Morgunblaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 6. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 148. tölublað 107. árgangur
afsláttur í dag
99%
Sólríkt ævintýri
fyrir börnin
GESTIR ÞURFA AÐ
FARA ÚR SKÓNUM Í
HAFNARHÚSINU
SPJARA
SIG VEL
VEIÐIHÚS Í
VANDA VEGNA
VEÐURBLÍÐU
MJALDRARNIR VIÐ GÓÐA HEILSU 11 VIÐSKIPTAMOGGINNRAGNHEIÐUR KÁRADÓTTIR 28
Á Íslandi var á
síðasta ári hæst
verðlag miðað
við meðaltal
ríkja Evrópu-
sambandsins.
Verðlagið hér á
landi var 56% of-
an meðaltals
ESB-ríkjanna.
Þetta kemur
fram í tölum
Hagstofu Evrópu, Eurostat, fyrir
árið 2018. Samkvæmt þeim er
verðlag á Íslandi vel ofan með-
altals ESB í öllum vöru- og þjón-
ustuflokkum. Þá er Ísland efst á
blaði í nokkrum flokkum, t.d. verð-
lagi almenningssamgangna og
verðlagi fatnaðar.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir það ekki
nýjar fréttir að verðlag á Íslandi sé
einna hæst í Evrópu. Þó verði að
gera fyrirvara um há laun hér á
landi og að verðbólga skipti miklu
þegar rætt sé um verðlag. »4
Ísland trónir á
toppnum í verðlagi
Verðlag Ísland 56%
ofan meðaltals.
Liðsmenn bresku hljómsveitarinnar Duran Dur-
an virtust engu hafa gleymt þegar þeir stigu á
svið Laugardalshallar í gærkvöldi. Á meðal
fyrstu laga sem hljómuðu á tónleikum sveit-
arinnar voru A View To A Kill og The Wild Boys
sem lengi hafa notið vinsælla. Áhorfendur voru
sömuleiðis vel með á nótunum í Höllinni. Þetta
voru aðrir tónleikar Duran Duran hér á landi en
þeir fyrri voru í Egilshöll árið 2005.
Morgunblaðið/Hari
Duran Duran í góðu stuði í Laugardalshöll
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Forsvarsmenn Icelandair Group
stefna að því að ljúka viðræðum við
Airbus og Boeing um framtíðar-
skipan flugvélaflota félagsins fyrir
lok septembermánaðar. Samninga-
nefndir frá flugrisunum tveimur
hafa átt allnokkra fundi með lyk-
ilstarfsmönnum Icelandair hér á
landi á undanförnum vikum. Einn-
ig hafa einhverjir fundir átt sér
stað á starfsstöðvum Boeing í
Bandaríkjunum og skrifstofum Air-
bus í Evrópu. Á nýafstaðinni flug-
sýningu í París, sem haldin er ann-
að hvert ár, reyndist Airbus
hlutskarpari aðilinn þegar kom að
nýjum pöntunum frá flugfélögum
og flugvélaleigufyrirtækjum. Þar
vakti ekki síst athygli mikil vel-
gengni vélar sem nefnd hefur verið
Airbus A321XLR og búist er við að
afhent verði kaupendum frá árinu
2023. Er sú vél talin álitlegur arf-
taki Boeing 757-200-vélanna sem
reynst hafa hryggjarstykkið í flota
Icelandair allt frá árinu 1990. Hins
vegar bíður flugheimurinn enn í of-
væni eftir að sjá meira af vél sem
Boeing segist vera með á teikni-
borðinu og líklega mun fá tegund-
arheitið 797. Sú vél er talin munu
hafa á að skipa eiginleikum 757-
vélanna og þar með geta hentað vel
í flota Icelandair. Hins vegar er
markaðurinn orðinn vantrúaður á
að Boeing muni takast að afhenda
þá vél frá árinu 2025 eins og talað
hefur verið um. Áhöld eru um
hvort Icelandair geti beðið mikið
lengur með að skipta út 757-vél-
unum sem allar eru að komast til
ára sinna. »ViðskiptaMogginn
Funda stíft með risunum
Samninganefndir frá Boeing og Airbus funda títt hér á landi með Icelandair
Flóknir samningar
» Icelandair stefnir að því að
vera með 50 vélar í flota sínum
árið 2025.
» Stefnt er að því að félagið
verði með minnst 16 737 MAX-
vélar í flota sínum innan tíðar.
» Breyttar áherslur gætu kall-
að á tuga og hundraða millj-
arða fjárfestingu.
Mette Frederiksen, formaður
jafnaðarmanna, er nýr forsætisráð-
herra Danmerkur. Hún mun leiða
minnihlutastjórn flokks síns, sem
studd verður af þingmönnum Ein-
ingarlistans, Sósíalíska þjóð-
arflokksins og Radikale Venstre.
Samanlagt hafa flokkarnir 91 sæti,
93 séu þingmenn færeyskra og
grænlenskra systurflokka með-
taldir, af 175 á danska þinginu. Kos-
ið var til þings 5. júní.
„Það er mikið gleðiefni að okkur
hafi nú, eftir þriggja vikna við-
ræður, tekist að mynda nýja sósíal-
demókratíska ríkisstjórn í Dan-
mörku,“ sagði Frederiksen við
blaðamenn í Kristjánsborgarhöll í
gærkvöldi en blaðamenn höfðu beð-
ið allan daginn á meðan leiðtogarnir
lögðu lokahönd á stjórnarsáttmála.
AFP
Í forsæti Mette Frederiksen vann sigur í
kosningunum í Danmörku 5. júní.
Frederiksen nýr for-
sætisráðherra Dana