Morgunblaðið - 19.06.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, lokað um helgar í sumar
Full búð af glæsilegum sundfötum
Misty
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Almennt hefur aukning verið á ábúð
lunda á landinu þó með einhverjum
undantekningum. Þetta segir Erpur
Snær Hansen, forstöðumaður Nátt-
úrustofu Suðurlands, sem hefur séð
um hið árlega lundarall, sem nú
stendur yfir, frá 2010.
Erpur segir athyglisvert hversu
snemma lundinn hafi verpt víða
norðanlands og telur tilfærslu hafa
orðið á varptíma. Til dæmis nefnir
hann varp í Grímsey í Steingríms-
firði þar sem lundarnir hafi byrjað
að verpa upp úr 20. apríl sem telst
óvenju snemmt en það er mánuði
fyrr en vanalega.
Ekki góðs viti að sjá ekki lunda
Erpur segist vera spenntastur
fyrir Breiðafirði og Vestmannaeyj-
um, en hópur heldur til Eyja á morg-
un til að kanna ábúðina þar.
Erpur segist þó hafa nokkrar
áhyggjur af varpinu í Vestmannaeyj-
um. „Það var rosalega mikið af fugli
þar í vor. Við höfum aldrei séð eins
mikið af fugli frá því fyrir aldamót en
nú hefur eiginlega ekkert sést
undanfarnar tvær vikur,“ segir Erp-
ur og bætir við að þar sem lundinn
eigi að vera búinn að verpa á þessum
tíma árs sé ekki góðs viti að ekki sjá-
ist fugl í varpinu í svo langan tíma.
„Þetta er vísbending um að eitthvað
sé að. Þá eru fuglarnir stressaðir og
þeir hafa ekki tíma til að hanga í
varpinu og eru að reyna að komast
sem mest í fæðu,“ segir Erpur.
Í Elliðaey í Breiðafirði mældist
ábúð 86%, sem er hæsta mæling
Náttúrustofu Suðurlands á þeim
stað til þessa. „Það er mjög mikil-
vægt svæði því þarna er yfir hálf
milljón para. Við erum að vona að síl-
in fari að sýna sig þar,“ segir Erpur.
Lundavarp fyrr
á ferðinni í ár
Almenn aukning á ábúð lunda
Morgunblaðið/Ómar
Lundarall Skoðun á ábúð lunda
heldur áfram í Eyjum á morgun.
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Flogið var af stað með mjaldrasyst-
urnar Little Grey og Little White
frá Kína í gærkvöldi og er koma
þeirra á Keflavíkurflugvöll væntan-
leg fyrir hádegi í dag. Flogið verður
með mjaldrana beint frá Sjanghæ til
Keflavíkur og er áætlað að flugið
taki um 11 klukkustundir en ferða-
lagið í heild sinni um 26 klukku-
stundir.
Á mánudag lá fyrir að rússnesk
yfirvöld myndu gefa flutningsvél
mjaldranna, Boeing 747-400 ERF,
vöruflutningaþotu Cargolux, leyfi til
að fljúga yfir lofthelgi Rússlands og
stytti það áætlaðan flugtíma eilítið,
að sögn Sigurjóns Inga Sigurðs-
sonar, verkefnastjóra hjá sérverk-
efnadeild TVG-Zimzen.
Verða að treysta á veðrið
Verkefnið er umfangsmikið að
sögn Sigurjóns: „Bandaríski flug-
herinn átti að vera í viðbragðsstöðu í
dag, ef veðrið yrði slæmt myndi vél
hersins fljúga með mjaldrana frá
Keflavíkurflugvelli til Vestmanna-
eyja,“ segir Sigurjón en ákveðið var
í gærmorgun að taka þann mögu-
leika af borðinu.
„Við verðum bara að treysta á ís-
lenskt veður,“ segir Sigurjón og
kveðst bjartsýnn á að veðrið verði
álíka gott og á undanförnum dögum.
Mjaldrasysturnar, sem báðar eru
12 ára, koma alla leið frá sædýra-
garðinum Changfeng Ocean World í
Sjanghæ þar sem þær hafa skemmt
almenningi síðan þær voru fangaðar
við Rússland árið 2011. Þá voru þær
einungis 2-3 ára gamlar en vera
þeirra í Vestmannaeyjum gæti orðið
löng þar sem mjaldrar geta náð 40-
50 ára aldri.
Mjaldurinn var fyrsta hvalateg-
undin sem veidd var gagngert í þeim
tilgangi einum að hafa lifandi til sýn-
is í búrum, að því er fram kemur í
bókinni Hvalir eftir Sigurð Ægisson
og Jón Baldur Hlíðberg, þar sem
fjallað er um mjaldurinn. Mjaldur-
inn, sem gjarnan er kallaður kanarí-
fugl hafsins, getur synt aftur á bak
og snúið höfðinu til, bæði fram og
aftur og til beggja hliða. Hann er
hjarðdýr og samanstanda hóparnir
oft af 5 til 20 dýrum sem geta verið
kýr og afkvæmi þeirra, ung og eldri,
eða eingöngu fullorðnir tarfar. Little
Grey og Little White verða einar í
sjókvínni fyrst um sinn en fram hef-
ur komið að pláss sé fyrir 12 hvali í
kvínni og ekki hefur verið útilokað
að fleiri bætist í hópinn.
