Morgunblaðið - 25.06.2019, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019
50 ára Lilja er Akur-
eyringur en býr í Nes-
kaupstað. Hún er
hjúkrunarfræðingur frá
Háskólanum á Akureyri
og starfar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað.
Maki: Hákon Erluson, f. 1967, starfs-
mannastjóri Síldarvinnslunnar.
Börn: Sylvía Kolbrún, f. 1993, Hákon
Huldar, f. 2002, og Sólveig Sigurjóna, f.
2008.
Barnabarn: Hákon Hólm Blöndal.
Foreldrar: Ágúst Ellertsson, f. 1946, vél-
stjóri, og Sigríður Ásdís Sigurðardóttir, f.
1948, skrifstofumaður. Þau eru búsett á
Akureyri.
Lilja Ester
Ágústsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Leitaðu nýrra leiða til þess að
auðga líf þitt og bæta. Þér finnst þú eitt-
hvað týnd/ur og tröllum gefin/n en með
haustinu rofar til.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólki finnst þú áhugaverð/ur af því
þú hefur ævinlega ferska sýn á viðfangs-
efnið. Skemmtu þér með fjölskyldunni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur byrinn með þér til að
klára þau verkefni sem setið hafa á hak-
anum. Þú ert ekki að missa af lestinni þó
þú sért komin/n yfir þrítugt hvað mennt-
un varðar, láttu slag standa.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Streita er kannski óþægileg, en
hún er ástæðan fyrir frábærum árangri
þínum. Fólk er fljótt að fyrirgefa ef það er
beðið afsökunar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú finnur löngun hjá þér til að gera
eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til
þess síðar í sumar. Hertu upp hugann.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu ekki verkefni safnast fyrir á
skrifborði þínu. Fólk í kringum þig er flinkt
í að þykjast, og þú ert jafn góð/ur leikari
þegar þú þarft á að halda.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ástæðulaust að troða öðrum
um tær þegar hægt er að ná takmarkinu
öðruvísi. Kæruleysi í fjármálum er ekki í
boði hjá þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur nægan kraft til að
draga að þér hvað sem þú vilt. Þú missir
móðinn í smástund en kemur svo tvíefld/
ur til baka.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er í lagi að vilja ekki lána
eitthvað sem maður á. Heilsufarið hefur
ekki verið upp á það besta síðustu vikur
en allt stefnir þetta í rétta átt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óvænt atvinnutilboð gæti bor-
ist þér í dag. Ekki reyna að leyna fjölskyld-
una líðan þinni, hún sér í gegnum þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Eitthvað verður til þess að
trufla þitt daglega mynstur. Þér finnst fok-
ið í flest skjól í ástarsambandinu en þú vilt
samt ekki gefast upp.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ágreiningur er partur af lífinu –
hagaðu seglum eftir vindi. Sýndu öðrum
þínar bestu hliðar. Ekki mála alltaf skratt-
ann á vegginn um leið og á móti blæs.
starfsmenn úr fluginu reglulega
og dunda mér á yndislegri jörð
sem við eigum vestur á fjörðum
,,Í dag fer ég daglega út að
ganga með Bjart, hundinn okkar,
hitti góða og gamla vini og sam-
H
arald Snæhólm
fæddist í Þránd-
heimi í Noregi 25.
júní 1939. Hann
fluttist með for-
eldrum sínum til Íslands árið 1946
og ólst svo upp í Kópavogi þar sem
hann hefur búið alla tíð síðan.
Hann gekk í Kópavogsskóla,
sem þá var eini barnaskólinn í
Kópavogi, fór síðan í Reykjaskóla
í Hrútafirði þaðan sem hann lauk
landsprófi.
Vegna þrúgandi og ævarandi
flugbakteríu lagði hann land undir
fót, fór aftur til Noregs árið 1957
og hóf flugnám við Thor Solberg
flugskólann í Tönsberg og lauk
þaðan flugprófi, þá 19 ára gamall.
Að loknu flugnámi starfaði Har-
ald hjá A/S Norrönalfy við póst-
flug í Noregi á sjóflugvélum og hjá
flugfélaginu Continentale í Þýska-
landi á fjörkunum eða DC-4. Hann
starfaði ásamt atvinnufluginu sem
þjálfunar- og eftirlitsflugstjóri hjá
Flugleiðum og Icelandair í 26 ár.
Harald flaug sitt síðasta áætl-
unarflug hinn 24. júní árið 2004 og
lauk þar með 46 ára avinnuflugi
sem hófst í Noregi.
„Ég vil þakka farsælt ævistarf
með góðum og traustum félögum.“
Harald er handhafi flug-
skírteinis númer 370 á Íslandi.
Hann var ráðinn til Loftleiða hf.
árið 1961, fyrst sem aðstoðar-
flugmaður en hann varð flugstjóri
hjá Loftleiðum árið 1965, þá 25 ára
gamall. Hann flaug talsvert fyrir
Cargolux á árunum 1970-1980, var
þriðji flugstjórinn hjá félaginu
þegar það tók til starfa, og Air
India Cargo 1980-1982, flaug í
mörgum pílagrímaflugferðum
Loftleiða og Flugleiða og fyrir
Hjálparstarf kirkjunnar eða Joint
Church Airlift í Bíafrastríðinu ár-
ið 1969. Hann var í áhöfn einnar
flugvélar félagsins sem var skotin
niður í lendingu á Uli-flugvellinum
í einni af næturflugferðunum á
milli Bíafra og portúgölsku eyj-
unnar Sao Tome. Harald var einn
af þeim fimm Íslendingum sem
lifðu af hið hörmulega flugslys á
Srí Lanka í nóvember árið 1978.
þar sem er bæði skot- og stanga-
veiði og keyri svo stundum um
landið um mitt sumar. Fjölskyldan
Harald Snæhólm, fyrrverandi flugstjóri – 80 ára
Hjónin Harald Snæhólm og Þórunn Hafstein stödd á Flugsafni Íslands á Akureyri.
Með flugbakteríuna í blóðinu
Flugstjórinn Harald í háloftunum á Boeing 757. Vestur á fjörðum Harald og Bjartur.
30 ára Viktor er Hafn-
firðingur en býr í Vest-
urbæ Reykjavíkur.
Hann er með BA í ljós-
myndun frá Berlín og
starfar sem ljósmynd-
ari á auglýsingastof-
unni Sahara.
Maki: María Dagbjört Sveinsdóttir, f.
1989, vinnur við móttöku hjá Reykjavík-
urborg í Borgartúni.
Dóttir: Una Viktorsdóttir, f. 2015.
Foreldrar: Þorlákur Richard Rich-
ardsson, f. 1969 og varð fimmtugur í
gær, starfsmaður Morgunblaðsins, bús. í
Hafnarfirði, og Steinunn Bára Þorgils-
dóttir, f. 1968, sjúkraliði á Hjúkrunar-
heimilinu Víðihlíð í Grindavík, bús. í
Grindavík.
Viktor
Richardsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Óliver Leó Þórisson fædd-
ist 20. september 2018 á Landspít-
alanum í Reykjavík, kl. 17.27. Hann vó
4.010 g og var 53 cm langur. Foreldrar
hans eru Sandra Sif Sverrisdóttir og
Þórir Björgvinsson.
Nýr borgari