Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
Ekki er langt síðan þriggja mannaþingflokkur fékk vinnustaðasál-
fræðing til að ná utan um stjórnmála-
legan ágreining. Flokkur, sem vildi
segja íslenskri þjóð eitt „áður en ég
dey“ setti fullveldið í öndvegi alls þess
sem vert væri að berjast fyrir. Þau
fögru fyrirheit voru seld ódýrt fyrir
ráðherrastóla vorið 2009. Páll Vil-
hjálmsson skrifar:
Forveri Vinstrigrænna, Alþýðu-
bandalagið, var með ut-
anríkismálin á hreinu.
Fullvalda Ísland, úr
Nató og herinn burt.
Vinstri græn Stein-gríms og Katrínar
sturtuðu fullveldinu
niður í skolpið 16. júlí
2009 þegar þau sam-
þykktu ESB-umsókn
Samfylkingar.
Andstaðan við Nató og herinnhvarf eins og dögg fyrir sólu
þegar Vinstri græn gengu í eina
sæng með Sjálfstæðisflokknum.
Fullveldismál og andstaða viðhernaðarbrölt skilgreindu rót-
tæka vinstrimenn á Íslandi í áratugi.
Án utanríkismála hefði Alþýðu-
bandalagið ekki orðið til.
Hvað er eftir hjá Vinstri grænumþegar utanríkismálin eru núllið
eitt?
Jú, gervivísindi um manngerðahnattræna hlýnun annars vegar
og hins vegar sykurskattur Svandís-
ar.
Nennir einhver að púkka upp á
ósykruð hjávísindi?
Tæplega eru þeir margir.“
Páll
Vilhjálmsson
Þarf dulsálfræðing
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Tillaga til þingsályktunar um að flýta óháðri út-
tekt á Landeyjahöfn, sem allir þingmenn Suður-
kjöræmis fluttu, fékk ekki afgreiðslu fyrir þing-
frestun. Tillagan var lögð fram á Alþingi í maí sl.
Tillögunni var vísað til meðferðar hjá umhverfis-
og samgöngunefnd þingsins, þar sem hún sofnaði
svefninum langa.
Vildu þingmennirnir að Alþingi fæli sveitar-
stjórnarráðherra að láta nú þegar hefja óháða út-
tekt á Landeyjahöfn.
Í greinargerð segir að ástandið í Landeyjahöfn
sé hvorki boðlegt íbúum Vestmannaeyja né öðrum
sem treysta þurfa á greiðar samgöngur milli lands
og Eyja.
Í fyrirliggjandi samgönguáætlun sé gert ráð
fyrir framlögum til að standa undir kostnaði við
rannsóknir, öryggismál, gerð óháðrar úttektar og
framkvæmdum sem auðvelda eiga að halda nægu
dýpi í höfninni. Þingmenn Suðurkjördæmis vildu
að þessari úttekt yrði flýtt og henni lokið fyrir
næstu áramót. Vildu þeir fá svör við því hvaða ráð-
stafanir þurfi að gera til að halda Landeyjahöfn
opinni allt árið og hvað slíkar aðgerðir muni kosta.
Nú er ljóst að þeim verður ekki að ósk sinni í þess-
ari atrennu, a.m.k.
Ef ráðherra hefur ekki sett verkefnið af stað í
haust hyggjast þingmennirnir endurflytja tillög-
una á 150. lögjafarþinginu. sisi@mbl.is
Ósk um úttekt sofnaði í nefnd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landeyjahöfn Hefur lengi verið til vandræða.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sólskinsveðrið í júní hefur áhrif á
sölu sumarferða og hafa færri bók-
að ferðir til sólarlanda á síðustu
stundu í ár en í fyrra, að sögn Ingi-
bjargar Elsu Eysteinsdóttur, for-
stöðumanns Úrvals-Útsýnar. Hún
segir þó að salan á sólarlandaferð-
um hafi verið mjög góð í sumar og
ívið betri en í fyrra.
„Samkvæmt okkar sölutölum er-
um við að selja meira í ár en í fyrra.
