Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GERÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Ártúni 7, Selfossi. Jónína Sigurjónsdóttir Sæmundur B. Ingibjartsson Jón Garðar Sigurjónsson Ólöf Rún Tryggvadóttir Ævar Smári Sigurjónsson Kristín Bjarnadóttir Sigurður Ellert Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLMAR ÁRNI SIGURBERGSSON hljóðfærasmiður, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 19. júní. Útförin auglýst síðar. Jóhanna Snorradóttir Vilberg Pálmarsson Lydía Pálmarsdóttir Vigfús Gunnar Gíslason Ágústína G. Pálmarsdóttir Sigurður Örn Sigurðarson Einar Bergur Pálmarsson Unnur Pálmarsdóttir Gylfi Már Ágústsson afabörn og aðrir aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRT BÍBÍ GÚSTAFSDÓTTIR, Galtalind 1, Kópavogi, lést sunnudaginn 16. júní. Útför hennar fór fram í kyrrþey í Fossvogs- kapellu að ósk hinnar látnu mánudaginn 24. júní. Okkar bestu þakkir til HERA heimaþjónustu og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir góða aðhlynningu og hlýhug. Þökkum auðsýnda samúð. Emil Guðmundsson Kjartan Þór Emilsson María Priscilla Zanoria Ragnar Emilsson Sóley Chyrish Villaespin barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir hlýjar samúðarkveðjur og vinarhug vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður, afa, bróður og mágs, HILMARS PÉTURS ÞORMÓÐSSONAR blaðamanns, sem lést föstudaginn 10. maí. Þökkum öllum, sem komu að umönnun hans. Fyrir okkar hönd og annarra ástvina, Björg Atladóttir Atli Örn Hilmarsson Steinþór Óli Hilmarsson Hilmar Ársæll Steinþórsson Katrín Baldvinsdóttir Steinunn Helga Steinþórsd. Ásgeir Þormóðsson Valgerður Ólafsdóttir ✝ Sigríður Sig-urbjörnsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 28. ágúst 1934. Hún lést á Landakotsspítala 27. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigurbjörn Magnússon, rakari, f. 2. október 1910, d. 20. september 1994, og Gunnþórunn Eg- ilsdóttir, kaupmaður, f. 10. júní 1911, d. 25. febrúar 1999. Bróðir hennar er Örlygur Sigurbjörnsson, bókbindari, f. 29. júní 1945. Sigríður giftist 26. mars 1955 Geir Magnússyni vélstjóra, f. 13. ágúst 1933. Börn þeirra eru: 1) Sigurbjörn, rafsuðumaður, f. 21. nóvember 1953, eiginkona Gulli nóvember 1990, c) Geir, viðskipta- fræðingur, f. 27. nóvember 1990. 3) Hrafnhildur, iðnrekstrarfræð- ingur, f. 9. júní 1959. Börn Hrafn- hildar af fyrri sambúð eru a) Eva María, viðurkenndur bókari, f. 11. ágúst 1979, b) Davíð, rafvirki, f. 6. maí 1984. 4) Magnús, lagerstjóri, f. 30. september 1961, sambýlis- kona Ragnhildur Sumarliða- dóttir, ritari, f. 16. desember 1965. Börn Magnúsar eru af fyrri sambúð a) Geir, verslunarstjóri, f. 2. júlí 1980, b) Sigurbjörn, múrari, f. 19. október 1987, c) Magnús Grétar, lærlingur í húsasmíði, f. 12. janúar 1991. 5) Þorvaldur, kerfisfræðingur, f. 16. nóvember 1966, sambýliskona Auður Árna- dóttir, sjúkraliði, f. 7. maí 1967. Barnabarnabörnin eru tutt- ugu. Sigríður fór í Póstskólann og svo í Tollskólann. Vann hjá Póst- inum, Tollpóstinum og síðast hjá Tollinum í Hafnarfirði þar til hún hætti störfum. Útför Sigríðar fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 26. júní 2019, klukkan 13. Berg, skrifstofu- maður, f. 28. júní 1957. Börn þeirra eru a) Stella, förð- unarfræðingur, f. 17. júní 1974, b) Gunnar, lærlingur í húsasmíði, f. 27. ágúst 1982, c) Aron, verslunarmaður, f. 8. maí 1989. 