Morgunblaðið - 26.06.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Samanburður á neysluútgjöldum
heimila í löndum Evrópu sýnir að
verðlag á Íslandi er hæst. Þetta
kemur fram í tölum Hagstofu Evr-
ópu, Eurostat, fyrir síðasta ár.
Verðlag hér á landi er samkvæmt
tölunum 56% hærra en meðaltalið í
ríkjum ESB. Næstu lönd á eftir Ís-
landi í upptalningu Eurostat eru
Sviss, 52%, Noregur, 48%, Dan-
mörk, 38% og Írland, 27%, en öll
Norðurlöndin eru meðal tíu efstu.
Ofarlega í öllum flokkum
Í úttekt Eurostat yfir verðlag ein-
stakra vöru- og þjónustuflokka í ríkj-
um ESB og EFTA er verðlag á Ís-
landi ofan meðaltals ESB í öllum
flokkum, en þeir eru tíu talsins í út-
tektinni: verðlag á húsnæði, mat og
drykk, fatnaði, húsgögnum, almenn-
ingssamgöngum, áfengi og tóbaki,
ökutækjum og tengdum útgjöldum,
fjarskiptum, tómstundum og menn-
ingu auk verðlags á hótelgistingu,
veitingastöðum, börum og kaffihús-
um. Tölurnar í töflunni til hliðar eru
námundaðar að heilum tölum.
Verðlag hér á landi er lengst frá
meðalverðlagi ESB í flokki hótel-
gistingar, veitingastaða, kaffihúsa
og bara og er það 76,1% hærra hér á
landi heldur en í ESB-ríkjum að
meðaltali.
Minnsti munur á íslensku verðlagi
og verðlagi í ESB er í flokki hús-
gagna, en verðlag hér er þó 18,3%
hærra en í löndum ESB. Í þessum
flokki trónir Lúxemborg á toppnum
þar sem verðlag er 20,6% hærra en
meðaltalið í ESB.
Varnagla verður að hafa í huga
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir það ekki nýj-
ar fréttir að verðlag á Íslandi sé
einna hæst í Evrópu. „Við höfum
verið að sveiflast milli fyrsta og
þriðja sætis eftir gengi,“ segir hann
og nefnir að tvo fyrirvara verði að
gera þegar um verðlag ræði. Hann
segir að fjallað hafi verið um mál-
efnið á þingi ASÍ og Neytendasam-
takanna í vor. „Þar færði Gylfi
Magnússon, [dósent við viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands], ágætis-
rök fyrir því að þetta þyrfti að setja í
samhengi við laun. Hér á Íslandi er-
um við með einna hæstu meðallaunin
í Evrópu. Meðaltal er aftur bara
meðaltal; þegar þú ert með annan
fótinn í ísköldu vatni og hinn fótinn í
brennheitu vatni, þá hefurðu það að
meðaltali gott,“ segir hann.
Verðbólgu sé haldið í skefjum
Þá nefnir Breki einnig að verð-
bólgan sé lykilatriði í þessu sam-
hengi. „Það sem skiptir kannski
meira máli er hröðun á hækkun
verðlags, það sem við köllum verð-
bólgu, þ.e. að henni sé haldið í skefj-
um. Ef svo er ekki, þá verður mis-
ræmi milli launa og verðlags og
kaupmáttur færist í rauninni á milli
á tilviljunarkenndan og óréttlátan
hátt,“ segir hann. Það sé sameigin-
legt verkefni allra að halda verð-
bólgu í skefjum.
