Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Side 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019 Nú er ljóst að ríkisstjórninætlar að samþykkja mat-arinnflutningspakkann. Um er að ræða mál sem varðar stefnu Evrópusambandsins þannig að Samfylking og Viðreisn verða með stjórnarflokkunum og í ljósi sögunnar Píratar að líkindum líka. Saga málsins er sú að fyrir um áratug samþykktu Íslendingar mat- vælapakkann svokallaða sem opnar fyrir innflutning á hráu kjöti. Málið var umdeilt innan þings og utan. Niðurstaðan varð sú að til að friða andstæðinga þessa „pakka“ Evrópu- sambandsins voru settir fyrirvarar í íslensk lög sem áttu að tryggja for- ræði íslenskra stjórnvalda yfir því hvernig þessum innflutningi yrði háttað og hann takmarkaður eftir atvikum. Þessum fyrirvörum sem Alþingi setti með lögum hnekkti ESA- dómstóllinn hins vegar og voru ís- lenskir skattgreiðendur í refsiskyni þvingaðir til að greiða innflutnings- fyrirtækjum skaðabætur upp á þrjú þúsund milljónir. Enginn fjölmiðill – að því er ég best veit – hefur séð ástæðu til að fylgja þessum pen- ingum eftir niður í þá vasa þar sem þeir höfnuðu. Við svo búið var bent á að sam- kvæmt EES-samningnum væri heimilt að láta mál er varða heil- brigði vega þyngra en viðskipta- hagsmuni. Vísindamenn sem vel þekkja til bentu á að einmitt það væri rétt að gera í þessu tilviki. Var nú hvatt til þess að Íslendingar ósk- uðu eftir því á grundvelli lýðheilsu- sjónarmiða að pakkinn yrði opnaður á nýjum forsendum. Þessar nýju for- sendur hefðu verið að skýrast und- anfarin ár og þá með svo ógnvæn- legum hætti að heita mætti að menn væru að vakna upp við vondan draum. Þannig væri sýklalyfjaónæmi að breiðast út, og mætti meðal annars rekja þetta til gríðarlegrar aukn- ingar á notkun lyfja fyrir búfé. Hraðvaxandi verksmiðjubúskapur væri ein skýringin. Hér stæðu Íslendingar hins vegar vel að vígi í samanburði við aðrar þjóðir því notkun sýklalyfja væri miklu minni í landbúnaði hér en gerðist annars staðar enda sjúkdóm- ar fátíðari. Þessa sérstöðu ættum við að vernda. Nú voru góð ráð dýr í herbúðum þeirra sem telja öllu máli skipta að hvika hvergi frá ítrustu tilskipunum Evrópusambandsins. Bent var á – og það réttilega – að útlendingar kæmu hingað til lands í vaxandi mæli og Íslendingar færu utan. Í báðum tilvikum skapaðist hætta á að sýklalyfjaónæmi bærist hingað til lands. Einhver taldi að fuglar sem hér lentu eða millilentu gætu borið ein- hverja óværu og svo mætti vissulega grípa til mótvægisaðgerða, leita og skima! Nokkrir vísindamenn fóru að taka undir þessar raddir en aðrir héldu áfram að vara við og bentu á að jafn- vel þótt allt það sem nefnt væri að skapað gæti hættu kynni að vera rökrétt væri engu að síður fráleitt að veikja þá sterku stöðu sem við óneit- anlega höfum með tiltölulega sjúkdómafría matvælaframleiðslu og okkur bæri að gera allt sem í okk- ar valdi stæði til að lágmarka alla hættu. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að láta stjórnast af við- skiptahagsmunum þegar heilbrigði dýra (gleymum þeim ekki) og lýð- heilsa væru í húfi? Sú stofnun sem mest hefur rann- sakað dýrasjúkdóma á Íslandi um áratugaskeið er Tilraunastöð Há- skóla Íslands á Keldum. Þaðan hafa og borist trúverðug varúðarorð, ekki bara að undanförnu heldur allar göt- ur frá því hún var sett á laggirnar um miðja síðustu öld. Þá hefur sýkladeild Landspítalans hvergi dregið af sér í varnaðarorðum enda sú deild sjúkrahússins sem hefur þurft að glíma við sýklalyfjaónæmi og getur því talað af þekkingu og reynslu. Í ljósi alls þessa má spyrja hversu vel til fundið og smekklegt það hafi verið hjá ríkisstjórninni að halda fréttamannafund um undanhald sitt á hlaðinu á Keldum, og þá kannski einnig hjá Sjónvarpinu að sniðganga þá sérfræðinga sem helst hafa varað við innflutningi á hráu kjöti en bjóða hins vegar í beina útsendingu til að botna fyrrnefndan fréttamannafund sérfræðingi sem talað hefur máli „mótvægis“ í kjölfar undanhalds. Auglýsingastofa hefði ekki getað hannað þessa sviðsetningu betur. Auglýsingastofa hefði ekki gert betur Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Í ljósi alls þessa máspyrja hversu vel tilfundið og smekklegt þaðhafi verið hjá ríkisstjórn- inni að halda fréttamanna- fund um undanhald sitt á hlaðinu á Keldum, og þá kannski einnig hjá Sjón- varpinu að sniðganga þá sérfræðinga sem helst hafa varað við innflutningi á hráu kjöti …“ Árni Sæberg Fagnaðu áfanganum í Hörpu Veislurými af öllum stærðum og gerðum Nánar á harpa.is/veislur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.