Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Míní-míní múltíversa er heiti sýn-
ingarinnar sem Ragnheiður Kára-
dóttir myndlistarkona er að setja
upp í D-sal Listasafns Reykjavíkur -
Hafnarhúsi og verður opnuð annað
kvöld, fimmtudag, klukkan 20. Hún
er 38. listamaðurinn sem er boðið að
setja upp í salnum sína fyrstu einka-
sýningu í opinberu safni og á sýning-
unni kveðst hún kanna mörk á milli
hins manngerða og náttúrulega.
Þegar blaðamaður lítur inn hafa
Ragnheiður og starfsmenn safnsins
lagt bleikt teppi á gólf salarins.
Gestir þurfa að fara úr skóm og við
listakonan stöndum þar inni á mjúku
teppinu sem minnir á einhverskonar
eyju með hvítt gólf og veggi allt í
kring – svo á hún eftir að koma
skúlptúrum fyrir á teppinu.
„Þessi innsetning er unnin sér-
staklega fyrir salinn,“ segir Ragn-
heiður og bætir við að hún sé eins-
konar systursýning annarrar sem
hún setti upp í sýningarsalnum Har-
binger við Freyjugötu í fyrra og
vakti verðskuldaða athygli.
„Ég hef unnið fyrir hana skúlp-
túra sem eru bæði úr keramik og
fundnum hlutum sem ég set saman.
Það verður til skrýtið samtal þeirra
á milli hér inni, og við rýmið og
áhorfandann. Og vegna þess að
áhorfandinn þarf að fara úr skónum
áður en hann kemur hér inn verður
til sérstök tilfinning og nálgun, mað-
ur nálgast verkin á annan hátt á
sokkunum en í skóm.“
– Hvað gerist, verður tenging
gesta við verkin afslappaðri þannig?
„Mér finnst maður tengjast verk-
inu betur þegar skósólinn er ekki
lengur til staðar,“ svarar hún bros-
andi. „Á síðustu sýningu minni
þurftu gestir líka að fara úr skónum
og mér fannst að við það nálgaðist
fólk skúlptúrana af meiri varfærni
og hlýju. Það myndast sterkari teng-
ing milli áhorfanda og verksins við
það að fara úr skónum. Svo má segja
að teppið sé líka einn stór skúlptúr
sem gestir stíga á. Það hefur þetta
lífræna form sem má sjá margt út úr
eins og til dæmis eyju eða poll; það
er skemmtilegt ef fólk myndar sínar
eigin tengingar við verkið og upplifir
þetta á sinn hátt. Ég veit annars
ekkert hvað áhorfandinn upplifir.
Ég vil helst ekki segja of mikið held-
ur leyfa fólki að mynda sína eigin
sögu.“
Leikgleði á vinnustofunni
Áður en hún byrjaði að gera
skúlptúrana skoðaði Ragnheiður
allskyns rými sem fólk sækir afþrey-
ingu til, eins og míní-golfvelli,
íþróttaleikvanga og lystigarða.
„Slíkir staðir veittu mér innblástur,
þaðan komu viss form og leikur. Svo
fékk það sitt eigið líf og skúlptúr-
arnir fóru að spjalla saman, því mér
fannst ég ekki alltaf ráða ferðinni
þegar þeir urðu til.
Það koma hér inn fjórar eins kon-
ar eyjar, lagðar línoleumdúk, standa
aðeins upp frá gólfi og á þeim eru
skúlptúrarnir.“
Ragnheiður segir að fyrir sér séu
allir þættir innsetningarinnar jafn
mikilvægir, handgerð leirverkin sem
og fundnu hlutirnir sem hún raðar
saman. „Það er svo mismunandi
hvað kallar á mig og safnast að mér.
Ég hef farið út í búð og ætlað að
kaupa eina eldhúsrúllu en komið
heim með tuttugu bolta, sem ég vissi
ekkert hvað ég ætlaði að gera við.
Svo kemur bara í ljós hvað verður.
Eins er það með leirinn, ég er ekki
alltaf með fyrirfram mótaða hug-
mynd um hvað ég muni gera með
hann. Það er mikil leikgleði hjá mér
á vinnustofunni.“
Ragnheiður útskrifaðist með
meistaragráðu í myndlist frá School
of Visual Arts í New York fyrir fjór-
um árum. Auk þess að hafa tekið
þátt í ýmsum sýningum hér á landi
þá er hún annar helmingur lista-
tvíeykisins Lounge Corp. þar í borg,
sem miðar að því að sýna myndlist í
óhefðbundnum rýmum en hún hefur
mikinn áhuga á slíkum sýningum.
„Við samstarfskona mín í New
York höfum verið að setja upp sýn-
ingar í rýmum sem hafa mjög
ákveðna niðurnjörvaða fagurfræði
og þá þarf maður að dansa við hana
við innsetningu verkanna. Þetta hér
er allt annað. Þessi salur er hvítur
kassi og maður þarf vissulega að
hugsa um rýmið en það er svo stíl-
hreint að maður hefur mjög frjálsar
hendur.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég set
upp einkasýningu í safni og það hef-
ur verið mjög áhugavert að kynnast
því hvernig það gengur fyrir sig. Það
er frábært að fá tækifæri til að sýna
hér,“ segir hún.
