Morgunblaðið - 19.06.2019, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
emmessis.is
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Systurnar Katia og og Marielle
Labèque munu koma fram á tón-
listarhátíðinni Reykjavík Mid-
summer Music sem fram fer í
Hörpu 20. til 23. júní. Systurnar
eru franskar og hafa öðlast heims-
frægð fyrir píanódúó sitt.
Á tónlistarhátíðinni munu þær
bæði spila fjórhent og sexhent á
eitt píanó, ásamt Víkingi Heiðari
Ólafssyni, stofnanda og listrænum
stjórnanda hátíðarinnar.
Katia segir að þær hafi dáðst að
Víkingi í þónokkurn tíma. „Við
hittum hann í fyrsta skipti í nóv-
ember síðastliðnum. Við höfum
dáðst að honum nánast síðan hann
byrjaði. Hann kom á tónleika hjá
okkur og það var virkilega óvænt
ánægja. Við vorum að spila mjög
seint, í kringum miðnætti.
Hann var sjálfur að spila klukk-
an tvö um daginn og við vorum að
koma langt að svo við misstum af
tónleikunum hans. Víkingur kom
aftur að hitta okkur á tónleikunum
okkar sem við vorum virkilega
ánægðar með og við höfum haldið
sambandinu síðan.“
Samþykktu boðið samstundis
Víkingur bað þær í kjölfarið að
spila á hátíðinni. „Hann bauð okk-
ur og við vorum alveg himinlifandi
með það. Við samþykktum það
samstundis þó að það hafi ekki
verið auðvelt að koma þessu fyrir
þar sem við erum að spila á tón-
leikum daginn eftir. Við þurfum
því að fara úr landi mjög snemma
um morguninn og við krossum
bara fingur um að við mætum tím-
anlega á hina tónleikana. Okkur
langaði virkilega mikið vera hluti
af þessari hátíð,“ segir Katia.
Verkin sem systurnar spila á
hátíðinni völdu þær í takt við
þemu hennar. „Við völdum verkin
með Víkingi. Hugmyndin var að
þau myndu passa við þemu hátíð-
arinnar. Við lögðum til dæmis til
að spila „Karnival dýranna“ í takt
við þemað „Fiðrildi og fiðurfé“.
Við munum spila það með fleiri
tónlistarmönnum sem eru á svæð-
inu.“
Hin sexhentu verk hafa syst-
urnar ekki spilað áður fyrir allra
augum, að sögn Katiu. „Við vild-
um líka spila eitthvað með Víkingi
vegna þess að við erum miklir
aðdáendur hans. Við munum spila
tvö verk með honum sem eru
skrifuð fyrir sex hendur á eitt
píanó en það spilum við í fyrsta
sinn opinberlega á þessari hátíð.“
Systurnar spila einnig „Gæsa-
mömmusvítu“ eftir Maurice Ravel,
fjórhent á eitt píanó, en það kann-
ast þær betur við en hið sexhenta
verk. „Gæsamömmusvíta er eitt af
fyrstu verkunum sem við spiluðum
sem dúett. Við ólumst upp innan
um tónlist hans þar sem mamma
mín var nemandi hjá Marguerite
Long sem var náinn vinur Maur-
ice Ravel.“
Systurnar hafa spilað á píanó
frá blautu barnsbeini en móðir
þeirra var píanókennari. „Við ól-
umst upp í franskri tónlist og ég
veit að það var mikilvægt fyrir
Víking að við myndum spila
franska tónlist á hátíðinni,“ segir
Katia.
Að auki munu systurnar spila
„Four Movements for two pianos“
eftir Philip Glass. „Hann er tón-
skáld sem við erum mjög hrifnar
af og þekkjum vel, hann er mikill
vinur okkar. Við höfum nokkrum
sinnum spilað verkin hans og okk-
ur fannst vel til fundið að spila
verk eftir hann þar sem „Four
Movements for two pianos“ er frá-
bært verk, eitt af þeim bestu fyrir
tvö píanó. Verkið er þýðing-
armikið í tónlistarheimi Philip
Glass.“
Systurnar hafa oft spilað verkið.
„Víkingur heyrði okkur spila það í
Brussel fyrir stuttu síðan og
spurði okkur hvort við vildum ekki
spila það á hátíðinni. Að sjálfsögðu
samþykktum við það því við erum
virkilega hrifnar af þessu verki.“
Mikið til fyrir fjórar hendur
Katia segir það alls ekki tak-
markandi að spila fjórhent. „Við
höfum spilað fjórhent á píanó allt
okkar líf. Bach, Stravinsky, Moz-
art og Schubert skrifuðu allir fyrir
fjórhent píanó. Nú eru mörg ung
og snjöll tónskáld að semja fyrir
fjórhent píanó. Við vorum virki-
lega heppnar að Tom Yorke, aðal-
söngvari og tónskáld hljómsveit-
arinnar Radiohead, skrifaði líka
fyrir okkur fyrir tvö píanó. Bryce
Dessner sem er í hljómsveitinni
The National skrifaði líka fyrir
okkur. Hann er vinur Víkings og
er magnað tónskáld.
