Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 ✝ Gísli Jónssonbifreiðarstjóri fæddist í Ólafsvík 3. ágúst 1931. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Brákarhlíð 14. júní 2019. Foreldrar hans voru Lára Bjarna- dóttir, kaupmaður frá Brimilsvöllum í Fróðárhreppi, og Jón Gíslason, póstmeistari frá Hjarðarholti í Dölum. Systkini Gísla voru: Birna, Úlfljótur og Hörður, öll látin. Gísli ólst upp í Ólafsvík ásamt foreldrum sínum og systkinum og vann m.a. á unglingsárum við verslun foreldra sinna. Hann stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni, tók meirapróf og starfaði lengst af sem bifreiðarstjóri í Ólafsvík, en síðar sem verslunarmaður og húsvörður í Reykjavík. Gísli hafði mikið yndi af ferðalögum og ungur að árum fór hann í stjúpbörn Gísla eru: 1) Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, f. 8. júlí 1957, gift Ísólfi Gylfa Pálma- syni. Börn þeirra eru: a) Pálmi Reyr, f. 8. október 1979, kvænt- ur Bergrúnu Björnsdóttur og eiga þau tvær dætur, b) Mar- grét Jóna, f. 12. september 1984, sambýlismaður hennar er Þórður Freyr Sigurðsson og eiga þau tvær dætur, c) Kol- beinn, f. 16. apríl 1986, kvæntur Berglindi Ýri Jónasdóttur og eiga þau tvö börn, d) Birta, f. 12. júlí 1988, sambýlismaður hennar er Kristján Pétur Sæ- mundsson og eiga þau eina dóttur. 2) Sigurður Hreinsson, f. 1. september 1962, sambýlis- kona hans er Bryndís Hulda Guðmundsdóttir. Börn þeirra eru a) Anna Sesselja, f. 20. maí 1986, sambýlismaður hennar er Ingvar Arndal Kristjánsson og eiga þau tvo syni, b) Guðmund- ur Andri, f. 30. júlí 1993, giftur Gintare Dadurkiene sem á eina dóttur, c) Steinunn Ósk, f. 19. júní 2002. Útför Gísla fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 25. júní 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. heimsreisu og einn- ig margar ferðir til Spánarstranda ásamt fjölskyldu sinni. Árið 1967 giftist Gísli Jónu Birtu Óskarsdóttur, f. 16. október 1934, frá Hábæ í Þykkvabæ. Þau bjuggu lengst af í Ólafsvík en síð- ar í Reykjavík. Síð- ustu árin naut Gísli aðhlynn- ingar á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Börn Gísla og Jónu Birtu eru: 1) Ragnheiður, f. 25. nóvember 1967. Börn hennar og Jóhanns Pálmasonar eru: a) Askur, f. 26. ágúst 1999, og b) Alfa, f. 7. des- ember 2002, 2) Björk, f. 22. júní 1969, gift Guðbrandi Erni Arn- arsyni. Börn þeirra eru a) Gísli Örn, f. 14. september 1996, hans sambýliskona er Eydís Ylfa Er- lendsdóttir, b) Birnir, f. 7. októ- ber 1996, c) Melkorka, f. 21. mars 2002. Börn Jónu Birtu og Takk, elsku pabbi, fyrir að gefa mér mitt góða líf. Takk fyrir að hafa verið alltaf til staðar, stutt mig í einu og öllu, kenndir mér svo endalaust margt. Alltaf hafðir þú endalausa þolin- mæði að hafa mig með í öllum framkvæmdum. Ég var ekki há í loftinu þegar þú byrjaðir að leyfa mér að stússast í öllu með þér, hvort sem það var að mála heilu herbergin eða stússast í rafmagn- inu og pípulögnunum. Við gátum gert allt saman. Takk fyrir að treysta mér, trúa á mig og styðja mig. Þú varst með svo stórt hjarta og fjölskyldan var þér