2) Gunnþórunn, matráður, f. 20. september 1955. Börn Gunnþór- unnar af fyrra hjónabandi eru Haukur, sálfræðingur, f. 14. apríl 1975 og Auður, lyfjatæknir, f. 27. desember 1978, eiginmaður Kristinn Kolbeinsson, viðskipta- fræðingur, f. 3. apríl 1957. Börn þeirra eru a) Sigríður María, læknir, f. 5. ágúst 1989, b) Kol- beinn, viðskiptafræðingur, f. 27. Elsku mamma mín er dáin. Hún var falleg og elskuleg. Örlát, heiðarleg, umhyggjusöm, sam- viskusöm og dugleg. Við vorum nánar og áttum margar skemmti- legar og góðar stundir saman. Hún átti mikið af blómum bæði inni og úti og þær eru margar minningarnar í blómstrandi garð- inum þar sem iðulega var boðið uppá kaffi og vöfflur. Barnabörnin og síðar barnabarnabörnin sóttu í garðinn því þar var hægt að hlaupa um og leika sér. Mamma var mikil blómakona og gaf frá sér blóm í allar áttir. Hún var líka músíkölsk og skapandi en vænst þótti henni um fjölskylduna og stórfjölskylduna sína. Það er svo margt að minnast á. Ég geymi það allt í hjartanu og er þakklát fyrir að hafa átt hana mömmu mína. Þakklát fyrir allt og allt. Guð geymi þig elsku mamma mín. Þín dóttir, Hrafnhildur. Það var í október árið 1950 að foreldrar okkar Einar Egilsson og Margrét Thoroddsen lögðu af stað í mikla ævintýraferð til Mexíkó, með þrjú ung börn, Þórunni 8 mánaða, Egil 2ja og Maríu að verða 5 ára. Faðir okkar hafði þegið tilboð um að taka við stöðu forstjóra Canada Dry verksmiðju í Aguascalientes. Hann talaði reip- rennandi spænsku eftir 5 ára dvöl í Suður-Ameríku og hafði auk þess verið skrifstofustjóri hjá Agli Skallagrímssyni. Til þess að gera þetta ævintýri að veruleika ákváðu þau að falast eftir að systurdóttir föður okkar færi með þeim til að aðstoða með börnin og vera um leið móður okk- ar félagi á framandi slóðum. Það var mikil gæfa fyrir okkur öll að Sigríður, eða Dúrrý, hafði áhuga á þessu ævintýri og fékk leyfi for- eldra sinna í ferðina en hún var þá aðeins 16 ára. Hún og móðir okkar sóttu nokkrar kennslustundir í spænsku svo að þær fengju örlitla hugmynd um tungumálið áður en lagt var í ferðina. Eftir langt flug til New York, þar sem strax kom í ljós hversu dýrmætt var að fá aðstoð Dúrrýj- ar við að hugsa um litlu börnin, fluttum við fjölskyldan á hótel í borginni og biðum þar hátt í tvær vikur þangað til allir pappírar voru komnir í lag í Mexíkó. Í bréfi móður okkar til foreldra sinna segir hún: „Við töldum að það yrði svo erfitt að ferðast með Þórunni litlu í bíl til Mexíkó en erum komin á þá skoðun að það sé allt í lagi, ef við förum bara stutt á hverjum degi, og svo er mikill munur að Þórunn er orðin svo hænd að Dúrrý, að henni er alveg sama hvort hún er hjá henni eða mér.“ Í þessum orðum lýsir móðir okkar mjög vel sambandi okkar systkina við Dúrrý öll árin í Mexíkó en við bjuggum þar í þrjú og hálft ár. Hún sýndi okkar mikla ástúð, var alltaf ljúf og yndisleg. Hún geislaði af glaðværð og feg- urð og söngelsk var hún að auki. Við litum upp til hennar og elsk- uðum og vissum að sú ást var end- urgoldin. Lítli bróðir okkar Sig- urður bættist við síðasta árið okkar í Mexíkó og Dúrrý sjálfri fæddist sonurinn Sigurbjörn þremur mánuðum síðar. Fimmta systkini okkar Margrét fæddist síðar á Íslandi en þó að hún hafi ekki kynnst ástúð Dúrrýjar og umhyggju á Mexíkóárunum eins og við hin, upplifði hún náin tengsl við frænku okkar alla tíð hér heima. Móðir okkar talaði oft um að Dúrrý hefði verið mjög fljót að ná tökum á spænskunni, mun