Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019
LÍFSSTÍLL
Þegar Þórunn Þórðardóttir varí barnaskóla heima í Ögurvíkvið Ísafjarðardjúp á stríðs-
árunum þótti henni fátt skemmti-
legra en landafræði. Hún lærði nöfn
á löndum, borgum og ám af miklu
kappi og horfði björtum augum út í
hinn stóra heim; ekki síst til fjar-
lægra og framandi landa. Himalaja-
fjöllin heilluðu hana sérstaklega og
þangað dreymdi hana um að ferðast,
meðal annars til hins landlukta kon-
ungsríkis Bútans.
Á langri ævi hefur Þórunn ferðast
ótrúlega víða; fljótlegra yrði líklega
að telja upp löndin sem hún hefur
ekki komið til en hin. Það var þó
ekki fyrr en fyrir þremur árum að
langþráður draumur rættist um að
heimsækja Bútan, eða „Land
þrumuguðsins“, eins og það merkir.
Voru þá liðnir ríflega sjö áratugir
frá því að hún virti þetta smáríki
fyrst fyrir sér á landakortunum í
barnaskólanum í fásinninu fyrir
vestan.
„Ég hef farið víða um Asíu og þeg-
ar ferðaskrifstofan Vita auglýsti
hópferð til Bútans árið 2016 lét ég
mig ekki vanta á kynninguna. Dag-
inn eftir var ég búin að borga farið,“
segir Þórunn.
Ferðamenn bannaðir til 1974
Óhætt er að fullyrða að Bútan sé
ekki í alfaraleið, allra síst fyrir fólk
á norðurslóðum, og Þórunn segir
fyrirspurnum hafa rignt yfir sig,
meðal annars frá skólasystrum sín-
um úr MR, en þær hittast alltaf
einu sinni í mánuði. Hvers vegna
Bútan?
„Svarið er svo sem ekkert flókið;
ég hef alltaf haft áhuga á ólíkum
löndum, menningu og lifnaðarhátt-
um og þess vegna hef ég ferðast
mikið á fjarlægum slóðum. Bútan
fellur vel að þeim áhuga; ég held að
Íslendingar viti almennt mjög lítið
um þetta merkilega land,“ segir hún.
Lengi vel var heldur ekki sjálf-
gefið að fara til Bútans en konung-
urinn leyfði ekki ferðamenn fyrr en
árið 1974. „Í Bútan er fólk upptekn-
ara af því að rækta sjálft sig en að
hugsa um peninga og fyrir vikið datt
lengi vel ekki nokkrum manni í hug
að græða á fjöldaferðamennsku.
Þetta hefur þó aðeins breyst gegn-
um tíðina; þegar landið var opnað,
1974, fengu 200 ferðamenn að heim-
sækja landið [þetta er ekki prent-
villa, innsk. blm.] en árið 2016 voru
þeir um eitt hundrað þúsund.“
Hópurinn var á Indlandi í tvo
daga áður en haldið var til Bútans
og segir Þórunn þessi tvö lönd gjör-
ólík. „Það voru mikil viðbrigði að
koma frá Indlandi til Bútans. Fyrir
það fyrsta getur mannfjöldinn á
Indlandi verið yfirþyrmandi og svo
er allt miklu hreinna og tærara í
Bútan. Við lentum í Paro, sem er
vestasta borgin í Bútan, og þegar
þangað var komið leið mér eins og
allt hefði verið skúrað,“ segir Þór-
unn og hlær. „Loftið í Bútan er
mjög tært og þetta var eins og að
koma í annan heim,“ bætir hún við
en Paro er í 2.300 metra hæð yfir
sjávarmáli.
Lengi býr að fyrstu gerð
Að sögn Þórunnar er afskaplega fal-
legt í Bútan og stórbrotin náttúran
og landslagið heilluðu hana upp úr
skónum, ekki síst fjalllendið. „Land-
ið er skógi vaxið en við vorum mikið
fyrir ofan skógarmörk sem féll mér
vel enda ólst ég upp við berangur og
fjallendi. Ég geri mér fulla grein fyr-
ir því að við þurfum nauðsynlega á
trjágróðri að halda en það breytir
ekki því að mér finnst skógur ekkert
sérstaklega fallegur. En það er bara
mín sérviska. Lengi býr að fyrstu
gerð. Ég ætla ekki að skrökva því að
ég hafi ekki fundið fyrir loftþynning-
unni þarna uppi en ég var eigi að síð-
ur hress allan tímann og sofnaði vel
á kvöldin,“ segir Þórunn en hæst var
farið í 3.400 metra yfir sjávarmál.
