Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Á að setja einhverjar reglur
hvar landslið mega spila heima-
leiki sína? Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari karlalands-
liðsins í handknattleik, sagði við
mbl.is um helgina að kvartað
hefði verið til Evrópska hand-
knattleikssambandsins fyrir úti-
leik við Grikki í síðustu viku.
Grikkirnir spiluðu heima-
leik sinn í borginni Kozani, sem
er í norðurhluta landsins. Þang-
að er erfitt að fá tengiflug og ís-
lenska liðið þurfti að auki að
keyra í fimm tíma fram og til
baka, sem jafngildir nánast flug-
inu aðra leið. Íslenska liðið ferð-
aðist samtals í 50 klukkustundir
fyrir þennan eina leik, þó legg-
urinn út hafi lengst duglega við
það að flug hafi verið fellt niður.
Þetta er ekki einsdæmi. Fyr-
ir þremur árum spilaði karla-
landsliðið við Úkraínu og var þá
leikið í borginni Sumy í norðaust-
urhluta landsins. Eftir tengiflug
til þess að komast til Kiev þurfti
að keyra um 400 kílómetra til
þess að komast á leikstaðinn í
Sumy. Þá var nærri 18 tíma
ferðalag að baki frá Íslandi.
Þetta er svipað því og ís-
lenska landsliðið færi að spila
heimaleiki sína á Vopnafirði, að
því er virðist bara til þess að
þreyta andstæðinginn. Þó ég
styðji sannarlega uppbyggingu
íþróttamannvirkja á landsbyggð-
inni þá er það ekki til eftirbreytni
að fara að þessum brögðum. En
þau virðast virka, því Ísland tap-
aði í Úkraínu og var heppið með
jafntefli í Grikklandi þrátt fyrir að
teljast sterkara lið. Ferðalögin
voru til umræðu í bæði skiptin.
Það er ef til vill lítill grundvöll-
ur fyrir því að setja reglur hvar
megi spila landsleiki og hvar
ekki. En það hlýtur að vera hægt
að gera reglur um hámarks
ferðatíma, eða krefjast þess að
fulltrúar heimaliðsins hjálpi til og
auðveldi ferðaskipulagningu.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
mótinu á síðasta ári og vann Ástr-
alía þá 4:3-sigur í bráðfjörugum
leik.
Jamaíka varð fyrsta liðið í sögu
HM sem fær á sig þrjú mörk eða
meira frá sama leikmanni, í öllum
leikjum í riðlakeppninni. Það „met“
verður sennilega seint slegið. Stuðn-
ingsmenn Jamaíka fögnuðu hins
vegar ógurlega þegar Havana So-
laun skoraði fyrsta mark þjóð-
arinnar á lokamóti HM á 49. mín-
útu.
Ólík saga Brasilíu og Ítalíu
Það verður spennandi að sjá hvað
Brasilía gerir þegar lengra er komið
í keppninni. Liðið er ekki eins
sterkt og það hefur verið undan-
farin ár, eins og níu töp í röð fyrir
lokakeppnina sýna. Það býr hins
vegar gríðarleg reynsla í brasilíska
liðinu, sem gæti komið því langt
þegar í útsláttarkeppnina er komið.
Liðið mætir að öllum líkindum
heimakonum í Frakklandi, sem hafa
ekki spilað sérlega vel á mótinu til
þessa, í næstu umferð. Brasilía hef-
ur nú komist í útsláttarkeppnina
sex ár í röð.
Ítalía er hins vegar í útsláttar-
keppninni í fyrsta skipti og hefur
komið mörgum á óvart. Fáir bjugg-
ust við að Ítalía myndi vinna riðilinn
enda að leika á lokamóti HM í
fyrsta skipti í 20 ár. Ástralía hefur
fallið úr leik í átta liða úrslitum á
síðustu þremur heimsmeistara-
mótum.
Sú besta var hetjan og
skráði sig í sögubækurnar
Marta ein markahæst Ítalía vann óvænt riðilinn Ástralía mætir Noregi
AFP
Markahæst Marta er orðin markahæst í sögu lokakeppni HM og fagnaði hún skiljanlega vel og innilega.
HM 2019
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Marta Vieira da Silva, oftast kölluð
Marta, er af mörgum talin besta
knattspyrnukona sögunnar. Hún
hefur sex sinnum verið kjörin besti
leikmaður heims, síðast í fyrra. Hún
bætti við enn einni rós í hnappagat
sitt í gær. Hún skoraði þá sig-
urmark Brasilíu í 1:0-sigri á Ítalíu í
C-riðli á HM í Frakklandi. Markið
var það sautjánda sem hún skorar í
lokakeppni heimsmeistaramóts og
er hún markahæst allra á því sviði,
karla og kvenna. Hún er einnig eini
leikmaðurinn sem er búinn að skora
á fimm lokamótum HM. Hún kann
best við sig þegar mest er undir.
Markið í gær kom úr vítaspyrnu á
74. mínútu. Brasilía þarf hins vegar
að sætta sig við þriðja sæti riðilsins,
þar sem Ástralía vann 4:1-stórsigur
á Jamaíka. Ítalía tók toppsætið,
þrátt fyrir tapið.
Ítalía mætir einu af liðunum sem
enda í þriðja sæti í sínum riðli, lík-
legast Kína eða Nígeríu. Brasilía
mætir að öllum líkindum heimakon-
um í Frakklandi í sextán liða úrslit-
unum.
Kerr skoraði fjögur
Samantha Kerr sá ein síns liðs
um markaskorun Ástralíu gegn Ja-
maíka. Kerr skoraði tvö mörk í fyrri
hálfleik og bætti við tveimur mörk-
um í þeim seinni og er hún með
fimm mörk á mótinu. Kerr lék tíu
leiki á lokamóti HM áður en hún
skoraði fyrsta markið sitt, en óhætt
er að segja að hún sé dottin í gang á
stærsta sviðinu. Var þetta í fyrsta
skipti sem leikmaður Ástralíu skor-
ar þrjú mörk eða meira í leik á loka-
móti HM. Ástralía mætir Noregi í
sextán liða úrslitum í Nice á laug-
ardag. Liðin mættust á Algarve-
Það er sannkallaður stórleikur á
Meistaravelli í Frostaskjóli í kvöld
þegar Reykjavíkurrisarnir KR og
Valur leiða saman hesta sína í Pepsi
Max-deild karla í knattspyrnu.
Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna
á leiktíðinni. KR-ingar hafa aðeins
tapað einum af átta leikjum sínum í
deildinni og eru í öðru sæti deild-
arinnar en vesturbæjarliðið gerði
góða ferð upp á Akranes um síðustu
helgi og vann þar sanngjarnan 3:1
sigur á móti heimamönnum.
Valsmenn, Íslandsmeistarar síð-
ustu tveggja ára, hafa hins vegar
verið í miklu basli í sumar. Þeir hafa
tapað fimm af átta leikjum sínum í
deildinni og eru í níunda sæti með 7
stig, tveimur stigum frá fallsæti.
Meistararnir sýndu hins vegar góða
frammistöðu á laugardaginn þar
sem þeir pökkuðu Eyjamönnum
saman 5:1.
Þetta verður 117. viðureign Vals
og KR í efstu deild. Valur hefur unn-
ið 43 af þessum leikjum, KR 40 og 33
sinnum hefur jafntefli orðið niður-
staðan. gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Valli
Slagur Haukur Páll Sigurðsson spyrnir í boltann í leik KR og Vals í fyrra.
Mikið undir á
Meistaravelli í kvöld