Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, segir að borgastjóri haldi leyndri svokallaðri fimmskólaskýrslu. Vegna fjölda ábendinga og kvartana um ástand húsnæðis í skólum í Reykjavík hafi hún kafað ofan í málin og óskað eftir umræðu um ástand skólahúsnæðis og byggingar- og viðhaldsþörf skóla á fundi borgastjórnar 4. júní sl. Kol- brún segir að það læðist að henni sá grunur að skólarnir fimm, Haga- skóli, Melaskóli, Austurbæjarskóli, Laugarnesskóli og Háteigskóli, séu verstu tilfellin í Reykjavík. ,,Ég hef séð sláandi lista yfir van- líðan unglinga í Hagaskóla vegna lé- legra loftgæða í skólanum og gef lít- ið fyrir skýringar borgastjóra að minnihlutinn fái ekki að sjá fimm- skólaskýrsluna vegna þess að hún sé hluti af fjárfestingaráætlun. Það lít- ur út fyri að það sé verið að fela eitt- hvað,“ segir Kolbrún sem gagnrýnir meirihluti borgarstjórnar fyrir að fara í vörn í umræðunni í stað þess að viðurkenna að viðhaldi í skólum á höfuðborgasvæðinu sé ábótavant. Hún segir börnum skylt að mæta í skóla og það hljóti að vera skylda borgaryfirvalda að sjá til þess að nemendur þurfi ekki að sækja skóla í óviðunandi húsnæði. Slæm loftgæði í átta stofum Hagaskóli í Vesturbæ Reykjavík- ur er grunnskóli þar sem nemendur 8. til 10. bekkjar stunda nám. Að sögn Ingibjargar Jósefsdóttur skólastjóra Hagaskóla er skólinn byggður árið 1957. Þegar Ingibjörg tók við stjórn skólans árið 2007 hafi hún strax bent á að rífa þyrfti átta af stofum skólans og byggja við hann. Ekkert hafi gerst í þeim málum þrátt fyrir að hún hafi gengið á eftir því í rúman áratug. „Nú er svo komið að Vinnueftirlit- ið hefur gefið Reykjavíkurborg frest til 1. október til að gera úrbætur á átta stofum þar sem loftgæðismæl- ingar hafa sýnt tvö ár í röð að loft- gæði séu slæm í stofunum,“ segir Ingibjörg en hún telur að gæðin hafi versnað til muna síðustu tvö ár. Ingibjörg veitti Morgunblaðinu leyfi til þess að birta kvartanir sem for- eldar hafa sent skólanum vegna líð- anar barna sem stunda nám í stof- unum átta. Þar kemur fram að börnin kvarti m.a. yfir höfuðverk, ógleði, slappleika, auknu mígreni, kvíða og grátköstum. Auk þess hafi kennarar sem hætt hafa að kenna í viðkomandi stofum fundið fyrir bættri líðan eftir að þeir hættu að kenna í þeim. Með aukinni teym- isvinnu í þeim bekkjum sem stunda nám í stofunum átta hafa kennarar getað borið saman bækur sínar og komist að því að þeir séu jafnvel á sömu stera- eða sýklalyfjum. Reynir ítrekað að fá svör ,,Það er tvennt sem gerir ástandið slæmt. Annars vegar er loftræsting- in í stofunum barn síns tíma og end- ar á milli lofta. Slík loftræsting væri ekki leyfð í nýbyggingum í dag en er látin óáreitt af því að skólinn var byggður áður en ný reglugerð tók gildi og borgaryfirvöld nýta sér það. Hitt málið er að það eru allt of margir nemendur í hverri skólastofu og þannig hefur það verið lengi. Um- ræða hefur komið upp um að fá laus- ar stofur á lóðina en ekki hefur verið orðið við því,“ segir Ingibjörg sem er ósátt við að reglugerð um gerð og búnað grunnskóla sem sett var 2009 sé brotin árum saman. „Nemendur Hagaskóla eiga ekki að líða fyrir að búa í Vesturbænum og sækja skóla í gömlu húsnæði. Borgin slær um sig og talar um að ef byggður verði nýr skóli í Skerjafirði þá muni nemendum í Hagaskóla fækka en bygging