allt, alltaf baðstu mig um að fara varlega. Þú varst endalaust stoltur af börnunum þínum. Þú kenndir mér að nýta vel hlutina og fara vel með eigur mín- ar. Mikilvægi þess að eiga fyrir hlutunum. Bera virðingu fyrir mönnum og dýrum. Þessa góðu minningu um þig varðveiti ég og kem áfram til komandi kynslóða. Kveð ég þig með bæn sem við fórum alltaf með eftir faðirvorið. Við skulum ekki gráta og ekki tala ljótt Þá verðum við svo falleg og vöxum við svo fljótt Við skulum lesa bænirnar þá sofum við svo rótt Guð og allir englarnir þeir vaka hveja nótt. (Karólína Jónsdóttir) Nú veit ég að þú ert kominn í fangið hennar mömmu og það veitir mér huggun. Þín yngsta dóttir, Björk. Pabbi þreyttist seint á því að segja mér söguna um það þegar hann fór til Reykjavíkur í nóvem- berlok fyrir rúmum fimmtíu ár- um að sækja okkur mömmu á fæðingardeildina. Hann fór á vörubílum, setti burðarrúmið á vélarhlífina á milli sætanna og kom okkur þremur til Ólafsvíkur þar sem þau höfðu búið sér til heimili í Hjarðartúninu. Ég var fyrsta barn þeirra pabba og mömmu og heima biðu þau Stein- unn og Sigurður. Þetta var ein af mörgum ferðum mínum í vöru- bílnum með pabba sem endalaust var umvafinn litlum farþegum því allir vildu fá að sitja í bílnum hans. Ég á svo margar góðar minningar frá okkar samveru- stundum, allar ljúfar og góðar því pabbi minn var sá allra besti mað- ur sem ég hef kynnst, alltaf sýndi hann mér umhyggju, ást og alúð á sinn einstaka, rólega og yfirveg- aða hátt. Minningarnar eru marg- ar frá æskustöðvum mínum í Ólafsvík þar sem við bjuggjum fram á mín fullorðinsár, fléttaðar hafinu og höfninni, fuglunum og náttúrunni, fjallinu og fossinum. Allt hefur þetta mótað mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og fyrir það er ég endalaust þakk- lát. Hann reyndist mér og börnum mínum afar vel alla tíð, stóð þétt við bakið á okkur í gleði og sorg. Hans verður sárt saknað en okk- ar huggun er sú að hann er nú loksins kominn í ömmufaðm. Hvíldu í friði, elsku pabbi minn. Þín að eilífu, Ragnheiður. Smám saman dofnar glampinn í augunum og sá sem okkur þótti svo vænt um hefur fjarlægst okk- ur smátt og smátt. Kveðjustundin var löng, miklu lengri en slík stund á að vera. Og við þurfum kannski að hnippa aðeins í okkur sjálf til að minna okkur á þann sem hvarf. Ég kynntist Gísla stjúpa mín- um ung að árum þegar hann var orðinn kærasti mömmu minnar. Í fyrstu veitti hann okkur systkin- unum, mér og Sigurði ekki mikla athygli, hann var uppteknari af mömmu. En þegar hann gerði sér grein fyrir því að það var mamma sem hann vildi, þá varð ekki aftur snúið og við urðum umsvifalaust hans krakkar, hans fjölskylda. Gísli var ekki venjulegur karl þess tíma. Hann var orðinn nokk- uð roskinn piparsveinn sem bjó einn hjá mömmu sinni við afar gott atlæti. Það hljóta því að hafa verið mikil viðbrigði að taka að sér unga og athafnasama konu sem átti þar að auki tvo óþæga krakka. En Gísli gerði það með bravör, eins og hann væri þaul- æfður í þessu nýja hlutverki. Það var ekki sjálfgefið á þessum árum að menn væru góðir, þolinmóðir og