Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
„Það má segja að þetta sýni sögulega
einhæfni í íslensku atvinnulífi. Eitt
sinn var það bara sjávarútvegur og
fiskur. Nú er það liggur við bara
ferðaþjónustan. Það er ekkert svaka-
lega mikið að gerast í öðrum grein-
um,“ segir Ari Skúlason, hagfræð-
ingur hjá Landsbankanum sem í
nýrri Hagsjá bankans fór yfir þróun
starfa í íslensku hagkerfi frá árinu
2010.
Þar kom í ljós að á tímabilinu 2010-
2018 hafi starfsfólki á vinnumarkaði
fjölgað um rúm 40 þúsund. Á þessu
átta ára tímabili sem um ræðir skap-
aði ferðaþjónustan fjögur af hverjum
tíu störfum sem urðu til. Samkvæmt
tölum frá Hagstofu Íslands um ein-
kennandi atvinnugreinar í ferðaþjón-
ustu fjölgaði starfsfólki í þeim grein-
um um rúmlega 16 þúsund frá árinu
2010 til 2018 en mest var fjölgunin í
rekstri gististaða og veitingasölu og
þjónustu. Fjölgun starfsfólks í þeim
rekstri nam tæpum átta þúsundum.
WOW-áhrif ekki komin fram
Fram til ársins 2018 nam meðal-
fjölgun starfsfólks frá 2010 á ári í
ferðaþjónustugreinni 11,6%. Sé litið
á fyrstu þrjá mánuði ársins 2018 og
2019 fækkaði hins vegar um 630 í
þessum greinum, fyrst og fremst í
rekstri gististaða. WOW air var enn í
rekstri og áhrifa gjaldþrots félagsins
gætir því ekki í tölunum.
„Mikið áhyggjuefni“
„Árið 2010 voru afleiðingar hruns-
ins komnar meira og minna í gegn.
Þá var byrjað á nýjum grunni og þá
kemur í ljós að ferðaþjónustustörfin
eru að bera uppi þessa fjölgun fyrir
utan byggingamarkaðinn sem hefur
tekið við sér aftur,“ segir Ari sem
segir aðspurður að ekki sé auðvelt að
benda á atvinnugrein sem gæti
mögulega tekið við keflinu.
„Það er ekki augljóst eða sýnilegt
að eitthvað eitt komi og taki við eins
og gerðist árið 2010 þegar ferðaþjón-
ustan fór að rífa upp hagkerfið,“ seg-
ir Ari við Morgunblaðið.
Eins og fyrr segir gætir áhrifa af
gjaldþroti WOW air ekki í atvinnu-
leysistölunum sem unnið var með í
Hagsjánni. Skráð atvinnuleysi sam-
kvæmt Vinnumálastofnun var að
meðaltali 3,1% á fyrsta ársfjórðungi
árið 2019 en var komið í 3,6% í maí.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum nam
5,1% fyrstu mánuði ársins en var
komið í 6,6% í apríl.
„Þetta er mikið áhyggjuefni. At-
vinnuleysi er að aukast, sérstaklega á
Suðurnesjum sem eru mjög tengd
ferðaþjónustunni. Það er gefið mál að
þessi þróun sem er að byrja þarna á
eftir að halda áfram. Sérstaklega í
ferðaþjónustunni,“ segir Ari.
Hann bendir einnig á að mesta
fækkun starfa á tímabilinu sem um
ræðir er í fjármálaþjónustu, að
tryggingafélögum og lífeyrissjóðum
undanskildum. Frá 2010 til 2018 hef-
ur fækkað um 1.100 manns í grein-
inni til viðbótar við 1.300 manna
fækkun á tímabilinu 2008-2010.
„Það hafa verið nokkrar upp-
sagnahrinur en smám saman hefur
greinin dregist saman um 1.100
manns frá 2010. Að mestu leyti er um
að ræða atvik þar sem einhver hættir
og enginn er ráðinn í staðinn. En síð-
ustu árin hafa uppsagnir svolítið ver-
ið útskýrðar með því að tæknin hafi
tekið yfir störf. En hugsanlega má
segja að sú þróun hafi orðið hægari
en menn áttu von á.“
Einhæfni í atvinnulífinu
Mesta fjölgun starfa 2010-2018
Þær níu greinar sem voru með mesta fjölgun, þúsundir starfa
Heimild: Hagstofa Íslands og
Hagfræðideild Landsbankans
Heildverslun
Heilbrigðisþjónusta
Opinber stjórnsýsla
Vörugeymsla
Smásöluverslun
Flutningar með fl ugi
Ferðaskrifstofur
Bygg.starfs. og mannv.gerð
Gistist. og veit.rekstur
0 2 4 6 8
Ferðaþjónustan skapaði fjögur af hverjum tíu störfum sem urðu til á árunum
2010-2018 Fækkað um 2.400 manns í fjármálaþjónustu frá árinu 2008
Fjölgun starfa frá 2010
» Starfsfólki fjölgaði um 40
þúsund 2010-2018.
» Ferðaþjónustan skapaði
fjögur af hverjum tíu störfum
sem urðu til á þessu tímabili.
» Í samanburði við fyrstu þrjá
mánuði ársins 2018 hefur
fækkað um 630 í einkennandi
greinum ferðaþjónustunnar.
