Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að má veiða fisk á fleiri vegu en einn,
og ekki bara til að koma honum beint
í fiskvinnslu og á markað erlendis
heldur líka til að hafa gaman af veið-
inni og áskoruninni sem felst í því að
ná í sem flesta og stærsta fiska af sem flestum
tegundum. Sjóstangaveiði er stunduð af nokk-
uð stórum og virkum hópi fólks hér á landi og
keppnir haldnar víða um land þar sem er held-
ur betur hægt að fá útrás fyrir veiðiþörfina.
Matthías Sveinsson er formaður Sjóstanga-
veiðifélags Norðjarðar, Sjónes, sem er eitt átta
félaga sem eiga aðild að Landssambandi sjó-
stangafélaga. Hann segir um 30-40 manns taka
þátt í dæmigerðu sjóstangaveiðmóti og eru þá
þrír til fjórir keppendur úr bát, hver úr sínu
liðinu. „Kemur reglulega fyrir að þátttakendur
eru mun fleiri og er áætlað að á landinu séu á
bilinu 400-500 virkir sjóstangaveiði-iðkendur
og hefur mest verið á annað hundrað keppenda
á einu móti.“
Vigta aflann af nákvæmni
Sjóstangaveiði er á ýmsa vegu frábrugðin bæði
stangveiði í ám og línuveiði í atvinnuskyni. Alla
jafna fara keppnir þannig fram að róið er út kl.
6 að morgni og veitt til kl. 14 og veitt bæði á
föstudegi og laugardegi. Keppt er í liðum og
dreifa liðsmenn sér á báta svo að aldrei eru
tveir úr sama liði í bát. Einn trúnaðarmaður er
um borð í hverjum bát og skipstjóri.
Er markmiðið að veiða sem mest af fiski,
sem flesta fiska og sem flestar tegundir, en
Matthías segir aflann vigtaðan upp á brot úr
grammi. Eru bæði veitt einstaklingsverðlaun,
verðlaun fyrir aflahæstu keppnissveitina, og
verðlaunað bæði í karla- og kvennaflokki.
Veiðistöngin sem sjóstangaveiðifólk notar er
tiltölulega stutt en sterkbyggð og línan hefur
þrjá öngla. „Yfirleitt er 400-600 gramma sakka
fest á línuna og veiðifélagið sem heldur mótið
skaffar beituna sem yfirleitt er síld eða smokk-
fiskur og nota allir sömu beitu. Þá geta kepp-
endur notað gervibeitu ef þeir vilja,“ útskýrir
Matthías.
Gengur oft mikið á við veiðarnar og getur
þurft að hafa töluvert fyrir því að ná aflanum
um borð ef stór fiskur er á hverjum öngli. „Við
getum byrjað strax í maí og síðustu mótin eru
haldin seint í ágúst. Kostnaðurinn er ekki mik-
ill en leigja þarf bátinn og eru þátttökugjöld
um 15.000 kr. fyrir mótið.“
Fullur bátur af fiski
Einn stærsti munurinn á sjóstangaveiði og
stangveiði í ám er, að sögn Matthíasar, að það
veiðist yfirleitt mjög vel. Í laxveiðiánum getur
það alveg gerst að menn reyni árangurslaust
að fá laxinn til að taka og snúi heim með tvær
hendur tómar en í sjóstangaveiðinni er annað
uppi á teningnum. „Í stað þess að kasta línunni
er hún látin síga beint niður á botn, svo dregin
örlítið upp og byrjað að skaka. Þá fer fiskurinn
að bíta á agnið og aldrei að vita hvaða tegund
kemur í ljós þegar línan er dregin upp,“ út-
skýrir hann. „Ef fiskast illa þá eru færin dreg-
in upp og skipstjórinn freistar þess að finna
betri stað til að stoppa og slaka aftur niður.“
Þeir sem vilja sjá fjölbreytnina í veiðunum
ættu að kíkja inn á heimasíðu Landssambands
sjóstangaveiðifélaga, Sjol.is, en þar er haldið
ítarlegt bókhald yfir stærstu fiskana sem
veiðst hafa af hverri tegund. Kemur þar t.d.
fram að Hilmar Zophaníasson í Sjóstanga-
veiðifélagi Snæfellsness krækti í 31,5 kg þung-
an þorsk á móti í ágúst í fyrra. Jafnaði hann
þar með met Jóns Inga Jónssonar í Sjóstanga-
veiðifélagi Akureyrar, sem árið 2006 veiddi
jafnþunga lúðu.
Á lista Sjól má einnig finna 35 g loðnu, 5,05
kg ýsu, 544 g flundru, 1,45 kg skötu, 10,9 kg
skötusel og 100 g sandsíli, svo nokkur dæmi
séu nefnd.
Margt getur gerst með þrjá öngla í sjónum
Í sjóstangaveiði er keppt um bæði hver nær að veiða
mest og hver fær flestar tegundir til að bíta á agnið.
Ekki er erfitt að sjá hvað heillar við að renna fyrir fisk úti á sjó á góðviðrisdegi. Á stærstu sjóstangaveiðimótum hafa hátt á annað hundrað manns tekið þátt.
Ljósmyndir/Sjónes
Eins og sést getur veiðst mjög vel í sjóstangaveiðikeppnum. Fólkið á þessum báti veiddi nærri 1.300 kg á einum morgni á innanfélagsmóti Sjónes 2016.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum