Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019 07.00 Strumparnir 07.25 Tindur 07.40 Heiða 08.05 Blíða og Blær 08.30 Mæja býfluga 08.45 Tommi og Jenni 09.10 Skoppa og Skrítla í Afr- íku 09.35 Ævintýri Tinna 10.00 Lukku láki 10.25 Ninja-skjaldbökurnar 10.50 Friends 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.00 Nágrannar 13.20 Nágrannar 13.45 Ellen’s Game of Games 14.25 Splitting Up Together 14.50 I Feel Bad 15.15 My Babies Life: Who Decides? 16.05 Fósturbörn 16.30 Jamie’s Quick and Easy Food 17.00 Atvinnumennirnir okkar 17.40 60 Minutes 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.55 Sportpakkinn 19.10 Stelpurnar 19.35 Britain’s Got Talent 20.35 GYM 21.00 Killing Eve 21.45 The Bone Collector 23.40 S.W.A.T. ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 18.00 Að Norðan 18.30 Úrval af tónlist úr Föstudagsþættinum 19.00 Eitt og annað: af bjór- framleiðslu 19.30 Þegar – Hel- ena Dejak og Sigurður Aðalsteinsson 20.00 Íslendingarsögur 1 (e) 20.30 Landsbyggðir – Eyjólfur Guðmundsson 21.00 Nágrannar á norð- urslóðum 21.30 Nágrannar á norð- urslóðum 20.00 Omega 21.00 Tónlist 20.00 Ísland og umheimur 20.30 Suður með sjó 21.00 Sæludagar í Svarfarð- ardal endurt. allan sólarhr.12.40 How I Met Your Mother 13.05 The Good Place 13.30 Superstore 13.50 Rel 14.15 Top Chef 15.05 90210 16.00 Malcolm in the Middle 16.20 Everybody Loves Ray- mond 16.45 The King of Queens 17.05 How I Met Your Mother 17.30 Amazing Hotels: Life Beyond the Lobby 18.30 Smakk í Japan 19.05 Lambið og miðin 19.45 Speechless 20.10 Madam Secretary 21.00 Law and Order: Special Victims Unit 21.50 Yellowstone 22.35 Pose 23.35 Casino Royale 07.00 Fréttir. 07.03 Tríó. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Tónlist að morgni. 09.00 Fréttir. 09.03 Samtal. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Hall- grímskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Hertekin. 14.00 Sögur af landi. 15.00 Saga sambatónlist- arinnar. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Kirkjulistahátíð 2019: Óratorían Mysterium eftir Hafliða Hall- grímsson.. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Blóði drifin bygging- arlist. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Bók vikunnar. 20.30 Djass í íslenskum bók- menntum. 21.25 Rölt milli grafa. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Begga og Fress 07.28 Minnsti maður í heimi 07.29 Sara og Önd 07.36 Húrra fyrir Kela 07.59 Bréfabær 08.10 Tulipop 08.14 Letibjörn og læmingj- arnir 08.21 Hvolpasveitin 08.44 Alvinn og íkornarnir 08.55 Disneystundin 08.56 Nýi skólinn keisarans 09.17 Sígildar teiknimyndir 09.25 Dóta læknir 09.50 Reikningur 10.05 Sætt og gott 10.20 Menningin – samantekt 10.50 Ástralía – Ítalía 12.50 HM kvenna í fótbolta: Leiðin til Frakklands 13.20 Brasilía – Jamaíka 15.20 HM kvenna í fótbolta: Leiðin til Frakklands 15.50 England – Skotland 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Gleðin í garðinum 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Sögustaðir með Evu Maríu 20.15 Njósnir, lygar og fjöl- skyldubönd 21.25 Löwander-fjölskyldan 22.25 The Aviator 10 til 11 Þingvellir Páll Magnússon og Björt Ólafs- dóttir stýra líflegum þjóðmálaþætti í beinni útsend- ingu á K100 alla sunnudagsmorgna. 11 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifj- ar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku, spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur. 14 til 17 100% Tónlistinn Siggi Gunnars fer yfir 40 vinsælustu lög landsins. Tónlistinn er unninn upp úr gögnum frá Félagi hljómplötuframleiðanda og er eini opinberi vinsældalisti landsins.. 17 til 00 K100 tónlist Tónlistarkonan Madonna sagði í viðtali við New York Times Ma- gazine að leik- stjórinn Harvey Weinstein hafi farið yfir línuna þegar hún vann með honum. „Harvey fór yfir línur og mörk og reyndi á ótrúlega kynferðislegan hátt við mig og var ágengur þegar við unnum saman. Hann var kvæntur á þeim tíma og ég hafði alls ekki áhuga,“ sagði Madonna. Yfir 80 konur hafa sakað Weinstein um að hafa brotið gegn þeim. Hann hefur gert sam- komulag við þær konur sem höfðuðu einkamál gegn honum. Fór langt yfir mörkin Hong Kong, Melbourne. AFP. | Kínverska teiknaranum Ba-diucao hefur verið líkt viðBanksy vegna beittra póli- tískra ádeiluverka sinna þar sem iðulega er hæðst að Xi Jinping leið- toga Kína. Hann hefur einnig kallað yfir sig reiði stjórnvalda í Peking með list sinni. Badiucao kom í vik- unni fram í dagsljósið og sýndi sig opinberlega í fyrsta sinni (án þess þó að gefa upp nafn sitt) í þeirri von að það myndi vernda hann fyrir kín- verskum stjórnvöldum. Badiucao er fyrrverandi laganemi, sem varð pólitískur eftir að hafa horft á heimildamynd um Torg hins himneska friðar á herbergi á stúd- entagarði. Fjölskyldunni hótað Hann segir að hann og fjölskylda hans hafi búið við hótanir allt frá því hann neyddist til að aflýsa sýningu, sem beðið hafði verið með mikilli eft- irvæntingu í Hong Kong í fyrra. Mun kínverska lögreglan hafa sagt ættingjum hans að það yrði „engin miskunn“ hætti hann ekki við. „Ég held að kínverski Komm- únistaflokkurinn gleymi aldrei eða fyrirgefi óvinum sínum, sem í þessu tilfelli er ég,“ sagði hann við AFP í Melbourne í Ástralíu þar sem hann nú býr. „Eina leiðin til að sigrast á slíkri ógn er að afhjúpa allt með opn- um hætti … þannig að allir í heim- inum geti séð hvað er á seyði í Kína.“ Badiucao er 33 ára og ólst upp í Sjanghæ. Hann hugðist verða lög- fræðingur, en kvöld eitt var hann ásamt þremur félögum sínum í laga- náminu við Austur-Kína-háskóla í Sjanghæ að horfa á taívanska bíó- mynd, sem þeir höfðu halað niður. Án þess að þeir vissu hafði skrá með heimildarmyndinni „Hlið hins him- neska friðar“, sem fjallar um atlög- una gegn mótmælendum á Torgi hins himneska friðar 1989, verið skeytt inn í myndina. Félagarnir gátu ekki slitið sig frá því sem fyrir augu bar. Enginn þeirra hafði heyrt um mótmælin og blóðug endalok þeirra þökk sé ritskoðun í landinu og „eldveggnum mikla“. Vissu ekki af blóðbaðinu „Þetta voru þrír klukkutímar, allir sátu bara og það var niðamyrkur í herberginu, við stóðum ekki einu sinni upp til að kveikja ljósið,“ sagði Badiucao. „Ekki einn einasti kennari í laganáminu hafði talað um þetta,“ sagði hann. Vitneskjan um blóðbaðið og minn- ingin um afa hans, sem dó í fanga- búðum á sjötta áratugnum í herferð- inni gegn menntamönnum, urðu til þess að hann flutti til Ástralíu og fór að deila á pólitíska kúgun. Með vinnustofu í gámi Þegar tíðindamaður AFP heimsótti hann í vinnustofu hans í Melbourne var ljóst að hann var tilbúinn að flytja með skömmum fyrirvara. Að- staða hans er í skipagámi. Þar inni voru verk dæmigerð fyrir Badiucao, mynd af andófslistamanninum Ai Weiwei og þriggja mynda röð byggð á ljósmyndinni af Alan Kurdi, ung- um sýrlenskum flóttamanni, sem drukknaði þegar hann var að reyna að komast til Evrópu. Fyrsta alþjóðlega sýningin hans og jafnframt sú fyrsta á kínverskri grund átti að vera í Hong Kong í nóvember í fyrra. Hún hafði verið kynnt sem „svört kómedía fyrir Hong Kong, Kína og heiminn“ og hafði listamaðurinn á laun notað vef- inn til að fela verksmiðjum á meg- inlandi Kína að smíða verk sín. Þremur dögum fyrir opnun hafði fjölskylda Badiucaos samband við hann og sagði að lögregla hefði fært ættingja hans í Kína til yfirheyrslu. Þeirri aðferð hefur iðulega verið beitt til að þagga niður í andófs- mönnum erlendis úr röðum Uighura. „Fjölskylda mín í Kína hafði ekki hugmynd um hvað ég var að gera,“ sagði hann. „Þeim var sagt að ég væri með sýningu í Hong Kong og skilaboðin frá lögreglu voru nokkuð skýr: þeir vildu að ég hætti við allt.“ Kínversk stjórnvöld svöruðu ekki fyrirspurnum AFP um málið. Badiucao fannst hins vegar lítil ástæða til að fela lengur hver hann væri og ákvað að hætta að koma fram með grímu fyrir andlitinu. Honum þótti 4. júní þegar 30 ár voru liðin frá því að kínversk stjórnvöld létu til skarar skríða gegn mótmæl- endum á Torgi hins himneska friðar viðeigandi til að koma grímulaus fram, það væri ein leið „til að minn- ast hugrekkis þeirra“ enda hefðu þeir gefið honum kjark og inn- blástur. Kínverski listamaðurinn Badiucao við eitt verka sinna, „Ljós“, í vinnustofu sinni í gámi í Ástralíu. Verk Badiucaos eru kínverskum stórnvöldum þyrnir í augum. AFP LISTAMAÐURINN BADIUCAO FELLIR GRÍMUNA Þyrnir í augum Kínastjórnar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.