Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
„Það er orðið mjög algengt að skemmtiferðaskipin
komi hingað og stoppi við,“ segir Halla Ingólfsdóttir,
eigandi Arctic Trip, ferðaþjónustufyrirtækis í Gríms-
ey. Halla segir að Grímsey sé sífellt að verða vinsælli
áfangastaður ferðamanna en hún á von á 40-50
skemmtiferðaskipum til eyjarinnar í sumar. Tvö þeirra
komu þangað um síðustu helgi.
Halla segir að ferðamenn sem heimsæki Grímsey
sæki aðallega í eyjuna vegna fuglalífsins, náttúrunnar,
mannlífsins og í það að fá að stíga yfir heimskauts-
bauginn en lundinn steli yfirleitt athyglinni. Hún bætir
við að hefð sé komin á það að atvinnufuglaljósmynd-
arar komi í eyjuna í nokkra daga til að ljósmynda fugla
enda komist þeir óvenju nálægt fuglunum í eyjunni.
Segir hún að ferðamenn sem heimsæki Grímsey hafi
oft orð á því hvað mannlífið í eyjunni sé einstakt og fal-
legt. Halla segir að hún hafi tekið eftir því að meðalald-
urinn á skemmtiferðaskipunum virðist fara lækkandi
og segist finna fyrir meiri eftirspurn eftir öðru en
göngutúrum. Arctic Trip sé því farið að bjóða upp á
snorkl með lundum á eyjunni.
„Annars er aðallega verið að ganga, fara yfir baug-
inn og svo sýnum við fólki hvar það getur komist ná-
lægt lundanum. Svo hefur fólk yfirleitt áhuga á kirkj-
unni,“ segir Halla.
„Það er eitthvað sérstakt við þessa eyju.Við erum í
eins konar tímaleysi. Fólk talar um það þegar það kem-
ur að það detti í annan gír,“ segir Halla sem segir
ferðamenn sífellt vera að missa af ferjunni úr eyjunni
vegna þess að þeir gleymi stað og stund í náttúrunni og
fuglalífinu. „Við erum svo tengd náttúrunni og veðrinu.
Þegar ég er hér finnst mér ég bara vera hluti af því.“
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Ferðamenn Farþegar tveggja skemmtiferðaskipa heimsóttu eyjarskeggja á laugardag, annað franskt en hitt norskt.
Ferðamenn gleyma sér
í náttúrufegurð Grímseyjar
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Baugur Halla Ingólfsdóttir stendur við skilti í Grímsey
sem vísar að þeim stað þar sem heimskautsbaugur liggur.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Um 53% þeirra sem taka afstöðu í
nýrri skoðanakönnun Maskínu segj-
ast vera mjög eða fremur fylgjandi
því að efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um þriðja orkupakkann svo-
nefnda, en um 47% segjast vera
mjög eða fremur andvíg því. Þá
mælist mikill stuðningur innan rík-
isstjórnarflokkanna við að Ísland
verði undanþegið orkulöggjöf Evr-
ópusambandsins.
Könnunin var unnin fyrir samtök-
in Heimssýn dagana 12.-18. júní og
voru fjórar spurningar lagðar fyrir
Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur
fólks sem valinn er með tilviljun úr
Þjóðskrá. Svarendur voru samtals
793, af báðum kynjum, 18 ára og
eldri og af öllu landinu. Voru svörin
vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og
búsetu.
27% mjög fylgjandi
Fyrsta spurningin í könnuninni
sneri að því hvort viðkomandi væri
fylgjandi eða andvígur því að þjóð-
aratkvæðagreiðsla yrði haldin um
innleiðingu 3. orkupakkans. 755, eða
95,2%, þeirra sem í úrtakinu voru
svöruðu spurningunni og sögðust
202, eða 26,8%, vera mjög fylgjandi
þjóðaratkvæðagreiðslu og 104, eða
13,7%, fremur fylgjandi. Þá voru
18,7% svarenda, eða 141, mjög and-
víg þjóðaratkvæðagreiðslu, og 130,
eða 17,2%, sögðust fremur andvígir.
Þá voru 178 svarendur, eða 23,6%,
hvorki fylgjandi né andvígir því að
halda atkvæði um innleiðingu orku-
pakkans.
Þegar nánar er rýnt í svörin eftir
búsetu sést að stuðningur við þjóð-
aratkvæðagreiðslu er meiri á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar
með tilliti til flokka sést að stuðn-
ingur við þjóðaratkvæðagreiðslu er
áberandi mestur hjá kjósendum
Miðflokksins, en um 89% kjósenda
flokksins eru fylgjandi þjóðarat-
kvæði um málið. Einungis 15,7%
kjósenda Viðreisnar eru hins vegar
fylgjandi þjóðaratkvæði, en um 66%
þeirra eru andvíg.
