Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Skúli Halldórsson sh@mbl.is F yrirtækið hafði áður haft hug á framkvæmdum við lóð á Laxabraut 1, eins og 200 mílur greindu frá í apríl á síðasta ári. Með þessu samkomulagi stefnir fyrir- tækið hins vegar að því að koma upp aðstöðu við Laxabraut 21, 23 og 25. „Þetta er stærra svæði, rétt rúm- lega átján hektarar, og býr þannig yfir betri möguleikum til stækk- unar þegar til framtíðar er litið,“ segir Ingólfur. „Enn fremur er vatnsforðinn á nýja svæðinu meiri, sem hentar okkur þá enn betur.“ Seinni hálfleikur hafinn Hann segist reikna með að fram- kvæmdir geti hafist á næsta ári. „Stærsta málið er að ljúka um- hverfismatinu og þar erum við komin í seinni hálfleikinn ef svo má segja. Við erum einbeitt í því að skila því vel af okkur til að við get- um tekið næsta skref. Ef allt geng- ur að óskum þá er von á fyrstu flökum seinni hluta árs 2022.“ Áformað er að sjó verði dælt úr berginu og upp í eldiskör fyrir- tækisins. Til að koma í veg fyrir slysasleppingar frá stöðinni verða settar upp gildrur, ásamt síunar- útbúnaði á útrennsli, til að aðskilja úrgang frá eldisvökvanum. Hluti úrgangsins á þannig ekki að fara í sjóinn, heldur í aðra framleiðslu, til að mynda á áburði. Einnig eru til skoðunar nokkrir áhugaverðir möguleikar sem eru í þróun í greininni er varða afskurð og úrgang, til dæmis framleiðsla líf- ræns úrgangs og orku. Horfa líka til bleikjueldis Ekki verður aðeins alinn lax í eld- inu heldur hugsanlega einnig bleikja að sögn Ingólfs. „Það er óráðið hvernig við munum skipta framleiðslunni, það er hvort hún verði til helminga bleikja og lax eða með öðrum hætti. Okkar mat er það að markaðsþróun fyrir bleikj- una þurfi ef til vill meiri tíma. Þess vegna væri kannski skynsamlegra að hafa stærri hluta framleiðsl- unnar á laxi, en á sama tíma væri spennandi að taka þátt í vöruþróun fyrir bleikjuna, þó ekki væri nema að litlu leyti,“ segir hann. „Helsta áskorunin fyrir þá sem eru í framleiðslu bleikju er sú að búa til vitund um notkun bleikj- unnar sem áhugaverðs valkostar í eldamennsku. Til þess þarf hún að vera spennandi og neytandinn, sem hugsanlega þekkir ekki hvað bleikja er sem matvara, þarf fræðslu um möguleikana sem eru fyrir hendi þegar hann setur saman matarkörfuna. Vöruþróunin næstu árin þarf að vera markviss og ég held að óskynsamlegt væri núna að hlaupa bara af stað og framleiða eingöngu bleikju. En óneitanlega erum við spennt fyrir henni.“ Jákvæður og mikill vöxtur Ingólfur segir sveitarfélagið vera að breytast mjög hratt. „Ölfus hefur verið í miklum vexti og það er jákvætt fyrir alla. Við er- um bara einn hluti af þessari heild- arþróun og það gætu vel skapast samlegðaráhrif á milli þeirra fyrir- tækja sem þarna hyggjast koma sér upp aðstöðu. Að mínu mati er Þorlákshöfn í góðri stöðu til stækk- unar og mun þannig komast betur á kortið. Þetta svæði allt saman fyrir austan er að verða sífellt meira eins og eitt samfellt svæði, það er Þor- lákshöfn, Hveragerði, Selfoss, Eyrarbakki og Stokkseyri.“ Landeldi vinnur náið með sveit- arfélaginu og Skipulagsstofnun til að ná að vinda verkefninu fram. „Það gengur mjög vel núna og við erum ánægð með samstarfið við Skipulagsstofnun. Þessi vinna er á nokkuð góðri leið í dag.“ Sterk heildarsýn hjá Ölfusi Að sögn Ingólfs er það einkennandi fyrir sveitarfélagið hversu sterk heildarsýnin sé hjá sveitar- stjórninni um hvert förinni sé heit- ið. „Bæði hvað varðar atvinnulífið og búsetuskilyrðin. Ef maður skoð- ar áform bæjaryfirvalda næstu ár þá er ljóst að það er ofboðslegur fjöldi tækifæra í Þorlákshöfn. Ég hugsa að í náinni framtíð verði Þor- lákshöfn mjög öflugt atvinnusvæði. Við erum ekki eina fyrirtækið sem stendur þarna í uppbyggingu og svo má ekki gleyma því hversu stórt og auðugt sveitarfélagið Ölfus er í raun og veru,“ segir hann. „Móðurfélag Landeldis á töluvert land í Ölfusi, nær Hveragerði og undir Kömbunum, þar sem áform eru uppi um byggingu seiðaeldis- stöðvar. Þar er mikið af heitu vatni sem skiptir okkur líka miklu máli.“ Í fyrsta áfanga hyggst Landeldi koma upp 2.500 tonna framleiðslu en sótt hefur verið um leyfi fyrir samtals 5.000 tonna ársframleiðslu af fullvaxta laxi. Stefnt hefur verið á að eldið geti myndað um fimmtíu störf í sveitarfélaginu og um 25 önnur í tengdum greinum. Eldi á landi vekur athygli „Fimm þúsund tonna framleiðsla er þó ekki endilega mjög mikil, þegar litið er til þeirra möguleika sem eru til staðar,“ segir Ingólfur og bendir á að á svæðinu sem áður var fyr- irhugað undir framleiðsluna hefði fimm þúsund tonna framleiðsla ef- laust fullnýtt möguleika þess svæðis. „Við horfum þess vegna til stækkunar þegar fram líða stundir en einmitt núna einbeitum við okk- ur að því að koma þessum fyrsta áfanga á fót.“ Sífellda athygli vekja þau áform að hafa eldið á landi en ekki í sjó, að sögn Ingólfs. „Við ákváðum að staðsetja okkur á þessum væng geirans en erum meðvitaðir um öll þau fyrirtæki sem standa í fiskeldi á Íslandi. Nýja svæðið býður upp á meiri möguleika til að auka framleiðsluna. Landeldi semur um stærra svæði í Ölfusi Ingólfur Snorrason, forsvarsmaður og einn eigenda Landeldis ehf., og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, hafa skrifað undir nýjan leigusamning sem kveður á um úthlutun þriggja lóða við götuna Laxabraut í sveitarfélaginu. Þar hyggst fyrirtækið koma upp einu stærsta landeldi laxfiska á Íslandi. Ingólfur Snorrason, forsvarsmaður Landeldis, og Elliði Vignisson bæjarstjóri. Flutningaskipið Mykines í höfninni í Þorlákshöfn. Elliði bæjarstjóri segir að í bænum sé vaxandi útflutningshöfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.