Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
MÁLA
Í SUMAR?
VITRETEX á steininn.
HJÖRVI á járn og klæðningar.
var það hið fullkomna andsvar að
mæta í Garðabæinn og hirða þrjú stig
með öflugri frammistöðu.
Stjarnan í frjálsu falli
Garðbæingar voru í harðri titil-
baráttu í fyrra áður en þeir lutu í
lægra haldi fyrir Völsurum. Margir
lykilmenn í Stjörnunni eru komnir á
seinni ár ferilsins og þá var félagið ró-
legt þegar félagsskiptaglugginn var
opinn. Garðbæingum var það í lófa
lagið að fylgja eftir árangrinum í
fyrra með nýjum og ferskum leik-
mönnum en félagið virðist hafa sofn-
að á verðinum. Stjarnan hefur aðeins
unnið einn af síðustu fimm deild-
arleikjum sínum og gæti verið átta
stigum frá toppnum, vinni KR leik
sinn í kvöld.
Innkoma Arons skaut
Breiðabliki á toppinn
Maður leiksins skoraði frá hornfánanum Heimamenn koðnuðu niður
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Grannaslagur Sölvi Snær Guðbjargarson og Guðjón Pétur Lýðsson í baráttunni í Garðabænum í gærkvöld.
Í GARÐABÆ
Kristófer Kristjánsson
kristofer@mbl.is
Breiðablik endurheimti toppsætið í
efstu deild karla í knattspyrnu, Pepsi
Max-deildinni, með því að leggja
Stjörnuna að velli, 3:1, á Samsung-
vellinum í Garðabæ í gærkvöldi.
Leikurinn var sá fyrsti í níundu um-
ferðinni og getur KR því skotist aftur
á toppinn áður en umferðin er úti.
Stjarnan hefur átt ansi slitróttu
gengi að fagna undanfarið en það var
þó ekki að sjá á Garðbæingum fram-
an af í gærkvöldi. Heimamenn léku af
krafti og uppskáru verðskuldað mark
snemma í síðari hálfleik en það skor-
aði Ævar Ingi Jóhannesson eftir
darraðardans inni í vítateig Blika.
Skömmu síðar fór Ævar Ingi af velli
ásamt Sölva Snæ Guðbjargarsyni en
þeir voru tveir af sprækari mönnum
Stjörnunnar. Á sama tíma gerðu
Blikar sína fyrstu skiptingu er Aron
Bjarnason kom inn fyrir Andra Rafn
Yeoman og átti það útspil Ágústs
Gylfasonar þjálfara eftir að ríða
baggamuninn.
Aron óðstöðvandi
Blaðamaður rak upp stór augu
þegar hann sá nafn Arons á vara-
mannabekknum á leikskýrslu en
hann hefur verið einn besti leikmaður
mótsins til þessa. Með innkomu hans
færðu gestirnir sig upp á skaftið og
Aron sjálfur jafnaði metin á 66. mín-
útu með glæsilegu og ótrúlegu skoti
við hornfánan og gerði varn-
armönnum Stjörnunnar ítrekað skrá-
veifu með snerpu sinni og tilþrifum á
vinstri kantinum. Það var svo Guðjón
Pétur Lýðsson sem kom Blikum yfir
með glæsilegu marki úr aukaspyrnu
áður en Aron lagði upp á Alexander
Helga Sigurðarson í uppbótartíma
sem rak smiðshöggið á sigurinn. Eftir
súrt tap gegn Fylki í síðustu umferð
1:0 Ævar I. Jóhannesson 49.
1:1 Aron Bjarnason 66.
1:2 Guðjón P.Lýðsson 78.
1:3 Alexander H. Sigurðarson 90.
I Gul spjöldElfar Freyr Helgason, Damir
Muminovic (Breiðabliki), Baldur Sig-
urðsson (Stjörnunni).
Dómari: Þorvaldur Árnason, 7.
Áhorfendur: Á að giska 850.
Stjarnan – Breiðablik 1:3
M
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Sölvi Snær Guðbjargarson
(Stjörnunni)
Ævar Ingi Jóhannesson
(Stjörnunni)
Arnar Sveinn Geirsson
(Breiðabliki)
Aron Bjarnason (Breiðabliki)
Guðjón Pétur Lýðsson
(Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson
(Breiðabliki)
Dregið var í 1. umferð undankeppni
Meistaradeildarinnar og Evrópu-
deildarinnar í knattspyrnu í gær. Ís-
landsmeistarar Vals voru eina ís-
lenska liðið í pottinum í Meistara-
deildinni og þeir mæta Maribor, sem
er sigursælasta félag í sögu Slóveníu
og hefur alls orðið meistari 15 sinn-
um. Maribor sló FH úr leik í þriðju
umferð undankeppninnar fyrir
tveimur árum, en fyrri leikurinn fer
fram að Hlíðarenda 9. eða 10. júlí og
útileikurinn fer fram 16. eða 17. júlí.
Í undankeppni Evrópudeild-
arinnar dróst Breiðablik gegn liði
Vaduz frá Liechtenstein. Gunnleifur
Gunnleifsson, fyrirliði Blika, lék með
Vaduz í svissnesku úrvalsdeildinni
árið 2009 ásamt Guðmundi Stein-
arssyni, aðstoðarþjálfara Breiða-
bliks. Fyrri leikurinn fer fram í
Kópavogi. KR mætir Molde frá Nor-
egi og byrjar á útileik og þá mætir
Stjarnan eistneska liðinu Levadia
Tallinn og byrjar á heimaleik. Leik-
irnir í undankeppni Evrópudeild-
arinnar fara fram 11. júlí og þeir síð-
ari 18. júlí.
Morgunblaðið/Eggert
Evrópukeppni Gunnleifur Gunnleifsson, fyrirliði Blika, spilaði með Vaduz.
Blikar halda á slóðir
fyrirliða og þjálfara
Rasmus Lauge, leikstjórnandi
danska landsliðsins og nýkrýndur
þýskur meistari með Flensburg, hefur
verið útnefndur handboltamaður árs-
ins í Danmörku annað árið í röð. Lauge
fékk 50% atkvæðanna, stórskyttan
Mikkel Hansen varð annar með 29%
og markvörðurinn Niklas Landin varð
þriðji með 5%. Lauge yfirgefur Flens-
burg í sumar og gengur í raðir ung-
verska meistaraliðsins Veszprém.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson,
kylfingur úr GR, fer upp um 247 sæti á
heimslistanum í golfi eftir sigurinn á
PGA-meistaramótinu um síðustu helgi
sem var hluti af Nordic Golf-
mótaröðinni. Guðmundur er í 749.
sæti á heimslistanum og er efstur Ís-
lendinga á honum. Næstur á eftir hon-
um er Skagamaðurinn Birgir Leifur
Hafþórsson sem er í 1.286. sæti.
Spænski miðjumaðurinn Juan Mata
og Manchester United hafa náð sam-
komulagi um nýjan samning en núgild-
andi samningur leikmannsins rennur
út um næstu mánaðamót. Breskir fjöl-
miðlar greindu frá
því gær að Mata
og forráðamenn
United hefðu
náð sam-
komulagi um
nýjan samn-
ing og er
reiknað með
að hann muni
gilda til ársins
2021. Mata
kom til United
frá Chelsea
fyrir fimm
árum.
Eitt
ogannað