Morgunblaðið - 25.06.2019, Side 25

Morgunblaðið - 25.06.2019, Side 25
Bræðralag þeirra endurspegl- aðist svo vel og fallega í gegnum síðasta árið hans Didda. Þeir töl- uðu saman í síma á hverjum degi stundvíslega kl. 14.03 (eftir frétt- ir). Þetta var fastur punktur. Svo hittust þeir oft, borðuðu saman og ferðuðust. Núna hefur Diddi lagt af stað í nýtt ferðalag. Þar sem hann er aldrei einn. Elsku hugrakki frændi minn, blessuð sé minning þín. Elsku Lonni Björg, Lilja Bryn- dís, Örn Aron og fjölskyldur. Inni- legar samúðarkveðjur til ykkar. Arnór Már Másson (Addi frændi). Við í stjórn akstursklúbbs starfsmannafélags SVR sitjum hljóðir og hugsum um liðnar stundir. Við minnumst daga þar sem úrlausnir og framkvæmd aksturskeppna lágu ekki fyrir. Við minnumst stunda þar sem við sett- um saman lista yfir hugsanlegt að- stoðarfólk. Við minnumst þeirra aðila sem alltaf voru til staðar og tilbúnir að gefa tíma sinn í verk- efnið. Við minnumst vinar, Sigur- björns Frímanns Halldórssonar, sem gaf sér alltaf tíma í verkefnið. Þau eru óteljandi verkefnin sem Diddi tók að sér og tíminn sem hann eyddi í samferðarfólk verður ekki mældur í árum. Hann sinnti félagsstörfum sem trúnaðarmaður og ávann sér virðingu sem slíkur. Hann átti margar samræður um öll þau hjartans mál er skiptu máli, við alla þá er vildu þau ræða. Hann var ekki alltaf sammála öllu sem sagt var, en hann fylgdi sannfær- ingu sinni og stóð með sínu fólki. Þau eru ófá skiptin, sem Diddi var tekinn fyrir á árshátíðum og þorra- blótum og alltaf hló hann manna hæst að þeirri vitleysu. Hann átti það líka til að kvarta ef ekki var nóg um hann fjallað á þeim vett- vangi. Það er ekki öllum gefið að standa í félagslegu argaþrasi og af- ar óeigingjörnum störfum, sem flestir geta gagnrýnt, en vilja ekki leggja á sig sjálfir. Þar gekk Diddi af auðmýkt, farveg sem oft var stórgrýttur og vandfarinn. Hann bar hlutina ekki utan á sér og kvartaði ekki undan álagi eða öðr- um leiðindum sem fylgdu því að sinna trúnaðarmálum starfsfélaga. Hann talaði heldur ekkert um sjálfan sig eða sín vandamál, veik- indi eða veraldlega hluti, við aðra. Hann fór sínar leiðir og var oftar en ekki ráðgjafi í lífsdansi sam- ferðarmanna sem áttu þar góðan vin. Það er alveg víst að Diddi var ekki mikið fyrir hólið, allavega ekki í óhófi og þótt honum hafi fundist hann hafa fullkominn íþróttasmekk, sem aðdáandi KR og Liverpool, þá tók hann því með jafnaðargeði þegar minnst var á ósigra þessara liða og benti jafnan á þroskaleysi okkar hinna sem sáu ástæðu til að núa salti í sárin. Hann var hins vegar mættur með salt- baukinn og saltaði allt og ekkert þegar illa gekk hjá okkar liðum. Þá var það líka okkar þroskaleysi að halda að við myndum ekki fá end- urgreitt af hans hálfu. Diddi hóf ungur störf fyrir SVR, sem síðar varð Strætó bs. og vann þar alla sína starfsævi. Hann til- heyrir þeim gamla armi vagnstjóra SVR sem sinntu vinnu sinni af kostgæfni og metnaði. Hann var lengstum vagnstjóri, en sinnti síð- ar