Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 10
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Frá vorinu 2018 til vorsins 2019 seldust aðeins 39 íbúðir á höfuð- borgarsvæðinu sem kostuðu 25-30 milljónir og 8 íbúðir á minna en 20 milljónir. Þetta kemur fram í greiningu Reykjavík Economics sem byggir á gögnum frá Þjóðskrá Íslands. Bendir sú greining jafnframt til að rúm 77 prósent seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári kosti undir 55 milljónum króna. Eins og sjá má á öðru grafinu hér til hliðar seldist fjöldi eigna á undir 30 milljónum frá vori 2015 til vors 2017. Með hækkandi fasteignaverði og aukinni eftirspurn hurfu ódýr- ustu eignirnar svo af markaðnum. Magnús Árni Skúlason, fram- kvæmdastjóri Reykjavík Econo- mics, segir greininguna taka mið af nýjasta fasteignamati Þjóðskrár. „Það er einna áhugaverðast hversu fáar íbúðir seljast í þeim verðflokki sem talinn er henta ungu fólki. Frá vorinu 2018 hefur varla verið hægt að fá íbúð á höfuðborgarsvæðinu sem kostar undir 25 milljónum. Það er áhuga- vert í ljósi þess að árin 2015 og 2016 var meginþorri samninga á því verðbili. Markaðurinn hefur því hliðrast til hækkunar og verðið er almennt hærra.“ Lítið um lyftuhús Boðað hefur verið að gæði sumra nýbygginga í miðborg Reykjavíkur séu meiri en áður hefur þekkst. Spurður um markaðinn með nýjar íbúðir í miðborg Reykjavíkur bendir Magnús Árni á að lítið sé um lyftuhús á því svæði. Nýju íbúð- irnar geti því hentað fólki af eftir- stríðsárakynslóðinni, sem eigi rað- hús eða sérbýli til að láta upp í íbúðirnar. Sú kynslóð sé fjölmenn og því geti eftirspurn úr þessari átt haft töluverð áhrif. Þá telur Magnús Árni aðspurður að framboð 360 nýrra íbúða við Útvarpshúsið í Efstaleiti skapi samkeppni við miðborgarreitina. Með nýju íbúðum á Hlíðarenda og á Kirkjusandi aukist sú samkeppni enn frekar. Ljóst sé að nokkurn tíma muni taka að selja íbúðir á miðborgarreitunum. Hann bendir jafnframt á að niðursveifla í ferðaþjónustu og fyrirhuguð fjölgun hótelherbergja í miðborginni geti haft mikil áhrif á framboð íbúða í miðborginni. Þá með því að fjöldi íbúða sem verið hafa í skammtímaleigu til ferða- manna fari í almenna sölu eða út- leigu. Þau áhrif hafi mögulega verið verulega vanmetin við greiningu á fasteignamarkaði. M.t.t. til þess og samdráttar í efnahagslífinu sé lík- legt að hægt verði á nýframkvæmd- um í miðborginni, eða áhersla lögð á byggingu ódýrari íbúða en nú eru í boði. Það geti glætt miðborgar- markaðinn, og markað með dýrari íbúðir, ef Seðla- bankinn lækkar vexti enn frekar á morgun. Þrýst verði á lánastofn- anir að skila vaxtalækkunum til neytenda. Það séu hagsmunir fjármálastofnana sem lánað hafa fé til uppbyggingar íbúða í miðborginni að styðja við fasteignaverðið með hagstæðari lánakjörum. Salan gengur hægt Samkvæmt söluvefjum hefur sala á nýjum íbúðum á miðborgarreitum verið hæg undanfarna mánuði. Sérfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við benti á að um 350 nýjar íbúðir séu nú í sölu í miðborginni og að fleiri muni bætast við. Reynslan af sölu nýrra íbúða í miðborginni bendi til að það muni taka þrjú ár að selja slíkan fjölda. Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segist aðspurður heyra það frá fjármögnunaraðilum að salan gangi hægt í miðborginni. „Það getur verið að verðið þyki hátt og að markaðurinn sé mett- aður. Þ.e.a.s. að sá hópur fólks sem hefur áhuga á dýrari eignum í mið- borginni sé mögulega ekki mikið stærri en salan er til vitnis um,“ segir Ari. Spurður hversu langan tíma muni taka að selja eignirnar í mið- borginni segir Ari erfitt að segja til um það. Hins vegar sé rætt um að verktakar hafi brugðist við hægari sölu með því að velja ódýrari inn- réttingar til að lækka verðið. „Það er hætt við að þeir sem hafa byggt lúxusíbúðir í miðborginni fái ekki fullt verð fyrir innréttingarnar heldur þurfi að selja á sama verði og hinir sem bjóða nýjar og ódýrari íbúðir. Með því geta tapast fjár- munir sem fóru í að búa til lúxus,“ segir Ari sem telur aðspurður að spurnin eftir lúxusíbúðum í mið- borginni hafi verið töluvert ofmet- in. Ari bendir jafnframt á að mikið framboð ódýrari leiguíbúða sé að koma á markaðinn. Sú framboðs- aukning muni líklega vega gegn frekari hækkunum á leiguverði. Það geti svo aftur haft áhrif á sölu- verð. Elvar Orri Hreinsson, sérfræð- ingur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir hæga sölu í miðborginni benda til mettunar á markaði með nýjar íbúðir á því svæði. „Miðborgarálagið