Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Blaðsíða 19
9.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 meðal annars á klæðaburði en allir opinberir starfsmenn þurfa að klæð- ast þjóðbúningi í vinnunni. „Þetta fólk er mjög stolt af uppruna sínum og leggur mikla áherslu á að við- halda þjóðmenningunni.“ Þórunn segir Bútana afskaplega elskulegt fólk og gestrisið. Sjálf hef- ur hún verið í Tíbet og segir margt líkt með Tíbetum og Bútönum, ekki síst útlitið. „Bútanar eru mjög aðlað- andi þjóð sem tekur vel á móti ferða- mönnum. Þeir tala upp til hópa prýðilega ensku og það var mjög ánægjulegt að spjalla við þá. Þeir segjast vera hamingjusamasta þjóð í Asíu og því get ég vel trúað. Það hlýtur að skila sér að beina athygl- inni í svo ríkum mæli að sínu innra lífi og láta veraldlega hluti mæta af- gangi.“ Bútanar aðhyllast búddisma og segir Þórunn þá mjög stolta af sinni trú, án þess þó að troða henni upp á gesti. „Þeir voru mikið að snúa bænahjólum og fara með möntrur en trúin er samt alls ekki eins sýni- leg og víða annars staðar sem ég hef komið. Í því sambandi má nefna Íran, þar sem trúin getur verið mjög yfirþyrmandi. Í Bútan er þetta mun eðlilegra og í takti við annað í þjóðfélaginu. Ekki til í dæminu að það sé öfgakennt eða yf- irþyrmandi. Trúin fellur vel inn í andrúmsloftið og satt best að segja er búddisminn dálítið spennandi trúarbrögð.“ Laga góðan mat Ekki er skólaskylda í Bútan en Þór- unn segir eigi að síður 95% barna stunda nám enda leggi þjóðin mikið upp úr góðri menntun. Talið berst að matarmenningu og Þórunn segir Bútana laga mjög góð- an mat. „Ég kann svo sem ekki að skilgreina það nákvæmlega enda ekki mikil matreiðslukona,“ segir hún hlæjandi, „en mikið er um alls konar kjúklingarétti. Allar máltíð- irnar sem ég borðaði þarna voru ljómandi góðar, nema ein. Þá feng- um við fisk og hann var ekki nægi- lega góður. Það er svo sem ekki að marka mig; pabbi minn var útgerð- armaður fyrir vestan og maður fékk alltaf ferskan fisk í bernsku. Það er mun lengra á miðin í Bútan.“ Þegar allt er saman tekið var ferð- in til Bútans með þeim eftirminni- legri sem Þórunn hefur farið í. „Landið er mér ákaflega hugstætt og ég varð fyrir alls konar áhrifum meðan á dvöl minni stóð þarna sem ég get ekki komið orðum að. Ég á eftir að ferðast oft í huganum til Bútans.“ Gengið um allt Ísland Þórunn flutti fjórtán ára gömul til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum eftir að heimili þeirra í Ögurvík varð eldi að bráð. Að loknu stúdentsprófi frá MR hófst heimshornaflakk Þór- unnar, þegar hún fór til náms í Bandaríkjunum. Til að byrja með ferðaðist hún mest um Vestur- Evrópu en með tímanum fór hún að færa sig yfir í aðrar heimsálfur. Auk Bútans eru Tíbet, Búrma, Kúba, Georgía og Úsbekistan í sérstöku uppáhaldi. Hún hefur einnig komið til Kína, Úkraínu, Rússlands og Guð má vita hvaða landa. Einu sinni fór hún til Mallorca. „Ég vil alls ekki gera lítið úr sólarlandaferðum en það hentaði mér ekki. Fulllítið við að vera,“ segir hún hlæjandi. Það er ekki bara heimurinn; Þór- unn þekkir Ísland líka eins og lófann á sér. Eftir að hún missti eiginmann sinn, Hjálmtý Pétursson kaupmann, árið 1974 tók hún BA-próf í ensku frá Háskóla Íslands og gerðist í framhaldinu leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands. „Ég vann í tæp þrjátíu ár sem leiðsögumaður og kynntist landinu okkar mjög náið. Ég hef gengið um allt Ísland, nema jöklana, ég er engin skíðakona. Þetta var yndislegt starf og þvílík gæfa fyrir mig. Frá fyrstu tíð hef ég notið þess að vera með náttúrunni og láta smáatriðin í henni gleypa hugann. Ísland breytir stöðugt um svip. Við áttum okkur ekki alltaf á því hvað við eigum fallegt land. Mað- ur hvílir hugann og meðtekur svo margt úti í náttúrunni og það er svo merkilegt að oft verða hughrifin mest eftir að maður er kominn heim. Ég kynntist ekki bara landinu, held- ur ekki síður sjálfri mér í gegnum starfið; með því að vera með annað fólk.“ Miðar aldrei við sjálfa sig Þórunn er orðin 86 ára en er hvergi nærri hætt að ferðast; næsta ferða- lag verður á Kjöl í sumar. Þegar spurt er um ný lönd sem hana langar að sækja heim stendur ekki á svari: „Tatsíkistan og Kírgistan. Ég hef mikinn áhuga á löndum í austurvegi. Evrópa er ágæt en ég hef meira yndi af því að koma til landa þar sem lífið gengur allt öðruvísi fyrir sig en hér. Á ferðalögum ætti maður aldrei að miða við sjálfan sig!“ Búddalíkneskið stóra sem er á hæð suður af höfuð- borginni Timfú. Ljósmyndir/Þórunn Þórðardóttir Hópurinn skellti sér í flúðasiglingu á Mo Chu, eða Móðuránni. Það hafði Þórunn ekki upplifað áður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.