stöðu varðstjóra. Þegar við minnumst Didda og hugsum um staði og stundir þar sem hlátur, grín og gaman, einstaka rifrildi og ósætti, samræður og skoðanir, áttu sér líf og langan dag, þá minnumst við félaga og vinar sem vildi leysa alla hluti af einlægni og óvinur var bara orð. Maður á marga kunn- ingja en fáa vini. Sannur vinur er sá sem kemur þegar allir aðrir hverfa á braut. Við þökkum þér samfylgdina kæri vinur. Hugheilar samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda. Stjórn Ak.St.SVR, Hörður Tómasson, Jóhann Gunnarsson, Kristján Kjartansson. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 ✝ Rúnar HeiðmarGuðmundsson fæddist á Húsavík 11. mars 1972. Hann lést 8. júní 2019. Hann var sonur hjónanna Bertu J. Einarsdóttur, f. 17.9. 1941, frá Húsavík og Guð- mundar Heiðmars Gunnlaugssonar, f. 25.9. 1935, d. 14.8. 2005, frá Skógum í Reykjahverfi. Rúnar var yngstur í systkina- hópnum, eldri eru Arna Heið- mar, f. 22.4. 1965, og Harpa Heiðmar, f. 19.5. 1966, báðar bú- settar á Akureyri. Rúnar kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Rannveigu Han- sen Jónsdóttur, 3.8. 2006, dóttur Ruthar Hansen, f. 28.2. 1944, d. 11.6. 2014, og Jóns Dans Jóhannssonar, f. 22.1. 1943. Dæt- tíma hjá Eimskip, en fór mjög fljótlega í útkeyrslu hjá Vífilfelli þar sem hann starfaði í tíu ár. Þá lá leiðin til Ferro Zink þar sem hann vann í fjögur ár á lager og síðar í verslun, fyrir ári síðan hóf hann störf hjá Straumrás. Rúnar átti fjölmörg áhuga- mál, hann stundaði skotveiði, rjúpnaveiði hér áður en aðallega gæsaveiði hin síðari ár. Hann var félagsmaður í Skotfélagi Akureyrar, stangveiði var hans yndi, hvort sem það var silungs- veiði í ám eða vötnum eða í gegn- um ís, hann var einnig félags- maður í Stangveiðifélagi Akur- eyrar. Í æsku var Rúnar löngum stundum fram í Reykjahverfi með föður sínum í Skógum í ýmsum sveitastörfum. Hann réð sig meðal annars 16 ára gamall sem fjósamann að Hnjóti í Ör- lygshöfn. Hann var einnig kaupamaður hjá Siggu og Davíð í Glæsibæ. Rúnar og Rannveig keyptu sér sumarhús haustið 2008 í landi Laxamýrar. Útför Rúnars fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 25. júní 2019, klukkan 13.30. ur Rannveigar eru Dana Ruth Hansen Aðalsteins, f. 27.5. 1985, gift Andra Rúnarssyni, f. 13.7. 1982. Börn þeirra eru Júlía Hrund, f. 13.1. 2009, Bjarki Snær, f. 16.1. 2012, og Valur Elí, f. 11.10. 2018. Þau búa á Húsavík. Kar- en Ruth Hansen Að- alsteins, f. 28.2. 1994, unnusti hennar er Ragnar Már Arnfinns- son Heinesen, f. 6.9. 1990, þau búa á Akureyri. Rúnar var fæddur og uppal- inn á Húsavík. Hann vann hjá Byggingarvörudeild KÞ, Bíla- þjónustu Húsavíkur hjá frænda sínum þangað til hann fór í meiraprófið og hóf að keyra hjá Alla Geira, síðar Flytjanda. Árið 2005 flutti hann til Akureyrar með eiginkonu sinni, starfaði um Ástin ber umbun sína í sjálfri sér. Elsku besti Rúnar minn, af hverju þú fórst svona snöggt og alltof ungur á ég erfitt með að sætta mig við, en því get ég ekki