Verðlag á Íslandi hæst í Evrópu
Verðlag hér á landi var 56% hærra en í ESB-ríkjunum á síðasta ári Ofan meðaltals í öllum flokkum
76,1% hærra á hótelgistingum og veitingastöðum Nauðsynlegt að taka tillit til launa og verðbólgu
Verðlag á Íslandi í samanburði við ríki ESB
Sviss 174
Írland 157
Bretland 157
Lúxemborg 156
Danmörk 153
Noregur 144
Ísland 134
Finnland 132
Holland 125
Belgía 114
Frakkland 113
Þýskaland 111
Svíþjóð 106
Austurríki 103
ESB 100
Spánn 92
Ítalía 91
Portúgal 76
Kýpur 73
Slóvenía 72
Tékkland 63
Eistland 62
Grikkland 61
Lettland 57
Malta 52
Slóvakía 47
Króatía 43
Litháen 43
Ungverjal. 42
Rúmenía 39
Pólland 37
Búlgaría 33
Ísland 145
Noregur 143
Holland 134
Danmörk 131
Sviss 127
Bretland 127
Þýskaland 118
Finnland 115
Austurríki 113
Írland 12
Belgía 105
Frakkland 105
Svíþjóð 101
ESB 100
Slóvenía 96
Kýpur 94
Portúgal 90
Króatía 86
Spánn 80
Ítalía 77
Grikkland 76
Lúxemborg 70
Ungverjal. 67
Malta 67
Litháen 62
Eistland 62
Lettland 60
Slóvakía 58
Rúmenía 55
Pólland 54
Tékkland 53
Búlgaría 47
Sviss 164
Noregur 161
Ísland 150
Danmörk 130
Lúxemborg 127
Austurríki 127
Finnland 119
Írland 118
Svíþjóð 118
Frakkland 116
Belgía 114
Ítalía 113
Malta 111
Kýpur 108
Grikkland 105
Þýskaland 102
Holland 101
ESB 100
Portúgal 98
Slóvenía 98
Spánn 96
Króatía 96
Eistland 95
Bretland 93
Slóvakía 32
Lettland 91
Ungverjal. 84
Tékkland 83
Litháen 80
Búlgaría 75
Pólland 68
Rúmenía 65
Ísland 150
Danmörk 139
Noregur 131
Svíþjóð 126
Sviss 122
Finnland 121
Eistland 110
Frakkland 110
Lúxemborg 109
Írland 109
Belgía 106
Holland 106
Austurríki 106
Lettland 106
Litháen 105
Portúgal 104
Malta 104
Slóvakía 102
Ítalía 101
Tékkland 100
ESB 100
Slóvenía 100
Þýskaland 99
Grikkland 98
Kýpur 98
Pólland 96
Króatía 95
Bretland 93
Spánn 92
Ungverjal. 88
Rúmenía 83
Búlgaría 78
Noregur 226
Ísland 213
Írland 178
Bretland 157
Finnland 145
Svíþjóð 127
Sviss 120
Frakkland 113
Danmörk 113
Holland 106
Belgía 105
ESB 100
Malta 99
Grikkland 96
Ítalía 95
Þýskaland 95
Austurríki 95
Eistland 94
Portúgal 92
Kýpur 90
Lúxemborg 90
Spánn 85
Lettland 84
Slóvenía 78
Króatía 77
Litháen 77
Slóvakía 75
Tékkland 74
Pólland 70
Rúmenía 70
Ungverjal. 69
Búlgaría 58
Húsnæði Matur Almenningssamgöngur Fatnaður Áfengi og tóbak
Heimild: Eurostat
AB 31108
5 HLEMMUR
TRÆTÓ
nákvæmri staðsetningu baugsins
fyrr en kúlan kom en hún segir að
flestir sem ferðist til Grímseyjar
viti orðið af kúlunni, búist við því
að sjá hana og verði vonsviknir
þegar þeim er tjáð að ekki sé tími
til þess. Guðrún segir aðkomuna
að kúlunni vera subbulega, sér-
staklega eftir að rignir. „Þetta er
ekki annað en keyrður slóði sem
er bara drullusvað,“ segir Guðrún.
„Það gleymdist alveg að hugsa
dæmið til enda að það væri hægt
að komast þangað auðveldlega.“
Guðrún segir bæjarbúa ekki
bjartsýna um að breytingar verði á
málum varðandi kúluna í bráð.
„Við getum náttúrulega ekkert
gert. Það er búið að búa til þetta
„concept“ í kringum hana og þetta
er orðið þekkt. Við vildum bara
óska þess að hún hefði aldrei kom-
ið.“
heimamenn vilja færa hana nær
bænum.
