Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík 2-3 svefnherbergi 2 baðherbergi Flott hönnun, vandaður frágangur Frábært útsýni Geymsla og stæði í bílakjallara Hægt að velja um tilbúnar íbúðir eða íbúðir í byggingu Alg jör paradís fyrir golfara Verð frá 34.900.000 Ikr. (246.000 evrur, gengi 1evra/142 Ikr) Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 GLÆSILEGAR LÚXUSÍBÚÐIR Las Colinas margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni 50 ára Svavar er Sauðkrækingur, fædd- ur þar og uppalinn. Hann er mjólkurfræð- ingur að mennt og er framleiðslustjóri Voga- bæjar. Hann er einnig meindýraeyðir að aukastarfi. Maki: Eva Jóhanna Óskarsdóttir, f. 1972, kennari í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Börn: Helena Þórdís, f. 1994, Anna Val- gerður, f. 1998, og Óskar Hallur, f. 2001. Foreldrar: Reynir Barðdal, f. 1949, fyrr- verandi loðdýrabóndi, og Helena Jónína Svavarsdóttir, f. 1948, sjúkraliði. Þau eru búsett á Sauðárkróki. Svavar Sigurðsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Brjóttu odd af oflæti þínu og þiggðu aðstoð samstarfsmanna þinna. Sýndu dugnað og samviskusemi í starfi og þá er allt í lagi að slá á létta strengi þegar við á. 20. apríl - 20. maí  Naut Sá sem ekki spennir bogann of hátt fær oft meira í aðra hönd en hann átti von á. Aðgerðaleysi er ekki alltaf ávísun á hvíld, stundum er það merki um að sitja fastur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert að hugsa um of mörg mál í einu og missir við það alla starfsorku. Gefstu samt ekki upp því fyrr eða síðar stendur þú með pálmann í höndunum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú mátt ekki vanmeta vinsældir þínar en mátt heldur ekki misnota þér vel- vild annarra. Gættu þess að ganga ekki fram af sjálfum þér og hvíldu þig inn á milli. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert svo upptekinn af tæknilegum atriðum þess sem þú ert að bauka að þú verður að passa þig að missa ekki sjónar á stóru myndinni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt einhver snurða hlaupi á þráðinn milli þín og vinar þíns, máttu ekki loka á vin- áttuna. Vertu á verði og láttu gott tækifæri ekki renna þér úr greipum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vanalega ertu mjög þolinmóð/ur, en við að sjá fyrir endann á einhverju verki, finnst þér þú hreinlega fara út úr lík- amanum. Að vinna ekki sigur er ekki sama og tapa. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér hefur vegnað vel og mátt því svo sannarlega gleðjast yfir árangrinum með þínum nánustu vinum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Til þess að geta hjálpað öðrum þarftu fyrst að hafa öðlast frið með sjálfum þér. Láttu aðra ekki draga úr þér kjarkinn, því bak við úrtölur býr öfund. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er aldrei of seint að bæta við menntun sína og til þess eru ótal mögu- leikar. Vinna þín batnar örugglega á árinu, hafðu það bak við eyrað. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það skiptir engu máli hversu lengir þú talar, fólk er ekki að hlusta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú kannt að fá boð um skemmtileg- heit og átt að þiggja það sé þess nokkur kostur. Forvitni er þér eðlislæg og þú fellur aftur og aftur fyrir hinu eilífa nýjabrumi. í sjöundu uppfærslunni af Egner, í til- efni af 70 ára afmæli Þjóðleikhússins. Ég er búinn að leika Bangsapabba, Lilla klifurmús og Hérastubb bakara í Dýrunum í Hálsaskógi og alla rængjana í Kardemommubænum og nú er ég að fara að leika Bastían bæj- arfógeta. Ég kem ekki til með að leika Soffíu frænku og á þá bara eftir að leika Tóbías og vona að ég fái að þáttagerð um margra ára skeið og má þar nefna þættina um Afa, Imbakass- ann og Spaugstofuna. Örn gaf út plöt- una Afi á sjóræningjaslóðum fyrir nokkrum árum og hefur