Morgunblaðið - 01.06.2019, Side 52
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
F
élagið Snarfari var stofnað
árið 1975 og hefur um 340
félaga. Hafa þeir aldrei
verið fleiri að sögn Kolvið-
ar Helgasonar, formanns
félagsins, sem hefur verið formaður
þess í tvö ár og viðloðandi smá-
bátagreinina í um 25 ár. Að sögn
Kolviðar eru félagar í Snarfara
bæði sportbáta- og skútueigendur
en svo eru einnig trillueigendur
með aðstöðu við höfnina.
„Yngra fólk er
dálítið að sækja í
þetta núna á
meðan þessi
gamli kjarni sem
kom að stofnun
félagsins er
smátt og smátt
að hverfa frá
þessu. Það er að
koma töluvert af
nýju og yngra
fólki inn hjá okk-
ur á hverju ári,“ segir Kolviður, en
ekki er gert skilyrði um að eiga bát
til þess að vera meðlimur.
Fljótandi sumarbústaðir
Smábátahöfnin er 200 báta höfn og
nokkur ásókn er í stæði við höfnina
en að sögn Kolviðar stendur til að
stækka hana.
„Við erum nýbúin að undirrita
samkomulag við Reykjavíkurborg
um aðstöðu hérna til næstu 50 ára
og um stækkun á höfninni um 30%.
Þetta er að komast inn í aðal-
skipulagið og þarna kemur höfnin
til með að vera,“ segir Kolviður,
sem bindur vonir við að fram-
kvæmdir geti hafist næsta vetur.
„Það er mikil þörf á þessu. Það
er mikil ásókn og alltaf biðröð eftir
stæðum. Það er í reglum félagsins
að ef menn eru ekki að nota stæðin
sín – það kemur alltaf fyrir að
menn hvíla sig í eitt ár eða fara
með bátana út á land – þá getum
við sett þá sem eru nýir inn í stæð-
in á meðan,“ segir Kolviður.
Mikið er um sportfiskirí hjá með-
limum að sögn Kolviðar og svo er
einnig vinsælt að fara í stutt ferða-
lög.
„Við erum með aðstöðu úti í
Þerney sem er mikið notuð og
einnig í Hvammsvík. Menn fara
þangað mikið um helgar og gista í
bátunum. Margir hverjir eru bát-
arnir orðnir aðeins stærri í smíð-
unum og 10-15 metra langir. Þetta
er bara orðið eins og sumarbú-
staður á floti,“ segir Kolviður.
„Annars eru menn að dudda í
bátunum stöðugt, á hverjum ein-
asta degi yfir vetrartímann. Við er-
um með ágætis aðstöðu til þess og
svo er ansi mikið líf í félagsheim-
ilinu,“ segir Kolviður.
–En þorir fólk út á sjó í hvaða
veðri sem er?
„Fólk er ekkert að fara nema
það sé gott veður. Það er ekkert
gaman að þessu nema svo sé. Það
þarf svo sem ekkert að vera sól –
bara að það sé ekki mjög hvasst,“
segir Kolviður.
Eins og fyrr segir verður blásið
til veisluhalda í dag og ýmiss konar
húllumhæ verður í boði. Að sögn
Kolviðar hefur félagið ávallt verið
með svokallaða sjósetningarhátið á
hverju ári og kaffisamsæti á sjó-
mannadaginn. Nú er hins vegar bú-
ið að slá þessum viðburðum saman í
einn en áður fyrr var hátíðin haldin
í byrjun maí þegar allra veðra var
von. Í dag gefst meðal annars tæki-
færi til þess að fara í smá bunu
með svokölluðum rib-bátum, sem
eru hraðskreiðir slöngubátar og þá
verður einnig keppt í róðrarkeppni
á sundunum og í reiptogi á kajak.
Svo verða að sjálfsögðu leiktæki
fyrir krakkana.
„Við vorum að taka við kapp-
róðrarbátum Sjómannadagsráðs.
Þeir voru alltaf með kappróðrar-
báta og kepptu í kappróðri á sjó-
mannadaginn en hafa ekki gert það
undanfarin ár. Við tókum bátana
þeirra í okkar vörslu og ætlum á
laugardaginn að endurvekja kapp-
róðurinn og fá lið til þess að
keppa,“ segir Kolviður. Snarfari
hyggst einnig að sögn Kolviðar
stofna róðrarfélag og sér þar sókn-
arfæri.
„Við ætlum að fá fólk út úr lík-
amsræktarstöðvunum og út í vor-
nóttina að róa. Þarna erum við að
reyna að laða að okkur fólk sem
hefur gaman af útiveru og eins líka
áhugafólk um báta. Við ætlum að
reyna að búa til smá klúbb í kring-
um þetta og þá getur fólk verið að
dudda í bátunum yfir vetrartímann
og verið svo úti að róa á vorin. Það
verða engin inntökugjöld í þetta og
almenningur getur þarna tekið þátt
í þessu undir leiðsögn,“ segir Kol-
viður.
Um kvöldið verður síðan gilli þar
sem einn þekktasti félagi Snarfara,
tónlistarmaðurinn KK, tekur lagið
fyrir matargesti. Hann nýtur sín
vel á færeyska trilluhorninu sínu
sem ber heitið Æðruleysi. „Þetta
eru hans bestu stundir og hann
kemur hingað til þess að slaka á.
Æðruleysið er í höfninni hjá okkur.
Hann er mikill og góður félagi,“
segir Kolviður.
Úr líkamsræktarstöðvum
út í vornóttina að róa
Nóg verður um að vera hjá Snarfara, félagi smábátaeigenda, í dag og í kvöld, er vorhátíð þess fer fram.
Keppt verður í róðrarkeppni á sundunum og í reiptogi á kajak og þá býðst gestum einnig að fara í eina
bunu á slöngubáti. Tónlistarmaðurinn og Snarfarafélaginn KK tekur svo lagið fyrir gesti um kvöldið.
Morgunblaðið/Eggert
Smábátahöfnin við Naustavog mun
stækka um 30% að sögn Kolviðs
Helgasonar, formanns Snarfara. 200
bátar geta legið við bryggju í dag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KK er bátaáhugamaður
og félagi í Snarfara.
Kolviður
Helgason
52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019