umhyggjusamir við annarra manna börn, en það var hann svo sannarlega og gerði aldrei upp á milli okkar og systra okkar sem síðar komu til sögunnar. Gísli var eiginlega hálfgerður femínisti, hafði gaman að því sem aðrir kall- ar litu á sem kvennastúss og var aldrei með neina karlrembu. Hann hafði unun af eldamennsku og átti sér þann draum að verða bryti á skemmtiferðaskipi. Þá hefði hann getað sameinað tvö helstu áhugamálin, ferðalög og eldamennsku, með dassi af djammi um borð og sólböðum þess á milli. En það varð ekki hans hlutverk. Hann var ábyrgur maður, sinnti sinni vinnu, vörubíl- unum, mömmu og okkur af alúð alla tíð. Hann dekraði mömmu á margan hátt og lét það eftir henni að flytjast til Reykjavíkur þó meiri Ólsari væri vandfundinn. Aðstæður í atvinnulífinu í Ólafs- vík höfðu breyst, tekjumöguleik- ar minnkað og hann var tilbúinn að vinna við hin ólíklegustu störf í Reykjavík. Hann vildi líka vera nær fjölskyldunni, okkur krökk- unum og barnabörnunum sem fór nú óðum fjölgandi. Börnin mín voru mikil afa- og ömmubörn og er ég Gísla og mömmu alltaf þakklát fyrir alla hjálpsemina. Og ekki síst er ég þakklát Gísla fyrir hans miklu umhyggju og alúð við móður okkar í veikindum hennar. Það er margs að minnast úr uppeldinu í Ólafsvík, víkin sem var okkar eigin heimur þar við sem krakkarnir nutum lífsins á okkar forsendum. Lífið var í föst- um skorðum, matseðill vikunnar alltaf sá sami, fiskur, grjóna- grautur og yndisleg sunnudags- steik. Gísli gerði ýmsar tilraunir í matargerð, sveið sviðalappir, salt- aði kjöt, flakaði fisk og verkaði allskonar mat sem var fullur af hollustu. Hann gerði mat sem til- heyrði tvennum tímum, gamla tímanum og nútímanum. Hér var þó ekki boðið upp á neitt pakka- fæði. Ég er Gísla afar þakklát fyrir að vera besti stjúpi sem hægt er að hugsa sér. Undir yfirborði þessa hægláta manns leyndist stórt og hlýtt hjarta. Við fengum að njóta þess og það var gott. Góða ferð kæri vinur, skilaðu kveðju til mömmu og allra hinna. Þín, Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir. Kær móðurbróðir okkar systk- ina, Gísli Jónsson, er látinn og á þeim tímamótum rifjast upp minningar um hann og frændfólk- ið okkar í Ólafsvík. Þegar við vorum börn og dvöldum á sumrin hjá ömmu okk- ar, Láru Bjarnadóttur, í Hjarð- arholti, bjó Gísli, sem þá var eft- irsóttur piparsveinn, í móðurhúsum. Afi okkar, Jón Gíslason, var þá fallinn frá en hann var frá Hjarðarholti í Dölum og því var húsið þeirra í Ólafsvík, sem þau byggðu árið 1930, nefnt eftir æskuheimili hans í Dölunum. Amma var frá Brimilsvöllum í Fróðárhreppi. Heimilið Hjarðarholt í Ólafsvík var annálað menningar- og at- hafnaheimili. Fyrir utan börnin fjögur, móður okkar Birnu, Úlf- ljót, Gísla og Hörð, var á heim- ilinu ung stúlka, Hallveg Jóns- dóttir, sem kom sem barnfóstra á barnmargt heimilið. Halla, eins og hún var kölluð, ílentist í Hjarð- arholti og varð sem ein í systk- inahópnum. Hörður lést rétt um tvítugt af slysförum. Hann var einstakt mannsefni og öllum harmdauði. Amma bognaði vissu- lega og hjarta afa okkar brast en hann dó