sungið inn á nokkrar hljómplötur. Hann hefur unnið ótal önnur verkefni tengt menningu og listum og hefur einnig sinnt leiklistarkennslu. „Ég er að fara að leika næsta vetur Ö rn Árnason fæddist 19. júní 1959 á Unnarstíg 2 í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann flutti um 6 ára aldurinn upp í Bólstað- arhlíð 60 og bjó þar til rúmlega tví- tugs. Hann dvaldi á sumrin í Hrísey með foreldrum sínum en vann svo á sumrin frá 16 ára í Sænska frystihús- inu, Sláturfélagi Suðurlands og fleiri stöðum. Örn kláraði smíðadeild í Ármúla- skóla en tók svo pásu eftir það og fór að vinna þar til hann innritaðist í Leiklistarskóla Íslands 1978 og út- skrifaðist 1982. Hann sótti söng- námskeið í Kaupmannahöfn hjá Súsönnu Eken um nokkurra mánaða skeið 1994 Örn var fastráðinn leikari við Þjóð- leikhúsið í mörg ár en undanfarin ár hefur hann verið sjálfstætt starfandi sem leikari, framleiðandi, leikstjóri og höfundur. Í Þjóðleikhúsinu hefur Örn leikið fjölmörg eftirminnileg hlutverk eins og Lilla í Dýrunum í Hálsaskógi, Jónatan, Jesper og Kasper í Kardemommubænum, Max í Hallæristenórnum, Leikarann í Gamansama harmleiknum og Geir Vídalín í Gleðispilinu. Hann lék Bangsapabba í Dýrunum í Hálsa- skógi og ýmis hlutverk í Klaufum og kóngsdætrum. Meðal nýlegra verk- efna hans þar eru afmælissýning Spaugstofunnar Yfir til þín – Spaug- stofan 2015 þar sem hann lék og var einn handritshöfunda, Umhverfis jörðina á 80 dögum, Óvitar, Spamalot, Tveggja þjónn, Ballið á Bessastöðum og Bjart með köflum. Á síðasta leik- ári lék hann í sirkussöngleiknum Slá í gegn og Ronju ræningjadóttur. Hann hefur einnig leikið í sýningunni How to become Icelandic í Hörpunni frá 2011. Meðal verkefna í Borgarleikhúsinu var Harry og Heimir í sem Örn samdi og lék í ásamt Sigurði Sigurjónssyni og Karli Ágústi Úlfssyni. Síðan var gerð bíómynd upp úr því leikriti. Örn hefur talsett fjölda teikni- mynda bæði fyrir sjónvarp og kvik- myndahús og var einn stofnenda tal- setningarfyrirtækisins Hljóðsetning. Hann hefur unnið við sjónvarps- leika hann eftir tíu ár og loka ferl- inum með því.“ Örn lauk námi í Leiðsöguskólanum 2016 og starfar sem slíkur milli verk- efna. „Ég var spenntur fyrir því að prófa leiðsögumanninn og tók meira- próf og er ökuleiðsögumaður. Ég sé mig ekki fyrir mér setjast í eitthvert fyrirbæri sem heitir helgur steinn. Ég verð alltaf að hafa eitthvað að sýsla,“ en Örn er vanur því að vinna með mörg verkefni í einu. Meðal áhugamála Arnar er lestur fræðibóka og hefur hann því getað miðlað margvíslegum fróðleik til ferðamanna. Núna er Örn á tíu daga ferðalagi með Bandaríkjamönnum og verður hann því í vinnunni í dag. „Ég kaupi mér bara litla tertu á Akureyri í tilefni dagsins. Það er engin ástæða til að fagna því frekar að vera orðinn árinu eldri. Ég er þá reyndar búinn að uppfæra mig úr 5.9 í 6.0.“ Fjölskylda Eiginkona Arnar er J. Kristín Ósk- arsdóttir, f. 4.2. 1957, grunnskóla- kennari. Foreldrar hennar voru hjón- in Óskar Frímannsson, f. 13.8. 1930, d. 3.12. 2008, starfsmaður Olís, og Hólmfríður Jónsdóttir, f. 5.6. 1933, d. Örn Árnason leikari – 60 ára Spaugstofumenn Spaugstofan er líklega vinsælasta íslenska sjónvarpsefni sögunnar. Uppfærir sig úr 5.9 í 6.0 Afi Örn byrjaði að leika afann þegar hann var 26 ára. 30 ára Elí Þór er Reykvíkingur en býr á Egilsstöðum. Hann rekur Dyravarðaþjón- ustu Austurlands, er rekstrarstjóri hjá East Highlanders fjórhjóla- leigu og vinnur einnig hjá 701 Hotels sem reka Hótel Valaskjálf og Hótel Hallormsstað auk nokkurra veitingastaða. Hálfsystkini: Arnar Ingi Gunnarsson, f. 1998, og Dóra Kristný Gunnarsdóttir, f. 2000. Foreldrar: Gunnar Jónas Einarsson, f. 1966, matreiðslumaður hjá Bönunum, og Sigríður Lund Vídó Hermannsdóttir, f. 1970, útvarpskona á Bylgjunni. Elí Þór Vídó Gunnarsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.