skóla tekur ein- hver ár,“ segir Ingibjörg sem er orð- in leið að því að fá engin svör um framhaldið. Ingibjörg segir að henni hafi verð bent á það af sviðstjóra á skólasviði borgarinnar að ná fundi með borgastjóra. Eftir að hafa óskað eftir fundi án árangurs sendi Ingi- björg 16. maí sl. beiðni eins og borg- arbúum er boðið að gera í gegnum vefinn og óskaði eftir fundi með borgastjóra. Hún segist enn ekki hafa fengið boð um að funda með honum rúmum fimm vikum síðar. Að sögn Ingibjargar myndu vandamál Hagaskóla leysast með nýrri tveggja hæða byggingu sem ætla mætti að tæki um tvö ár að byggja. Á meðan gæti skólastarf farið fram í húsnæði skólans þar sem skátastarf hefur farið fram í áratug. Áhyggjufullir foreldar ,,Húsnæðið var reyndar orðið mjög illa farið og lak. En nú er búið að gera við þakið og til stendur að hreinsa út úr öllu rýminu,“ segir Ingibjörg sem hefur miklar áhyggj- ur af skólastarfinu í haust ef ekkert verður að gert. Hún segir að best væri að hefja framkvæmdir þar sem skátarnir voru í sumar þannig að skólastarf gæti hafist þar 22. ágúst nema borgin ætli að lagfæra loft- gæðin í stofunum átta í sumar. Um það viti hún ekkert enda fái hún enginn svör við erindum sínum. Bætt loftgæði bæti ekki þá stöðu að allt of margir nemendur séu í skóla- stofum og hún viti til þess að margir foreldar séu áhyggjurfullir að senda börn sín í Hagaskóla í haust. Ingibjörg vonast til þess að fá fréttir af viðbrögðum borgarinnar við bréfi Vinnueftirlitsins en niður- staða úttektar frá 7. júní var send frá Vinnuefitirlitinu 13. júní. Ingi- björg segir að vel hafi verið brugðist við þegar leki kom upp í skólanum. Erfiðara sé að festa hendur á léleg loftgæði heldur en leka og myglu. Svo virðist vera sem borgin bregðist fyrr við mygluskemmdum og leka en slæmum loftgæðum. „Ég veit að innan borgarkerfisins er vitneskja um of marga nemendur í skólastofnunum og farið er að ræða um hugsanlega nýbyggingu við skól- ann. Það er nóg pláss á skólalóðinni fyrir hana ef stofunar átta verða rifnar,“ segir Ingibjörg sem vonast til að skólahald hefjist í bættum húsakosti Hagaskóla í haust. Hún segir að skemmtilegir unglingar haldi sér í starfi í skólanum. Morgunblaðið/Eggert Hagaskóli Unglingar una sér vel í skólastarfi í Hagaskóla en slæm loftgæði í átta stofum skólans kalla fram slapp- leika, vanlíðan og veikindi nemenda og starfsfólks. Myndin var tekin þegar skólinn sigraði í Skrekk árið 2016. Sláandi listi yfir vanlíðan nemenda  Vinnueftirlitið gefur borginni frest til 1. október til að laga loftgæði í Hagaskóla  Kolbrún Baldurs- dóttir segir borgarstjóra halda fimmskólaskýrslu leyndri  Of margir nemendur í sumum skólastofum Ingibjörg Jósefsdóttir Kolbrún Baldursdóttir Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Sprenging hefur orðið í sölu á viftum þetta sumarið. Svo virðist sem skyndilegan áhuga fólks á viftukaup- um megi beintengja við hræðslu við hið alræmda lúsmý sem dreifst hefur víða um land. Er ástæðan líklega sú að flugan á ekki að geta bitið í vindi og því hafi margir gripið til þess ráðs að kaupa viftu sér til varnar. Sölutölur á viftum í Byko hafa hátt í tífaldast þetta sumarið miðað við tvö síðustu ár, samkvæmt upplýsing- um frá Sveini Sveinssyni, vöru- flokkastjóra verslunarinnar. Hann segir heppilegt hversu stóran lager verslunin hafi átt af viftum þetta sumarið. „Þetta er örugglega lúsmýið og hitinn. Fyrst og fremst held ég að þetta sé lúsmýið. Fólk hefur greini- lega hlustað á það hvað er hægt að gera til að verja sig.