Morgunblaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Höfnin Ísborg og Hera sigla úr Ísa- fjarðarhöfn í fyrra skiptið. Fiskiskipin tvö sem sigla á frá Ísa- firði til Belgíu, Ísborg ÍS 250 og Hera ÞH 60, þar sem þau verða rifin í brotajárn, þurftu að snúa við í fyrrinótt vegna bilunar í rafmagni. Þau voru þá komin fyrir Straumnes. Skipin komu til Ísafjarðar í gær- morgun. Arnar Kristjánsson útgerð- armaður sagði í gærkvöldi að verið væri að gera við bilunina og skipin færu aftur af stað um miðnætti eða í nótt. Ísborg siglir fyrir eigin vél- arafli og dregur Heru. helgi@mbl.is Reyna aftur við Belgíu 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Skoðið úrvalið á facebook DimmalimmReykjavik 40-60% afsláttur af útsölufatnaði 20-40% afsláttur af skóm Útsalan er hafin Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ráðist verður í frekari hagræðingu  Með fjölgun póstboxa má fækka pósthúsum Íslandspósts á höfuðborgarsvæðinu úr 8 í 4 til 5 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nýr forstjóri Íslandspósts segir að stjórnendur einbeiti sér að því að taka til í rekstri fyrirtækisins, ekki síst yfirbyggingu. Birgir Jónsson segir að viðskiptavinir fyrirtækis- ins hafi upplifað skerta þjónustu og allar aðrar leiðir verði reyndar áð- ur en farið verði frekar út á þá braut. Skýrsla sem Ríkisendurskoðun gerði fyrir Alþingi um Íslandspóst var kynnt á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gærmorgun. Þar eru settar fram nokkrar til- lögur til úrbóta. Meðal annars kemur fram það álit ríkisendur- skoðanda að ástæða sé til að ráðast í margvíslegar hagræðingaraðgerð- ir, einkum að sameina enn frekar dreifikerfi bréfa og pakka í þétt- býli. Stafræn þjónusta er lykillinn Í skýrslunni eru rifjuð upp áform fyrirtækisins um að auka notkun póstboxa og sjálfvirkni í póstaf- greiðslu. Meðal annars standi til að fjölga póstboxum á landsbyggðinni. Þá sé stefnt að því að auka sjálf- virkni í afhendingu sendinga og rafræn samskipti í því efni. Með þessu sé unnt að fækka pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu úr 8 og niður í 4-5. Í gær tilkynnti Íslandspóstur um skipulagsbreytingar, annars vegar fækkun framkvæmdastjóra og hins vegar flutning skrifstofa fyrirtækis- ins. Birgir segir að tilviljun hafi ráð- ið því að áherslur nýs forstjóra voru kynntar sama dag og skýrslan. Megintilgangur breytinganna er að setja þjónustu Íslandspósts í for- gang og þá sérstaklega stafræna þjónustu. Birgir segir að leggja þurfi mun meiri áherslu á stafræna þjónustu og stafræna ferla. Það sé lykillinn að allri hagræðingu. Nú eru átta póstbox, flest á höf- uðborgarsvæðinu. Þangað geta við- skiptavinir sótt pakka sína í stað pósthúss. Birgir segir að þetta kerfi sé ekki nógu þjált fyrir viðskipta- vini. Forsenda þess að auka þessa þjónustu er að allt utanumhald verði með stafrænum hætti. Tekið til í rekstrinum Birgir segir að tilkynningin í gærmorgun sé fyrsta skrefið í hag- ræðingaraðgerðum. Telur hann unnt að spara meira í rekstri og áherslan á næstunni verði á það, meðal annars að draga úr kostnaði við yfirbyggingu. Segir Birgir að viðskiptavinir hafi upplifað mikla skerðingu þjónustu með fækkun pósthúsa, breytingum á útburði og hækkun gjaldskrár og vill leggja áherslu á tiltekt í rekstrinum áður en gripið verði til þess að skerða þjónustuna frekar. Morgunblaðið/Eggert Pósturinn Draga þarf úr kostnaði. Stjórn Lífeyrissjóðs verslunar- manna (LV) vinnur að því að svara fyrirspurnum Fjármálaeftirlitsins (FME) varðandi útskiptingu VR á sínum fjórum stjórnarmönnum. Frestur til að svara erindinu rennur út á hádegi í dag og segir Ólafur Reimar Gunnarsson, formaður stjórnar LV, að svarið verði sent tímanlega fyrir þann tíma. Í kjölfar þess að VR ákvað að aft- urkalla umboð stjórnarmanna sinna og tilnefna nýja sendi FME fyrir- spurn til stjórnar sjóðsins um fyr- irkomulag tilnefninga og það sem stofnunin telur íhlutun í störf stjórn- ar. Ólafur segir að stjórnin hafi falið lögmanni að fara yfir málið og skrifa drög að svari. Ólafur segir að það flæki málið að ekki sé búið að staðfesta nýjar sam- þykktir lífeyrissjóðsins, þar sem kveðið er á um það hvernig standa skuli að tilnefningu fólks í stjórn. Nýtt fyrirkomulag var ákveðið í samningum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands en sam- þykktirnar taka ekki gildi fyrr en fjármálaráðuneytið hefur staðfest þær, að fenginni umsögn FME. Ólaf- ur segir ljóst að það gerist ekki fyrr en í haust. VR hefur unnið sam- kvæmt þessum tillögum að sam- þykktum við sínar tilnefningar. FME virðist vera að skoða málið út frá gömlu samþykktunum og hvaða áhrif þær nýju kunni að hafa. Sitja að beiðni FME Ólafur Reimar og hinir þrír fulltrúar VR í stjórn LV ákváðu að sitja áfram til bráðabirgða þrátt fyr- ir ákvörðun VR. Ólafur Reimar segir að það sé gert í framhaldi af þeim skilaboðum frá FME að ef þeir segi af sér eigi varamenn að taka þeirra sæti, ekki þeir fulltrúar sem VR vill nú tilnefna í þeirra stað. helgi@mbl.is Stjórn LV svarar FME í dag  FME vill vita um íhlutun og til- nefningar í stjórn Morgunblaðið/Eggert Höfuðstöðvar Lífeyrissjóður versl- unarmanna er í Húsi verslunarinnar. Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst í gær- kvöldi í Reykjavík með því að keppendur í ein- staklingskeppni og Hjólakrafti lögðu af stað en þeir hjóla hringinn í kringum landið. „Þetta fór vel af stað og mikill hugur í fólki og stemmning hjá Hjólakraftskrökkunum,“ sagði Björk Krist- jánsdóttir keppnisstjóri. Keppendur í flokkum A og B sem eru fjögurra og tíu manna lið, leggja svo í hann í kvöld. Mikill hugur í þátttakendum í hjólreiðakeppni Morgunblaðið/Hari Keppni hófst í WOW Cyclothon í gærkvöldi Stjórn Arion banka hefur ráðið Benedikt Gíslason verkfræðing í starf bankastjóra. Benedikt hefur umfangsmikla reynslu af störf- um á íslenskum fjármálamarkaði, m.a. með setu í stjórn Kaupþings og Arion og í starfs- hópi um afnám fjármagnshafta. Benedikt Gíslason Benedikt nýr banka- stjóri Arion banka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.