gerir það að verkum að fermetraverðið á nýjum eignum á því svæði er ansi hátt. Markhópurinn er því þrengri en ella. Undanfarið hefur markaðurinn verið að kalla eftir húsnæði á við- ráðanlegu verði. Þá meðal annars fyrir ungt fólk og aðra sem hafa viljað eignast eigið húsnæði en hafa ekki geta það. Mikið magn nýbygg- inga er í pípunum. Samtímis er at- vinnuleysi að aukast og almennt að hægja á efnahagslífinu sem dregur að öðru óbreyttu úr eftirspurn. Í ljósi þessa verður athyglisvert að fylgjast með verðþróuninni á næst- unni. Engu að síður tel ég ólíklegt að miklar nafnverðslækkanir séu fram undan. Líklegra er að það eigi sér stað á markaði með dýrari eign- ir ef erfitt reynist að losa þær á nú- verandi verði,“ segir Elvar Orri. Aðstæðurnar hafi breyst Hann bendir á að sögulega hafi verið tímatöf milli framboðs og eftirspurnar eftir íbúðum á Íslandi. Sú tímatöf eigi þátt í offramboði nýrra íbúða í miðborginni. „Það getur tekið hátt í tvö ár að klára svona verkefni. Staðan í efna- hagsmálum er nú hins vegar nokk- uð ólík þeirri sem var þegar verk- efnin hófust. Forsendur hafa breyst. Aðilar sem hafa ekki náð að selja eignir gætu þurft að horfa til þess að lækka verð. Það er talsvert síðan lánastofnanir fóru að gera ríkari kröfur varðandi lánsfé til húsnæðisverkefna.“ Hlutfall seldra eigna eftir verðbili Samkvæmt gagnagrunni vegna fasteignamats 2020 0- 15 15- 20 20- 25 25- 30 30- 35 35- 40 40- 45 45- 50 50- 55 55- 60 60- 65 65- 70 70- 75 75- 80 80- 85 85- 90 90- 95 95- 100 100 + 20% 18% 16% 14% 12% 10% 8% 6% 4% 2% 100% 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% verðbil: (m.kr.) 0,0 0,1 Hlutfall kaupsamninga Uppsafnaðir kaupsamningar 12,6 7,7 3,8 1,20,7 15,9 77,2% 4,5 2,1 1,5 17,2 6,2 3,4 0,9 11,3 3,7 1,7 5,4 Heimild: Þjóðskrá Íslands og Reykjavik Economics Fjöldi seldra eigna eftir verðbili 1.200 1.000 800 600 400 200 0- 15 15- 20 20- 25 25- 30 30- 35 35- 40 40- 45 45- 50 50- 55 55- 60 60- 65 65- 70 70- 75 75- 80 80- 85 85- 90 90- 95 95- 100 100 + Vor 2015 til vors 2016 Vor 2016 til vors 2017 Vor 2017 til vors 2018 Vor 2018 til vors 2019 Tölur eru fyrir vor 2018 til vors 2019 Heimild: Þjóðskrá Íslands & Reykjavik Economics 1 661 405 201 65 39 832 236 112 79 7 902 verðbil: (m.kr.) 326 176 48 283 590 193 88 Meðalverð seldra íbúða breytist lítið  Greining Reykjavík Economics bendir til að 77% seldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu kosti undir 55 milljónum, sem er lítil breyting milli ára  Talið er að það taki þrjú ár að selja nýju miðborgaríbúðirnar Ari Skúlason Magnús Árni Skúlason Elvar Orri Hreinsson 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 Misty BH 9.990 kr. Buxur 3.850 kr. Morgan frá Elomi Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, lokað á laugardögum í sumar SAS mun fljúga í dag frá Kaup- mannahöfn og Ósló til Keflavíkur- flugvallar samkvæmt áætlun. Af- greiðslutímar hafa verið staðfestir, samkvæmt upplýsingum Isavia. Í gærmorgun var flugi SAS frá Kaupmannahöfn og Ósló aflýst og þar með flugi frá Keflavík til borg- anna. Að sögn Mariam Skovfoged, blaðafulltrúa flugfélagsins í Dan- mörku, var fluginu aflýst vegna tæknilegs vanda. Hún gat í gær ekki greint nánar frá í hverju sá vandi fólst. Allir komnir á völlinn Sagt var frá því á mbl.is í gær- morgun að óánægju hafi gætt á flugvellinum þegar farþegar sem þangað voru komnir fréttu að ekki yrði flogið. Þorbjörg Gísladóttir, landsliðs- þjálfari unglinga í áhaldafimleikum, var mætt upp á Keflavíkurflugvöll þegar hún fékk þær fréttir að flugi SAS til Kaupmannahafnar hefði verið frestað. „Ég held bara að allir sem áttu að fara í þetta flug hafi verið mættir, þetta var algert kaos,“ segir hún. „Fólk virtist ekki vera búið að fá þessar upplýsingar held- ur frétti þetta bara á vellinum.“ Skovfoged biðst afsökunar á óþægindunum fyrir hönd SAS. „Þegar við aflýsum flugferðum reynum við að öllu jöfnu að endur- bóka ferðir fyrir fólk eða að finna flöt á því að það komist leiðar sinn- ar,“ segir hún. Þá reyni flugfélagið að koma því á framfæri við við- skiptavini sína í tæka tíð að fluginu verði aflýst, en það tekst ekki alltaf og tókst ekki í gær. „Okkur þykir það leitt,“ segir Skovfoged. Hún segir að tæknilegi vandinn hafi komið of seint í ljós til þess að slíku yrði komið við. snorrim@mbl.is, helgi@mbl.is SAS flýgur til Ís- lands eftir áætlun  Flug fellt niður vegna tæknivanda AFP Flug SAS er búið að leysa vanda- málin sem stöðvuðu flug til Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.