breytt og framundan er leiðin að læra að lifa við breyttar aðstæð- ur. Ég á svo margt annað til að lifa fyrir, það mun hjálpa, en fyrst af öllu mun það hjálpa mér að rifja upp allar góðu stund- irnar okkar, og það er ekki lítið af þeim þó að ég hafi bara fengið þig að láni í 15 ár. Ég get fullseint þakkað for- lögunum sem leiddu okkur sam- an árið 2003, fyrst sem traustur vinur sem þróaðist í annað og meira. Á þeim tíma varstu ósköp feiminn og óframfærinn, með brotna sjálfsmynd. „Ég skil ekki hvað þú sérð við mig?“ var spurning sem ég þurfti ansi oft að svara fyrstu árin, en það eru mörg ár síðan þú komst yfir það, og skildir og naust þess sem ást- in og lífið hefur upp á að bjóða. Þú varst barnlaus en „ég eignast dætur þínar ef ég má eiga þær með þér“. Strax kom í ljós að þú sannarlega ætlaðir að vera pabbi. Og auðvitað varðst þú afi á sama hátt. Minningarnar streyma og þær eru svo góðar, en það að eiga innihaldsríkt líf með besta vini sínum þar sem við sinntum okkar áhugamálum í sátt við hvort annað og gerðum svo rest- ina saman, það er svo mikils virði. Það voru engir sparidagar þar sem við vönduðum okkur í samskiptum, hversdagsdagarnir voru allir eins, hlaðnir væntum- þykju og virðingu hvort fyrir öðru. Við gerðum óspart grín hvort að öðru en aldrei fór það út í kvikindisskap, það var bara svo gaman hjá okkur. Svo gerðum við margt sem þig hafði dreymt um. Eitt það fyrsta var að fara til útlanda í fyrsta skipti og hvert lá leiðin? Auðvitað í Mekka veiðimanna, Cabelas. „Ég er í himnaríki Rannveig,“ ég vona svo innilega að það sé alvöru Cabelas í himnaríki. Í örmum mínum óx þú, öðl- aðist aukið sjálfstraust, tókst fram hamarinn og smíðagræj- urnar og gerðir bústaðinn okkar sem við keyptum fyrir 11 árum að okkar dásamlega hreiðri sem það er í dag. Þú áttir marga trausta vini sem þú sannarlega ræktaðir sambandið við, alltaf gafstu þér tíma til að stoppa við, spjalla, knúsa fólk og fá fréttir þegar þú hittir einhvern. Ótelj- andi matarboð í Skógum á ég minningar um, þú elskaðir að bjóða fólki í mat og veita vel, það fór enginn svangur frá okkur. Mikið á ég eftir að sakna þín þegar ég fer heim úr Skógum. Þar var bara gengið í frágang án orða, þú gerðir þitt og ég „oftast mitt“ en mjög oft varstu búinn með mitt líka, hjartagullið mitt. Elsku sveitastrákurinn minn, þú eyddir síðasta sólahringnum í allt sem þú lifðir fyrir, mömmu- matur, stöngin handleikin, byss- an, girðingarvinna, og síðast en ekki síst kúrðir þú hjá mér og knúsaðir mig bless um morgun og sagðir „sjáumst um hádeg- isbil“. Ég á engar slæmar minn- ingar, engin eftirsjá í neinu. „Ég elska þig“ „love you too“ „love you three“ „love you four“ „love you more“ var grínið okkar, og svo sannalega sýndir þú það í verki að þú elskaðir mig út af líf- inu alla daga. Hjarta mitt er fullt af söknuði en líka ást. Þangað til við hittumst á ný. Ps. Ég passa mömmu. Þín Rannveig. Meira: mbl.is/minningar Elsku pabbi. Orð fá ekki lýst hversu sárt ég sakna þín og aldrei hefði