Morgunblaðið - 25.06.2019, Side 40

Morgunblaðið - 25.06.2019, Side 40
Kvartett söngkonunnar Helgu Maríu Ragnarsdóttur kemur fram á KEX hosteli við Skúlagötu í kvöld kl. 20.30. Helga stundar nám við djassdeild tónlistarháskólans í Pi- teå í Svíþjóð. Með henni leika þau Sara Mjöll Magnúsdóttir á píanó, Valdimar Olgeirsson á kontrabassa og Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur og hyggst kvartettinn túlka nokkra vel valda standarda. Kvartett Helgu Maríu flytur valda standarda ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Valur og Breiðablik mætast í hrein- ræktuðum toppslag í næstu umferð úrvalsdeildar kvenna í fótbolta, bæði með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Það stóð þó tæpt í gær- kvöld en Agla María Albertsdóttir tryggði Breiðabliki 2:1-sigur á HK/ Víkingi með marki í uppbótartíma. Keflavík vann 5:0-stórsigur á Stjörnunni og fór úr fallsæti. »34 Agla María bjargaði Blikum fyrir horn ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Bandaríkin, ríkjandi heimsmeistari, eru komin í 8-liða úrslit HM kvenna í fótbolta í Frakklandi og hafa þar með komist á það stig keppninnar í öll átta skiptin sem hún hefur verið haldin. Svíþjóð komst einnig í 8- liða úrslit í gær með 1:0-sigri á Kanada og mætir Þýskalandi. Bandaríkjakonur mæta hins vegar heimaliði Frakka eftir að hafa slegið út Spánverja með 2:1- sigri þar sem þær fengu tvær víta- spyrnur. Með sigri jafna Bandaríkin met sem Nor- egur hefur átt í 20 ár. »33 Bandaríkin segja ekki upp áskriftinni SLIPPFÉLAGIÐ Skútuvogi 2 og Fellsmúla 26, Reykjavík, s. 588 8000 Dalshrauni 11, Hafnarfirði, s. 588 8000 Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, s. 421 2720 Gleráreyrum 2, Akureyri, s. 461 2760 Opið: 8-18 virka daga, 10-14 laugardaga slippfelagid.is Útimálning sem endist og endist MÁLA Í SUMAR? VITRETEX vatnsþynnanleg akrýlmálning á steininn og HJÖRVI vatnsþynnanleg akrýlmálning á járn og klæðningar. Hágæða efni sem þola íslenskt veðurfar. Reynslan er dýrmæt og við byggjum á henni. – Komdu og fáðu faglegar ráðleggingar áður en þú byrjar verkið. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jón Baldursson var tekinn inn í frægðarhöll Bridgesambands Evr- ópu í liðinni viku og er sennilega fyrsti Íslendingurinn sem er tekinn inn í alþjóðlega frægðarhöll. Frægð- arhöll Bridgesambands Evrópu var stofnuð 2017 og þá voru átta brids- spilarar teknir inn, tveir í fyrra og tveir núna. „Þetta er óvænt ánægja,“ segir Jón, sem gat ekki verið við- staddur útnefninguna, þar sem hann vissi ekki af henni með nægum fyr- irvara. Brids hefur verið sem rauður þráður í lífi Jóns frá hausti 1972. „Ég hef oft sagt skákmönnum að eftir að hafa fylgst með Bobby Fischer sigra Boris Spassky í einvíginu á heims- meistaramótinu í Reykjavík hafi ég séð hvað Fischer var góður og að ég ætti enga möguleika í skákinni og því skipt yfir í bridsið,“ segir hann. Bæt- ir við að hann hafi reyndar verið byrjaður að handleika spilin áður. Jón var fyrst valinn í landsliðið 1975, þá 21 árs, er enn í fremstu röð, hefur spilað lengur en nokkur annar með landsliðinu og á um 600 lands- leiki að baki. Hann hefur 15 sinnum orðið Íslandsmeistari í sveitakeppni, oftast allra, og sex sinnum í tvímenn- ingi. Fyrir skömmu varð hann Norð- urlandameistari í fimmta sinn og hef- ur enginn Norðurlandabúi fagnað sigri eins oft. Hann hefur tvisvar orð- ið óopinber Norður-Ameríkumeistari og heimsmeistaratitlinum fagnaði hann með liðsfélögum sínum fyrir tæplega 30 árum. Fyrst í landsliðið 1975 „Heimsmeistaratitillinn 1991 stendur auðvitað upp úr,“ segir Jón. „Það er hápunkturinn og erfitt verð- ur að gera betur.“ Hann segir að gaman hafi verið að fagna Norður- landameistaratitlunum og óopinberi heimsmeistaratitillinn í einmenningi 1994 sé eftirminnilegur. Sigur í liða- keppni í sömu keppni 1996, þar sem fjórir Íslendingar hafi verið í liði með tveimur breskum konum, hafi líka verið ánægjulegur. „En þetta er allt skemmtilegt.“ Jón segir að fjölbreytileikinn sé það skemmtilegasta við bridsið. „Það er allt í þessu,“ segir hann og nefnir til dæmis samspilið, spennuna, út- reikningana, mat á mótherjum og stöðumat. Hann segist ekki æfa eins mikið og áður og hugsi oft um hvort ekki sé komið nóg en hafi alltaf vikið slíkum hugsunum í burtu um leið. „Evrópumótið er á næsta ári,“ bendir hann á. Mótin eru orðin mörg og glæstir sigrar safnast saman. Í vetur sigruðu Jón og Sigurbjörn Haraldsson, spila- félagi hans síðan 2013, á sterku boðs- móti í Rússlandi. Mótið er til minn- ingar um rússneskan skákmann, sem dó ungur, og haldið árlega. 20 erlend- um pörum er boðið en 44 rússnesk pör vinna sér þátttökurétt. „Það er gott að spila með Sigurbirni því hann er núna bestur hjá okkur.“ Þegar allir þeir bestu geta spilað með landsliðinu segir Jón að það sé vel samkeppnisfært við bestu lands- lið heims. „Vandamálið er að við höf- um oft verið í vandræðum með að safna saman okkar bestu mönnum í eitt lið.“ En hann er bjartsýnn á framtíðina og þakklátur fyrir auð- sýndan heiður. „Mér vitanlega fylgja hvorki réttindi né skyldur útnefning- unni.“ Morgunblaðið/Eggert Frægðarhöll Jafet Ólafsson, formaður Bridgesambands Íslands, afhendir Jóni Baldurssyni viðurkenninguna í gær. Jón á enn einn stallinn  Er sennilega fyrsti Íslendingurinn sem er tekinn inn í al- þjóðlega frægðarhöll  Norðurlandameistari oftast allra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.