» Þar gætir áhrifa vegna gjald-
þrots WOW air ekki.
Tölvuteks, í samtali við mbl.is. For-
svarsmenn Tölvuteks kusu að tjá sig
ekki frekar um málið þegar þeir
voru inntir eftir viðbrögðum í gær.
Daníel sagði þó að rætt verði við fjöl-
miðla eftir að gengið hefur verið frá
„ákveðnum þáttum“ síðar í dag.
Félagið líklega gjaldþrota
Þá hvetur fyrirtækið viðskiptavini,
sem greitt hafa með korti og hafa
ekki fengið vöruna afhenta, að
stöðva greiðslurnar.
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, að lítið benti til
annars en að um gjaldþrot væri að
ræða. Þá sagði hann mikilvægt að
viðskiptavinir, sem keypt hafa gjafa-
kort eða eiga inneignarnótur, lýsi
kröfum í þrotabú félagsins þegar
það hefur verið tekið til gjald-
þrotaskipta. Óvíst sé þó hvort nokk-
uð fáist greitt enda velti það á því
hvaða eignir eru í búinu þegar for-
gangskröfur hafa verið gerðar upp.
Að því er fram kemur í ársreikn-
ingi Tölvuteks fyrir árið 2017 nam
eiginfjárhlutfall félagsins 12% en fé-
lagið tapaði 5.851.718 kr. sama ár.
Alls námu skuldir Tölvuteks
429.615.371 kr. og jukust um
88.340.190 kr. milli ára. Rekstr-
artekjur ársins 2017 voru
1.363.674.471 kr. og drógust lítillega
saman frá árinu áður.
Rekstri verslana Tölvuteks var hætt
í gær. Tilkynnt var um rekstr-
arstöðvunina á samfélagsmiðlum
fyrirtækisins, en liðin eru tólf ár frá
því að tölvuverslunin hóf fyrst starf-
semi. Tölvutek hefur verið einn
stærsti dreifingar- og söluaðili tölvu-
búnaðar til einstaklinga hér á landi.
Alls misstu fjörutíu manns vinn-
una, en starfsmönnunum var fyrst
tilkynnt um málið á starfsmanna-
fundi í gærmorgun. Þetta staðfesti
Daníel Helgason, rekstarstjóri
Rekstur Tölvuteks stöðvaður í gær
Fjörutíu starfsmenn fyrirtækisins misstu
vinnuna í gærmorgun Taprekstur árið
2017 og mikil skuldaaukning milli ára
Morgunblaðið/Kristinn
Verslun Tölvutek lokaði í gær.
● Nokkuð rautt var um að litast í Kaup-
höll Íslands við lokun markaðar í gær.
Mest lækkuðu hlutabréf Símans, eða
um 1,29% í 65 milljóna króna við-
skiptum og stendur verð á hverjum hlut
nú í 4,59 krónum. Hlutabréf í Marel
lækkuðu um 1,25% í 130 milljóna króna
viðskiptum og nemur verðið á bréfum
þess 552 krónum. Bréf Marels hækk-
uðu um 0,3% í Euronext-kauphöllinni í
Amsterdam og standa í 3,952 evrum.
Hlutabréf Haga hækkuðu um 1,89% í
211 milljóna króna viðskiptum, eða
mest allra félaga í Kauphöllinni. Heild-
arvelta þar á bæ nam rúmum milljarði
króna í gær.
Hagar hækkuðu um tæp
tvö prósent í Kauphöll
25. júní 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.78 125.38 125.08
Sterlingspund 158.09 158.85 158.47
Kanadadalur 94.61 95.17 94.89
Dönsk króna 18.899 19.009 18.954
Norsk króna 14.561 14.647 14.604
Sænsk króna 13.289 13.367 13.328
Svissn. franki 127.03 127.73 127.38
Japanskt jen 1.1603 1.1671 1.1637
SDR 173.04 174.08 173.56
Evra 141.11 141.89 141.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.3869
Hrávöruverð
Gull 1388.35 ($/únsa)
Ál 1742.5 ($/tonn) LME
Hráolía 64.86 ($/fatið) Brent
● Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt
samruna fjögurra sjóða GAMMA Capital
Management við fjóra sjóði Júpíters
rekstrarfélags. Þannig renna í fyrsta lagi
saman Júpíter - innlend skuldabréf og
GAMMA: Credit fund, í öðru lagi Rík-
isskuldabréfasjóður og GAMMA: Iceland
Government Bond Fund, í þriðja lagi
Lausafjársjóður og GAMMA: Liquid Fund
og í fjórða lagi Innlend hlutabréf og
GAMMA: Equity Fund.Samruninn kemur
til í kjölfar kaupa Kviku banka á GAMMA
Capital Management en Júpíter rekstr-
arfélag er í eigu fyrrnefnda fyrirtækisins.
Samruni Kviku og GAMMA var sam-
þykktur af Samkeppniseftirlitinu í mars
síðastliðnum en tilkynnt hafði verið um
kaup fyrrnefnda félagsins á því síð-
arnefnda í nóvember 2018.
Samruni sjóða GAMMA
og Júpíters samþykktur
STUTT