fljótari en hún. Dúrrý var ófeimin við að tala og lét vandamál í málfræðinni ekki draga úr sér kjarkinn enda skilaði það sér fljótt og hún varð altalandi á spænsku á ótrúlega skömmum tíma. Hún var dáð og eftirsótt af stórum hópi vina, sem hún eignaðist í Aguascalientes. Hún varð, auk þess að vera for- eldrum okkar ómetanleg hjálp með okkur börnin, einstaklega ná- in móður okkar og góð vinkona þó að töluverður aldursmunur hafi verið. Hún hélt alla tíð spænsk- unni vel við og kom það sér vel í mörgum ferðum hennar og Geirs eiginmanns hennar til Kanaríeyja síðar meir. Við minnumst og söknum Dúrrýjar mikið, hennar persónu- eiginleika, góðvildar og gæsku. Við vottum Geir, Örlygi og börn- unum innilega samúð okkar. María, Egill, Þórunn, Sigurður og Margrét. Sigríður Sigurbjörnsdóttir Föstudaginn 14. júni, er ég kom út af fundi í Malmö, þar sem ég starfa, biðu mín skilaboð á símanum frá Teddý systur minni: “Mamma er komin á sjúkrahús, veikindin eru mikil og alvarleg“. Ég kláraði vinnudaginn í Malmö en hugurinn var víðs fjarri, hugurinn var hjá mömmu og Teddý sem var hjá henni og hélt í höndina á henni. Ég og Ella mín fylgdumst með í fjarlægð og báðum um allan þann styrk sem þær mæðgur gætu þurft á að halda á þessari erfiðu stundu. Ég skoðaði líka möguleikana á flugi til komast heim til Íslands og að- stoða og að öllum líkindum kveðja mömmu í hinsta sinni. Að loknum vinnudegi tylltum við Ella okkur á bekk í Stads- parken, sem er fallegur almenn- ingsgarður í Lundi í Svíþjóð. Við vorum í reglulegu sambandi við Teddý og Árna og börnin þeirra sem hlúðu að mömmu á spítalan- um. Þau öll eiga miklar þakkir skildar fyrir allt það sem þau hafa gert fyrir hana mömmu í gegnum árin, það hefur mikið mætt á þeim en við Ella og börn höfum búið er- lendis í 20 ár samfellt. Á sama tíma og mamma háði hetjulega baráttu á spítalanum og hyllti undir endalokin, var lífið að Sjöfn Guðmundsdóttir ✝ Sjöfn Guð-mundsdóttir fæddist 22. ágúst 1935 í Reykjavík. Hún lést á Land- spítalanum 14. júní 2019. Útför Sjafnar fór fram frá Seltjarnar- neskirkju 25. júní 2019. vakna í Stadsparken. Gróðurlífið og mann- lífið, falleg blóm að springa út, laufin iða- græn, ung pör með nýfædd börn, börn að leik, fólk að lesa, fólk að spjalla, ungir og eldri í alls konar leikjum. Ég man að ég hugsaði að svona er víst lífið, það vakn- ar, það dafnar og það endar, það heldur áfram. Baráttu mömmu lauk undir kvöld þennan föstudag og ég náði ekki að koma heim til að kveðja hana. Árni mágur hringdi í mig og sagði að nú væri mamma/tengda- mamma að skilja við og þrátt fyrir að hún hafi verið komin á níræð- isaldur, þá er maður einhvern veg- inn aldrei tilbúinn fráfalli sinna nánustu. Ég man að ég var eig- inlega alveg tómur og bar upp ein- hverjar undarlegar spurningar en svo slitum við samtalinu og syrgð- um með fjölskyldum okkar, hvor á sínum stað. Þó ég viti ekki hvort það sé líf eftir dauðann, eða hverju ég trúi í því sambandi, þá er ég sannfærður að mamma mun aldrei yfirgefa mig. Hún mun alltaf vera til stað- ar. Til marks um það, þá ákvað ég daginn eftir að mamma lagði upp í sitt hinsta ferðalag, að halda mínu striki og taka þátt í 10 km hlaupi í Malmö, sem ég var skráður í. Ég sagði við Ellu að ég ætlaði að hlaupa fyrir mömmu og með mömmu. Það var úrhellisrigning, þrumur og eldingar á meðan hlaupinu stóð, en ég náði mínum besta tíma í fjögur ár og leið ótrú- lega vel, það