Morgunblaðið - 25.06.2019, Qupperneq 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019
10. UMFERÐ
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Eftir að Íslandsmeistarar Vals og
þeirra erfiða byrjun í Pepsi Max-
deild karla í knattspyrnu var aðal-
umræðuefnið í fyrstu umferðunum
beinast spjótin nú fast að FH-
ingum. FH tapaði fyrir KR í gríðar-
lega mikilvægum leik í 10. umferð-
inni um helgina, situr í 7. sæti og er
ellefu stigum frá toppnum.
Sumarið í fyrra var vonbrigði hjá
FH, en eftir sama leikjafjölda í fyrra
var FH samt með fjórum stigum
meira en nú og var aðeins tveimur
stigum frá toppnum. Hafnfirðingar
hafa nú aðeins náð í tvö stig af síð-
ustu 15 mögulegum og eru allt í einu
aðeins tveimur stigum fyrir ofan
Valsmenn. Þar sem Valur hefur
unnið tvo af síðustu þremur leikjum
sínum, síðast 1:0 gegn Grindavík, er
ekki ástæðulaust að pressan er farin
að færast yfir í Hafnarfjörðinn.
Það eru hins vegar KR-ingar sem
hafa sýnt mestan stöðugleika og
hafa unnið Val og FH í síðustu
tveimur leikjum sínum. Sex sigrar í
röð hjá Vesturbæingum, sem gefur
liðinu eins stigs forskot á Breiðablik,
en liðin mætast einmitt í næstu um-
ferð. Þar eru gríðarlega mikilvæg
stig í titilbaráttunni í boði, en liðin
hafa skilið sig svolítið frá pakkanum
sem er í baráttu um Evrópusæti.
Blikarnir verða nú án Jonathans
Hendrickx sem er farinn frá félag-
inu eftir að hafa verið einn besti leik-
maður deildarinnar. Innkoma Arn-
ars Sveins Geirssonar í vor er enn
mikilvægari af þeim sökum og þá
leysti hinn ungi Davíð Ingvarsson
hlutverk sitt vel í síðasta leik. Þjálf-
arinn Ágúst Gylfason boðar hins
vegar breytingar þegar félaga-
skiptaglugginn opnast í byrjun
næsta mánaðar, en skarðið sem
Hendrickx skilur eftir sig er stórt.
Þakkaði traustið og vel það
Aron Bjarnason, leikmaður
Breiðabliks, er besti leikmaður 10.
umferðar að mati Morgunblaðsins.
Eftir að hafa breytt leik Blika með
innkomu sinni af bekknum í leiknum
á undan endurheimti Aron sæti sitt í
byrjunarliðinu gegn ÍBV í umferð-
inni og átti heiðurinn af tveimur
mörkum liðsins í 3:1-sigri. Hann fór
æði oft illa með Eyjamenn með
hraða sínum og tækni á vinstri
vængnum og fékk tvö M fyrir
frammistöðu sína. Aron er nú efstur
Blika í einkunnagjöf blaðsins í ár.
Aron er 23 ára gamall, fjölhæfur
miðju- og sóknarmaður, og er að
spila sitt þriðja tímabil með Blikum.
Hann hefur skorað 12 mörk í 48
leikjum með liðinu í efstu deild, þar
af fjögur í sumar, en hann kom
þangað frá ÍBV þar sem hann spilaði
í tvö ár. Þá lék Aron áður með Fram
og uppeldisfélagi sínu Þrótti R.
Hann á að baki 111 leiki í efstu deild
þar sem hann hefur skorað 24 mörk.
Yngsti markaskorari í átta ár
HK-ingurinn Valgeir Valgeirsson
er besti ungi leikmaður 10. umferðar
að mati Morgunblaðsins. Hann skor-
aði seinna mark HK í 2:0-sigrinum á
ÍA og er þetta fyrsta mark hans í
meistaraflokki á Íslandsmóti. Val-
geir er aðeins 16 ára og 273 daga
gamall og er yngsti markaskorari
efstu deildar síðan Hjörtur Her-
mannsson skoraði fyrir Fylki gegn
Víkingi árið 2011, þá 16 ára og 215
daga gamall. Eiður Smári Guðjohn-
sen á enn metið, en hann skoraði 15
ára og 253 daga gamall fyrir Val
gegn ÍBV árið 1994.
Valgeir á að baki 17 leiki með U17
ára landsliði Íslands og var í stóru
hlutverki með liðinu í úrslitakeppni
Evrópumóts 17 ára landsliða á Ír-
landi í síðasta mánuði. Þar spilaði
hann allar mínútur í öllum þremur
leikjum Íslands þar sem liðið vann
Rússland en tapaði fyrir Portúgal og
Ungverjalandi.
Pálmi kominn í fámennan hóp
Pálmi Rafn Pálmason, leik-
maður KR, spilaði sinn 400. deild-
arleik á ferlinum, innanlands sem
erlendis, þegar KR vann FH í
Kaplakrika, 2:1. Pálmi er aðeins 25.
íslenski knattspyrnumaðurinn frá
upphafi sem nær að spila 400
deildarleiki á ferlinum en sá þriðji
sem nær því á þessu ári. Hinir eru
Aron Einar Gunnarsson og Bjarni
Ólafur Eiríksson.
