Morgunblaðið - 25.06.2019, Side 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019
Línur eru aðeins farnar að
skýrast í Pepsi Max-deild karla í
knattspyrnu nú þegar deildin er
rétt að verða hálfnuð. Fram til
þessa hefur mótið verið
skemmtilegt þar sem margir
ungir og sprækir strákar hafa
komið fram á sjónarsviðið.
Ég held að það sé nokkuð
ljóst að meistarabikarinn fer úr
bikaraskápnum á Hlíðarenda en
Valur, meistari síðustu tveggja
ára, er í áttunda sæti heilum 13
stigum á eftir toppliði KR.
Valsmenn hafa valdið mikl-
um vonbrigðum í sumar og sömu
sögu er að segja um FH-inga.
Þessi lið ætluðu sér stóra hluti
en spilamennska beggja liða hef-
ur verið langt undir væntingum.
KR-ingar sendu skýr skila-
boð úr Kaplakrika í fyrrakvöld
þegar þeir lögðu FH-inga að velli.
Þetta var sjötti deildarsigur KR-
inga í röð og þeir og Blikar eru
þau lið sem mér þykir líklegust til
að slást um titilinn í ár.
Liðsheildin hefur verið
aðalsmerki hjá KR og Breiðabliki
í sumar og það verður áhuga-
verður slagur á mánudaginn þeg-
ar toppliðin tvö eigast við á
Meistaravöllum. Í millitíðinni
spila liðin í átta liða úrslitum
Mjólkurbikarkeppninnar þar sem
Breiðablik tekur á móti Fylki og
KR fær Inkasso-lið Njarðvíkur í
heimsókn.
Það stefnir líka í spennandi
fallbaráttu. Það verður að segjast
eins og er að falldraugurinn er á
sveimi í Eyjum en ÍBV hefur að-
eins náð að vinna einn leik af níu
leikjum sínum í deildinni. Eyja-
menn binda vonir við að Gary
Martin blási nýju lífi í leik liðsins
en hann verður löglegur með lið-
inu 1. júlí. Ég tel að HK, Grindavík
og Víkingur verði með ÍBV í bar-
áttunni um að forðast fallið í ár.
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
HM Í FRAKKLANDI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Svíþjóð og Bandaríkin tryggðu sér í
gær sæti í 8-liða úrslitum HM
kvenna í fótbolta og miðað við sög-
una þá ætti það ekki að koma nein-
um á óvart. Bandaríkin hafa nú kom-
ist á þetta stig keppninnar í öll átta
skiptin sem hún hefur verið haldin,
en aðeins Þýskaland getur státað sig
af því sama. Svíþjóð er svo komin í 8-
liða úrslitin í sjötta sinn því liðið hef-
ur aðeins tvívegis fallið úr keppni
fyrir þau, árin 2007 og 2015.
Svíþjóð sló Kanada út í gær með
1:0-sigri þar sem Stina Blackstenius
skoraði sigurmarkið eftir frábæran
undirbúning Kosovare Asllani. Asl-
lani fékk dæmda á sig vítaspyrnu
fyrir hendi um miðjan seinni hálfleik
en Kanada tókst ekki að jafna metin
því Hedvig Lindahl varði frábærlega
frá Janine Beckie.
„Hún skaut þarna líka þegar við
mættumst í Algarve-bikarnum [og
skoraði, fyrr á árinu], en við vorum
líka búin að afla okkar meiri upplýs-
inga. En svo veit maður náttúrulega
aldrei, hún getur alltaf skipt um
horn til að skjóta í,“ sagði Lindahl
hógvær við C More eftir leik.
Martina Voss-Tecklenburg, þjálf-
ari Þýskalands, tilkynnti í gær að
hún myndi geta teflt hinni mögnuðu
Dzsenifer Marozsan fram í leiknum
við Svíþjóð þar sem að hún hefði
jafnað sig eftir að hún brákaði bein í
tá í fyrsta leik á mótinu.
Bandaríkin fengu loks á sig mark
á HM í gær þegar Jennifer Hermoso
skoraði fyrir Spán eftir varn-
armistök, en tvö mörk frá Megan
Rapinoe úr vítaspyrnum dugðu til
2:1-sigurs. Bandaríkin, sem unnu
HM fyrir fjórum árum, hafa þar með
unnið níu leiki í röð á heimsmeist-
aramótum og eru einum sigri frá
metinu sem Noregur setti með sig-
urgöngu á HM 1995 og 1999. Banda-
ríkin mæta Frakklandi á fimmtu-
dag.
AFP
Sigurmark Stina Blackstenius fagnar eftir að hafa skorað markið sem tryggði Svíþjóð sigur á Kanada.