var gott að finna fyrir þér og hlaupa með þér elsku mamma mín. Mamma var eina manneskjan sem alltaf kallaði mig Sigurð, aðr- ir kalla mig alltaf Siggi. Oftar en ekki skeytti hún minn aftan við nafn mitt sem staðfestir bara væntunþykjuna. Ég verð alltaf stoltur og þakklátur fyrir að eiga hana sem mömmu. Hvíl í friði elsku mamma, Þinn Sigurður. Þennan dag fyrir einu ári síðan lést móðir mín og hvílir nú í Hafn- arfjarðarkirkjugarði. Þessar tvær góðu konur, tengdamóðir mín og móðir mín, bjuggu í sitt hvoru landinu og um- gengust því ekki mikið. Þær spurðu þó alltaf hvor um aðra og við bárum alltaf kveðjur til og frá þeim hvorri til annarrar. Það slær kannski skökku við að skrifa um móður mína í kveðjunni til Sjafn- ar en einhvern veginn er það þannig að þegar ég hugsa til Sjafnar þessa dagana þá hugsa ég til mömmu í næstu hugsun. Ég ber þær saman og hugsa um lífið og til þess að árið 1965 voru þær báðar ungar og áttu báðar von á barni. Þær eignuðust börnin á fæðingardeild Landspítalans í janúar og júní alveg óvitandi um tilveru hvorrar annarrar. Það var svo 24 árum síðar að þær tengd- ust þegar börnin þeirra fundu hvort annað og ákváðu að gifta sig. Þar með deildu þær einhverju því stærsta og mesta sem hægt er að deila í lífinu, börnunum sínum og sameiginlegum barnabörnum. þessar tvær konur voru ekki líkar en það var kannski það besta við þær. Í gegnum tíðina hef ég fengið að heyra frá börn- unum mínum að þeim finnist gaman að eiga svona ólíkar ömm- ur. Það besta við að elska ólíkt fólk er þegar manni tekst að taka það til sín sem höfðar til manns og bera það áfram. Eitt agnar lítið dæmi um það er naglalakk. Ég dáðist alltaf að nöglunum hennar Sjafnar sem voru iðulega óaðfinn- anlega lakkaðar í fallegum bleik- um litum. Við áttum það sameig- inlegt að finnast bleikir litir fallegir og núna er ég búin að lakka neglurnar bleikar henni til heiðurs. Ég kynntist því heima hjá henni að naglalakk er ekki bara fallegt og fínt heldur er hægt að nota það til að tjá fólki væntum- þykju sína. Sjöfn og dóttir henn- ar, Teddý, lökkuðu neglurnar saman, tengdaforeldrar mínir lökkuðu neglurnar á dóttur minni og undanfarin ár hefur Teddý mágkona mín séð um að lakka neglurnar á Sjöfn sem hefur dval- ið á deild fyrir heilabilaða á Grund. Ég hef fylgst með og dáðst að því hvernig Teddý hefur, m.a. með því að lakka neglurnar á mömmu sinni, séð til þess að Sjöfn hafi fengið að halda reisn sinni þrátt fyrir heilabilunina. Þvílík væntumþykja og virðing fyrir ást- kæru foreldri er ekki alveg sjálf- gefin. Það sló mig þegar ég var á leið- inni hingað til Íslands til að fylgja Sjöfn til grafar að í þetta sinn mun ég geta heimsótt þær báðar, tengdamóður og móður, í sömu ferðinni. Svo sló það mig að þær eru báðar dánar. Sú síðasta af for- eldrum okkar mannsins míns hef- ur farið á vit feðra sinna og þar með erum við börnin þeirra orðin elsta kynslóð fjölskyldunnar. Það er gangur lífsins. Fyrr í dag hitti ég góða vini, þar á meðal lífsglaða og lífsreynda ekkju sem sagði mér að hún sam- gleðjist þeim sem deyja en sam- hryggist þeim sem eftir lifa. Ég geri hennar orð að mínum: Ég samhryggist ykkur elsk- urnar sem syrgið Sjöfn. Elsku tengdamamma, ég sam- gleðst þér yfir lífinu þínu og því sem það færði þér, og mér. Engl- arnir og við vökum yfir sálu þinni. Ég ber þær saman, í hjarta mínu. Elín María Hilmarsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.