Við erum virkilega heppnar að
margir ungir höfundar eru að
skrifa fyrir okkur en það er okkur
mjög mikilvægt að spila nýja tón-
list.“
Systurnar einbeita sér einmitt
að því að styrkja nýja list, þ.e.
upprennandi listamenn í gegnum
stofnun sína KML foundation.
„Við settum hana af stað til þess
að aðstoða fólk sem skrifar tónlist
sem fellur utan við boxið. Við er-
um klassískir tónlistarmenn en
spilum samt sem áður allar teg-
undir tónlistar. Við höfum meðal
annars styrkt breikdansara og fla-
menkóleikara en við byrjuðum
með mögnuðum vídeólistamanni í
London, hann hafði lítinn mögu-
leika á að skapa það sem hann
vildi skapa svo við hjálpuðum hon-
um að komast af stað. Við skipu-
leggjum þetta allt sjálfar og setj-
um okkar eigin peninga inn í
stofnunina til þess að hjálpa lista-
mönnum.“
Íslenskur umboðsmaður
Systurnar hafa lengi átt í
tengslum við Ísland en fyrsti um-
boðsmaðurinn þeirra var athafna-
konan Ingunn Sighvatsdóttir. Það
lifnar yfir Katiu þegar minnst er á
Ingunni.
„Hún var fyrsti og síðasti að-
stoðarmaðurinn okkar, hún að-
stoðaði okkur fyrir mörgum árum.
Síðan þá höfum við eiginlega ekki
haft neina aðstoðarmenn, ég er
með eina sem aðstoðar mig en
Ingunn var við stjórnina á öllum
tónleikunum okkar. Svo gifti hún
sig og eignaðist börn svo hún
skapaði sér annað líf. Hún er enn
innan tónlistarheimsins en þegar
hún vann með okkur þá bjuggum
við í Flórens.“
Dagskrá Reykjavík Midsummer
Music má finna á rmm.is.
Ljósmynd/Umberto Nicoletti
Íslandstenging Katia og Marielle Labéque hafa lengi átt í tengslum við Ísland en fyrsti umboðsmaðurinn þeirra
var athafnakonan Ingunn Sighvatsdóttir. Systurnar hafa allt sitt líf leikið fjórhent á píanó og nú bætast tvær við.
Sexhentur píanóleikur í Hörpu
Heimsfrægur píanódúett Labéque-systra kemur fram á tónlistarhátíðinnni Reykjavík Midsummer
Music Systurnar segjast miklir aðdáendur stjórnanda og stofnanda hátíðarinnar, Víkings Heiðars
Kvikmyndin Avengers: Endgame og sjón-
varpsþáttaröðin Game Of Thrones hlutu
verðlaun sem besta kvikmyndin og besta
sjónvarpsþáttaröðin á kvikmynda- og sjón-
varpsverðlaunahátíð MTV sem haldin var í
fyrrakvöld í Kaliforníu. Besta hetjan og
óþokkinn voru einnig úr persónugalleríi
Avengers, þ.e. Járnmaðurinn og Þanos.
Lady Gaga fékk verðlaun fyrir bestu
frammistöðu leikara í kvikmynd fyrir A Star
Is Born og Elisabeth Moss sambærileg verð-
laun fyrir sjónvarpsþættina The Handmaid’s
Tale. Hátíðin er að mörgu leyti ólík öðrum
sem verðlauna kvikmyndir og sjónvarps-
þætti og eru m.a. veitt verðlaun fyrir „ótta-
slegnasta leik“ í kvikmynd en þau hlaut
Sandra Bullock sem var viti sínu fjær af ótta
í kvikmyndinni Bird Box.
AFP
Himinlifandi Elisabeth Moss
með MTV-verðlaunin sín.
Avengers og GoT hlutu verðlaun MTV
Men in Black International Ný Ný
The Secret Life of Pets 2 2 2
Aladdin 3 4
Rocketman 4 3
X-men: Dark Phoenix 1 2
Godzilla 2: King of the Monsters 5 3
John Wick: Chapter 3 – Parabellum 6 5
Pokémon Detective Pikachu 9 6
Avengers: Endgame 7 8
The Hustle 8 6
Bíólistinn 14.–16. júní 2019
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Bíóaðsókn helgarinnar