Morgunblaðið - 26.06.2019, Page 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
AFP
Herlögregla
skaut fimm
háskólanema
Mótmæli gegn forseta Hondúras
Herlögregla í Hondúras skaut og
slasaði að minnsta kosti fimm há-
skólanema á mánudag vegna mót-
mælaaðgera stúdentanna. Hundruð
nemenda við Þjóðarháskóla Hond-
úras (e. National Autonomous Uni-
versity of Honduras) stóðu fyrir
mótmælum á skólasvæðinu og
kröfðust afsagnar forseta landsins,
Juan Orlando Hernandez. Mótmæli
gegn honum hafa staðið yfir í meira
en mánuð en spennan jókst í síðustu
viku þegar þrír voru vegnir í átök-
um tengdum mótmælunum.
„Um fjörutíu herlögreglumenn
komu inn á háskólasvæðið án leyf-
is,“ sagði Armando Sarmiento, yfir-
maður í háskólanum, sem sagði að
herlögreglumennirnir hefðu skotið
á nemendurna úr rifflum.
Í yfirlýsingu frá FUSINA, samein-
aðri þjóðaröryggissveit í Hondúras,
sagði að nemarnir hefðu í mótmæl-
unum notað Molotov-kokteila sem
þeir hefðu átt við svo þeir væru sér-
staklega hættulegir. Sagði í yfirlýs-
ingunni að fjórir „meintir háskóla-
nemar“ hefðu slasast ásamt tveimur
hermönnum sem hlutu brunasár eft-
ir sprengjur nemendanna.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Tilkynnt verður hver tekur við af
Theresu May og sest í forsætisráð-
herrastólinn í Bretlandi 23. júlí næst-
komandi. Þetta kunngjörði Íhalds-
flokkurinn þar í landi í gær, en eins og
víða hefur komið fram standa nú tveir
eftir sem keppast um titilinn; fyrrver-
andi utanríkisráðherrann Boris John-
son og utanríkisráðherrann Jeremy
Hunt.
Til tíðinda dró í gær þegar John-
son, sem þykir líklegastur til að fara
með sigur af hólmi, fór í nokkur fjöl-
miðlaviðtöl og skipulagði kosninga-
viðburði eftir að hafa látið tiltölulega
lítið fyrir sér fara um nokkurt skeið.
Má segja að það hafi verið svar við því
að keppinauturinn Hunt sagði að
hann ætti ekki að vera „bleyða“ með
því að koma sér hjá fjölmiðlaviðtölum.
Johnson hefur verið þekktur fyrir
litríkan persónuleika sinn en hefur,
eins og áður segir, látið nokkuð lítið
fyrir sér fara, sem virðist vera eins
konar kosningataktík hjá Johnson og
teymi hans. Pressa á Johnson um að
hann rjúfi þögnina hefur hins vegar
aukist frá því almenningur fékk af því
fréttir í síðustu viku að læti og öskur
hefðu borist frá húsi Johnsons og
kærustu hans og að lögregla hefði í
kjölfarið þurft að koma að heimilinu.
Þessu tengdu sagði hann við BBC
seint á mánudag að hann hefði aldrei
rætt opinberlega um ástvini sína því
þá væru þeir dregnir inn í hluti með
hætti sem væri „ekki sanngjarnt
gagnvart þeim“.
Búa sig undir engan samning
Pressan á Johnson hefur ekki ein-
ungis snúið að fréttum úr einkalífi
hans en stöðugar kröfur hafa verið
gerðar á hendur honum um að hann
skýri hvernig hann sjái fyrir sér að
Bretland muni yfirgefa Evrópusam-
bandið (ESB). Hefur hann m.a. lofað
að Brexit muni eiga sér stað á þeim
degi sem nú er settur, 31. október, og
sagði í gær að það myndi gerast „hvað
sem kæmi“, en viðurkenndi að hann
myndi þurfa samstarf ráðamanna í
Brussel til að lágmarka efnahagslegt
áfall í kjölfar Brexit. Í einu kosninga-
viðtalanna sem Johnson fór í í gær
sagði hann m.a. að það yrði „fárán-
legt“ ef ESB ætlaði að setja tolla á
breskar vörur ef Bretland yfirgæfi
ESB án samnings.
Þá sagði hann að útgöngusamning-
urinn sem Theresa May barðist fyrir
en kom ekki í gegnum breska þingið
væri „svo gott sem dauður“ og sagði
að Bretland þyrfti að búa sig undir að
„koma út án samnings“.
Boris rauf loksins þögnina í gær
Innan við mánuður þar til tilkynnt verður um nýjan forsætisráðherra Bretlands
AFP
Brexit Johnson í bíl sínum er honum var ekið í útvarpsviðtal í London í gær.
Íranar munu
þann 7. júlí falla
frá fleiri skuld-
bindingum en
þeir höfðu til-
kynnt um tengd-
um kjarnorku-
samkomulagi
þeirra sem gert
var árið 2015.
Frá þessu var
greint í gær en Íranar höfðu 8. maí
sl. tilkynnt að þeir myndu falla frá
tveimur af atriðunum í sam-
komulaginu, og settu Evrópu, Kína
og Rússlandi afarkosti um að ef þau
hjálpuðu ekki Írönum í deilum
þeirra við Bandaríkjamenn myndu
þeir innan tveggja mánaða falla frá
tveimur atriðum samkomulagsins
til viðbótar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
tilkynnti í fyrradag að Bandaríkin
myndu herða þvingunaraðgerðir
sínar gegn Íran, sérstaklega leið-
togum og æðstu embættismönnum
landsins. Þá sagði hann í tísti í gær:
„Hvaða árás frá Írönum á eitthvað
amerískt verður mætt með stór-
kostlegu og yfirþyrmandi afli. Á
einhverjum svæðum mun „yfir-
þyrmandi“ þýða gjöreyðing.“
Þá sagði hann í öðrum tístum að
það eina sem leiðtogar Írans skildu
væri „styrkur og afl“ og að Banda-
ríkin væru „langsamlega vold-
ugasta herafl í heiminum“.
Munu falla frá fleiri
skuldbindingum
ÍRAN
Donald Trump
Fyrsta áhöfnin til að halda til Al-
þjóðlegu geimstöðvarinnar eftir að
geimskot misheppnaðist í október
lenti heilu og höldnu á jörðinni í
gær.
Geimfararnir Anne McClain frá
Bandaríkjunum, Oleg Kononenko
frá Rússlandi og David Saint-
Jacques frá Kanada stigu út úr
geimfari sínu við lófatak viðstaddra
í námunda við borgina Dzhezkazgan
í Kasakstan á þriðja tímanum í gær.
Sagði Kononenko í gríni við lend-
ingu að hann væri glaður að sjá „ein-
hvers konar veður“ eftir að koma ut-
an úr geimnum.
Ferðin gekk vel og var sú fyrsta
hjá McClain og Saint-Jacques. Kono-
nenko hefur aftur á móti farið í fjóra
sambærilega leiðangra.
Komu heil á húfi
úr geimferðinni
KASAKSTAN
Geimfarinn McClain kampakát við
lendinguna í Kasakstan í gær.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Rússum var í gær veitt full aðild á ný að þingi Evrópuráðsins.
Höfðu þeir síðastliðin fimm ár verið án kosningaréttar eftir að
hafa verið sviptir honum í kjölfar innlimunar þeirra á Krímskaga.
118 þingmenn greiddu með tillögunni, 62 greiddu gegn henni og
10 sátu hjá.
Eftir að hafa verið sviptir kosningaréttinum brugðu Rússar á
það ráð að sniðganga þing Evrópuráðsins og hafa síðan 2017 neit-
að að greiða 33 milljóna evra hluta sinn af árlegu fé stofnunar-
innar.
Tillögunni um nýja aðild Rússa var mætt með harðri andstöðu
Úkraínumanna og sagðist úkraínski forsetinn Volodymyr Zelensky
í gær vonsvikinn með niðurstöðu málsins. Minntist hann á að hann
hefði rætt málið við forseta Frakklands, Emmanuel Macron, og
Angelu Merkel Þýskalandskanslara í síðustu viku. „Það er synd að
evrópskir félagar okkar hafi ekki hlustað á okkur,“ sagði hann og
sagðist hafa sagt Macron og Merkel að Rússland ætti einungis aft-
urkvæmt í þing Evrópuráðsins þegar það hefði uppfyllt skyldur
sínar. Átti hann þar við kröfur Úkraínumanna um að Rússum ætti
ekki að veita neina alþjóðlega eftirgjöf fyrr en þeir hefðu látið
Krímskaga af hendi og hefðu látið af stuðningi við aðskiln-
aðarsinna í Austur-Úkraínu.
Rússar aftur á Evrópuuþingið
AFP
Forsetinn Volodymyr Zelensky sagðist í
gær vonsvikinn með nýja aðild Rússa.
Úkraínumenn eru ósáttir við málið