Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
A
kureyri hefur auðvitað um langan
aldur verið einn helsti útgerðar-
bær landsins og Akureyrarstofa
hefur tekið höndum saman við
Sjómannafélag Eyjafjarðar,
strákana á eikarbátnum Húna II, Skáta-
félagið Klakk og fleiri aðila til að fagna
sjómannadeginum eins og vera ber,“ segir
Ragnar Hólm Ragnarsson, verkefnastjóri
markaðs- og kynningarmála Akureyrar-
bæjar.
Þrautabrautir og smábátar
„Við ákváðum að þessu sinni að vera með
fjölskylduskemmtun á útivistarsvæði skát-
anna á Hömrum á laugardaginn frá klukk-
an 14 til 16, þar sem verða skemmtiatriði á
sviði frá klukkan 15, en þá munu Lína
Langsokkur, töframaður, trúbador og fleiri
góðir gestir stíga á svið,“ segir hann.
„Á svæðinu verða þrautabrautir, smá-
bátar, hoppkastalar og alls konar fleira fyr-
ir unga fólkið og fjölskyldur þess. Einnig
verður smá fjáröflun á vegum skátanna þar
sem grillaðar pylsur verða seldar á
kostnaðarverði. Þá verða sömuleiðis
hátíðarhöld í Hrísey og Grímsey á laugar-
deginum og á sunnudag verður til að
mynda sjómannadagskaffi klukkan 15 í fé-
lagsheimilinu Múla í Grímsey.“
Ókeypis sigling um Pollinn
Ragnar segir sjómannadaginn sjálfan hefj-
ast með sjómannadagsmessu í Glerárkirkju.
„Síðan verður lagður blómsveigur að
minnisvarða um týnda og drukknaða sjó-
menn. Eftir hádegið bera skipverjarnir á
Húna II hitann og þungann af hátíðarhöld-
unum. Þeir bjóða upp á ókeypis siglingu
um Pollinn klukkan 13, 16 og 17, en klukk-
an 13 er vonast til að sem flestir smábáta-
eigendur á Akureyri sláist í för með þeim í
hópsiglingu um Pollinn,“ segir hann.
„Þegar Húni II leggst síðan að Torfunefs-
bryggju eftir fyrstu ferðina, um klukkan 14,
mun Lúðrasveit Akureyrar spila á bryggj-
unni og síðan ætlar Félag vélstjóra og
málmtæknimanna að heiðra einn af sínum
ágætu félagsmönnum fyrir vel unnin störf,“
bætir hann við.
„Veðurspáin fyrir helgina hefur ekki verið
neitt sérlega kræsileg en ég sé ekki betur
en hún batni með hverri klukkustundinni
sem líður.“
Útivistar- og tjaldsvæðið á Hömrum verður
opnað klukkan 14 í dag, laugardag, en þar
verða hoppkastalar, rafmagnsbílar, kodda-
slagur, flekahlaup, smábátar á tjörnum og
fleira, auk þess sem grillaðar pylsur verða til
sölu.
Klukkan 15 hefst dagskrá á sviði á Hömr-
um, en á pall stíga þau Lína Langsokkur,
Gutti og Selma, Guðmundur töframaður og
Anton Líni.
Allir velkomnir í siglingu
Sjómannadagurinn hefst á sjómannadags-
messu í Glerárkirkju klukkan ellefu að
morgni. Klukkan 12.15 verður svo lagður
blómsveigur við Glerárkirkju að minnisvarða
um týnda og drukknaða sjómenn.
Ekki löngu síðar, eða klukkan 13, sigla
Húni II og fleiri bátar frá Torfunefsbryggju að
Sandgerðisbót þar sem bátar munu safnast
saman. Hópsigling verður um Pollinn og eru
allir velkomnir í siglingu með Húna II.
Hátíðir í Hrísey og í Grímsey
Um klukkan 13.45 leikur Lúðrasveit Akureyr-
ar nokkur létt lög á Torfunefsbryggju á sama
tíma og félagar í Siglingaklúbbnum Nökkva
sigla seglum þöndum. Gert er svo ráð fyrir
að Húni II leggist aftur að Torfunefsbryggju
klukkan 14, en þá mun Félag vélstjóra og
málmtæknimanna veita Neistann, sérstaka
viðurkenningu fyrir vel unnin vélstjórastörf.
Húni II heldur svo áfram að sigla um Pollinn
klukkan 16 og 17. Enginn aðgangseyrir er að
hátíðinni og eru allir velkomnir.
Í Hrísey hefst hátíð í dag klukkan tíu og í
Grímsey klukkan 14, en sjómannadagskaffi
er í Múla í Grímsey á morgun klukkan 15.
Koddaslagur,
flekahlaup og
Lína Langsokkur
Lengi verið einn helsti útgerðarbærinn
Nóg verður um að vera í höfuðstað Norðurlands þessa sjómannadagshelgi sem aðrar.
Blásið verður til fjölskylduskemmtunar í bænum í tilefni sjómannadagsins og eru
bæjarbúar hvattir til að draga íslenska fánann að húni á sunnudag.
Hópsigling með Húna II um Pollinn á að hefjast klukkan 13 á morgun, sjómannadaginn.
Lína Langsokkur stígur á pall í dag ásamt Gutta og Selmu, Guðmundi töframanni og Anton Líni.Skipverjarnir á Húna II bera hitann og þungann af hátíðarhöldunum eftir hádegi sjómannadagsins.