Pálmi Rafn, sem er 34 ára gamall,
spilaði sinn fyrsta leik með Völsungi
árið 2000. Einnig lék hann hér heima
með KA og Val áður en hann fór til
Noregs og spilaði 166 deildarleiki
með Stabæk og Lilleström. Hann er
nú á sínu fimmta tímabili með KR og
hefur leikið með liðinu 94 deildar-
leiki, en fyrr á þessu keppnistímabili
skoraði Pálmi sitt 100. deildarmark
á ferlinum.
Sindri Snær Magnússon, fyr-
irliði ÍBV, spilaði sinn 100. leik í
efstu deild í umferðinni þegar Eyja-
menn töpuðu 3:1 fyrir Breiðabliki.
Tveir leikmenn skoruðu sín
fyrstu mörk í efstu deild hér á landi í
umferðinni. Telmo Castanheira
skoraði fyrir ÍBV í tapinu fyrir
Breiðabliki og Alexander Groven
skoraði fyrir KA í 4:3-tapi fyrir Vík-
ingi R. í markaleik fyrir norðan.
Hinn 17 ára gamli Jón Gísli Ey-
land, leikmaður ÍA, spilaði sinn
fyrsta leik í efstu deild þegar ÍA tap-
aði 2:0 fyrir HK. Þá spilaði Skúli Jón
Friðgeirsson sinn fyrsta leik í sumar
með KR, en hann hefur verið lengi
frá vegna höfuðmeiðsla.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Óskar Örn Hauksson, KR 10
Aron Bjarnason, Breiðabliki 8
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 8
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 8
Ólafur Karl Finsen, Val 8
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 8
Damir Muminovic, Breiðabliki 7
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 7
Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 6
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 6
Ásgeir Marteinsson, HK 6
Brandur Olsen, FH 6
Guðmundur Kristjánsson, FH 6
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 6
Jónatan Ingi Jónsson, FH 6
Marcus Johansson, ÍA 6
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 6
Leikmenn með fi mm M: Ásgeir Börkur
Ásgeirsson, HK, Ásgeir Eyþórsson, Fylki,
Birkir Már Sævarsson, Val, Björn Berg
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 7
Ólafur Karl Finsen, Val 5
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 5
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 5
Pálmi Rafn Pálmason, KR 5
Markahæstir
Breiðablik 55
KR 54
ÍA 46
Stjarnan 46
KA 43
Valur 42
Fylkir 40
HK 40
FH 39
Víkingur R.39
Grindavík 35
ÍBV 27
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
10. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
3-4-3
Arnar Freyr Ólafsson
HK
Aron
Bjarnason
Breiðabliki
Ólafur Karl Finsen
Val
Alex Þór
Hauksson
Stjörnunni
Guðmundur Andri
Tryggvason
Víkingi R.
Hilmar Árni
Halldórsson
Stjörnunni
Tobias Thomsen
KR
Valgeir Valgeirsson
HK
Viktor Örn
Margeirsson
Breiðabliki
Bjarni Gunnarsson
HK
Kristinn Jónsson
KR
Bryde, HK, Einar Logi Einarsson, ÍA, Elfar
Árni Aðalsteinsson, KA, Elias Tamburini,
Grindavík, Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni,
Gunnar Þorsteinsson, Grindavík, Hannes
Þór Halldórsson, Val, Höskuldur Gunn-
laugsson, Breiðabliki, Kolbeinn Þórðar-
son, Breiðabliki, Sölvi Geir Ottesen,
Víkingi R., Víðir Þorvarðarson, ÍBV
3
3
4
FH tekur við pressunni
FH hefur ekki unnið í síðustu fjórum deildarleikjum en Valur hefur rétt úr
kútnum Meðbyrinn er allur með KR-ingum Breytinga að vænta hjá Blikum
Morgunblaðið/Hari
Öflugur Aron Bjarnason reyndist
ÍBV afar erfiður í sigri Breiðabliks.
Ljósmynd/HK
Ungur Valgeir Valgeirsson, 16 ára,
skoraði sitt fyrsta mark fyrir HK.
Körfuknattleikskappinn Arnór Her-
mannsson er genginn til liðs við ÍR.
Arnór kemur til félagsins frá Breiða-
bliki sem féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Arnór átti flott tímabil með Blikum og
skoraði 7 stig að meðaltali í vetur og
gaf 4 stoðsendingar. ÍR lék til úrslita
um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu
leiktíð þar sem Breiðhyltingar töpuðu
í oddaleik gegn KR í Vesturbænum.
Helgi Mikael Jónasson dæmir leik
Prishtina frá Kósóvó og St Joseph’s
frá Gíbraltar í Evrópudeild UEFA í
knattspyrnu sem fram fer í Pristina á
fimmtudaginn. Honum til aðstoðar
verða þeir Birkir Sigurðarson og
Bryngeir Valdimarsson og fjórði verð-
ur Þorvaldur Árnason.
Varnarjaxlinn Sverrir Pálsson hefur
skrifað undir nýjan tveggja ára samn-
ing við Íslandsmeistara Selfoss í
handbolta. Sverrir hefur verið lykil-
maður í varnarleik Selfoss-liðsins frá
því hann fór upp með liðinu á sínum
tíma og í úrslitakeppninni um Íslands-
meistaratitilinn í
vor átti hann frá-
bæra leiki í
miðju varn-
arinnar. Selfyss-
ingar gengu loks
frá þjálf-
ara-
málum
sínum á
dögunum en Grímur
Hergeirsson var ráðinn
þjálfari liðsins í stað
Patreks Jóhannessonar
sem er tekinn við
danska úrvalsdeildarlið-
inu Skjern.
Eitt
ogannað