Morgunblaðið - 26.06.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
Bezt á fiskinn er gæðakrydd sem hentar vel
með öllu fiskmeti. Kryddið inniheldur meðal
annars steinselju, sítrónupipar, papriku, salt og
hvítlauk. Kryddblandan er án allra aukaefna.
BEZTÁFISKINN
HM Í FRAKKLANDI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Bandaríkin verða eina þjóðin utan
Evrópu í 8-liða úrslitum HM kvenna
í fótbolta sem hefjast annað kvöld.
Það er algjört einsdæmi í sögu móts-
ins og gæti hjálpað íslenska landslið-
inu í framtíðinni. Sextán liða úrslit-
um lauk í gærkvöld þegar Holland
sló út Japan, 2:1, og Ítalía vann Kína
2:0. Holland og Ítalía mætast í Val-
enciennes á laugardag.
Það að sjö Evrópuþjóðir taki þátt í
8-liða úrslitunum á HM ætti að ýta
undir að FIFA fjölgi sætum fyrir
Evrópu á næsta heimsmeistaramóti.
Aðeins átta sæti voru í boði fyrir
Evrópuþjóðir nú, auk sætisins sem
Frakkland fékk sem gestgjafi, og
eru Spánn og Skotland því einu Evr-
ópuþjóðirnar sem fallið hafa úr leik á
meðan 14 lið frá öðrum heimsálfum
hafa þegar lokið keppni. Til sam-
anburðar þá voru þrjú evrópsk lið í
8-liða úrslitunum á HM fyrir fjórum
árum, þegar Kína, Japan, Ástralía
og Kanada komust öll á það stig, og
aldrei áður hafa fleiri en 5 Evr-
ópuþjóðir verið í 8-liða úrslitum.
Evrópumeistarar Hollands hafa
aldrei áður komist í 8-liða úrslit á
HM en liðið lék í fyrsta sinn á
mótinu fyrir fjórum árum, og féll þá
einmitt úr leik gegn Japan með 2:1-
tapi. Í gærkvöld snerist dæmið við
og Lieke Martens tryggði Hollandi
2:1-sigur með marki úr vítaspyrnu í
uppbótartíma, sínu seinna marki í
leiknum.
Ítalía hefur einu sinni áður komist
í 8-liða úrslit, á fyrsta heimsmeist-
aramótinu árið 1991, en liðið vann
Kína af nokkru öryggi í gær. Valent-
ina Giacinti og Aurora Galli skoruðu
mörkin tvö.
Sigurliðið úr leik Ítalíu og Hol-
lands mun mæta Þýskalandi eða Sví-
þjóð í undanúrslitunum.
Evrópuþjóðir taka völdin
Eiga sjö sæti í 8-liða úrslitunum á HM í fyrsta sinn Gæti hjálpað Íslandi
AFP
Sigurmark Lieke Martens fagnar af innlifun eftir að hafa skotið Hollandi áfram á óþekktar slóðir á HM.
Elvar Már Friðriksson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, hefur sam-
ið við sænska úrvalsdeildarliðið
Borås Basket. Elvar Már var í stóru
hlutverki með Njarðvíkurliðinu á
síðustu leiktíð en hann sneri aftur
til liðsins í nóvember eftir að hafa
rift samningi sínum við franska lið-
ið Denan. Þar áður spilaði hann í
fjögur ár í háskólaboltanum í
Bandaríkjunum.
Elvar skoraði 23 stig, tók sex frá-
köst og gaf fimm stoðsendingar að
meðaltali í leikjum Njarðvíkinga í
Dominos-deildinni á síðustu leiktíð.
„Meðmælin sem Elvar fær frá
þjálfurum, liðsfélögum, umboðs-
mönnum, „njósnurum“ og andstæð-
ingum eru frábær. Leikmaður sem
ég þjálfaði sagði til dæmis: „Á fimm
árum í Bandaríkjunum var Elvar
besti leikmaðurinn sem ég mætti.“
Við höfum miklar væntingar til
Elvars en gerum einnig miklar
kröfur til hans,“ segir Henrik
Svensson, þjálfari Borås Basket, á
vef félagsins.
„Margir af liðsfélögum mínum úr
landsliðinu hafa spilað í Svíþjóð og
þeir hafa bara góða hluti að segja
um deildina og landið. Ég þekki vel
til Borås þar sem Jakob Sigurð-
arson spilaði með liðinu lengi vel og
ég hef fylgst með liðinu á undan-
förnum árum. Eftir að hafa rætt við
þjálfarann var valið auðvelt,“ segir
Elvar Már.