mig órað fyrir að þurfa að kveðja þig svona snemma. Fáir eru svo lán- samir að eiga náið og gott sam- band við stjúpfeður sína og þrátt fyrir að ég kynntist þér ekki fyrr en ég var tíu ára gömul varstu ekki lengi að vinna mig á þitt band. Þú varst minn helsti stuðn- ingsmaður í náminu og hvattir mig áfram þegar kvíðinn og efa- semdin bankaði upp á. Mér er það minnisstætt að ósjaldan kom ég heim og rauk beint inn í her- bergi. Þú komst nokkrum mín- útum síðar, bankaðir létt á hurð- ina, opnaðir smá rifu og hvíslaðir: „Er ekki allt í góðu, elskan?“ Við áttum ófá samtöl um lífið og tilveruna og það var alltaf gott að spjalla við þig. Þú hafðir einstaklega góða nærveru og varst mjög næmur á fólkið í kringum þig. Ég gat alltaf treyst á þig og mömmu. Þú hafðir stóran og hlýjan faðm og krafðist þess iðulega að fá knús og koss í hvert skipti sem við kvöddumst, sama hversu stutt væri þar til við hittumst næst. Fátt var ósagt á milli okk- ar og það hlýjar mér um hjarta- rætur að hafa verið búin að segja þér hvernig mér leið. Verst þykir mér þó að þú munir ekki fá tækifæri til að leiða mig upp að altarinu og kynnast börn- unum mínum þegar sá tími kem- ur. Ég er þér ævinlega þakklát fyrir að hafa valið móður mína sem förunaut í lífinu og fyrir að hafa ákveðið að verða pabbi minn. Ég elska þig og mun alltaf gera. Þín dóttir, Karen Ruth. Af öllu hjarta allt mitt líf. Í dag kveð ég son minn og besta vin. Þessi rólegi og ynd- islegi góði sonur, vinur og félagi, sem deildi gleði og sorgum með mér alla tíð. Sárt sakna ég þín, elsku Rúnar minn. Með þakklæti og auðmýkt bið ég fyrir þér. All- ar góðu stundirnar okkar geymi ég í hjarta mínu. Aldrei féll skuggi á lífsgöngu okkar saman. Gæfusporið þitt var að hitta Rannveigu sem þú elskaðir af öllu hjarta. Þið voruð innilegir vinir, gerðuð allt saman, voruð eins og eitt alla tíð. Það var okk- ar gæfa að þú komst með þessa yndislegu konu inn í fjölskyld- una. Takk fyrir að vera þú, elsku Rannveig mín. Megi góðu engl- arnir hjálpa okkur að halda áfram. Elsku Atli og Sif, stórt faðmlag til ykkar fyrir einstaka vináttu við Rúnar, alltaf. Með virðingu og þakklæti fyr- ir allt, elsku Rúnar minn. Þín mamma. Kveðja frá systrum og fjölskyldum Í dag kveðjum við litla bróður, mág, frænda og vin. Við skiljum ekki hvað hefur gerst, hann er allt of ungur til að kveðja okkur núna í blóma lífsins. En það er ekki í okkar höndum að stjórna því. Þegar við sitjum og rifjum upp liðna tíð þá minnast börnin okkar þess hve barngóður og skemmtilegur Rúnar var þegar verið var að heimsækja ömmu og afa á Húsavík. Seinna kynnist Rúnar Rannveigu sinni og var dásamlegt að sjá hve samhent þau voru að láta draumana ræt- ast með ferðalögum, vinnu við fallegt heimili og sumarbústað- inn þar sem Rúnar naut sín við veiði og að geta dvalið í sveitinni. Missir þinn er mikill, Rannveig mín, og ekki síður mömmu sem átti einstaklega fallegt og náið samband við sinn son. Við mun- um aldrei gleyma en nú reynum við að standa