Meirihluti á móti innflutningi
Í könnuninni var einnig spurt um
viðhorf fólks til þess að innflutningur
á fersku eða ófrosnu kjöti yrði heim-
ilaður. 761, eða 96% af úrtakinu,
svaraði spurningunni og sögðust
116, eða 15,2% svarenda, vera mjög
fylgjandi því að heimila slíkan inn-
flutning, en 144, sem nemur um
18,9%, voru fremur fylgjandi því að
heimilað yrði að flytja inn ferskt eða
ófrosið kjöt. 128, eða 16,8%, voru
hvorki fylgjandi né andvígir því að
veita slíka heimild.
Þegar bara er horft til þeirra sem
tóku afstöðu sögðust tæplega 59%
svarenda vera mjög eða fremur and-
vígir því að heimila slíkan innflutn-
ing, en um 41% sagðist mjög eða
fremur fylgjandi því.
Þegar rýnt er í niðurstöðurnar eft-
ir því hvað viðkomandi myndi kjósa,
sést að 9,8% af væntanlegum kjós-
endum Framsóknarflokks eru fylgj-
andi innflutningi á fersku/ófrosnu
kjöti en 83,5% eru andvíg því. Þá eru
einungis 9% af kjósendum VG sem
segjast styðja slíka innflutnings-
heimild, en 67,4% eru á móti. Hlut-
föllin eru öllu jafnari meðal kjósenda
Sjálfstæðisflokksins, en 37,2%
þeirra segjast fylgjandi en 43,1%
andvígir innflutningi á fersku eða
ófrosnu kjöti.
Innflutningur á fersku eða
ófrosnu kjöti nýtur mests stuðnings
meðal kjósenda Viðreisnar og Sam-
fylkingarinnar, en 63,3% viðreisnar-
manna og 56,6 af kjósendum Sam-
fylkingarinnar segjast fylgjandi
honum. Þá eru 28,3% samfylkingar-
manna og 20,7% viðreisnarmanna
andvíg því að heimila innflutning á
ófrosnu eða fersku kjöti.
53% með þjóðaratkvæðagreiðslu
Ný könnun Maskínu fyrir Heimssýn bendir til andstöðu við þriðja orkupakkann og innflutning á
ófrosnu kjöti Tæplega 59% þeirra sem afstöðu tóku sögðust andvíg innflutningi á ófrosnu kjöti
Viðhorfskönnun um 3. orkupakkann og innflutning á fersku kjöti
Viðhorf til þjóðaratkvæðagreiðslu
um innleiðingu 3. orkupakkans
Viðhorf til þess að Ísland verði undanþegið orkulöggjöf Evrópusambandsins
Viðhorf til heimildar á innflutningi
á fersku/ófrosnu kjöti?
Heimild: viðhorfskönnun
Maskínu í júní 2019
19%
29%
15%
17% 20%
11%16%32%15%26%
Mjög
andvígur
Fremur andvígur
undanþágu
Hvorki néFremur fylgjandiMjög fylgjandi undanþágu
Mjög fylgjandi
innflutningi
Fremur fylgjandi
Hvorki né Mjög andvígur
innflutningi
Fremur andvígur)
Mjög fylgjandi
þjóðaratkvæða-
greiðslu
Fremur fylgjandi
Hvorki né
Fremur andvígur
þjóðaratkvæða-
greiðslu
Mjög andvígur
19% 27%
14%
24%
17%
Rúmlega 61% þeirra sem afstöðu
tóku í skoðanakönnun Maskínu, sem
unnin var fyrir Heimssýn, er fylgj-
andi því að Ísland verði undanþegið
orkulöggjöf Evrópusambandsins, en
tæplega 39% segjast andvíg slíkri
undanþágu. 708 manns, eða 89,3% af
úrtaki könnunarinnar, svöruðu
spurningunni, en 228 manns, eða um
32,2%, vildu ekki taka afstöðu til
hennar.
185, eða 26,2%, sögðust mjög
fylgjandi undanþágu og 109, eða
15,4% svarenda, voru fremur fylgj-
andi henni. 76, eða 10,7%, voru mjög
andvígir því að Ísland fengi undan-
þágu frá orkulöggjöf Evrópusam-
bandins, en 110, eða 15,5%, voru
fremur andvígir því.
Þegar rýnt er í niðurstöðurnar
eftir fylgi flokka sést að nokkur
stuðningur er meðal kjósenda
stjórnarflokkanna við að Ísland fái
undanþágu frá orkulöggjöf ESB.
Þannig segjast 40% af kjósendum
Vinstri grænna fylgjandi slíkri und-
anþágu, en 24,3% eru andvíg. 48,7%
af kjósendum Sjálfstæðisflokksins
eru fylgjandi undanþágu en 19,9%
eru andvíg henni. Þá eru 68,4% af
kjósendum Framsóknarflokks fylgj-
andi því að Ísland fái slíka undan-
þágu, en einungis 6,9% þeirra eru
andvíg því.
Af öðrum flokkum má nefna að
82,5% kjósenda Miðflokksins eru
fylgjandi undanþágu, en 12,4% and-
víg. Á sama tíma er andstaðan við
undanþágu mest innan raða Við-
reisnar, þar sem 63,2% segjast and-
víg, en einungis 11,9% af kjósendum
flokksins eru fylgjandi.
Vilja að Ísland verði
utan orkulöggjafar