Á afskaplega kunn-
uglegum slóðum
Svíþjóð mætir Þýskalandi og Bandaríkin Frakklandi
Búið er að draga í
riðla á heims-
meistaramóti
kvenna í hand-
knattleik sem
fram fer í Japan
dagana 30. nóv-
ember til 15. des-
ember í vetur.
Frakkar eiga þar
titil að verja en
þeir höfðu betur
gegn Norðmönnum, undir stjórn
Þóris Hergeirssonar, í úrslita-
leiknum í Þýskalandi fyrir tveimur
árum.
Riðlarnir eru þannig skipaðir:
A-riðill: Holland, Noregur, Serb-
ía, Slóvenía, Angóla, Kúba.
B-riðill: Frakkland, Danmörk,
Þýskaland, S-Kórea, Brasilía, Ástr-
alía.
C-riðill: Rúmenía, Ungverjaland,
Svartfjallalandi, Spánn, Senegal,
Kasakstan.
D-riðill: Rússland, Svíþjóð, Japan,
Kína, Argentína, Kongó.
gummih@mbl.is
Riðlarnir
klárir fyrir
HM í Japan
Þórir
Hergeirsson
Hinn 48 ára gamli
José Hombrados,
fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður
Spánverja í hand-
knattleik, hefur
skrifað undir nýj-
an samning við
spænska úrvals-
deildarliðið
Guadalajara.
Hombrados mun
því spila 27. leiktíðina í spænsku deild-
inni á næsta tímabili en hann hefur
spilað með Guadalajara frá árinu 2015
en árin tvö þar á undan lék hann með
þýska liðinu Wetzlar. Hombrados lék í
mörg ár með spænska landsliðinu og
varð heimsmeistari með því árið 2005.
Fékk nýjan
samning 48
ára gamall
José
Hombrados
Hannes Jón Jónsson, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Bietigheim,
segist ekki hafa svikið Selfyssinga
eins og Þórir Haraldsson, formaður
handknattleiksdeildar Selfoss, orð-
aði það í viðtali við mbl.is á dög-
unum. Í janúar
gerði Hannes
Jón samning við
Selfyssinga um
að hann tæki við
þjálfun liðsins af
Patreki Jóhann-
essyni í sumar en
í apríl rifti Hann-
es samningi sín-
um við Selfyss-
inga og gerði
tveggja ára samning við Bietig-
heim. Undanfarnar vikur hafa Sel-
fyssingar verið í þjálfaraleit sem
lauk loksins fyrir helgina þegar
Grímur Hergeirsson var ráðinn
þjálfari en hann hefur verið aðstoð-
arþjálfari liðsins undanfarin fjögur
ár.
„Í fyrsta lagi óska ég Selfyss-
ingum til hamingju að vera komnir
með nýjan þjálfara og að mínu mati
er þetta frábær lausn fyrir þá að
hafa fengið Grím. Af því að Þórir
notaði þetta orðalag að ég hafi svik-
ið Selfoss þá hefur fullt af fólki
komið að máli við mig og spurt mig
hvort þetta hafi verið eitthvað öðru-
vísi en það skildi það fyrst. Við
gerðum starfslokasamning þar sem
báðir aðilar skrifuðu undir og ég lít
ekki á þetta sem nein svik af minni
hálfu.
Selfoss fær að mínu mati miklu
meira en sanngjarnt verð greitt fyr-
ir mig þrátt fyrir að það hafi verið
þrír mánuðir þar til ég átti að hefja
störf hjá félaginu,“ sagði Hannes
Jón í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Ég fór þess á leit við Selfyssinga
að samningurinn myndi ekki taka
gildi. Þeir gengust við því og fengu
fyrir það greiðslu. Ef þeir hefðu
ekki gengist við þessu þá var ég
með samning sem ég hefði uppfyllt.
Ég hélt að þetta hefði verið gert í
þokkalegri sátt en ég skil alveg að
þetta hafi verið högg fyrir þá. Þeg-
ar ég skrifaði undir samninginn við
Selfoss var það gert af heilum hug.
Ég var með klásúlu í samningnum
sem gilti til 15. febrúar sem ég nýtti
mér ekki því við fjölskyldan vorum
á leiðinni heim. Ef ég hefði nýtt
mér hana hefði Selfoss ekki fengið
krónu fyrir mig. Ég er með fimm
manna fjölskyldu og við mátum það
þannig að það væri best fyrir okkur
að vera áfram úti og þess vegna fór
ég þess á leit að samningi mínum
yrði sagt upp en svik voru þetta
ekki. Ég óska Selfyssingum alls
hins besta í framtíðinni.“
gummih@mbl.is
Þetta voru ekki nein
svik af minni hálfu
Hannes Jón
Jónsson