nokkrum misserum síð- ar. Enginn gististaður var í Ólafs- vík þessa tíma og var oft leitað til húsbændanna í Hjarðarholti varðandi gistingu og viðurgjörn- ing. Við munum svo vel þegar sýslumaðurinn í Stykkishólmi, með kaskeiti og gylltum hnöppum prýddur, átti erindi sín til Ólafs- víkur með fylgdarlið sitt. Þá var öllu til tjaldað og handagangur mikill í litla eldhúsinu hennar ömmu. Eitt sinn var húsmóðirin ekki heima en Gísli tók á móti embættismönnunum með glæsi- brag og bauð upp á íslenska kjöt- súpu að hætti móður sinnar. Á neðri hæðinni var rekin margs konar starfsemi, má þar nefna pósthús, fjölbreytta verslun hvar seldar voru snyrtivörur, kvenundirföt, vefnaðarvörur, bækur og ritföng sem og trúlof- unarhringir. Þar var einnig af- greiðsla Eimskips og afgreiðsla Morgunblaðsins. Langferðabíl- arnir lögðu upp frá Hjarðarholti og endastöð þeirra var á sama stað. Í þessu fjöruga umhverfi ólst Gísli upp í athafnasemi, dugn- aði og eindrægni sinnar stóru fjöl- skyldu. Svo bar það við að árið 1965 kom ung og falleg kona, Jóna Birta Óskarsdóttir, ættuð úr Þykkvabænum, með tvö mann- vænleg börn, þau Steinunni og Sigurð, til sumardvalar til Hall- dóru systur Jónu. Það var mikið gæfuspor fyrir Gísla frænda okk- ar, Jónu og börnin tvö þegar þau síðan giftu sig og fluttu í nýbyggt húsið að Hjarðartún 3 þar sem fyrir voru Úlli frændi, Ingibjörg Pétursdóttir og þeirra börn. Gísli og Jóna eignuðust saman dæt- urnar yndislegu Ragnheiði og Björk. Gísli var sérstakur barnakarl, glaðlegur og ljúfur. Hann var lengi vörubílstjóri í Ólafsvík. Það var ævintýri fyrir litla frændfólk- ið, einkum ungu drengina, að sitja dögum saman með Gísla í vöru- bílnum. Gísli var áhugasamur um laxveiði og var um hríð með Holtsá á Snæfellsnesi á leigu ásamt Úlfljóti bróður sínum. Hann var lunkinn veiðimaður og tók okkur krakkana gjarnan með í veiðiferðir, kenndi okkur að veiða með spún og maðki. Það er svo margt fallegt hægt að segja um hann Gísla frænda okkar en upp úr stendur að hann var fyrst og fremst góður maður. Með þakklæti og gleði þökkum við Gísla Jónssyni og öllu okkar góða frændfólki, sem horfið er, fyrir samfylgdina. Hildur og Hörður Birnu- og Sigurðarbörn. Sólarlagið er einstaklega fal- legt í Ólafsvík þar sem ég kynnt- ist öndvegismanninum Gísla, kaupmannssyni á staðnum. Þá var faðir Gísla, löngu látinn en í versluninni sem alltaf var kölluð Lárubúð var móðir Gísla, atorku- konan Lára Bjarnadóttir frá Brimilsvöllum. Þar vann einnig kona Gísla, Jóna Birta Óskars- dóttir. Þær voru báðar skapmikl- ar dugnaðarkonur en vel fór á með þeim engu síður. Gísli varð ungur innanbúðarmaður og það var sveifla á Láru kaupmanni enda heimskona. Það má segja að sól hafi verið hvað hæst á lofti í lífi Gísla þegar leiðir okkar lágu saman. Á þeim tíma fórum við Steinunn Ósk stjúpdóttir hans að rugla saman reytum. Þau Gísli og Jóna tóku mér með miklum hlýhug. Það var reyndar ekki alveg rétti pólitíski liturinn á stráknum að mati Gísla og seinna var haft eftir Láru móð- ur hans: „Hann er ósköp góður greyið þó hann sé framsóknar- maður.