu Shakespeares í Lond- on með Judi Dench í einu aðalhlutverka og Óskarsverðlauna- kvikmynd hans frá 1968 eftir sama verki varð gífurlega vinsæl. Þar fóru Olivia Hussey og Leonard Whiting með aðalhlutverkin. Leik- stjórinn átti sæti í öldungadeild ítalska þingsins fyrir flokk Silvio Berlusconi í sjö ár, frá 1994. Zeff- irelli var sleginn til riddara Bresku krúnunnar árið 2004. Ítalski leikstjórinn Zeffirelli látinn Franco Zeffirelli Söngvari banda- rísku þunga- rokksveitarinnar Megadeath, Dave Mustaine, hefur greinst með krabbamein í hálsi. Þetta kem- ur fram í til- kynningu á heimasíðu hljómsveitar- innar. Mustaine hefur hafið með- ferð við krabbameininu og því hefur langflestum tónleikum sveitarinnar verið aflýst. Dave Mustaine Þungarokkari með krabbamein í hálsi Kvartettinn Dea Sonans heldur tón- leika í kvöld í Stykkishólmskirkju kl. 20 og annað kvöld í Listasafni Ís- lands kl. 17.15 í tónleikaröðinni Freyjujazz. Kvartettinn var stofn- aður snemma árs í fyrra af fjórum tónlistarkonum og í kjölfar tónleika- raðarinnar Freyjujazz. Kvartettinn leikur einkum tónlist eftir meðlimi sína og er tónlistin fjölbreytt, allt frá latintónlist til rólegs kammerdjass, eins og segir í tilkynningu. Tónlistin er ýmist með eða án söngs. Kvartettinn skipa Alexandra Kjeld sem leikur á kontrabassa og syngur, Rósa Guðrún Sveinsdóttir sem syngur og leikur á saxófón og þverflautu, Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur sem syngur og leikur á básúnu, fiðlu og slagverk og Sunnu Gunnlaugsdóttur sem leikur á pí- anó. Dea Sonans leikur í kirkju og listasafni Djassklúbburinn Múlinn heldur áfram með sum- ardagskrá sína, Jazz með útsýni, á Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl. 21. Þá hefur leik tríó þriggja vina sem kynntust í tónlistarnámi í Amsterdam en þeir eru Mikael Máni Ásmundsson sem leikur á gítar, píanóleikarinn Floris Kappyne og Pierre Balda sem leikur á bassa. Tríóið blandar saman ýmsum tónlistarstefnum í lögum sínum sem mætti einna helst lýsa sem einskonar kammerdjassi. Lögin eru samin af Mikael Mána en tónsmíðarnar eru notaðar sem efni- viður fyrir spuna og samleik. Efniviður fyrir spuna og samleik Mikael Máni Ásmundsson Áhorfendamet Borgarleikhússins var slegið á lokasýningu þess á hinu gríðarvinsæla leikriti Elly á Stóra sviði leikhússins á laugar- daginn, 15. júní. Áhorfendafjöldi sýningarinnar fór upp í 104.466 talsins og var sýningin sú 220. í röðinni sem er einnig met í Borg- arleikhúsinu. Sýningin fjallar um ævi og ástir söngkonunnar Ellyjar Vilhjálms og var frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins 18. mars árið 2017. Allar sýningar leikárs- ins seldust upp á mettíma og varð fljótt ljóst að það þyrfti að færa sýninguna á stærra svið sem varð úr haustið 2017 og var sýningin frumsýnd á Stóra sviðinu fimmtu- daginn 31. ágúst það ár. Hvert metið á fætur öðru var í kjölfarið slegið og er verkið nú það sem Borgarleikhúsið hefur sýnt oftast og engin sýning önnur hefur náð viðlíka fjölda gesta. Höfundar verksins eru Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn Garð- arsson og er Gísli einnig leikstjóri sýningarinnar. Katrín Halldóra Sigurðardóttir hefur leikið Elly og vakið mikla athygli fyrir. Í til- kynningu kemur einnig fram að sýningin hefur verið sýnd í um 623 klukkutíma eða 26 sólar- hringa. 104.466 gestir á Elly Ljósmynd/Grímur Bjarnason Raddfögur Katrín Halldóra Sigurðardóttir í hlutverki Ellyjar Vilhjálms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.