Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
Afrekskylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gerði
upp fyrri helming keppnistímabils síns í snörpum pistli á
Facebook í gær. Þar kveðst hún gera allt sem hún geti til
að bæta sig og „læra af því liðna“ en að það sé krefjandi
að vita sjaldnast hvar og hvenær sín næstu mót séu.
Ólafía var með fullan keppnisrétt í LPGA-mótaröð-
inni, sterkustu mótaröð í heimi, í fyrra en er með tak-
markaðan keppnisrétt í ár. Þess vegna skýrist það oftast
ekki fyrr en rétt fyrir mót hvort að hún fær boð. Hún
hefur leikið á tveimur LPGA-mótum í ár, og var annað
þeirra US Open-risamótið, en vill fleiri slík. Ólafía
keppir svo einnig í Symetra-mótaröðinni, þeirri næst-
sterkustu í Bandaríkjunum, þar sem næsta mót hennar hefst á föstudaginn.
„Svo dansa ég á línunni að komast inn í tvö LPGA mót næstu vikur,“
skrifaði Ólafía á Facebook. Hún segist leita sér aðstoðar hjá góðu fólki til
að takast á við sínar áskoranir en frábiður sér hjálp þeirra sem ekki þekkja
til: „Ég kæri mig ekki mikið um aðstoð frá Bubba niðrí bæ sem hefur aldrei
gengið þennan veg og mun aldrei skilja þennan heim. En ég skil að hann
haldi að þetta sé svo einfalt og að hann geti „lagað“ mig,“ skrifar Ólafía.
Dansar á „LPGA-línunni“
Ólafía Þórunn
Kristinsdót tir
1:0 Sjálfsmark 3.
1:1 Svanhildur Ylfa Dagbjarts-
dóttir 81.
2:1 Agla María Albertsdóttir 90.
I Gul spjöldSólveig Jóhannesdóttir Lar-
sen (Breiðabliki).
Dómari: Steinar Berg Sævarsson, 8.
Áhorfendur: 402.
MM
Audrey Baldwin (HK/Víkingi)
BREIÐABLIK – HK/VÍKINGUR 2:1
M
Agla María Albertsdóttir (Breiða-
bliki)
Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki)
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
(Breiðabliki)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Selma Sól Magnúsdóttir (Breiða-
bliki)
Arna Eiríksdóttir (HK/Víkingi)
Gígja Valgerður Harðardóttir (HK/
Víkingi)
Þórhildur Þórhallsdóttir (HK/
Víkingi)
FÓTBOLTI
Andri Yrkill Valsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skúli B. Sigurðsson
Breiðablik og Valur verða bæði með
fullt hús stiga þegar þau mætast í
uppgjöri toppliðanna í næstu umferð
Pepsi Max-deildar kvenna í knatt-
spyrnu. Óhætt er þó að segja að það
hafi ekki mátt tæpara standa þar
sem Breiðablik vann hádramatískan
sigur á HK/Víkingi á Kópavogsvelli í
7. umferðinni í gærkvöldi, 2:1.
Leikurinn var eiginlega hreint út
sagt ótrúlegur. Breiðablik átti 28 til-
raunir að marki, þar af 18 á ramm-
ann, en skoraði ekki sigurmarkið fyrr
en nánast með síðustu spyrnu leiks-
ins á fjórðu mínútu uppbótartíma. Þá
var fyrra markið sjálfsmark strax í
upphafi leiks. Það var með hreinum
ólíkindum að fylgjast með Blikunum
láta skotum rigna að markinu allan
leikinn án þess að boltinn vildi inn.
Selma Sól Magnúsdóttir og Agla
María Albertsdóttir, sem skoraði sig-
urmarkið með fallegu skoti, voru
skotglaðastar og hefðu eflaust sofið
illa ef sigur hefði ekki unnist. Hvort
hægt sé að tala um meistarabrag á
sigrinum skal ósagt látið, en færin
sem fóru út í sandinn verða fljót að
gleymast fyrst niðurstaðan varð
þessi.
Audrey Baldwin átti alveg magn-
aðan leik í marki HK/Víkings, en
hægt er að fullyrða að viðlíka
frammistaða sést ekki oft á tímabili.
Bakverðirnir áttu erfiðan dag að
glíma við Öglu Maríu og Selmu Sól,
en annars var baráttan alltaf til stað-
ar og þolinmæðin sömuleiðis. Þegar
liðið fór markvisst að bíta frá sér skil-
aði það laglegu marki sem kom al-
gjörlega aftan að Blikum. Þótt skrítið
sé að segja það miðað við tölfræðina
þá gátu gestirnir verið afar svekktar
með niðurstöðuna úr því sem komið
var.