“ Líklega mesta hrós sem ég hef fengið um ævina. Á þessum tíma var Gísli áhugasamur Lions- maður í bláum blazerjakka og það var reisn yfir karli. Gísli hafði yndi af því að ferðast og það hafði Jóna Birta einnig og þau áttu margar góðar stundir á Spánar- ströndum. Hann sagði gjarnan frá því að 1947 hefði hann fengið úthlutað leyfi til að kaupa jeppa – en hann seldi leyfið og fór í stað þess í Evrópureisu með vinum sínum. Slíkar ferðir voru afar fá- tíðar á Íslandi á þeim tíma. Gísli þótti án efa eftirsóknar- verður piparsveinn. Hann hafði reist ásamt bróður sínum stórt og myndarlegt þriggja hæða og þriggja íbúða hús í Ólafsvík. Það urðu straumhvörf í lífi Gísla þeg- ar hann og Jóna Birta hófu bú- skap og giftu sig. Jóna átti fyrir tvö börn, Steinunni Ósk og Sig- urð. Fljótlega fæddust þeim dæt- urnar Ragnheiður og Björk. Heimilið var hlýlegt enda Jóna mjög myndarleg í öllum verkum sínum og Gísli hafði yndi af og áhuga á matreiðslu sem fátítt var um karla á hans aldri. Síðar reistu þau sér nýtt hús við Ennisbraut í Ólafsvík. Ungur keypti Gísli vöru- bifreið sem hann gerði út meðan hann bjó í Ólafsvík og hafði elsti sonur okkar Steinunnar mikið yndi af því að vera með afa sínum í bílnum og þeir reiknuðu saman hvað afi græddi í uppskipun eða vegavinnu. Gísli græddi ekki eins mikið þegar hann var að flytja hljóðfærin fyrir okkur hljóm- sveitartöffarana, en fékk stund- um greitt í fljótandi formi sem honum þótti reyndar betra en að fá peninga. Það var oft glatt á hjalla í Hjarðartúninu þegar Tommi og Halldóra, systir Jónu, eða Rögnvaldur frændi og Jóna á Sandi komu í heimsókn. Jóna og Gísli fluttu til Reykja- víkur árið 1987. Þau unnu við verslunarstörf í borginni og urðu síðar traustir húsverðir í Breiða- bliki í Efstaleiti. Sólin lækkaði á lofti í lífi Gísla þegar Jóna Birta veiktist af krabbameini og lést ár- ið 2008. Síðustu árin bjó Gísli við gott atlæti á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Þar hneig lífssól Gísla til viðar á bjart- asta tíma ársins. Ég trúi á uppris- una og að að handan taki á móti honum vinir og ættingjar og aftur hefjist gleðskapur eins og í Hjarðartúninu forðum daga. Guð blessi minningu Gísla Jónssonar. Ísólfur Gylfi Pálmason. Gísli Jónsson ✝ Erla Kristjáns-dóttir fæddist þann 19. júlí 1932 í Reykjavík. Hún lést 1. júní 2019 á HVE á Akranesi. Hún var dóttir hjónanna Unnar Þorsteinsdóttur, húsfreyju, frá Bugðustöðum í Helludal í Dölum, og Kristjáns Vig- fússonar, bifreiðarstjóra, frá Úlfsbæ í Bárðardal í S.- Þingeyjarsýslu. Systir Erlu, Sólrún, f. 14. jan- úar 1937, er búsett í Svíþjóð, ekkja Jóns Friðsteinssonar. Börn hennar eru Andrea, Vil- borg, Kristján, Margrét, Unnar og Guðjón. Erla giftist þann 17. júlí 1966 Bjarna Steingrímssyni múrara, f. 5. júní 1920, d. 27 ágúst 2014. Þau stofnuðu sitt fyrsta heimili í Reykhóla- bænum, síðar á Hraunteigi 22, og enn síðar í Snæ- landi 5. Bjarni gerðist húsvörður við Langholtsskóla og Erla ganga- vörður þar og fluttu þau í hús- varðaríbúð skólans og voru þar búsett uns Bjarni lét af því starfi 67 ára að aldri. Síðustu 14 árin bjuggu þau í Norðurbrún 1. Erla átti sinn bás í Kolaport- inu í mörg ár, þar sem hún seldi m.a. lopapeysur sem hún prjón- aði og málverk sem hún málaði. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 25. júní 2019, klukkan 15. Elsku Erla frænka er komin í sumarlandið til Bjarna síns og hefur fengið hvíld frá veikindum sínum. Þau Erla og Bjarni voru ein- staklega samrýnd hjón og voru þau stór partur af æsku okkar systra, mikill samgangur var á milli heimilanna þar sem mamma okkar Hólmfríður (Lilla) og Erla voru dætur bræðranna Kristjáns og Sigurð- ar Lúthers frá Úlfsbæ í Bárð- ardal. Það var mikill missir fyrir Erlu þegar mamma okkar Lilla Lúthers lést fyrir 12 árum enda var mjög kært á milli þeirra og einstakt samband, höfum við systur gætt þess vel að rækta samband okkar við Erlu eftir að mamma lést. Við yljum okkur við fallegar minningar, munum þegar við fengum að gista sem litlar stelp- ur hjá þeim hjónum Erlu og Bjarna, hjá þeim áttum við ávallt öruggt skjól. Við munum eftir spilakvöldunum, kókosbollutert- unni, þegar við fengum að hlaupa um Langholtsskóla þegar Bjarni var húsvörður þar og bjuggu þau Erla í íbúð í skól- anum. Mikil tilhlökkun var hjá okkur þegar þau fóru til útlanda því þá færðu þau okkur systrum fallegar gjafir við heimkomuna, einstakar gjafir sem við munum enn. Eftir að mamma og pabbi fluttu norður var ekki minna um heimsóknir, þau Erla og Bjarni voru dugleg að koma norður í at- hvarfið sitt í Barnafelli. Bjarni tók okkur með í veiðiferðir í Barnafoss og berjatínslan á haustin var fastur liður, bestu bláberin á landinu koma frá Barnafelli. Erlu þótti vænt um æskuslóðir sínar og fólkið sitt í sveitinni og fylgdist vel með ætt- ingjum og vinum. Síðustu ár hefur ætíð verið fastur liður hjá okkur systrum að kíkja í Kolaportið til Erlu frænku þegar við förum til Reykjavíkur. Skemmtilegast var að koma henni á óvart, sjá svip- inn á henni þegar við komum og þá sérstaklega ef börnin okkar voru með í för, þá ljómaði hún, enda hefur hún fylgst vel með þeim í gegnum árin. Erla var hjartahlý kona sem vildi allt fyrir okkur gera, hún var einstaklega gjafmild og bera heimilin okkar systra svo sann- arlega merki um það. Hún Erla var mjög listræn og á veggjum okkar hanga falleg málverk eftir Erlu, jólastellin sem hún málaði á eru þau fallegustu í heimi. Á heimilum elstu dætra okkar má líka finna fallegu jólabollana frá Erlu en hún passaði vel upp á að þær fengju bollastell frá henni þegar þær hófu búskap, því eng- inn mátti vera útundan. Við erum þakklátar fyrir að Erla hafi komist norður sl. sum- ar til okkar og litið á æskuslóðir sínar í hinsta sinn, sú ferð var henni afar dýrmæt og áttum við góðar stundir með henni. Erla missti mikið þegar Bjarni hennar lést fyrir 5 árum, en nú er hún loksins komin í faðm hans aftur. Við systur kveðjum kæra frænku í dag, frænku sem alltaf hefur verið okkur svo hlý og góð og vottum ástvinum hennar sam- úð. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Svava og Sif Lillu & Sigga- dætur. Erla Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.