Mjaldrarnir munu búa í sérsmíð-
aðri sjókví í Klettsvík í Vestmanna-
eyjum, þar sem einn frægasti há-
hyrningur heims, Keikó heitinn,
dvaldi á árunum 1998 til 2002. Hann
var endanlega látinn laus sumarið
2002 en drapst einu og hálfu ári síð-
ar við Araviksfjord í Noregi, 27 ára
að aldri.
Dvelja í tönkum í nokkrar vikur
Þegar Little Grey og Little White
koma til Vestmannaeyja munu þær
dvelja í tönkum í nokkrar vikur til
aðlögunar áður en þær synda frjáls-
ar í sjókvínni, að sögn Sigurjóns, þar
sem aðstæðurnar í Klettsvík eru frá-
brugðnar því sem þær eru vanar:
„Mjaldrarnir fara í tanka og verða
í sóttkví þar í nokkrar vikur. Vatnið
verður líka temprað þar en þeir eru
vanir 15-20 gráðum. Sóttkvíartíminn
verður notaður til að kæla niður
vatnið til að venja þá við aðstæð-
urnar í Klettsvík,“ segir Sigurjón og
bætir við að mikilvægt sé að mjaldr-
arnir dvelji í sóttkvínni í 4 til 6 vikur.
Góðgerðarsamtökin Sea Life
Trust standa að flutningi mjaldr-
anna í samstarfi við dýraverndunar-
samtökin Whale and Dolphin Con-
servation og afþreyingarfyrirtækið
Merlin Entertainment, sem rekur
meðal annars Legoland. Sjókvíin í
Klettsvík er fyrsta opna griðasvæðið
í heiminum sem ætlað er hvölum og
gáfu sjávarútvegsráðuneytið og
MAST leyfi fyrir komu hvalanna í
júní 2017.
Strembið ferðalag framundan
Ferðalagið er mjöldrunum
strembið og frestun komu þeirra í
mars síðastliðnum ber þess merki.
Þá álitu aðstandendur verkefnisins
veðurskilyrðin of slæm til að hægt
væri að flytja mjaldrana til sinna
nýju heimkynna í sjókvínni í Kletts-
vík í Vestmannaeyjum, þar sem
Keikó dvaldi áður fyrr.
Að loknu 11 klukkustunda flugi
frá Sjanghæ þegar mjaldrarnir
lenda hefst mikil vinna. Skipta þarf
um vatn í báðum tönkum Little Grey
og Little White, sem hvor um sig
vega um 9 tonn, en hvor mjaldurinn
vegur um eitt tonn. Þar að auki þarf
flutningabíll sem kemur til með að
flytja mjaldrana til Landeyjahafnar
að fara í sóttkví um leið og mjaldr-
arnir eru fluttir í tönkunum í bílinn.
„Þetta er fyrsta verkefnið af
þessu tagi sem við tökum að okkur.
Þetta er búinn að vera langur og
strangur undirbúningur sem hefur
gengið vonum framar. Nú er bara að
treysta á það að allt gangi eins og
planið segir til um,“ segir Sigurjón,
spurður um reynslu fyrirtækisins af
flutningi á lifandi dýrum.
Mikill öryggisviðbúnaður
Mjaldrarnir verða fluttir með sér-
útbúnum flutningabíl á vegum TVG-
Zimzen og eru tankar þeirra búnir
talstöðvar- og myndavélakerfi sem
gerir þjálfurum kleift að vera í tal-
stöðvarsambandi við mjaldrana.
Þjálfararnir munu þá sitja hjá bíl-
stjórunum og fylgjast með hreyf-
ingum og hljóðum mjaldranna sem
gefa eflaust til kynna líðan þeirra.
Ekið verður með mjaldrana til
Landeyjahafnar um Suðurstrandar-
veginn og verða fjögur öryggisstopp
á leiðinni þar sem stoppað verður og
kíkt á mjaldrana.
Mjaldrarnir koma til landsins í dag
Vestmannaeyja-mjaldrar væntanlegir til Eyja klukkan 17 í dag Flogið beint frá Sjanghæ til
Keflavíkur Áætlað að ferðalagið frá sædýragarðinum til Vestmannaeyja taki um 26 klukkustundir
Vestmannaeyjar
Sjanghæ
Ferðalag mjaldranna til Vestmannaeyja
Mjaldrarnir lenda í
Kefl avík kl. 08:40, fara
þaðan til Landeyjahafnar
og eru komnir til Vest-
mannaeyja um kl. 17
Vélin fór í loftið í
gær kl. 21.30 að
íslenskum tíma
K Í N A
Mjaldrarnir yfi rgáfu
sædýragarðinn í gær kl. 15
að íslenskum tíma og því
er áætlað að ferðalagið
taki um 26 klst.
Ljósmynd/Cargolux
Langt flug Ferðalagið til Keflavíkur ætti að taka 11 klukkustundir.