Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Í samtali við 200 mílur segir hann gesti af öllu Austurlandi streyma í fjörðinn þessa helgi til að njóta þess sem þar er boðið upp á. „Það eru ef til vill helst siglingarnar og síðan ballið sem dregur að, en það er af nógu öðru að taka,“ segir Kristinn, en skipin Guðrún Þorkelsdóttir og Aðalsteinn Jónsson sigla með þá sem vilja um fjörðinn frá klukkan 13 til 14 í dag, laugardag. Hann segir hátíðarhöldin síst minnka með árunum, enda sé sjávarútvegur enn mjög mikilvægur sveitarfélaginu og íbúum þess. „Við erum alltaf sami hópurinn sem stendur að þessu og Eskja stendur þétt við bakið á okkur. Þetta er allt unnið í sjálfboðavinnu og við þrjóskumst við að halda þessu áfram, við megum ekki missa þetta niður. Enda snýst þetta líka um að hafa gott líf í bænum.“ Allir koma á ballið á Eskifirði „Það koma allir á ball á Eskifirði aðfara- nótt sjómannadagsins. Það er bara þannig, þetta er stærsta ball ársins,“ segir Kristinn Þór Jónasson, formaður sjómannadagsráðs Eskifjarðar. Hátíðarhöldin minnka síst með árunum, segir Kristinn Þór Jónasson, formaður sjómannadagsráðs Eskifjarðar. Sundlaugarpartí var í Sundlaug Eskifjarðar í gærkvöldi og létu sundlaugargestir sér ekki leiðast í lauginni. Dagskrá hefst á Eskjutúninu klukkan 14.30 þar sem m.a. verður reiptog, mennskt fótboltaspil og Nerf-stríð fyrir börnin. Á fimmtudaginn leyfði Siglingaklúbbur Austurlands gestum að prófa seglbáta og kajaka í fjörunni við Mjóeyri. Hátíðarhöldin í Fjarðabyggð hófust raunar á miðvikudag, þegar haldnir voru tónleikar til heiðurs söngkon- unni Arethu Franklin. Á fimmtu- daginn leyfði Siglingaklúbbur Austurlands gestum að prófa segl- báta og kajaka í fjörunni við Mjó- eyri. Björgunarsveitirnar Brimrún frá Eskifirði og Ársól frá Reyðar- firði buðu upp á ferðir um fjörðinn í björgunarbátum og þar á eftir bauð Eskja upp á grillaða ham- borgara. Sýna frá fiskveiðum Færeyinga Fyrirtækin Egersund Ísland og Lax- ar héldu utan um hátíðardagskrá í gær, þar sem boðið var upp á sýn- ingarferðir um laxeldiskvíar Laxa, siglt út í bátunum Hlín og Sögu og viðstöddum leyft að fylgjast með fóðrun. Fyrir utan húsnæði Egersunds var í boði grillaður lax, pylsur og hoppukastalar, en einnig gafst færi á skoðunarferð um starfsstöð fyrirtækisins. Síðdegis í gær var opnuð ljósmyndasýning í Rand- úlffssjóhúsi um fiskveiðar Fær- eyinga við Ísland og um kvöldið var haldin sundlaugarteiti í Sundlaug Eskifjarðar. Söngvarinn Einar Ágúst hélt svo uppi fjörinu fram eftir nóttu á kaffihúsinu Tindinum. Dagskrá á Eskjutúni í dag Í dag hefst dagskráin á dorg- veiðikeppni á Sæbergs- og Rand- úlffsbryggjunum klukkan 11, áður en haldið er í siglingar um borð í skipunum Guðrúnu Þorkelsdóttur og Aðalsteini Jónssyni klukkan 13, en á sama tíma opnar Sjóminja- safn Eskifjarðar dyr sínar. Dagskrá hefst á Eskjutúninu klukkan 14.30, eða um leið og skipin koma aftur í land. Fimm- þrautarkeppni verður þar fyrir ár- ganga, fyrirtæki, áhafnir eða hópa, mennskt fótboltaspil, reiptog og fleira. Svokallað nerf-stríð er þá einnig í boði fyrir börnin. Frá klukkan 14 til 16 stendur yfir bílasýning þar sem sjá má marga flottustu bíla Austurlands, gamla sem nýja, en klukkan 16 keyra bíl- arnir í gegnum bæinn, á Mjóeyri og til baka. Klukkan 17.30 hefjast tónleikar undir yfirskriftinni „Heima í stofu“, á bílastæðinu hjá Fossbergi inni í dal. Andri Bergmann heldur þar hita á viðstöddum með gítar í hönd. Loks er komið að sjómanna- dagsballinu klukkan 23 og stendur það yfir til klukkan þrjú í nótt. Heiðra sjómann klukkan tólf Klukkan ellefu í fyrramálið hefst sérstök sjómannamessa í Eski- fjarðarkirkju og klukkutíma síðar verður athöfn við minnisvarðann þar sem sjómaður verður sömu- leiðis heiðraður. Sjóminjasafnið opnar aftur dyr sínar frá klukkan 13 til 17 og áframhaldandi fjör verður á Eskjut- úni. Slysavarnafélagið býður kaffi- veitingar í Valhöll í boði Eskju frá kl. 14.30 til 17, þegar hátíðinni verður að lokum slitið. Tvö skip sigla um fjörðinn með gesti Betra er að læra siglingahandtökin áður en lagt er af stað til sjós í firðinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.