“ Í Húsasmiðjunni hefur salan tvö- faldast síðan í fyrra, samkvæmt upp- lýsingum frá innkaupadeild verslun- arinnar en Kristín Sævarsdóttir, vörustjóri hjá Húsasmiðjunni, segir vifturnar hafa selst upp víða í versl- unu Húsasmiðjunnar, meðal annars í stærstu verslun hennar í Skútuvogi. Hún staðfestir að hitinn og lúsmýið sé líkleg ástæða á bak við aukna sölu á viftum. Viftur í versluninni Heimilistæki eru nánast allar uppseldar að sögn Jóhanns Viðarssonar, sölustjóra hjá versluninni. Segir hann að viftusalan hafi stóraukist miðað við undanfarin sumur og bætir við að verslunin eigi von á stórri aukapöntun á næstu tveimur til þremur vikum. „Við tók- um inn einhver 800 stykki af viftum núna í apríl sem eru allar farnar. Ég gæti trúað því að þetta séu um 1.000 viftur sem við höfum selt í sumar,“ segir Jóhann. „Það eru bæði búin að vera óvenju mikil hlýindi og svo er það lúsmýið. Það er ekki spurning.“ Viftusala hátt í tífaldast vegna hlýinda og lúsmýs  Starfsmenn sammála um að lúsmýið sé sökudólgurinn Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Örfá dæmi um pósta sem foreldar hafa sent Hagaskóla um líðan barna þeirra í stofunum átta sem Vinnueftilitið hefur gefið Reykja- víkur frest til að lagfæra fyrir 1. október.  Sæl mig langar að segja frá því að ** hefur fundið fyrir höfuðverk, slappleika og miklu nefrennsli.  Dóttir mín, ** í 8.**, hefur verið mikið slöpp síðastliðinn vetur. Hún er með mígreni og hefur það aldr- ei hrjáð hana jafn mikið og síðan hún byrjaði í Hagaskóla. Hún fór hress í skólann á morgnana en kom iðulega heim til að taka mí- grenilyf í hádeginu. Ég er alveg viss um að það sé eitthvað í loftinu í skólanum sem hefur haft slæm áhrif.  Vildi ég láta vita af syni mínum ** í 8.**. Hann er með þekkt mí- greni en síðustu önn hefur hann ítrekað þurft að fara fyrr úr skól- anum vegna höfuðverkja sem er óvenjulegt fyrir hann þar sem hann hefur yfirleitt fengið mígreni seinni part dags eða á kvöldin og einnig hafa köstin aukist frá því um áramót. Við erum að fara hitta taugalækni ** í næsta viku og mun ég spyrja hann hvort slæm loft- gæði gætu valdið þessari versnun á mígreninu.  Það er ótvírætt að húsnæðið hefur valdið dóttur minni, ** í 8. ** óþægindum. Í haust, stuttu eftir skólabyrjun, skrifaði ég ** um að henni liði illa í skólastofunni vegna loftleysis. Nú í vor var það enn verra, hún var með höfuðverk oft- ar en ekki, ógleði og slappleika. Fór heim a.m.k. einu sinni úr skóla fyrr út af óþægindum, og fannst oft erfitt að einbeita sér síðustu tímana. Þetta var aðeins skárra í vetur þegar kaldara var. Hvar verða 9. bekkirnir næsta vetur og er ástandið í lagi þar?  Ég á ** í 8. bekk og hefur hann, sem aldrei fyrr verið að glíma við þreytu, höfuðverk og óskilgeindan slappleika í vetur og oft fengið að koma fyrr heim úr skólanum. Við höfum verið að fara yfir þetta því hér er um að ræða dreng sem lík- lega missti áður úr skóla einn eða 2 daga vegna veikinda - öll árin. Upplýsingar frá foreldum um líðan nemenda Unglingar með höfuð- verk, ógleði og mígreni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.