Morgunblaðið - 25.06.2019, Page 11

Morgunblaðið - 25.06.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Mikil fjölgun varð á kvörtunum varðandi heilbrigðisþjónustu sem bárust embætti landlæknis árið 2018 en þeim fjölgaði um 59 á milli ára. Þetta kemur fram í árs- skýrslu embættisins sem birt var á föstudaginn var. Þar kemur fram að alls hafi kvartanir og skyld erindi verið 336 talsins í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Dagrúnu Hálfdánardóttur, sviðsstjóra á sviði eftirlits og gæða hjá embætti landlæknis, tel- ur embættið tvær skýringar vera á fjölguninni. Ekki endilega kvartanir „Í fyrsta lagi vegna þess að fólk er orðið meðvitaðra um rétt sinn og í öðru lagi er þetta betri skráning hjá okkur,“ segir Dag- rún. Hún segir að erindin sem berist séu ekki endilega beinar kvartanir heldur einnig ábend- ingar um eitthvað sem betur megi fara. Hún staðfestir að embættinu sé lögum samkvæmt skylt að sinna erindum frá öllum notendum heil- brigðisþjónustu sem telur sig hafa orðið fyrir vanrækslu eða mistök- um. Lögin taki til hvers kyns heil- brigðisþjónustu á öllu landinu, bæði til stofnana og starfsstöðva og allra heilbrigðisstarfsmanna. Aðstandendur meðvitaðri Dagrún segir flestar kvartanir varða lækna en þar á eftir komi kvartanir vegna hjúkrunarfræð- inga og tannlækna. Segist hún finna fyrir því að aukinn þungi sé í aðsendum er- indum frá bæði sjúklingum en sérstaklega frá aðstandendum. Segist hún einkum hafa tekið eftir því að aðstandendur barna, aldr- aðra og geðsjúkra séu orðnir mun meðvitaðri en áður en mörg erindi frá þessum þremur hópum bárust embætti landlæknis í fyrra. Kvörtunum til embættis land- læknis fjölgar  Telja fólk meðvitaðra en áður  Flestar kvartanir vegna lækna Morgunblaðið/Ásdís Læknar Flestar kvartanir sem berast embætti landlæknis varða lækna. Kvartanir til landlæknis » 336 kvartanir bárust til emb- ættis landlæknis 2018 en að- eins 277 árið 2017 og 238 árið 2016. » 112 erindi flokkuðust sem kvartanir samkvæmt 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, 37 erindi voru athugasemdir að- standenda vegna heilbrigð- isþjónustu, 63 voru erindi varð- andi sjúkraskrá, læknisvottorð og örorkumat, 45 voru tilkynn- ingaskyld óvænt atvik og 16 kærur vegna málsmeðferðar kvartana, eftirlitsaðgerða, synj- ana um starfsleyfi eða rekstur heilbrigðisþjónustu o.fl. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Sá skemmtilegi atburður átti sér stað síðastliðinn laugardag að mæðgur luku meistaranámi frá Há- skóla Íslands á sama tíma. Ragnheiður Hergeirsdóttir út- skrifaðist með MA gráðu í fé- lagsráðgjöf en dóttir hennar, Fann- ey Svansdóttir, brautskráðist með meistarapróf í menningarfræði. Þær héldu sameiginlega útskrift- arveislu eftir útskriftina sem, að sögn Fanneyjar, var haldin „í garð- inum hjá mömmu“ á Selfossi í frá- bæru veðri. „Það er auðvitað voðalega skemmtilegt að vera báðir nemar, mamman og litla stelpan,“ segir Ragnheiður en hún segir að mikill skilningur og stuðningur hafa ríkt á milli mæðgnanna í náminu og að þær hafi getað hjálpast að við vinnu lokaverkefnanna. Nánar og góðar vinkonur Fanney segir að henni hafi fund- ist ótrúlega gaman að vera sam- ferða móður sinni í meistaranáminu og segir frábært hvað þær hafi get- að stutt hvor aðra mikið. „Venjulega hefur mamma yf- irleitt lesið öll verkefni yfir fyrir mig en núna gat hún það ekki enda skilaði ég á undan henni. En við gátum hjálpast mikið að þótt við værum með mjög ólík verkefni,“ segir Fanney sem segir þær mæðg- ur vera ákaflega nánar og góðar vinkonur. „Það kom mér á óvart að ég gat hjálpað henni aðeins. Mér fannst það ótrúlega gaman, af því að ég hef alltaf litið svo mikið upp til hennar og hún var að gera svo stóra ritgerð. Þannig að ég gat hjálpað henni að skrifa heimildir og svona. Það var mjög gaman að geta end- urgoldið henni fyrir allt sem hún hefur lesið yfir fyrir mig í gegnum tíðina.