Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 8
Búist við farþegaleyfi fyrir vikulok Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Búist er við að prófunum á nýrri ferju Eyjamanna, Herjólfi VI, verði lokið í lok vikunnar og ferjan geti þá fengið skráð farþegaleyfi. Þetta seg- ir Guðbjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs ohf., í sam- tali við Morgunblaðið. Þá segir hann að búið sé að sækja um farþegaleyfi fyrir ferjuna, og nú standi yfir ýms- ar prófanir á skipinu, líkt og venja er til þegar nýjar farþegaferjur eru settar á sjó. „Ég geri ráð fyrir því að þetta verði komið fyrir vikulokin. Bæði haffærisskírteini og farþega- leyfi,“ segir Guðbjartur. Nýr Herjólfur lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum síðastliðið föstu- dagskvöld eftir ferðalag frá Póllandi og eru prófanir á ferjunni strax hafnar, sem vita að stærstu leyti að tveimur hlutum, að sögn Guðbjarts. „Þetta er tvennt. Það eru annars vegar sæti fyrir farþega og hins veg- ar öryggisáætlun. Þ.e. hversu lang- an tíma það tekur að rýma skipið af þessum farþegum.“ Spurður hvort nýja skipið verði háð einhverjum hlutlægum tak- mörkunum, svo sem ákveðinni öldu- hæð, segir Guðbjartur að svo sé ekki. „Þetta er bara skip eins og hvert annað. Öll skip hafa sínar tak- markanir frá náttúrunnar hendi. Það er engin regla sem gildir um þetta skip frekar en önnur skip á Ís- landi.“  Prófanir á Herjólfi standa nú yfir  Haffærisskírteini líka komið fljótlega Morgunblaðið/Sigurður Bogi Nýr Herjólfur Við Heimaklett. 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Veldu öryggi SACHS – demparar ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA Illa rökstutt furðuplagg „hæf-isnefndar“ sem forsætisráð- herra kom sér upp vegna S.Í. ber með sér að vera óbrúklegt. Jón Magnússon lögmaður telur fleira koma til:    Benedikt Jó-hannesson fyrrverandi for- maður Viðreisnar og fjármálaráð- herra dró umsókn sína um stöðu seðlabankastjóra til baka og vís- aði til þess að hæfisnefnd sem for- sætisráðherra skipaði hefði ekki þá burði, sem nauðsynlegt væri. Full ástæða er til að taka undir með Benedikt og fleira kemur til.    Hlutverk Seðlabanka Íslandser m.a. að hafa eftirlit af ýmsu tagi með starfsemi fjár- málafyrirtækja þ. á m. Lands- bankans, svo sem reglum um lausafé, bindiskyldu og gjaldeyr- isjöfnuð. Þá stendur til að sam- eina Fjármálaeftirlitið og Seðla- bankann, þannig að nánast allt eftirlit með bankastarfsemi við- skiptabanka verður á höndum seðlabankastjóra.    Formaður hæfisnefndarinnarvar skipuð Sigríður Bene- diktsdóttir sem er bankaráðs- maður í Landsbanka Íslands. Öll- um ætti að vera það ljóst, að það er í hæsta máta óeðlilegt að bankaráðsmaður viðskiptabanka taki þátt í vali á þeim sem á að hafa eftirlit með starfsemi bank- ans.    Draga verður í efa að hæfis-nefndin hafi það hæfi sem hún hefði þurft að hafa til að það væri hafið yfir allan vafa, að hún væri óvilhöll. Það er ekki gott þegar bankaráðsmaðurinn tekur þátt í að velja þann, sem á að hafa eftirlit með henni sjálfri.“ Jón Magnússon Vanhæfisformaður STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Yfirkjörstjórn hefur sent frá sér umsögn vegna kæru Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Mið- flokksins, um lögmæti borgar- stjórnarkosninganna sem fram fóru vorið 2018 og kæru Gunnars Kristins Þórðarsonar, oddvita Karlalistans í sömu kosningum. Kæra Gunnars snýr að íhlutun þáverandi meirihluta í Reykjavík- urborg í aðdraganda kosninga. Samkvæmt upplýsingum frá Evu B. Helgadóttur, formanni yfirkjör- stjórnar í Reykjavík, skilaði yfir- kjörstjórn umsögn um kæruna í gær til kærunefndar sem sýslu- maðurinn á höfuðborgarsvæðinu skipaði en í henni sitja hæstarétt- arlögmennirnir Ásgeir Þór Árna- son, Sigurður Jónsson og Hulda Rós Rúriksdóttir. Kærunefndin hefur viku til þess að kveða upp úrskurð og má vænta tíðinda af kærum vegna borgarstjórnarkosninganna 2018 næstu daga eða í byrjun næstu viku. Lögmæti borgarstjórnar- kosninga ljóst í næstu viku Morgunblaðið/Eggert Úrskurður Tíðinda er að vænta af kærum vegna borgarstjórnarkosninga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.