Hins vegar er alveg deginum ljós-
ara að það Breiðablik kemst ekki upp
með svona skotnýtingu aftur. Næsti
leikur gegn Val mun ráða miklu um
framhaldið í toppbaráttunni og þó
liðið komi sér alltaf í færi þá er það
aðeins hálfur sigur. Smiðshöggið
verður að vera til staðar til að full-
komna verkið. yrkill@mbl.is
Stig sem bæði lið þiggja
Fylkir og Selfoss gerðu 1:1-
jafntefli í Árbænum. Bæði lið eru í
mikilli baráttu í neðri hluta deild-
arinnar. Þau eru nú með sjö stig,
einu stigi meira en HK/Víkingur
sem er í fallsæti. Selfoss byrjaði
mun betur og með Hólmfríði Magn-
úsdóttir spræka í framlínunni sköp-
uðu gestirnir fín færi. Hólmfríður er
34 ára, en virkar í afar góðu standi.
Hún er með mjög mikil gæði, og á
sama tíma vinnusöm. Hún hljóp og
var á fullu allan leikinn. Það var við
hæfi að Hólmfríður skoraði fyrsta
mark leiksins á 23. mínútu með hnit-
miðuðu skoti.
Með fínni spilamennsku var Sel-
foss líklegt til að bæta við mörkum,
en þess í stað jafnaði Fylkir á loka-
sekúndum fyrri hálfleiks. Ída Marín
Hermannsdóttir náði þá í víta-
spyrnu sem hún skoraði sjálf úr.
Dómurinn var kolrangur, hjá ann-
ars góðum dómara leiksins. Fylkir
var sterkari aðilinn í seinni hálfleik,
en tókst ekki að skapa nægilega góð
færi og jafntefli varð niðurstaðan,
sem eru sanngjörn úrslit. Eftir töp í
undanförnum leikjum voru bæði lið
nokkuð sátt við úrslitin. Þau eru í
baráttu þar sem eitt stig getur
reyndst dýrkeypt.
Á meðan hin reynslumikla Hólm-
fríður var sterk hjá Selfossi, spilaði
Ída Marín mjög vel hjá Fylki. Hún
er fædd árið 2002. Ída er ófeimin við
að reyna á varnarmenn og taka þá á.
Hún olli Selfyssingum miklum usla
og verður gaman að sjá hversu langt
hún nær á næstu árum.
johanningi@mbl.is
Mátti ekki
tæpara
standa
Sigurmark Öglu Maríu í blálokin
Keflavík valtaði yfir Stjörnuna
Morgunblaðið/Hari
Efnileg Sveindís Jane Jónsdóttir
var góð í 5:0-sigri Keflavíkur.
Pepsi Max-deild kvenna
Breiðablik – HK/Víkingur.....................2:1
Fylkir – Selfoss......................................1:1
Keflavík – Stjarnan ...............................5:0
Staðan:
Valur 7 7 0 0 26:4 21
Breiðablik 7 7 0 0 20:5 21
Þór/KA 7 4 1 2 13:13 13
ÍBV 7 3 0 4 13:11 9
Stjarnan 7 3 0 4 5:13 9
Selfoss 7 2 1 4 7:13 7
Fylkir 7 2 1 4 7:16 7
Keflavík 7 2 0 5 13:12 6
HK/Víkingur 7 2 0 5 5:12 6
KR 7 1 1 5 7:17 4
Inkasso-deild karla
Njarðvík – Haukar................................1:5
Ari Már Andrésson 49. – Aron Freyr Ró-
bertsson 16., Fareed Sadat 25., Alexand-
er Freyr Sindrason 34., Ísak Jónsson 45.,
Daði Snær Ingason 90.
Staðan:
Þór 8 5 1 2 15:6 16
Fjölnir 8 5 1 2 14:9 16
Keflavík 8 4 2 2 13:7 14
Grótta 8 4 2 2 16:13 14
Fram 8 4 2 2 13:10 14
Víkingur Ó. 8 4 1 3 9:6 13
Leiknir R. 8 4 0 4 13:14 12
Þróttur R. 8 3 1 4 15:13 10
Haukar 9 2 3 4 13:15 9
Afturelding 8 3 0 5 12:18 9
Njarðvík 9 2 1 6 8:17 7
Magni 8 1 2 5 10:23 5
HM kvenna
16-liða úrslit:
Spánn – Bandaríkin..............................1:2
Jennifer Hermoso 9. – Megan Rapinoe 7.
(víti), 76. (víti).
Bandaríkin mæta Frakklandi í 8-liða
ú..
Svíþjóð – Kanada ..................................1:0
Stina Blackstenius 55.
Svíþjóð mætir Þýskal. í 8-liða úrslitum.
Svíþjóð
Norrby – Syrianska ..............................3:2
Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leik-
inn fyrir Syrianska.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Ásvellir: Haukar – FH ..........................19.15
Eimskipsvöllur: Þróttur R – ÍA ...........19.15
4. deild karla:
Víkingsvöllur: Mídas – Vatnaliljur ...........20
Stokkseyri: Stokkseyri – Berserkir .........20
Þróttarvöllur: Kóngarnir – KÁ.................20
FRJÁLSAR
Vormót ÍR-inga í frjálsum íþróttum verður
haldið í 77. sinn á Laugardalsvellinum og
hefst klukkan 17.30.
Í KVÖLD!