Dregur ferðamenn úr bænum
Þetta staðfestir Guðrún en hún
segir að kúlan hafi lítið jákvætt
gert fyrir íbúa Grímseyjar. „Það
sem kúlan hefur aðallega gert er
að hún dregur alla ferðamenn úr
bænum. Það er þriggja tíma gang-
ur frá bryggjunni, fram og til
baka, sem er mjög hæpið þegar
fólk er að koma með flugi og hefur
aðeins einn og hálfan tíma,“ segir
hún. „Áður var heimskautsmerkið
bara rétt hjá flugvellinum og allir
voru alsælir að ganga þar yfir.“
Guðrún segir að kostnaður við
kúluna sé gríðarlegur og að mikil
vinna fylgi henni en átta tonna
kúlan er færð árlega til þess að
hún fylgi heimskautsbauginum.
Guðrún segir að enginn hafi pælt í
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Listaverkið „Orbis et Globus“, átta
tonna steinkúla sem hefur verið
kennileiti heimskautsbaugsins á
Grímsey síðan haustið 2017 hefur
verið milli tannanna á fólki í bæn-
um frá því hún var færð á eyjuna.
Þetta staðfestir Guðrún Inga
Hannesdóttir sem situr í hverf-
isráði Grímseyjar en mikil umræða
skapaðist um kúluna, sem var
vinningstillaga Kristins E. Hrafns-
sonar og Studio Granda í sam-
keppni um nýtt kennileiti fyrir
heimskautsbauginn, á íbúafundi
sem haldinn var snemma í mán-
uðinum.
Í fundargerð íbúafundarins kem-
ur fram að ferðamönnum finnist
þeir sviknir að fara ekki að kúl-
unni í leiðsögnum og að sumir
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Listaverk Grímseyingar eru ekki hrifnir af „Orbis et Globus“, kennileiti fyrir hinn síbreytilega heimskautsbaug.
„Vildum óska að hún
hefði aldrei komið“
Grímseyingar ósáttir við steinkúluna „Orbis et Globus“
Tæplega 1.300 færri farþegar
nýttu sér næturakstur Strætó bs.,
svokallaðan næturstrætó, á fyrstu
fimm mánuðum þessar árs en í
fyrra. Mest var fækkunin í maí,
eða fækkun um 511 farþega.
Nú vonast Strætó til að fjölga
farþegum með því að vekja at-
hygli á næturakstrinum.
„Notkunin hefur minnkað en
stærsta tímabilið er svo fram und-
an,“ segir Jóhannes Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Strætó bs.
„Við ætlum að auglýsa þetta og
sjá hvort við getum aukið notk-
unina aðeins með því.“
Jóhannes segir að margir séu
ekki meðvitaðir um valkostinn.
„Stundum virðist fólk ekki átta
sig á því að það sé svona þjón-
usta til staðar. Þó svo að við höf-
um auglýst þjónustuna þegar
þetta byrjaði, þá teljum við að
það sé full ástæða til þess að
minna á þetta.“ Engar breyt-
ingar eru fyrirhugaðar á leiða-
kerfi næturstrætó en ein leið var
felld niður í byrjun árs og breyt-
ingar gerðar á öðrum leiðum
sem gætu skýrt samdráttinn að
hluta.
„Þetta er alltaf til skoðunar og
menn meta árangurinn af þessu
og taka síðan ákvörðun í fram-
haldinu,“ segir Jóhannes.
Hann bendir á að mikilvægt sé
að þau nýti sér þjónustuna sem
vilja að hún sé í boði.
„Ef fólk vill nota þetta þá er
alltaf meiri grunnur til þess að
styrkja þjónustuna, ef fólk vill
ekki nota þetta þá þarf bara að
skoða hvort það sé kostnaðarins
virði að halda þessu uppi.“
Ýmsar óánægjuraddir heyrðust
þegar átti að leggja þjónustuna
niður um síðustu áramót.
ragnhildur@mbl.is
1.300 færri nýttu sér næturakstur Strætó