Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 12

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Dagskrá um sjómannadagshelgina í Ólafsfirði er hin glæsilegasta, en sjó- mannadagsráð Sjómannafélags Ólafsfjarðar hafði veg og vanda af gerð dagskrárinnar, sem á að höfða til fólks á öllum aldri. Sjómannadagurinn hefur lengi verið haldinn hátíðlegur í Ólafsfirði enda mikilvægur í augum íbúa svæð- isins og sjómennskan nátengd sögu Ólafsfjarðar. Sjómannadagsráðið hefur alla tíð lagt mikið upp úr því að halda veglega hátíð í tilefni sjó- mannadagsins og stendur hún yfir í þrjá daga. Þannig hefur hátíðin mark- að sér sérstöðu á Norðurlandi, enda kemur fólk víða að til að skemmta sér og njóta dagsins í Ólafsfirði. Dorgveiðikeppni fyrir börnin Dagskráin hefst strax á föstudeg- inum en þann dag verður meðal ann- ars bein útsending á FM95Blö, leir- dúfuskotmót sjómanna og uppistand í Tjarnarborg þar sem Ari Eldjárn mun setja saman hóp uppistandara. Herra Hnetusmjör og Huginn ljúka svo kvöldinu með balli í Tjarnarborg. Á laugardeginum verður mikið um dýrðir en dagurinn verður tekinn snemma með dorgveiðikeppni fyrir börnin við höfnina. Allan daginn verð- ur eitthvað um að vera; keppnir, knattspyrnuleikur KF og Sindra og knattleikur sjómanna. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar verður sýndur á risaskjá við Tjarnarborg. Hjómsveitin Ronja og ræningjarnir heldur svo uppi fjörinu á útiskemmt- un frá kl. 21 á laugardagskvöldinu en veislan endar á því að Stebbi Jak. og Andri Ívars taka föstudagslögin í Tjarnarborg fram á nótt. Skrúðganga og heiðra sjómenn Á sjálfan sjómannadaginn byrjar dag- skrá með skrúðgöngu frá Hafnar- voginni. Gengið verður að Ólafs- fjarðarkirkju en þar verður haldin hátíðarmessa til heiðurs sjó- mönnum. Fjölskylduskemmtun verður svo við Tjarnarborg þar sem fram koma meðal annars Jói Pé og Króli, Ronja og ræningjarnir, uppistandararnir Pétur Jóhann, Ari Eldjárn, Auddi og Steindi, en einnig verða hoppkastalar fyrir börnin. Hátíðinni lýkur svo með veglegri árshátíð sjómanna í íþrótta- húsinu. Leggja mikið upp úr því að halda veglega hátíð Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þ etta er stór og mikil hátíð og hefur alltaf verið að stækka. Í raun er um að ræða þriggja daga hátíðarhöld í Ólafsfirði sem hefjast á föstudeg- inum klukkan fjögur og lýkur svo ekki fyrr en með árshátíð sjómanna á sunnudagskvöldinu,“ segir Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningar- fulltrúi Fjallabyggðar. „Dagskráin hefst á föstudeginum með beinni útsend- ingu FM95Blö, sem send verður út á FM957 frá Ólafsfirði. Svo tekur við þetta hefðbundna; leirdúfuskotmót sjó- manna, sjóarasveiflan á golfvellinum og uppistand í Tjarnarborg í boði Ara Eldjárn. Á laugardeginum heldur þessi frábæra hátíð áfram, alveg frá klukkan níu um morguninn og fram á rauða nótt,“ segir Linda Lea. Lýkur með árshátíð sjómanna „Á sjómannadaginn er að sjálfsögðu skrúðganga og hátíð- armessa þar sem við heiðrum sjómenn. Að henni lokinni tekur við fjölskylduskemmtun með tónlistaratriðum, uppi- standi, hoppköstulum og stanslausu fjöri. Loks taka hátíðarhöldin enda með árshátíð sjómanna í íþróttahúsinu, en þar verður boðið upp á hátíðarkvöldverð og fjölbreytta skemmtidagskrá, með dansleik og stuði fram á nótt.“ Þriggja daga hátíðarhöld í Ólafsfirði Í Fjallabyggð fer vart framhjá neinum þegar sjómannadagshelgin gengur í garð, enda er öllu tjaldað til í sveitarfélaginu til að íbúar og gestir geti komið saman, skemmt sér og fagnað sjómannadeginum. Róið af kappi. Hátíðin í Ólafsfirði endar venju samkvæmt með árshátíð sjómanna í íþróttahúsinu að kvöldi sjómannadagsins. Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með Sjómannadaginn ÞEGAR MIKIÐ EÐA LÍTIÐ LIGGUR VIÐ ER TREYST Á OKKUR kafari.isKöfunarþjónustan er á lista Creditinfo yfirFramúrskarandi fyrirtæki 2017 og 2018 Verki lokið og farsæll endir Frá strandi sementsflutningaskipsins Fjordvik í Helguvík í nóvember. Köfunarþjónustan kom að björgun skipsins í samstarfi við alþjóðlega björgunarfélagið Ardent Óseyrarbraut 27, 220 Hafnarfjörður | Sími 863 5699 | diving@diving.is Við höfum nú flutt í glæsilegar bækistöðvar að Óseyrarbraut 27 í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.