Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Blaðsíða 2
Hvað er Öll brögð möguleg? Öll brögð möguleg er listasýning í Kling og Bang. Þau hringdu í okkur, alla sem eru að sýna og báðu okkur um að sýna allskonar. Þetta er ekki ákveðinn listahópur, heldur sýningastýra þau þessu og gefa okkur alveg frjálsar hend- ur. Ég þekkti bara rétt um helminginn af þeim sem eru að sýna en ég held að allir þekkist að eitthverju leyti. Sumir eru gamlir skólafélagar eða hafa sýnt saman áður. Sýningin byrjar áttunda júní og verður áfram í sumar, í tæplega sex vikur. Þetta er sumarsýningin, þannig að hún verður í smá tíma. Hverjir fleiri taka þátt í sýningunni? Almar Atlason, Indriði Arnar Ingólfsson, Petra Hjartar- dóttir, Sigrún Sveinsdóttir, Ieva Grigelionyté og Svanhildur Halla Haraldsdóttir. Við hverju má fólk búast á sýningunni? Ég held að þetta verði svolítið létt, hún Hekla dögg, lista- kona og prófessor í LHÍ, sagði að þetta minnti sig svolítið á eitthverskonar spa að koma þangað inn, því þetta er svolítið þægileg og ekki beint svona krefjandi, þung stranglínulist. Ert þú með eitthvað fleira í pípunum í sumar? Já, ég er að fara að spila á hátíð í Berlín með hljómsveitinni Russian Girls. Ég vissi ekki að fólk ætti að plana sumarfríið sitt almennt, en svo ætla ég bara að reyna að vera dugleg- ur. Það er sexí að vera duglegur. Morgunblaðið/Hari GYLFI FREELAND SIGURÐSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Engin krefjandi stranglínulist Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019 Lífið hverfist á svo margan hátt um afstöðu. Það kom glögglega í ljós íviðtali sem Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir átti við Má Gunn-arsson í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 á dögunum. Már, sem er blindur, hefur ekki látið fötlun sína koma í veg fyrir að hann næði mark- miðum sínum í lífinu og léti drauma sína rætast. Þrátt fyrir ungan aldur, hann er aðeins nítján ára, hefur Már náð framúrskarandi árangri í sundi og er leiftrandi músíkalskur; leikur á píanó, syngur og semur lög. Lífsgleðin og jákvæðnin skinu af þessum unga manni í viðtalinu og hann er augljóslega ekki í minnsta vafa um að honum standi allar dyr opnar; hindranir séu aðeins til þess fallnar að ryðja þeim úr vegi. Frábær skilaboð til okkar hinna, hvort sem við erum blind eða alsjáandi. Samhljómur er með afstöðu Más og magnaðs manns sem ég tók viðtal við seint á síðasta ári, Valdimars Sverrissonar ljósmyndara. Hann missti sjónina fyrir nokkrum árum í kjölfar heilaaðgerðar en í stað þess að „leggjast í volæði“, eins og hann orðaði það, ákvað Valdimar að sjá tækifærin í myrkrinu. Hann er far- inn að gera allt mögulegt sem hann þorði ekki að gera áður; eins og að syngja opinberlega og vera með uppistand. Það reynist Valdimari miklu auðveldara í dag enda þarf hann ekki að hafa áhyggjur af áhorfendum – hann sér þá ekki. Og leitun er að meiri húmorista. Þannig var Valdimar ekki fyrr búinn að missa sjónina en hann hringdi á ritstjórnarskrifstofu Séð & heyrt og spurði hvort hann ætti ekki rétt á 50% afslætti af blaðinu. Annar flugbeittur blindur húmoristi er Arnþór Helgason sem starfaði sem blaðamaður hér á Sunnudagsblaði Morgunblaðsins fyrir um áratug. Haldi menn að það sé flókið fyrir blinda að skrifa í blöðin er það mikill misskiln- ingur; Arnþór var ekki búinn að vera hérna nema í nokkrar vikur þegar hann kunni orðið betur á ritstjórnarkerfið en ég. Mjög auðvelt er að gleyma því að Arnþór er blindur og í eitt skiptið spurði hávönduð samstarfskona okkar hann út í konu sem hann hafði tekið viðtal við og hún taldi sig þekkja. „Er hún ekki örugglega rauðhærð?“ spurði blaða- konan. „Ja,“ svaraði Arnþór með hægð. „Ég tók nú ekkert eftir því!“ Svo var það þegar Séð & heyrt hafði viðtal við Arnþór og ljósmyndari var sendur hingað upp í Hádegismóa. Honum þótti heldur klént að taka myndina við skrifborðið og bað Arnþór að standa upp, rölta út að glugganum og „horfa út á vatnið“, þ.e. Rauðavatn. „Nú, en skemmtilegt,“ svaraði Arnþór með sömu hægð og áður. „Ég hafði ekki hugmynd um að það væri vatn þarna!“ Er vatn þarna? Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Er hún ekki örugglegarauðhærð?“ spurðiblaðakonan. „Ja,“ svaraðiArnþór með hægð. „Ég tók nú ekkert eftir því!“ Helga Ósk Hreinsdóttir Ég ætla að lesa Sumareldhús Flóru eftir Jenny Colgan og Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah. SPURNING DAGSINS Hvað ætlar þú að lesa í sumar? Felix Lummer Ég ætla að lesa margar námsbækur. Ég er í doktorsnámi og hef engan tíma fyrir yndislestur. Oddný Björg Stefánsdóttir Fréttablaðið. Og einhverjar saka- málasögur líka, líklega Yrsu eða Stefán Mána. Aron Franklín Jónsson Ég er ekki alveg búinn að ákveða mig, en það er um margt að velja. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Samsýningin Öll brögð möguleg byrjar 8. júní í Kling og Bang í Marshallhúsinu og stendur yfir til 4. ágúst. Lokað er á mánudögum og þriðjudögum. Aðgangur er ókeypis. Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.