Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
„HANN TRUFLAÐI
SPJÓTKASTSNÁMSKEIÐIÐ.”
„ÉG VONA AÐ ÞÚ VERÐIR EKKI SVONA Á
LAUGARDAGINN. SYSTIR MÍN ÆTLAR AÐ
KOMA Í HEIMSÓKN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá hlýjar
móttökur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER BÚINN AÐ ÚTBÚA HNYTTNA
SAMRÆÐUPUNKTA FYRIR
STEFNUMÓTIÐ Í KVÖLD
JÁ, JÁ, EN ÞEIR VILJA LÍKA STRJÚKA Á
ÞÉR SKALLANN Í GÆFUSKYNI!
„HALLÓ, KALLÓ,
BIMBÓ!”
„HVAÐ
SYNGUR?” DÖMUR MÍNAR OG HERRAR,
LADDI!
BRÓÐIR ÓLAFUR, LIÐIÐ VILL AÐSTOÐ
HJÁ ÞÉR FYRIR BARDAGANN!
VILJA
ÞEIR AÐ
ÉG BIÐJI
FYRIR
ÞEIM?
10.11. 1980, húsmóðir í Reykjavík.
Börn Arnar og Kristínar eru 1)
Óskar Örn, f. 18.7. 1983, flugmaður
hjá Icelandair. Eiginkona hans eru
Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir, líf-
fræðingur hjá Decode. Börn þeirra
eru Arna Sigurlaug 11 ára, Lóa Krist-
ín 9 ára og Haraldur Örn 5 ára; 2)
Erna Ósk, f. 21.4. 1989 doktorsnemi.
Sambýlismaður hennar er Andri
Yngvason þjónustustjóri hjá Tesla
Ísland; 3) Sólrún María, f. 22.11. 1993
jógakennari. Sambýlismaður hennar
er Chandler Scott hjúkrunarfræð-
ingur.
Alsystir Arnar er Jónína Margrét
Árnadóttir, f. 16.7. 1951, fyrrverandi
ritari í Verslunarskólanum. Systir
Arnar sammæðra er Svanlaug H.
Árnadóttir, f. 25.3. 1949, fyrrverandi
læknaritari.
Foreldrar Arnar eru hjónin Árni
Tryggvason, f. 19.1. 1924, leikari, og
Kristín Nikulásdóttir, f. 1.12. 1928,
húsfreyja. Þau eru búsett í Reykja-
vík.
Örn Árnason
Helga Bjarnadóttir
húsfreyja á Hreimsstöðum
Helgi Árnason
bóndi á Hreimsstöðum í
Norðurárdal í Borgarfi rði
Jónína Guðbjörg Helgadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristín Nikulásdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Nikulás Árni Halldórsson
trésmiður í Reykjavík
Þórdís Nikulásdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Halldór Þorsteinn Halldórsson
verkamaður í Reykjavík
Sigmann Tryggvason sjómaður í Hrísey
Jónas Tryggvason húsvörður
á Siglufi rði og áhugaleikari
Tómas Knútsson
umhverfi s verndar-
maður og kafari
Anna Nikulásdóttir
húsfreyja í Kefl avík
og Svíþjóð
Árni Helgason íþróttafrömuður í
Borgarnesi og á Langárfossi
Kristín Sigurðardóttir
húsfreyja á Víkurbakka
Gísli Þorvaldsson
bóndi á Víkurbakka
á Árskógsströnd
Margrét Gísladóttir
húsfreyja í Hrísey
Tryggvi Ágúst Jóhannsson
sjómaður og fi skimatsmaður í Hrísey
Sigurbjörg Jónasdóttir
húsfreyja á Galmarsstöðum
Jóhann Árnason
bóndi á Galmarsstöðum í Arnarneshr., Eyj.
Úr frændgarði Arnar Árnasonar
Árni Tryggvason
leikari í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leikarinn Örn Árnason.
Ég fékk gott bréf frá Fjólu Kr.Ísfeld á Akureyri á dögunum.
Þar segir hún að Tenerife hafi ver-
ið og sé draumaland okkar Íslend-
inga. Hún rifjar upp, að fyrir
nokkrum árum hafi Svandís dóttir
hennar verið þar fararstjóri og beð-
ið hana að yrkja vísur til tilbreyt-
ingar fyrir kveðjustundina þegar
heimförin fór að nálgast. Fjóla
skellti þessum vísum saman í hvelli,
en ögn hafði rignt:
Suðurlönd með sól og regn
sveipuð gullnum töfrum;
ylur streymir ört í gegn
eftir flestra þörfum.
Kemur senn að kveðjustund,
kát nú heim þið svífið.
Eigum seinna endurfund,
auðgum sífellt lífið.
Hér var gleði, hér var fjör.
Hér var mikið gaman.
Það voru okkar kostakjör
að koma hingað saman.
Sigurlín Hermannsdóttir hafði
orð á því, að erfitt væri að gera
mönnum til hæfis. – Það kom best í
ljós við upphaf þingfundar en for-
seti hafði fært málþófsumræðu-
málin aftast á dagskrána:
Fundur byrjar, fátt er þarna fínna kosta.
Á dagskránni er fyrir það fyrsta
fjárans orkan neðst á lista.
Þingmenn byrja þras og Steingrím
þurfa að skensa.
Forseti vill fáu ansa
finnst sú umræða til vansa.
Fyrst ekki mega áfram ræða orkupakka
málþóf grípur marga flokka
masa um dömubindi og smokka
Pétur Stefánsson orti á kvöld-
göngu 6. júní:
Í Elliðaárdalnum frið ég finn,
fer þangað oft að ganga,
þar sem golan kyssir kinn
og kvöldsól skín á vanga.
Friðrik Steingrímsson sendi
kveðju úr Mývatnssveit:
Er á kvöldin kular smá
kvíð’að mörgum setur,
„þá er fögur sjón að sjá“
sólina skína á Pétur.
Páll J. Árdal orti þegar fyrir al-
þingi lá frumvarp um að taka upp
þegnskylduvinnu hér á landi:
Ó, hve margur yrði sæll
og elska mundi landið heitt
mætti hann vera í mánuð þræll
og moka skít fyrir ekki neitt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur frá Tenerife
og af þingfundi