Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 13
Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Minnst 28 létust þegar bygging sem enn var í byggingu hrundi rétt fyrir dögun aðfaranótt laugardags í strandborginni Sihanoukville á suð- urströnd Kambódíu. Tveir fundust á lífi í gærmorgun þegar öll von um að finna fleiri eftirlifendur hafði verið gefin upp á bátinn. „Ég hef gefið upp alla von um að eiginmaður minn hafi lifað af. Líkin sem verið er að draga úr rústunum hafa verið flött út,“ hafði eiginkona annars mannanna sem bjargað var sagt áður en hún fékk af því fregnir að eiginmanni og frænda hennar hefði verið bjargað í gærmorgun. Forsætisráðherrann á slysstað Um sjö hæða byggingu sem var í eigu kínverskra aðila er að ræða en eins og áður segir var byggingin enn í byggingu þegar hún hrundi snemma á laugardagsmorgun. Þeir sem létust voru iðnaðarmenn sem unnu að bygg- ingunni og lágu sofandi innanhúss þegar húsið hrundi yfir þá. Forsætisráðherra landsins, Hun Sen, heimsótti slysstaðinn í gær- morgun og fylgdist með því þegar tveir menn voru grafnir úr rústunum, enn þá á lífi. Þá höfðu þegar liðið nokkrar klukkustundir frá því að talið var að öngvir fleiri eftirlifendur myndu finnast í rústunum. Héraðsstjóri Preah Sihanouk-hér- aðs, sem Sihanoukville-borg tilheyrir, hefur eftir að slysið átti sér stað sagt af sér embætti. Hefur hann viður- kennt að hafa gert „stjórnunarmis- tök“, að því er fram kom á fésbók- arsíðu forsætisráðherrans Hun Sen. Efuðust um gæði bygginganna Þá hafa þrír kínverskir eftirlits- menn með framkvæmdunum og einn kambódískur landeigandi verið teknir höndum og yfirheyrðir vegna máls- ins. Forsætisráðherrann Hun Sen hef- ur fyrirskipað rannsókn á öllum bygg- ingarsvæðum í Sihanoukville. Þar á sér nú stað gríðarmikil uppbygging, fjármögnuð af kínverskum fjárfest- um, en um einum milljarði dala var varið í fjárfestingar í Prea Shianouk- héraði á árabilinu 2016-2018. Íbúða- byggingar og hótel spretta þar upp eins og gorkúlur í kjölfar mikillar ásóknar kínverskra ferðamanna til borgarinnar vegna fjölda spilavíta sem þar eru. Í dag eru spilavítin um fimmtíu talsins, í kínverskri eigu, en að auki eru tugir hótela í byggingu. Nágrannar byggingarinnar sem hrundi sögðu að þeir hefðu um langa tíð verið hræddir um að harmleikur væri handan við hornið. „Þessar byggingar rísa bara á ári. Við höfum lengi haft áhyggjur vegna gæða þess- ara kínversku bygginga,“ sagði Sock Dara, 45 ára íbúi í nágrenni hrundu byggingarinnar. Þá sögðust ættingjar manna sem lentu í slysinu og héldu til á spítala í nágrenninu telja að tylft manna væri enn föst í rústum byggingarinnar. Samkvæmt Alþjóðlegu vinnumark- aðsstofnuninni (ILO) er talið að um 200.000 iðnaðarmenn starfi í Kambó- díu, sem flestir eru vanþjálfaðir, treysta á daglaun og eru án verndar stéttarfélaga. Lágu sofandi þegar byggingin hrundi yfir þá  Minnst 28 létust þegar sjö hæða bygging hrundi  Tveir fundust á lífi í gær AFP Bjargað Viðbragðsaðilar flytja annan þeirra sem fannst á lífi í rústum sjö hæða byggingarinnar í gærmorgun. Á slysstað Hun Sen í sjúkrabílnum