Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Side 6
Joshua virtist heillum horfinn þegar dómarinn ákvað að veifa bardagann af. AFP HEIMURINN 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019 Mike Tyson var á hátindi ferils síns árið 1990. Hann hafði ekki enn þurft að lúta í lægra haldi fyrir öðrum manni í boxhringnum og margir hræddust þennan högg- þunga mann. Fyrir bar- daga sinn við Buster Douglas virtist hann þó villast allsvakalega af leið; var meira um- hugað um partístand en æfingar. Hann missti því heimsmeist- aratitil sinn þrátt fyrir að margir teldu óhugs- andi að Douglas myndi veita honum einhverja keppni. Tyson náði aldrei sama dampi eftir þetta og varð þekktari fyrir annað og verra en bardagalistir í seinni tíð. Margir sjá eflaust líkindi með uppgangi Tysons og Joshuas en báðir komust ungir í kast við lögin og tóku m.a. þátt í götu- slagsmálum. Varast verður þó þennan samanburð þar sem Joshua hefur náð góðu valdi á sínu lífi en slíkt var ekki í spil- unum hjá Tyson. Ólíklegt verð- ur því að teljast að ferill Joshuas fari sömu leið og ferill Tysons þótt einungis tíminn muni leiða það í ljós. MIKE TYSON VAR „BÖSTAÐUR“ Koðnaði niður eftir tap Sama hvað fólki finnst um boxog bardagaíþróttir elska alliröskubuskuævintýri. Boxarinn Andy Ruiz yngri færði okkur eitt slíkt um síðustu helgi með einum óvæntasta sigri í titilbardaga í manna minnum. Ruiz, sem settur var á bardagann aðeins mánuði fyrr, sigraði heims- meistarann breska, Anthony Josh- ua, á tæknilegu rothöggi í sjöundu lotu af tólf og „sjokkeraði“ heiminn. Gárungar vestanhafs segja þetta jafnvel óvæntustu úrslit í þungavigt- inni síðan Buster Douglas rotaði Mike Tyson, sem þá var talinn nán- ast ósigrandi, árið 1990. Fyrir bardagann var Joshua, sem um síðustu helgi barðist í fyrsta skipti í Bandaríkjunum, handhafi fjögurra heimsmeistaratitla og ósigraður í 22 bardögum sem at- vinnumaður. 21 þeirra hafði endað með rothöggi, þar af margir gegn sterkum andstæðingum. Bardaginn, sem fram fór í Madison Square Garden í New York, átti að vera ein- hvers konar útgáfupartí fyrir Josh- ua sem myndi vinna andstæðing sinn nokkuð auðveldlega og vekja um leið athygli Bandaríkjamanna. Sterkir bardagamenn á toppi þunga- vigtardeildarinnar voru svo næstir á dagskrá, þar á meðal Deontay Wild- er sem hélt eina titlinum utan greipa Joshuas. Kallaður Tundurspillir Sá sem eyðilagði partíið var Andy Ruiz yngri. Þótt enginn aumingi sé ber hann ekki með sér útlit afreks- íþróttamanns. Þónokkrum kílóum of þungur og talsvert styttri en Jos- hua gáfu margir honum ekki minnsta möguleika á sigri. Hann hafði að vísu unnið 32 af 33 bardög- um á atvinnumannsferli sínum en flestir sigrarnir voru gegn minni spámönnum, að minnsta kosti eng- inn gegn bardagamönnum í heimsk- lassa. Ruiz var til að mynda ekki á lista yfir 10 bestu bardagamenn í heimi áður en síðasta helgi gekk í garð. Hann er 29 ára Bandaríkjamaður, fæddur í Kaliforníu, en berst undir merkjum Mexíkó þar sem foreldrar hans eru fæddir þar og hann haldið tengslum við móðurlandið. Hann fékk viðurnefnið „Tundurspillir“ (e. Destroyer) sem barn þar sem hann var „var alltaf að eyðileggja hluti“, eins og