Borås Basket komst í úrslitin um
sænska meistaratitilinn í vor en
tapaði úrslitaeinvíginu gegn Söder-
tälje. Jakob Örn Sigurðarson hefur
leikið með liðinu frá 2015 en hann
er kominn heim og er búinn að
semja við Íslandsmeistara KR.
gummih@mbl.is
Elvar Már samdi við Borås Basket
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Félagaskipti Elvar Már er búinn að
semja við Borås Basket.
Gríski framherjinn Giannis Antetokounmpo eða „Gríska
undrið“ eins og hann er jafnan kallaður hefur verið út-
nefndur besti leikmaðurinn í NBA-deildinni í körfu-
knattleik á nýafstaðinni leiktíð.
Giannis Antetokounmpo, sem er 24 ára gamall og leik-
maður Milwaukee Bucks, hafði betur í baráttunni gegn
James Harden úr Houston Rockets og Paul George sem
leikur með Oklahoma City Thunder. Grikkinn er yngsti
leikmaðurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu síðan
Derrick Rose var valinn sá besti árið 2011 en hann var
þá 23 ára gamall.
Antetokounmpo hefur spilað með Milwaukee Bucks
undanfarin sex ár. Hann skoraði 27,7 stig að meðaltali á síðustu leiktíð og
tók 12,5 fráköst og hann átti stóran þátt í besta árangri Milwaukee í deild-
inni. Liðið vann 60 leiki en tapaði 22 og komst í úrslit Austurdeildarinnar
þar sem liðið tapaði fyrir Toronto, sem fór alla leið og vann NBA-
meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins. gummih@mbl.is
Antetokounmpo valinn bestur
Giannis
Antetokounmpo
Handknattleiksmaðurinn Þráinn
Orri Jónsson er búinn að semja við
danska úrvalsdeildarliðið Bjerr-
ingbro-Silkeborg til eins ár en fé-
lagið greindi frá þessu á heimasíðu
sinni í gær. Þráinn hefur spilað með
Elverum í Noregi undanfarin tvö ár
en þangað fór hann frá Gróttu. El-
verum vann sigur í úrslitakeppni
norsku úrvalsdeildarinnar í vor eft-
ir að hafa unnið bikarmeistaratit-
ilinn um áramótin en með liðinu
leikur landsliðsmaðurinn Sigvaldi
Björn Guðjónsson. „Þetta er félag
sem er með marga góða leikmenn.
Nokkrir af vinum mínum hafa spil-
að með liðinu og þeir segja að þetta
sé mjög gott félag. Ég hef séð liðið
spila í Meistaradeildinni og mér
sýnist að handboltinn sem það spil-
ar henti fullkomlega fyrir mig,“
segir línumaðurinn og varnarjaxl-
inn á vef danska félagsins.
Þráinn í dönsku deildina
Ljósmynd/Elverum
Vistaskipti Þráinn Orri Jónsson er
kominn til Bjerrinbro-Silkeborg.
Markvörðurinn Patrik Gunnarsson
skrifaði í gær undir nýjan fjögurra ára
samning við enska B-deildarliðið
Brentford. Patrik, sem er 18 ára gam-
all, er nú bundinn félaginu til ársins
2023 en ákvæði er í samningi hans um
að hægt sé að framlengja hann um
eitt ár. Patrik, sem er uppalinn hjá
Breiðabliki, hefur spilað með varaliði
Brentford en hann lék einn leik með
aðalliðinu á síðustu leiktíð þegar hann
kom inná og lék síðustu 20 mín-
úturnar í 2:1 sigri á móti Middles-
brough.
Jón Dagur Þorsteinsson hefur gert
þriggja ára samning við danska úrvals-
deildarliðið AGF. Jón Dagur, sem er tví-
tugur að aldri, hefur spilað þrjá A-
landsleiki og skorað í þeim eitt mark
og 14 leiki með U21 árs landsliðinu.
Hann var samningsbundinn enska lið-
inu Fulham þar sem hann spilaði með
U18 ára liðinu en var lánaður þaðan til
danska liðsins Vendsyssel, sem féll úr
dönsku úrvalsdeildinni fyrr í þessum
mánuði. Hann lék 22 leiki með danska
liðinu í deildinni og skoraði í þeim 3
mörk. AGF hefur góða
reynslu af Íslendingum
en Kári Árnason, Aron
Jóhannsson,
Ólafur Helgi
Krist-
jánsson,
Helgi Sigurðs-
son og nú síðast
Björn Daníel Sverr-
isson hafa allir leik-
ið með Árósaliðinu.
Keppni í dönsku
úrvalsdeildinni
hefst um miðjan
júlí.
Eitt
ogannað