sem flutti annan hinna slösuðu í burtu. FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Sádi-Arabíu í gærmorgun til að ræða við ráða- menn þar vegna aukinnar spennu milli Bandaríkja og Írans. Síðdegis flaug hann áfram til Sameinuðu ar- abísku furstadæmanna og ræddi við ráðamenn þar um sömu mál. Heim- sóknin var skipulögð á föstudag, degi eftir að Íranar skutu niður ómannaðan bandarískan dróna, en eins og greint var frá í Morg- unblaðinu á laugardaginn var herlið Bandaríkjamanna komið í við- bragðsstöðu til að hefja árásir á írönsk skotmörk í hefndarskyni fyrir drónann. Hætt var við árásirnar á síðustu stundu. Sendu sameiginlega yfirlýsingu „Við munum ræða við þá um hvernig við getum fullvissað okkur um að við séum hernaðarlega sam- stillt og hvernig við getum byggt upp hnattrænt bandalag,“ sagði Pompeo í samtali við fjölmiðlafólk í Washington áður en hann flaug af stað til Arabíu. Sagði hann jafnframt að Bandaríkin væru að leita að bandalagi við lönd, „ekki einungis við Persaflóa heldur einnig í Asíu og í Evrópu, sem skildu þessa áskorun og sem væru reiðubúin til að spyrna við fótum gegn því ríki sem mest styður við hryðjuverk (e. state spon- sor of terror).“ Síðdegis í gær sendu Bandaríkja- menn, Bretar, Sádi-Arabar og Sam- einuðu arabísku furstadæmin frá sér sameiginlega yfirlýsingu sem sagði: „Við biðlum til Írans að hætta við frekari aðgerðir sem ógna stöð- ugleika á svæðinu, og hvetjum til diplómatískra lausna til að draga úr spennunni.“ Vilja draga úr spennu við Írani  Pompeo heimsótti Araba í gær AFP Samstarfsmenn Salman, konungur Sádi-Arabíu, og Pompeo í gær. Samræmdum prófum fyrir fjórtán ára börn í frönskum skólum hefur verið seinkað fram í næstu viku vegna hitabylgjunnar sem nú ríður yfir meginland Evr- ópu. Þykir þessi seinkun sér- staklega óvenjuleg og til marks um hversu alvarlegum augum menn líta væntanlegan hita í Frakklandi. Frökkum er enn í fersku minni hitabylgjan sem reið yfir Evrópu árið 2003 og er talin hafa banað um 15.000 manns í Frakklandi. Stjórn- völd voru gagnrýnd fyrir það hvernig þau brugðust við þá. Hins vegar varði sú hitabylgja í tvær vik- ur meðan sú sem nú ríður yfir á samkvæmt spám að vara í nokkra daga. Í París er áætlað að kælirými fyrir almenning verði opnuð og að bráðabirgðavatnshanar verði settir upp. FRAKKLAND Prófum seinkað vegna hitabylgju Hiti Kona með blævæng í Lyon. Ítalski mafíufor- inginn Rocco Morabito flúði úr fangelsi í höf- uðborginni Mon- tevideo í Úrúgvæ seint á sunnudag. Frá þessu greindi innanrík- isráðuneytið í Úrúgvæ frá í gær en Morabito var að bíða þess að vera framseldur til Ítalíu. Ásamt þremur öðrum föngum flúði Morabito „gegnum gat í þaki byggingarinanar seint á sunnu- dag“. Þar á eftir rændi hann ábú- endur á bóndabæ í nágrenni fang- elsisins, sagði í tilkynningunni frá innanríkisráðuneytinu. Morabito var handtekinn í Úrú- gvæ árið 2017 eftir áratugi á flótta frá lögreglu. Vita brot hans flest að alþjóðlegum flutningi á fíkniefnum. ÚRÚGVÆ Ítalskur mafíósi flúði fangelsi Mafíósi Rocco Morabito er laus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.