saman og þökkum fyrir þann tíma sem við áttum. Hvíldu í friði, elsku Rúnar. Arna, Harpa og fjölskyldur. Æ, hvar er leiðið þitt lága? Mig langar að mega leggja á það liljukrans smáan, því liljurnar eiga sammerkt með sálinni þinni og sýna það, vinur minn besti, að ástin er öflug og lifir þótt augun í dauðanum bresti. (Jóhann Sigurjónsson) Við höfum misst góðan vin og samferðamann. Minningin mun lengi lifa. Atli Vigfússon, Sif Jónsdóttir. Rúnar Heiðmar Guðmundsson ✝ GuðmundurArnarsson fæddist í Reykjavík 5. apríl 1959. Hann lést á heimili sínu á Lærdalseyri í Nor- egi 16. maí 2019. Foreldrar hans voru Arnar Guð- mundsson, f. 1. október 1931, d. 20. júní 2018, og Elsa Unnur Guð- mundsdóttir, f. 20. maí 1934, d. 24. febrúar 2017. Systkini Guð- mundar eru Svanhildur, f. 8. ágúst 1955, Guðfinna, f. 27. október 1956, Hrönn, f. 6. nóv- ember 1961, Arna Bára, f. 13. september 1964, og Linda Rós, f. 23. apríl 1983. Guðmundur kvæntist Sigur- björgu Gunnars- dóttur 30. maí 1987. Börn þeirra eru: 1) Reynheiður Þóra, f. 14. apríl 1985, maki Svanur Örn Þrastarson, f. 8. apríl 1981, börn þeirra Hafrós Lilja, f. 7. janúar 2013, og Hrafn El- ís, f. 19. október 2015. 2) Arnar Jak- ob, f. 31. mars 1987, maki Þor- gerður Egilsdóttir, f. 16. febr- úar 1979, barn þeirra Sólveig Sigurbjörg, f. 23. desember 2016. Minningarathöfn fer fram frá kapellunni í Hafnarfjarð- arkirkjugarði í dag, 25. júní 2019, klukkan 15. Það er skrítin tilfinning að vera ekki lengur við fimm systkinin. Tvær eldri systur, bróðir okkar í miðjunni og svo tvær yngri. Hann bróðir okkar fékk ómælda samúð fyrir það að vera umvafinn systrum. Hann var ólátabelgur á meðan við systurnar vildum helst lesa, hlusta á Bítlana eða jafnvel prjóna! Hann Gummi okkar var strákur sem var uppátækja- samur og hafði yndi af að fikta í öllu sem hægt var að taka í sundur en honum fannst það ekki endilega nauðsynlegt að setja hlutina saman aftur. Okk- ur þótti ósköp vænt um hann bróður okkar og það er skrítið að hann er ekki lengur hérna í veröldinni með okkur hinum. Við áttum okkur sameiginlega sögu frá uppvexti okkar og það er ekki lítils virði. Í desember greindist Gummi með langt gengið krabbamein en hann hafði verið búsettur í Noregi undanfarin átta ár. Í febrúar fórum við þrjár af systrunum og heimsóttum hann og Sifu eiginkonu hans í Leir- dalinn þar sem þau höfðu kom- ið sér upp fallegu heimili. Þau hefðu átt þrjátíu og tveggja ára brúðkaupsafmæli núna í maí. Gummi og Sifa eignuðust tvö börn, þau Arnar Jakob og Reynheiði Þóru, og barnabörn- in eru þrjú og það fjórða á leið- inni. Hann var mikill afi og þegar þau Sifa töluðu um ferð- ina sem þau fóru með börnin og barnabörnin í Legoland birti yfir honum. Hann var svo glað- ur að hafa náð öllum saman í þessa skemmtilegu fjölskyldu- ferð. Það var erfitt að horfa upp á bróður okkar sem aldrei gat setið kyrr, vera orðinn það veikan að hann varð að sætta sig við að eiga erfitt með flest- allt. Hann gat þó alltaf grínast og fíflaðist ýmist