Hópurinn fór vítt og breitt um
landið, meðal annars til höfuðborg-
arinnar, Timfú, en þar búa um 117
þúsund af tæplega 800 þúsund íbú-
um landsins. Þrátt fyrir fjöldann eru
engin umferðarljós í Timfú, aðeins
lögregluþjónar í kössum sem stjórna
umferðinni á fjölförnum gatnamót-
um. Það þótti Þórunni sjón að sjá.
„Ætlar þú með?“
Meðal þess sem heimsótt var í Timfú
voru útimarkaður, pappírsverk-
smiðja, handverksmiðstöð, lands-
bókasafnið, listaskólinn og þjóð-
menningarsafnið. Þá skoðaði
hópurinn fræga Búddastyttu, eina
þá stærstu sinnar tegundar, á hæð
suður af borginni. Þá var ferðast til
Bumthang og um Punakha-dalinn,
þar sem útsýnið er stórfenglegt, að
sögn Þórunnar.
Þar upplifði Þórunn nokkuð sem
hún hafði aldrei gert áður, flúðasigl-
ingu. Fararstjórinn rak upp stór
augu þegar í ljós kom að hún var
klár í þann slag, 83 ára.
„Ætlar þú með?“ spurði hann.
„Að sjálfsögðu,“ svaraði hún að
bragði. „Ég missi ekki af þessu.“
Samgöngur eru víða bágbornar í
Bútan og vegir þröngir. Hvergi sjást
stærri rútur en átján manna enda
bera vegirnir ekki stærri farartæki.
Að sögn Þórunnar var auðveldara að
fara yfir fjallgarðinn til Tíbets, en að
ferðast innanlands, áður en Kínverj-
ar tóku Tíbet yfir. Þetta hefur marg-
vísleg áhrif á mannlífið í landinu, til
að mynda talar þjóðin mörg mis-
munandi tungumál vegna þess hve
takmarkaðar samgöngur hafa verið
gegnum tíðina og sum héröð ein-
angruð. „Þetta hefur þó smám sam-
an verið að breytast en segja má að
meira hafi breyst í Bútan síðustu
fimmtíu árin en næstu fimm hundr-
uð ár þar á undan,“ segir Þórunn.
Óttast sjónvarpið mest
Ferðamenn eiga sjálfsagt einhvern
þátt í þeirri þróun en innfæddur
leiðsögumaður Þórunnar og hóps Ís-
lendinganna, Sonam Wangchuk, við-
urkenndi þó að heimamenn óttuðust
sjónvarpið meira en ferðamennina –
áhrif þess á samfélagið væru víðtæk-
ari. Þess má geta að sjónvarp var
bannað í Bútan allt til ársins 1999.
„Ég kveikti einu sinni á sjónvarpinu
meðan ég var þarna og þá var Bol-
lywood-mynd í gangi. Ég fann ekki
mikið fyrir vestrænum áhrifum en
sá þó nokkra unglinga í gallabux-
um,“ segir Þórunn. „Annars læðast
þessi áhrif inn með nýjum straum-
um; það þekkjum við Íslendingar
mjög vel enda breyttist landið mikið
þegar herinn kom. Neyslumenn-
ingin er á uppleið í Bútan, eins og
víðar, og þess utan hafa þeir áhyggj-
ur af því hvað þeir eru háðir Indverj-
um um margt. Bútanar selja Ind-
verjum rafmagn og núna eru þeir
síðarnefndu að þrýsta á um nýja
virkjun til að útvega meira rafmagn.
Það er umdeilt enda búa um 80%
landsmanna í sveit og unna nátt-
úrunni. Bútanar óttast að verða of
fjárhagslega háðir Indverjum eins
og annað konungsríki, Sikkim, sem
varð á endanum fylki innan Indlands
árið 1975.“
Annars eru Bútanar mjög íhalds-
samir, að sögn Þórunnar. Það sést
Þórunn Þórðardóttir loksins komin til Bútans og með Himalajafjöllin í baksýn.
Lögregluþjónn í kassa stjórnar umferðinni í Timfú af röggsemi.
Í landi þrumuguðsins
Þórunn Þórðardóttir hefur ferðast ótrúlega víða um dagana og lætur
aldurinn ekki trufla sig, orðin 86 ára, enda engin ástæða til. Hún hefur sér-
stakt dálæti á Himalajafjöllunum og lét fyrir þremur árum æskudraum sinn
rætast og heimsótti konungsríkið Bútan. Og féll í stafi yfir landi og þjóð.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Tveir ungir munkar sem urðu á vegi Þórunnar. Bútanar aðhyllast búddisma.
Leiðsögumaðurinn, Sonam Wangchuk, í þjóðbúningi Bútans.
Minjagripir til sölu í Punakha-dalnum. Þórunn segir Bútana elskulegt fólk.
Þórunn hefur ekki í annan tíma klifið fjall á hestbaki. Það var ógleymanlegt.