Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Þ
að verður gaman að fá
gesti og gangandi inn af
Hátíð hafsins, en það er
alltaf mikið um að vera á
svæðinu um þessa helgi,“
segir Berta Daníelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sjávarklasans, í sam-
tali við 200 mílur. Hún bendir á að í
fiskmarkaðinum nýja felist í raun
framlenging á mathöllinni sem þeg-
ar er í húsnæðinu, en hún opnaði
dyr sínar fyrst fyrir réttu ári.
„Það sem við erum að gera er að
opna innsýn í fiskmarkaðinn. Nú
eru komnir gluggar á vegginn þar
sem hægt er að sjá það sem fram
fer á raunverulegum íslenskum
fiskmarkaði,“ segir hún.
Vekur athygli ferðamanna
„Gluggarnir hafa verið uppi í smá-
tíma núna og þetta hefur vakið
mikla athygli hjá þeim ferðamönn-
um sem hafa komið til okkar. Þau
hafa alveg fallið í stafi. Eins og við
vitum þá vilja margir þeir sem
koma til landsins sjá inn í fisk-
vinnslur en það er erfitt að bjóða
upp á það – að stöðva ferlið og
vinnsluna til að taka á móti gestum.
Þetta er aftur á móti auðveldara í
framkvæmd og reynsla okkar nú
þegar er sú að ferðamönnum sem
og Íslendingum þykir þetta mjög
spennandi.“
Settur hefur verið upp skjár við
markaðinn, í samstarfi við Sea
Data Center, sem sýnir markaðs-
verð á helstu fjórum tegundunum
hverju sinni, það er á þorski, ufsa,
ýsu og karfa.
Leggja traust sitt á fólk
„Þessu til viðbótar þótti okkur snið-
ugt að setja upp litla sjálfs-
afgreiðsluverslun, þar sem í boði
verða mestmegnis vörur þeirra
frumkvöðla sem starfa innan klas-
ans og í samvinnu við okkur. Við
framkvæmum þetta í samstarfi við
Sales Cloud, þannig að þú afgreiðir
þig sjálfur, og í staðinn fyrir hefð-
bundin strikamerki þá velurðu ein-
faldlega mynd af vörunni,“ segir
Berta.
„Við leggjum einfaldlega traust
okkar á fólk, eftir að hafa séð til
dæmis hvernig gengur á Flúðum,
þar sem sveppir eru seldir úti á
götuhorni og viðskiptavinir beðnir
um að skilja peninga eftir í bauk.
Munurinn er sá að við verðum með
posa á staðnum.“
Morgunblaðið/Eggert
Fiskmarkaðurinn á
Granda opnaður í dag
Sjávarklasinn opnar í dag nýtt sýningar- og sölurými við Granda Mathöll, sem ganga á undir nafninu „Grandi food hall & fish
market“. Gestum fiskmarkaðarins mun gefast kostur á að sjá þegar ferskur fiskur, sem landað er við Grandabryggju, kemur
inn á Fiskmarkað Íslands og fer þar á uppboð, en uppboðið fer venju samkvæmt fram á vefnum klukkan 13 á virkum dögum.
Uppbyggingin á Granda undanfarin ár hefur vart farið fram
hjá neinum sem þangað hefur komið. Berta segir mikið
framfaraskref hafa verið stigið með henni.
„Við erum náttúrlega aðeins að stækka miðbæ Reykja-
víkur með þessari uppbyggingu. Mér finnst sérstaklega gott
fyrir borgina að fá þetta aukna líf við höfnina en á sama
tíma náum við að halda í sérkennin, til að mynda með starf-
semi á borð við Sjávarklasann, og nú erum við að stíga
skrefinu lengra með því að opna þessa innsýn í fiskmarkað-
inn,“ segir Berta. „Það er mikilvægt að halda áfram þessu
starfi og teygja mannlífið hingað út á Grandann. Miðbærinn
tekur ekki endalaust við. Það geta ekki allir verið á Lauga-
veginum og Austurstræti, þannig að við þurfum að dreifa
álaginu. Grandinn sem slíkur er mjög sérstakur og við erum
núna að vinna að því með miðborgaryfirvöldum að kynna
hann sem sérstakt svæði innan borgarinnar, í líkingu við til
dæmis kjötpökkunarhverfið í Chicago, „Chicago Meatpack-
ing District“. Grandinn er náttúrlega hjarta hafnarinnar og
er þannig í raun okkar fiskihverfi,“ bætir hún við.
„Nú bíðum við bara eftir að fleiri verbúðastæði verði laus.
Uppbyggingin mun halda áfram hér á Grandanum, það er
alveg klárt mál.“
Uppbyggingin heldur áfram á Granda
Berta Daníelsdóttir stýrir klasanum.