Ruiz segir sjálfur frá. Hinn 1. maí síðastliðinn var ákveðið að Ruiz skyldi berjast við Joshua mánuði síðar. Slíkt telst mjög stuttur fyrirvari þegar um titil- bardaga er að ræða. Upphaflega átti Jarrel Miller að berjast við heims- meistarann en þurfti frá að hverfa þar sem hann féll á lyfjaprófi. Ruiz bauð sig fram en fáir þeirra sem lögðu leið sína til Madison Square Garden hinn 1. júní bjuggust við flugeldasýningu frá kauða. Sýndi þeim sem efuðust Og það virtist ætla að verða raunin, til að byrja með að minnsta kosti. Í þriðju lotu sló Joshua Ruiz niður og virtist aðeins tímaspursmál hvenær dómarinn stöðvaði bardagann. En öllum að óvörum sló Ruiz Joshua niður 30 sekúndum síðar og aftur áð- ur en lotan var á enda og mátti Josh- ua teljast heppinn að bardaginn var ekki stöðvaður þá. Ruiz batt að lokum enda á bardagann með því að slá Joshua tvisvar niður með stuttu millibili í sjöundu lotu sem varð til þess að dómarinn veifaði höndum og gaf til kynna að bar- daganum væri lokið. „Ég vildi sýna öllum að þeir hefðu rangt fyrir sér. Öllum sem efuðust um mig og héldu að ég myndi tapa,“ sagði Ruiz eftir bardagann. „Ég trúi varla að ég hafi látið drauma mína rætast.“ Með sigrinum varð hann sá fyrsti af mexíkóskum ættum sem kemur lúkum sínum um heimsmeist- aratitil í þungavigt í boxi. Leiðinlegir bræður Undanfarna áratugi hafa vinsældir boxíþróttarinnar, sér í lagi þunga- vigtardeildarinnar, dalað verulega. Ýmsu er um að kenna og kannski hafa áhorfendur einfaldlega misst áhugann á boxi. Ljóst er þó að leið- inlegur stíll heimsmeistaranna fyrr- verandi, bræðranna Wladimirs og Vitalis Klitschkos, sem réðu lögum og lofum innan deildarinnar frá 2006 til 2015, dró ekki marga að. Eins hafa rannsóknir á höfuðmeiðslum leitt skuggalega hlið íþróttarinnar í ljós. Að lokum getur blaðamaður ekki annað en furðað sig á þeim fjölda heimsmeistaratitla sem keppt er um og hvernig þeir sem berjast um þá eru valdir. Ýmis hnefaleika- sambönd útnefna hnefaleikakappa sem heimsmeistara og geta því margir í sama þyngdarflokki kallað sig slíkan á sama tíma. Og þeir sem nafnbótina bera geta svo að miklu leyti valið þá sem þeir mæta í bar- daga og þannig forðast þá sem lík- legir eru til að velta þeim úr sessi. Með tilkomu Joshuas, ásamt þeim Deontay Wilder, Tyson Fury og fleirum, á topp deildarinnar, virðist áhuginn vera að aukast. Gaman verður að sjá hvort sigur Tundur- spillisins sé frekara vatn á myllu deildarinnar. Sigurinn hefur að minnsta kosti sýnt hvers vegna svo margir fylgjast með boxi og öðrum bardagaíþróttum, þrátt fyrir allt það neikvæða sem um þær má segja. Eyðilagði partíið Andy Ruiz yngri kom öllum nema sjálfum sér á óvart þegar hann sigraði heimsmeistarann, Anthony Joshua, í titilbardaga í þungavigt í boxi. Úrslitin eru talin þau óvæntustu í háa herrans tíð. Böðvar Páll Áseirsson bodvarpall@mbl.is Ruiz stendur yfir Joshua eftir að hafa slegið hann niður í þriðju lotu bardagans í Madison Square Garden í New York. Fyrr í sömu lotu hafði Ruiz sjálfur legið í gólfinu en kom öllum á óvart með bylmingshöggi 30 sekúndum síðar. AFP Fáir vildu verða á vegi Tysons á sínum tíma.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.