“ Skiluðu ólíkum lokaverkefnum Spurð um viðbrögð fólks við sam- eiginlegri útskrift segist Fanney hafa fundið fyrir því að fólki þætti þetta mjög skemmtilegt. „Ég var svo ótrúlega stolt af henni og hún af mér. Þetta var einhvern veginn svo krúttlegt allt saman,“ segir Fanney. Báðar voru mæðgurnar með áhugaverð lokaverkefni sem hafa vakið talsverða athygli. Meistaraverkefni Fanneyjar ber titilinn „Svæpað til hægri: Fram- setning á sjálfinu á Tinder - áhrif og afleiðingar,“ og fjallar um hvern- ig framsetning á sjálfinu fer fram á stefnumótaforritinu Tinder. Fanney segist hafa fengið mikil viðbrögð vegna verkefnisins enda segir hún málefnið eiga erindi við samtímann. Ragnheiður, sem hlaut starfsrétt- indi í félagsráðgjöf árið 1987, skrif- aði lokaverkefni um viðbrögð fé- lagsþjónustunnar í Árborg við Suðurlandsskjálfta og bankahruni árið 2008. „Þetta er mjög spennandi við- fangsefni. Það er vaxandi þörf á þekkingu á þessu sviði, sérstaklega í ljósi samfélagsbreytinga og lofts- lagsbreytinga,“ segir Ragnheiður. „Það er mikilvægt að standa vörð um velferð fólks á öllum tímum og að til sé þekking og fyrirliggjandi upplýsingar um hvað fólk á að gera ef það verður áfall, hvort sem það er jafðskjálfti, eldgos, bankahrun eða ofsaveður. Það getur verið svo margt sem skapar þær aðstæður að samfélagið verður fyrir áfalli,“ segir Ragnheiður en hún hlaut tvo styrki vegna rannsóknar sinnar, annars vegar frá rannsóknarsjóði Suður- lands og öndvegissetrinu NORD- FRESS. Ljósmynd/Ragnheiður Hergeirsdóttir Mæðgur á tímamótum Ragnheiður og Fanney útskrifuðust saman frá HÍ. Mæðgur fá meistara- gráðu á sama tíma  „Ég var svo stolt af henni og hún af mér“ Meirihluti landsmanna er hlynntur borgarlínunni, fleiri karlar en konur eru andvígir henni og þeir sem búa í Reykjavík, eru háskólamenntaðir eða kjósa Samfylkinguna eru hlynntastir þessari framkvæmd. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Maskínu. Þar kemur fram að fólk á aldrinum 30-39 ára sé hlynntast framkvæmd- inni en þeir sem eru 60 ára eða eldri eru sá aldurshópur sem er henni mest mótfallinn. Rúm 54% landsmanna eru mjög eða fremur hlynnt borgarlínu, 57,6% kvenna og 51,2% karla og hef- ur stuðningur við hana aldrei verið meiri. Hann er mestur meðal Reyk- víkinga. Austfirðingar eru andvíg- astir borgarlínunni og eru þeir einu sem eru andvígari henni nú en fyrir ári. 63% háskólamenntaðs fólks eru fylgjandi borgarlínunni, 48,4% þeirra sem lokið hafa framhaldsskóla eða iðnmenntun og 43,8% þeirra sem lok- ið hafa grunnskólaprófi. Tæp 74% kjósenda Miðflokksins eru andvíg borgarlínu, 56,4% kjós- enda Framsóknar eru sömu skoðunar og rúm 40% kjósenda Flokks fólks- ins. 35,8% kjósenda Sjálfstæðisflokks eru andvígir en 33,2% hlynntir. Um 73,5% kjósenda VG eru hlynntir borgarlínu, 83% stuðningsmanna Við- reisnar og 79,9% Pírata. Könnunin var gerð 7.-24. júní og voru svarendur dregnir úr Þjóðskrá af tilviljun. Aldrei meiri stuðningur við borgarlínu Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 4.990 Str. 2-9 (38/40-50/52) 8 litir - hvítt - svart - bleikt - dökkblátt - mosagrænt - ljósgrátt - beige - rautt Cherry Berry buxurnar komnar aftur WOW Cylothon-hjólreiðakeppnin brestur á í dag og mun standa yfir fram á laugardag. Keppendur munu hjóla hringinn í kringum landið áttunda árið í röð, þrátt fyrir gjaldþrot WOW air. Hjólaleiðin er 1.358 kílómetrar sem liðsfélagar skipta á milli sín í boðsveitarformi en keppendur í einstaklingsflokki hjóla hver og einn alla kílómetrana. Keppendur hafa 72 klukkustundir til að ljúka hringnum og koma í mark. Keppendur safna áheitum og í ár er hjólað til styrktar sumarbúð- unum í Reykjadal, sem eru fyrir börn og ungmenni með líkamlegar og andlegar fatlanir. „Hugsjónin er að ágóði söfnunar- innar verði nýttur í mikla og þarfa viðbyggingu við sumarbúðirnar, sem mun bæta aðstöðu og aðgengi að þeim til muna,“ segir Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, sem rekur sumarbúðirnar í Reykja- dal. Áætlað er að styrkurinn frá áheitasöfnun hjólreiðakeppninnar muni verða mikil lyftistöng fyrir uppbyggingu á Reykjadal. Rúmlega 570 keppendur eru skráðir til leiks í ár, þar af þrír í einstaklingsflokki, níu lið í A-flokki, 47 lið í B-flokki og eru 60 þátttak- endur skráðir í Hjólakraftsflokk, sem eru sérstök hjólasamtök ætluð ungu fólki. Keppendur í flokki ein- staklinga og Hjólakraftur hefja leika við Egilshöll í dag en á morg- un hefst keppni í A og B-flokki. Áheitum safnað í hjólreiðakeppni WOW Cyclothon  Keppendum gert að hjóla 1.358 kíló- metra á innan við 72 klukkustundum Ljósmynd/WOW Cyclothon Hjólað Um 570 keppendur eru skráðir til leiks í WOW Cyclothon, þar af 3 í einstaklingsflokki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.