í hjúkrunarfólk- inu eða okkur hinum. Hann og við vorum svo ánægð með að hittast þrátt fyr- ir kringumstæðurnar og það var svo gott að sjá hvað þau Sifa náðu að ganga þétt saman þessa stigu sem fæst okkar vilja fara. Í apríl náði hann að fagna sextugsafmælinu sínu í faðmi fjölskyldunnar. Stuttu seinna var ljóst í hvað stefndi og vildu þau Sifa aðeins komast út úr aðstæðunum og þrátt fyrir veikindin fóru þau í sumarhús einnar okkar til Spánar. Það reyndist ljúfsár tími því það var ljóst hversu langt leiddur hann Gummi okkar var en hann vildi njóta hverrar mínútu eins og hann mögulega gat. Sem hann og Sifa gerðu, þvílíkar hetjur, bæði tvö. Hvíl í friði, elsku bróðir. Svanhildur, Guðfinna, Hrönn og Arna Bára. Gummi bróðir fékk ekki nógu langan tíma með okkur, hann lifði hratt og fór allt of snemma úr þessum heimi. Eng- an grunaði að ekki yrði ár á milli feðganna. Þeir geta nú þrasað um hvaðeina, rökrætt gengi Man- chester United og allt milli himins og jarðar, lausir við kvalir þessa lífs. Sá eldri sadd- ur lífdaga en því miður ekki sá yngri. Það var aldrei lognmolla í kringum Gumma. Mörg símtöl, fyrst yfir í Hafnarfjörð og svo til Lærdals í Noregi, fólu í sér orðin: „Og hvað gerði Gummi nú?“ Fréttist til dæmis af virðulegum afa að nálgast sex- tugt sem ákvað að taka kaffi- pásuna sína sitjandi á grein í háu tré í Noregi. Verst var að ótuktar greinin gaf sig og Gummi hrapaði greina á milli niður á jörð. Mætti kappinn merkilega hress í vinnuna daginn eftir. Gummi kom nefnilega alltaf niður á fótunum í hverju sem hann lenti. Hann lamaðist eftir mislukk- aða brjósklosaðgerð, og þá var einfaldlega ekkert annað í spil- unum en að læra að ganga á ný og trúði ekki nokkur því þegar frá leið að þessi fílhrausti mað- ur hefði verið bundinn við hjólastól um tíma. Það var gaman að fylgjast með Gumma og Sifu verða að afa og ömmu. Ferðir í verslanir með þeim í Noregi voru ein- staklega áhugaverðar þar sem Gummi birtist gjarnan hlaðinn bleikum kjólum og barnadóti fyrir afabörnin. Gummi var heljarmenni að burðum og einn sá litríkasti maður sem ég hef orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að þekkja. Heimurinn missti stóra rós úr hnappagati sínu þegar krabba- meinið bar sigur úr býtum eftir snarpa baráttu. Ég votta Sifu mágkonu, Reynheiði, Arnari og fjölskyld- um þeirra mína dýpstu samúð. Linda Rós Arnarsdóttir. Gummi kom inn í líf mitt þegar hann var um fjórtán ára gamall. Hann bjó eftir það hjá pabba sínum og mér. Eftir að hann stálpaðist og eignaðist eigin fjölskyldu með henni Sifu sinni, þau Reynheiði og Arnar, þá voru þau í miklu og góðu sam- bandi við okkur. Ávallt var Gummi tilbúinn að rétta gömlu hjónunum hjálpar- hönd. Hans er sárt saknað og fékk hann skemmri dvöl í þessu jarðlífi en réttmætt hefði verið. Elsku Sifa, Reynheiður, Arn- ar og fjölskyldur, ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð. Sólveig Guðrún Kristjánsdóttir. Guðmundur Arnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.