Morgunblaðið/Einar Falur
Á bleikri eyju? „Ég vil helst ekki segja of mikið heldur leyfa fólki að mynda sína eigin sögu,“ segir Ragnheiður
Káradóttir um sýninguna sem hún er að setja upp í D-salnum. Á teppið koma splunkunýir skúlptúrar hennar.
Tenging við að fara úr skónum
Ragnheiður Káradóttir setur upp sýninguna Míní-míní múltíversa í D-sal
Hafnarhússins Sækir innblástur á stöðum þar sem fólk leitar í afþreyingu
Enska leikkonan
Judi Dench segir
að þrátt fyrir að
hún fordæmi
hegðun og brot
framleiðandans
Harvey Wein-
stein og leik-
arans Kevin
Spacey þá hafi
hún áhyggjur af
því að verk þeirra gleymist, að því
er fram kemur á vef dagblaðsins
Guardian.
Weinstein og Spacey hafa báðir
verið kærðir fyrir kynferðislega
áreitni og brot í garð bæði karla og
kvenna og kemur Dench þeim ekki
til varnar hvað það varðar en spyr
hvort gleyma eigi tíu ára góðu
starfi Spacey sem leikhússtjóra Old
Vic og leikhæfileikum hans.
Hún spyr einnig hvort fólk ætli
ekki framar að horfa á þær kvik-
myndir sem Weinstein framleiddi.
„Þá geturðu allt eins hætt að skoða
málverk Caravaggio,“ segir Dench
en málarinn var dæmdur morðingi,
eins og frægt er.
Segir verkin
enn þá góð
Judi Dench
Judith Krantz er
látin, 91 árs að
aldri. Krantz
fæddist í New
York árið 1928
og hóf ekki að
skrifa skáldsög-
ur fyrr en hún
varð fimmtug.
Krantz var ein-
hver mesti met-
söluhöfundur Bandaríkjanna og
þekkt fyrir rómantískar skáldsögur
sínar þar sem mikið var um sjóð-
heitt kynlíf og kostnaðarsamar
verslunarferðir.
Segir í frétt dagblaðsins New
York Times að hún hafi nánast ein
síns liðs gert slíkar bækur að met-
söluvöru. Bækur hennar seldust í
tugmilljónavís og eftir nokkrum
þeirra voru gerðir sjónvarpsþættir
og -myndir.
Krantz skrifaði tíu bækur og
hafa þær selst í yfir 85 milljónum
eintaka og á yfir 50 tungumálum.
Krantz látin
Judith Krantz
Sumardagskrá Jazzklúbbsins Múl-
ans, Jazz með útsýni, heldur áfram
göngu sinni á Björtuloftum í Hörpu
í kvöld kl. 21. Þá kemur fram
hljómsveitin Mókrókar sem landaði
öðru sæti í Músíktilraunum í fyrra.
Tríóið leikur frumsamda tónlist í
opnum útsetningum með mikið
rými fyrir frjálsan spuna, segir í til-
kynningu. Mókrókar hafa komið
fram á ýmsum tónlistarviðburðum
bæði hér á landi og erlendis á síð-
astliðnu ári, m.a. á DølaJazz 2018 í
Noregi og í maí hófu þeir að taka
upp plötu sem kemur að öllum lík-
indum út í haust. Í Mókrókum eru
Benjamín Gísli Einarsson sem leik-
ur á píanó, Þorkell Ragnar Grét-
arsson gítarleikari og trymbillinn
Þórir Hólm Jónsson.
Björtuloft eru á 5. hæð Hörpu.
Mókrókar leika á
Múlanum í kvöld
Þríeyki Mókrókar verða í Hörpu í kvöld.
Hipphopp-tónlistarkonan Cardi B
hlaut tvenn verðlaun á bandarísku
BET-verðlaunahátíðinni sem haldin
var á sunnudag. BET er skamm-
stöfun á Black Entertainment og
eru verðlaunin veitt þeldökkum
sem þykja hafa skarað fram úr í
skemmtanabransanum í Bandaríkj-
unum. Cardi B hlaut verðlaun sem
besta konan í hipphopp-tónlistar-
geiranum og fyrir plötu ársins, In-
vasion of Privacy.
Af öðrum verðlaunahöfum má
nefna Beyoncé og Bruno Mars sem
hlutu verðlaun í flokkum popps og
R&B og rapptríóið Migos hlaut
einnig verðlaun. Michael B. Jordan
og Regina Kelly hlutu verðlaun fyr-
ir besta leik, Serena Williams og
Stephen Curry hlutu verðlaun í
íþróttaflokki og besta kvikmyndin
þótti mynd Spike Lee, BlacKk-
Klansman.
Cardi B sigursæl á
BET-verðlaunum
Hæstánægð Cardi B með önnur af
tvennum BET-verðlaunum sínum.