Hins vegar get ég alveg viðurkennt
það að veðrið sem var hérna í júní
hafði alveg áhrif á söluna,“ segir
hún, og á þá við ferðir sem bókaðar
eru á síðustu stundu. Salan hafi
ekki minnkað en sölumynstrið
breyst, fólk hafi farið að bóka
seinna í sumar og fram á veturinn.
„Þar fundum við breytinguna.
Fólkið var ekki að hoppa út í næstu
viku eða eftir tvær vikur,“ segir
hún.
Jenný Ólafsdóttir, ferðaráðgjafi
hjá Sumarferðum, tekur í sama
streng og segir að góða veðrið í júní
hafi haft áhrif á sölu en svo heppi-
lega hafi viljað til að fólk hafi verið
búið að tryggja sér ferðir. Í fyrra-
sumar hafi allar ferðir selst upp og
færri komist að en vildu, enda var
veðrið á höfuðborgarsvæðinu í
fyrrasumar ekki eins og best verður
á kosið.
„Hins vegar hafa þeir sem ekki
náðu að bóka ferð í fyrra, á síðustu
stundu, bókað núna með góðum fyr-
irvara. Það eru margir sem skipu-
leggja fríið með löngum fyrirvara,“
segir hún.
Jóhann Björgvinsson, sölustjóri
Heimsferða, segir að salan hjá
skrifstofunni hafi verið betri í ár en
seinasta sumar. „Salan hefur verið
meiri en síðasta sumar enda höfum
við verið með fleiri sæti í sölu en í
fyrra,“ sagði hann.
Færri bóka sólarlanda-
ferðir á síðustu stundu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sólin Færri taka skyndiákvörðun um að skella sér til útlanda þetta sumarið.
Blíðviðrið í júní hefur áhrif á sölumynstur ferðaskrifstofa
Biskupsstofa hefur tekið á leigu fast-
eignina Katrínartún 4, 3. hæð, í
Reykjavík. Eignin er staðsett á
Höfðatorgi. Stefnt er að því að flytja
í nýja húsnæðið í
haust.
Kirkjuhúsið að
Laugavegi 31, að-
setur biskups og
stofnana kirkj-
unnar, var aug-
lýst til sölu í
Morgunblaðinu
um síðustu helgi.
Sverrir Kristins-
son fasteignasali
hjá Eignamiðlun segir að margir hafi
sýnt húsinu áhuga og byrjað er að
sýna eignina áhugasömum. Sverrir
segir að þessi mikli áhugi sé skilj-
anlegur, því þetta sé eitt fallegasta
húsið í miðborg Reykjavíkur og það
geti nýst fyrir margvíslega starfsemi.
Einar Erlendsson húsameistari
teiknaði húsið. Það var reist á ár-
unum 1928-1930. Það er kjallari og
fjórar hæðir auk geymslulofts. Ekk-
ert verð er sett á húsið en óskað er
eftir tilboðum.
Fram kemur í frétt á heimasíðu
biskups að á nýja staðnum í Katr-
ínartúni verði öll starfsemi Biskups-
stofu sameinuð á einni hæð, þ.m.t.
Þjónustumiðstöð Biskupsstofu, sem
nú er til húsa á neðri hæð í safn-
aðarheimili Háteigskirkju. Gert er
ráð fyrir að allar aðstæður starfs-
fólks, trúnaðarmanna kirkjunnar og
viðskiptavina batni til muna á nýja
staðnum.
Aðgengi batni einnig til muna þar
sem aðgangur er að stóru bílahúsi
sem er undir byggingunum á Höfða-
torgi. Aðgengi að Laugavegi sé oft
og tíðum erfitt, meðal annars vegna
lokana á götum.
Kirkjuhúsið var auglýst til sölu í
janúar 2017 en ekkert varð af sölunni
í það skiptið. sisi@mbl.is
Biskup flytur
í Katrínartún
Kirkjuhúsið til sölu Margir áhugasamir
Agnes M.
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Eggert
Kirkjuhúsið Margir hafa sýnt áhuga
á þessu fallega húsi við Laugaveg.